Þjóðviljinn - 20.10.1983, Side 9
Fimmtudagur 20. október 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Roj Friberg (t.v.) undir myndum sínum ásamt nokkrum sýningarnefndarmönnum (Ijósm. eik).
Til heiðurs pappírniim
FÍMopnaöimikla
haustsýningu að Kjarvals-
stöðum um helgina- þar
eru sýnd um 180 verk eftir
44 höfunda. Og sýning-
unni varfrá upphafi settur
ákveðinn rammi - sá, að
hún er takmörkuð við verk
sem unnin eru á pappír og
úr pappír. Úr þessum sak-
leysislega fjölmiðli, ef svo
mætti segja, sem umber
allt og tekur við öllu, en er
ekki allur þar sem hann er
séður.
Og greinir frá sögu hans í
sýningarskrá allar götur frá
því að Kínverjar tóku upp úr
því að tæta í pappír hamp,
tuskur og ónýt fiskinet í by r j -
un annarar aldar eftir Krist.
Par má lesa þá visku líka,
sem var mikið grundvallar-
atriði hjá Pressaranum í
Dúfnaveislunni: alltvelturá
því að hæfilega mikið af
réttu vatni komi til skjalanna
réttstundis.
Roj Friberg heitir gestur
sýningarinnar og nýtur
allgóðs rúms fyrir enda sal-
arins - hann er maður hug-
vitssamur við að finna púðr-
ið í ófögrum hlutum. Annars
er sýningin stærri og fjölb-
reytilegri en frá verði sagt.
Stúderingar í íhugun Si-
gvalda Hjálmarssonar (Hö-
fundur Snorri Sveinn) eru
ekki langt frá skýrt afmörku-
ðum og litsterkum flötum
TryggvaÓIafssonar. Sam-
klipp úr New York og
Reykjavík standa ekki langt
frá fígúrum og maskineríi
sem ætlar út úr veggnum og
út úr rammanum. Strangar
og næstum einlita myndir
eru í nábýli við rauðar og
bláar og grænar spurningar
um friðinn, er hann úti? Er
hann hvergi?
Guðfræðingur hvíslaði því
að blaðamanni við opnun,
að hér væri á ferð mikil ólga
ogmikilsköpunargleði. Og
láti guð gottávita.
áb.
Rauðar, blóar og grænar spurningar: Sigrún Eldjárn „Er hvergi — figúrur og maskínerí sem ætlar út úr veggnum og út úr rammanum (Sigurður
friður?“ Örlygsson - Hjól).
Eitt af portrettuin Snorra Sveins Friðrikssonar.
FIM-
sýningin
á
Kjarvals-
stöðum