Þjóðviljinn - 01.11.1983, Page 3
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 1. nóvember 1983
Þriðjudagur 1. nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
íþróttir yiðir Sigurðsson
ibróttir
Umsjón:
Viöir Sigurðsson
Jón Kr. Gíslason „leggur“ knöttinn í körfu Haukanna eftir eitt af sínum stórskemmtilegu gegnumbrotum. Mynd: -eik.
Einar Bollason hressti uppá Haukaliðið:_______________________
Þorsteinn, Jón og Pálm-
ar hver öðrum betri
Það er satt og rétt að úrvalsdeildar-
lið Keflavíkinga í körfuknattleik
byggist á fáeinum máttarstólpum en
ef þessir stólpar leika áfram í vetur
eirís og þeir gerðu gegn Haukum í
Hafnarfirði í fyrrakvöld er lið ÍBK til
alls líklegt í vetur. Þorsteinn Bjarna-
son og Jón Kr. Gíslason voru ger-
samlega óviðráðanlegir og lögðu
grunninn að góðum sigri ÍBK, 81-74.
Ekki má heldur gleyma Pálmari Sig-
urðssyni, bakverðinum skemmtilega í
Haukum. Hann og Jón Kr., sem líklega
eru bestu bakverðir landsins í dag, háðu
mikið einvígi í síðari hálfleiknum, Pálm-
ar skoraði þá 22 stig en Jón 16. Það var
skemmtilegra að fylgjast með þessum
tveimur í fyrrakvöld en flestum útlend-
ingum sem hér hafa leikið.
Haukarnir höfðu undirtökin allan
fyrri hálfleikinn og komust snemma í
12-4. ÍBK náði að jafna fyrst 21-21 en
þegar staðan var 23-23 brá Einar Bolla-
son, fyrrum landsliðsmiðherji sem þjálf-
ar Haukana, sér inn á og skoraði 7 stig í
röð á skömmum tíma. Þar af var eitt
hinna margfrægu „húkkskota“ og áhor-
fendur í Hafnarfirði kunnu vel að meta
þetta framlag Einars. Haukar komust 9
stigum yfir á þessum kafla en ÍBK náði
að jafna fyrir hálfleik, 40-40.
ÍBK komst síðan í fyrsta skipti yfir í
byrjun síðari hálfleiks og Jón Kr. kom
liðinu nánast einn tíu stigum yfir. ÍBK
náði síðan 14 stiga forskoti, 66-52, og
sigurinn virtist í höfn. Ekki alveg,
Haukarnir börðust grimmilega og
minnkuðu muninn niður í fjögur stig,
staðan var 72-76 þegar tvær mínútur
voru eftir en reynsluleysi á lokasprettin-
um kom í veg fyrir að þeir kæmust nær.
Þeir fengu á sig klaufavillur í vörn og
sókn, Keflvíkingar léku hins vegar af
yfirvegun og skynsemi, og þegar á
heildina er litið, var sigur þeirra fyllilega
sanngjarn.
Jón Kr. og Þorsteinn voru að sjálf-
sögðu yfirburðamenn í liði ÍBK. Þor-
steinn fór á kostum í fyrri hálfleik og
skoraði þá 19 stig, flest á sinn einstaka
máta, en Jón tók völdin eftir hlé. Þá lék
Óskar Nikulásson vel í vörn og sókn og
hefur sýnt gífurlegar framfarir frá því í
fyrra. Allir börðust vel og eiga hrós
skilið fyrir ákveðnina og sigurviljann.
Keflvíkingar þurfa ekki að hafa áhyggj-
ur af fallinu sem svo margir hafa spáð
þeim ef framhaldið verður í þessum dúr.
Pálmar var langbestur Haukanna, fór
rólega af stað en var í „Kanaham" eftir
það. Kristinn Kristinsson var óhemju
drjúgur í vörn en aðrir voru með daufara
móti. Einar Bollason hressti mjög upp á
liðið þann kafla sem hann var inná og
koma hans veitti strákunum greinilega
mikinn sálrænan styrk.
Stig ÍBK: Þorsteinn 27, Jón Kr. 25, Óskar 15,
Pétur Jónsson 6, Björn Víkingur Skúlason 4,
Hafþór Óskarsson 2 og Sigurður Ingimundar-
son 2.
Stig Hauka: Pálmar 35, Ólafur Rafnsson 8,
Hálfdán Markússon 8, Einar Bollason 7, Krist-
inn 6, Henning Henningsson 4, Reynir Krist-
jánsson 4 og Eyþór Árnason 2.
Davíð Skúlasyni og Kristbirni Al-
bertssyni fórst dómsgæslan vel og rögg-
samlega úr hendi. Kristbjörn þó ívið of
smámunasamur eins og oft áður.
-VS
Pálmar Sigurðsson skoraði 35 stig fyrir
Hauka.
Vestur-þýska knattspyrnan:
Sigurganga Diissel-
dorf heldur áfram
Atli Eðvaldsson og félagar í
Fortuna Dusseldorf komu enn á
óvart í vestur-þýsku Bundeslig-
unni í knattspyrnu á laugardag-
inn er þeir unnu stórsigur á
Stuttgart, 3-0. Öll mörkin komu í
fyrri hálfleik, Gerd Zewe, hinn 33
ára gamli fyrirliði, skoraði fyrst
og síðan bætti Gunter Thiele
tveimur við. Atli á við meiðsli að
stríða og varð af þeim sökum að
hverfa af leikvelli 30 mínútum
fyrir leikslok. Ásgeir Sigurvins-
son var besti maður Stuttgart.
Dusseldorf virðist nú til alls lík-
legt í toppbaráttu Bundeslig-
unnar.
Úrslit í V.-Þýskalandi á laugar-
daginn urðu þessi:
Bayern Múnchen-Núrnberg 4-2
Bochum-Kalserslautern 4-1
Braunschweig-Uerdlngen 1-2
Dússeldorf-Stuttgart 3-0
Köln-Frankfurt 7-0
Mannheim-Dortmund 4-1
Mönchengladbach-Hamburger.....4-0
Offenbach-Bielefeld...........2-2
Werder Bremen-Lverkusen.......2-0
Stórskellur Evrópumeistara
Hamburger kom mjög á óvart.
Borussia Mönchengladbach virðist
vera á uppleið á ný eftir mögur ár
undanfarið og mörkin skoruðu
Frank Mill, Ewald Lienen, Wilfri-
ed Hannes og Hans-Gunter Bruns.
Þá er enn allt í kalda koli hjá
Frankfurt, 7-0 tap fyrir Köln þar
sem hinn 19 ára gamli Uwe Haas
skoraði tvö markanna. Bayern átti
í vandræðum með Nurnberg en
vann loks 4-2. Klaus Augenthaler,
Karl-Heinz Rummenigge, Michael
Rummenigge og varnarmaður
Núrnberg skoruðu fyrir Bayern en
hinn gamalreyndi markaskorari
Manfred Búrgsmúller, sem er orð-
inn 34 ára, gerði bæði mörk Núrn-
berg.
Hamburger er áfram efst þrátt
fyrir skellinn með 18 stig. Bayern
og Bremen hafa 16 en Dússeldorf,
Stuttgart og Mönchengladbach
hafa 15 stig hvert. Frankfurt situr
áfram á botninum með 6 stig en
Núrnberg og Dortmund eru þar
fyrir ofan með 8 stig hvert. - VS.
Tómas G. bestur
Tómas Guðjónsson vann fremur auðveldan sigur á nafna sínum
og félaga úr KR, Tómasi Sölvasyni í úrslitaleik afmælismóts Víkings
í borðtennis á laugardaginn. Hann sigraði allar loturnar, 21-10,
21-11 og 21-7. Kristján Jónasson Víkingi varð þriðji, tapaði fyrir
Tómas Sölvasyni í hörkuleik, 11-21, 21-18, 21-19, 21-18. Tómas
Guðjónsson var hætt kominn í fyrstu umferð, lenti 2-0 undir gegn
hinum 17 ára gamla Bergi Konráðssyni úr Víkingi en knúði fram
sigur, 3-2.
Ragnhildur Sigurðardóttir, UMSB, og Asta Urbancic, Erninum,
háðu harða baráttu í meistaraflokki kvenna og náði Ragnhildjir að
sigra 23-21 og 21-18. Elísabet Ólafsdóttir úr Erninum kom nokkuð á
óvart og náði þriðja sæti. Kjartan Briem, KR, sigraði í flokki 13-15
ára og Ragnar Árnason, KR, í flokki drengja yngri en 13 ára.
- VS.
Valsmenn öðru sinni
yfir níutíu stigin
Það fór eins og búast mátti
við, Valsmenn unnu öruggan
sigur á botnliði ÍR í úrvals-
deildinni í körfuknattleik í fyrra-
kvöld. Leikurinn fór fram í Selja-
skóla og endaði með sigri Vals,
92-75, eftir 50-34 í hálfleik. Ann-
að skiptið í vetur sem lið nær 90
stigum í úrvalsdeildarleik og
Valsmenn hafa verið að verki í
bæði skiptin.
Valur náði strax yfirhöndinni en
ÍR-ingat voru ekki langt á eftir
framan af. Staðan var 22-20 á tíma-
bili en Valsmenn juku síðan for-
skotið í 40-26 og í hálfleik var stað-
an 50-34. Valsmenn bættu örlítið
við eftir hlé en um miðjan síðari
hálfleik náðu ÍR-ingar góðum
kafla, skoruðu 16 stig gegn tveimur
og staðan 74-67. Valsmenn svör-
uðu með 12 stigum í röð og sigur
þeirra var aldrei í hættu.
Valsliðið var nokkuð fyrir ofan
mótherja sína í þessum leik. Góð
breidd er í liðinu þó að varamenn-
irnir falli ekki nógu vel inní
heildina. ÍR-liðið virðist að sama
skapi vanta breidd og reynslu en
Jón Steingrímsson var stigahæstur
Valsmanna gegn ÍR.
það virðist vera orðinn vani í þeim
herbúðum að ná góðum köflum
seint í leikjum (sbr. gegn KR).
Torfi Magnússon var bestur
Valsmenna en einnig áttu þeir Jón
Steingrímsson og Kristján Ágústs-
son góðan leik. Hjá ÍR voru Ragn-
ar Torfason og Hreinn Þorkelsson
yfirburðamenn. Þeir skoruðu 43
stig samanlagt auk þess sem þeir
voru báðir grimmir í fráköstunum.
Ragnar lék sérstaklega vel í síðari
hálfleik og skoraði þá 21 stig.
Stig Vals: Jón Steingrímsson 21, Torfi
Magnússon 18, Kristján Ágústsson 15,
Leifur Gústafsson 14, Valdimar Guð-
laugsson 8, Tómas Holton 6, Einar Ólafs-
son 4, Jóhannes Magnússon 2, Helgi
Gústafsson 2 og Björn Zoega 2.
Stig ÍR: Ragnar Torfason 25, Hreinn
Þorkelsson 18, Hjörtur Oddsson 12, Jón
Jörundsson 8, Kristján Oddsson 6, Bene-
dikt Ingþórsson 4 og Kolbeinn Kristins-
son 2.
Dómarar voru Gunnar Bragi og
Jón Otti og stóðu þeir sig vel.
- Frosti.
Skoska knattspyrnan:___________
Búbbi bókaður í baráttu-
leik gegn meisturunum
Ásgeir Sigurvinsson var besti mað-
ur Stuttgart í Diisseldorf.
Motherwell, lið Jóhannesar
Eðvaldssonar, er á stöðugri
uppleið í skosku úrvalsdeildinni
í knattspyrnu og náði jafntefli,
2-2, á heimavelli gegn meistur-
um Dundee United á laugardag-
inn. David Dodds skoraði fyrir
United á 7. mínútu, Alexander
og Gahagan komu Motherwell
yfir en Dodds jafnaði, 2-2, á lok-
amínútu fyrri hálfleiks. Leikur-
inn varð afar harður í síðari hálf-
leik og þá voru sex ieikmenn
bókaðir, Jóhannes var einn
þeirra. Motherwell barðist mjög
vel og átti stigið skilið.
Celtic burstaði Hibernian 5-1 og
tveir leikmanna Hibs, Blackley og
Rae, voru reknir af leikvelli. Mur-
do McLeod skoraði þrjú marka
Celtic, David Provan og McLean
eitt hvor. Bobby Thomson skoraði
fyrir Hibs. Landsliðsmaðurinn
kornungi hjá Celtic, Paul McStay,
var borinn af leikvelli eftir að hafa
meiðst á auga.
Aberdeen komst á toppinn með
3-1 sigri í Dundee. Bobby Glennie
kom Dundee yfir en Gordon Strac-
han, Peter Weir og Doug Bell
tryggðu Aberdeen stigin.
Hearts vann St. Johnstone 2-0
og skoraði hinn efnilegi John Ro-
bertson bæði mörkin.
St. Mirren vann Rangers 3-0,
Ian Scanlon gerði eitt niarkanna,
og enn hallar undan fæti hjá Ran-
gers. Fyrir leikinn var framicvæmd-
astjórinn John Greig rekinn, eftir
20 ára feril hjá félaginu sem leik-
maður og stjóri.
Staðan í úrvalsdeildinni:
Aberdeen...........10 7 1 2 26-7 15
DundeeUnited........ 9 7 11 22-8 15
Celtic.............10 6 2 2 27-13 14
Hearts.............10 6 2 2 13-8 14
Hibernian..........10 5 0 5 15-20 10
Rangers............10 3 1 6 15-19 7
Dundee.............10 3 1 6 14-23 7
St.Mirren.......... 9 1 4 4 9-15 6
Motherwell.........10 1 4 5 8-18 6
St.Johnstone.......10 2 0 8 10-28 4
Patrick Thistle hefur 19 stig í 1.
deild, Kilmarnock og Falkirk 17.
Forfar er efst í 2. deild með 21 stig
en Queen of the South hefur 18
stig.
-VS
Örucjgt hjá Þrótti
en IS-menn í basli
Þróttarar unnu mjög öruggan sigur á nýliðum HK, 3-0, í 1. deild
karla á fyrsta leikdegi Islandsmótsins í hlaki á laUgardaginn. Hrin-
urnar enduðu 15-11, 15-6 og 15-11, en í lið HK vantaði nokkra
sterka leikmenn.
ÍS lenti í miklum vandræðum með Víking en náði að sigra eftir
rúmar lOOmínútur, 3-2. Hrinurnar enduðu 15-2,13-15,15-8,13-15
og 15-9.
Þá hófst einnig keppni í 1. deild kvenna. ÍS vann iéttan sigur á
meisturum Þróttar, 3-0 (15-3, 15-4 og 15-10), og Völsungur frá
Húsavik vann KA örugglega á Akureyri, 3-0 (15-4, 15-6 og 15-1).
Hreinn úrslitaleik-
ur í Lissabon
Portúgal á ágæta möguleika á að komast í úrslit Evrópukeppni
landsliða næsta sumar eftir 1-0 sigur á Pólverjum í Varsjá á föstu-
daginn. Carlos Manuel skoraði eina mark leiksins. Einn leikur er
eftir í 2. riðli, Portúgal og Sovétríkin eigast við í Lissabon þann 13.
nóvcmber. Sovétmenn hafa 9 stig, Portúgalir 8, þannig að þeim
sovésku dugir jafntefli til að komast áfram.
Tvö í gegn en
tvö féllu út
Tvö „íslcndingaliðanna“ komust í 16-liða úrslit belgísku bikar-
keppninnar í knattspyrnu um helgina en tvö voru slegin út.
Antwerpen sigraði Charleroi 3-1 og skoraði Pétur Pétursson eitt
markanna. Þá vann Waterschei 2. deildarlið Ilasselt 2-0. Ander-
lecht féll hins vegar út, tapaði 1-2 fyrir FC Brugge og CS Brugge fór
sömu leið, steinlá 0-3 fyrir Bevercn.
1. deild karla í körfuknattleik:_
Hástökkvararnir
hrelldu Framara!
Hástökkvararnir kunnu, Unn-
ar Vilhjálmsson og Sigurður
Matthíasson settu mikinn
skrekk í Framara í 1. deild karla í
körfuknattleik á sunnudaginn.
Þeir félagar leika með nýliðum
Laugdæla sem komu mjög á
óvart og voru nálægt sigri gegn
Fram en máttu sætta sig við tap,
69-65. í hálfleik var staðan 26-22,
Fram í hag, en leikurinn fór fram
á heimavelii Framara í Haga-
skólanum.
Unnar og Sigurður skoruðu
bróðurpart stiga Laugdæla, Unnar
25 og Sigurður 20. Ómar Þráinsson
gerði flest stig Framara, 22, og Þor-
valdur Geirsson kom næstur með
12. Leikurinn var frekar slakur.
Á laugardaginn léku Skallagrím-
ur og Grindavík í Borgarnesi.
Grindvíkingar keyrðu heimamenn
í kaf í fyrri hálfleik, voru 37-18 yfir í
leikhléi, og sigruðu síðan 7Ó-44.
Eyjólfur Guðlaugsson, þjálfari
Grindvíkinga, skoraði 20 stig, Jó-
hannes Sveinsson 18, Ólafur Jó-
hannesson 13 og Pálmi Ingólfsson
Unnar Viíhjálmsson, - 25 stig.
10. Hafsteinn Þórisson skoraði 19
stig fyrir Skallagrím, Hans Egils-
son 7 og Jón Pálsson 6.
Staðan í 1. deild:
Fram........
ÍS.........
Grindavík..
Laugdælir....
Þör Ak.....
Skallagrímur
- vs.
4 4 0 327-245 8
3 2 1 258-188 4
3 2 1 214-195 4
2 1 1 138-114 2
2 0 2 140-183 0
4 0 4 219-371 0
1. deild kvenna í körfuknattleik:
Tveir góðir sigr-
Öruggur Njarðvíkursigur
ar Haukastúlkna
Njarðvíkingar áttu ekki í telj-
andi vandræðum með að af-
greiða KR-inga í úrvalsdeildinni
í körfuknattleik, sigruðu 79-69 í
Njarðvík á föstudagskvöldið.
Leikurinn var jafn framan af,
staðan 41-33 fyrir Njarðvík í
hálfleik, en heimamenn náðu 27
stiga forystu í síðari hálfleik og
sigur þeirra var aldrei í nokkurri
hættu eftir það.
Það háði KR nokkuð eftir hlé að
Jón Sigurðsson og Kristján Rafns-
son fengu 4 villur hvor í fyrri hálf-
leik. Hvorugur byrjaði inná í síðari
háifleik af þeim sökum. Um miðj-
an síðari hálfleik átti síðan sér stað
leiðinlegt atvik. Jón Sigurðsson
grýtti knettinum í andlit Sturlu Ör-
lygssonar af tveggja metra færi og
var umsvifalaust rekinn úr húsinu.
Svona lagað á ekki að henda
leikreyndan og góðan leikmann
eins og Jón, ekki síst þar sem hann
nú þjálfar Vesturbæjarliðið.
A 14. mínútu fékk Valur Ingi-
mundarson, hinn frábæri leikmað-
ur Njarðvíkinga, tæknivíti fyrir
munnsöfnuð. Gunnar Þorvarðar-
son þjálfari tók hann samstundis
útaf og lét hann sitja á bekknum
það sem eftir var. Skynsamlegt hjá
Gunnari og hefur vonandi góð
áhrif á Val, en skapið hefur löngum
verið hans versti óvinur og bitnað
mjög á getu hans. Njarðvíkingar
léku með unga og óreynda pilta
lokakaflann og KR náði að minnka
muninn niður í tíu stig.
Valur átti frábæran leik með
Njarðvík, hitti mjög vel og sýndi á
sér nýja hlið með því að mata fé-
laga sína á stórgóðum sendingum.
Valur Ingimundarson og Jón Sigurðs-
son hurfú báðir af leikvelli, af ólíkum
ástæðum.
Sturla var sem klettur í vörninni og
Gunnar stóð fyrir sínu að vanda.
Jón Sig. var potturinn og pannan
í leik KR meðan hans naut við og
skoraði öll sín 13 stig í fyrri hálf-
leik. Guðni Guðnason er virkilega
drjúgur og skemmtilegur leikmað-
ur sem þekkir sín takmörk og
leikur skynsamlega. Páll Kolbeins-
son gerði virkilega laglega hluti og
stóð sig mjög vel.
stiq UMFN: Valur 27, Sturla 16, Gunn-
ar 11, Isak Tómasson 7, Inglmar Jónsson
6, Ástþór Ingason 4, Júlíus Valgelrsson 4,
Árnl Larusson 2 og Kristinn Elnarsson 2.
Stig KR: Páll 17, Guðni 16, Garðar Jó-
hannsson 14, Jón Sig. 13, Ágúst Líndal 5
og Olafur Guðmundsson 4.
Leikurinn var auðdæmdur fyrir
Gunnar Valgeirsson og Kristin Al-
bertsson.
-sv/vs
Staðan
Úrslit leikja í 4. umferð úrvals-
deildarinnar í körfuknattleik og
staðan að henni lokinni:
Njarðvík-KR.....................79-69
IR-Valur........................75-92
Haukar-Keflavlk................74-81
Njarðvfk............4 4 0 325-291 8
Valur............:..4 3 1 336-297 6
Keflavfk.............4 2 2 288-290 4
KR...................4 2 2 270-290 4
Haukar...............4 1 3 284-303 2
ÍR...................4 0 4 267-299 0
Stigahæstir:
Valur Ingimundarson, Njarðvfk..119
Pálmar Sigurðsson, Haukum.y... 103
Þorsteinn Bjarnason, Keflavfk...86
Kristján Ágústsson, Val.........74
Torfi Magnússon, Val............72
Hreinn Þorkelsson, ÍR...........69
Jón Kr. Gíslason, Keflavfk......69
Jón Sigurðsson, KR............ 67
Stúlkurnar efnilegu úr
Haukum í Hafnarfirði komu
skemmtilega á óvart í 1. deild
kvenna í körfuknattleik um helg-
ina. Þær unnu tvo góða sigra,
lögðu ÍS að velli, 48-42, í íþrótta-
húsi Kennaraháskólans á
fimmtudagskvöldið og í fyrra-
kvöld unnu þær Njarðvík í Hafn-
arfirði 61-35.
Leikurinn á fimmtudagskvöldið
var mjög jafn og staðan var 20-20 í
hálfleik. Sóley Indriðadóttir
skoraði 23 stig fyrir Hauka en Kol-
brún Leifsdóttir 16 fyrir ÍS.
Njarðvík skoraði fyrstu körfuna
gegn Haukum en síðan ekki sög-
una meir. Haukar voru yfir 28-17 í
hálfleik og gerðu síðan út um
leikinn með því að gera 14 stig í röð
í upphafi síðari hálfleiks. Sóley var
stigahæst sem fyrr, gerði 25 stig, og
Svanhildur Guðlaugsdóttir kom
næst með 16. Katrín Eiríksdóttir
skoraði 12 stig fyrir Njarðvík og
María Jóhannesdóttir 7.
ÍS vann ÍR 44-34 í Seljaskóla í
fyrrakvöld. Fyrri hálfleikur var
sveiflukenndur, ÍS komst í 18-7 en
IR minnkaði muninn í 20-19 fyrir
hlé. ÍS hafði síðan undirtökin í
síðari hálfleik og vann nokkuð ör-
ugglega. Þórdís Kristjánsdóttir og
Vigdís Þórisdóttir skoruðu 10 stig
hvor fyrir ÍS en stigahæstur hjá ÍR
voru Þóra Steffensen með 8 stig og
Guðrún Gunnarsdóttir sem
skoraði 7.
Staðan í 1. deild kvenna:
Njarðvík.............4 2 2 166-145 4
ÍR...................3 2 1 141-128 4
Haukar...............3 2 1 152-141 4
IS...................3 2 1 131-120 4
Snæfell..............2 1 1 65-64 2
KR..................3 0 3 83-140 0
-vs