Þjóðviljinn - 25.11.1983, Qupperneq 11
______________________________________________Fðstudagtir 25: nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
íþróttir Víðir Sigurðsson
Besta íþróttaljósmynd ársins 1982, valin af alþjóðasamtökum íþróttafréttamanna
og Adidas. Höfundur er Eileen Langsley frá Bretlandi.
Þróttur og HK drógust
saman í 1. umferðinni
Karlaflokkur:
1. umferð
Helgar-
sportiö
Handbolti
Lítið liggur fyrir af upplýsing-
um um leiki helgarinnar á Is-
landsmótinu. Þó er talið að
tveir leikir verði í höfuðborg-
inni í kvöld. Valur leikur við
KA kl. 20.15 og Víkingur við
Stjörnuna kl. 21.30. Á morgun,
laugardag, mætast KR og KA
kl. 14 og FH leikur við Þrótt í
Hafnarfirði á sunnudaginn kl.
14. Ekkert hefur borist frá HSÍ
um leiki á íslandsmótinu, lík-
lega er fullt af leikjum í öllum
deildum en þeir sem vilja fræð-
ast nánar um þá verða víst bara
að leita eftir fregnum af þeim
sjálfir. Prófið að hringa í 85422,
kannski er einn fjögurra
launaðra starfsmanna HSI við.
Kannski.
Körfubolti
Það er frí í úrvalsdeildinni
þessa helgina og einnig í 1. deild
kvenna. Tveir leikir eru á dag-
skrá í 1. deild karla, Grindavík
og Skallagrímur mætast í Kefla-
vík í k völd kl. 20 og Þór og Fram
leika á Akureyri kl. 14 á morg-
un. „Turneringar” eru um helg-
ina í 3- og 5. flokki karla og 2.
flokki kvenna. 3. flokkurinn er í
Seljaskóla laugardag og sunnu-
dag, 5. flokkur í Haukahúsi,
Seljaskóla og Sandgerði og
stúíkurnar byrja í Njarðvík í
kvöld.
Blak
Tveir leikir verða háðir í 1.
deild karla í Hagaskóla á sunnu-
dag. ÍS og Víkingur leika kl.
15.20 og þar á eftir Þróttur og
Fram. KÁ leikur tvo leiki í 1.
deild kvenna sunnanlands,
gegn Breiðabliki í íþróttahús-
inu við Skálaheiði í Kópavogi
kl. 21.50 í kvöld, gegn ÍS í
íþróttahúsi Háskólans kl. 11.15
í fyrramálið. Þá verða tveir leik-
ir í 2. deild karla. Þróttur N. og
Samhygð leika á Neskaupstað
kl. 15 á morgun og kl. 15 á sunn-
udag.
Sund
Unglingameistaramót ís-
lands verður haldið í Sundhöll
Reykjavíkur um helgina, föstu-
dag, laugardag og sunnudag.
Byrjað verður í kvöld kl. 20, á
morgun kl. 17 og á sunnudag kl.
15.30.
Dnjepr
meistari
Dnjepr varð á dögunum sovésk-
ur meistari í knattspyrnu í fyrsta
skipti. Félagið hlaut 49 stig, fjórum
stigum meira en hið fræga félag
Spartak Moskva og sex stigum
meira en fráfarandi meistarar, Dy-
namo Minsk. Hið margfræga félag,
Dynamo Tiblisi, féll úr úrvals-
deildinni, tapaði 1-0 í aukaleik
gegn öðru þekktu liði, Dynamo
Moskva, en liðin höfðu orðið jöfn
að stigum og markatölu. Einnig féll
niður í 1. deild Torpedo Kutaissi og
nýliðarnir Kischinjow en síðar-
nefnda liðið fékk aðeins 10 stig úr
34 leikjum. -VS
Guðjón í
Breiðholtið
Guðjón Sigurðsson hefur verið
ráðinn þjálfari hjá 4. deilarliði
Leiknis, Reykjavík, í knattspyrnu.
Hann sér einnig um alla yngri
flokka nema 3. flokk. Guðjón hef-
ur áður þjálfað hjá Víkingi, ÍA,
Bolungarvík, Stöðvarfirði og hjá
USAH.
Ipswich og
Islenskir knattspyrnuáhuga-
menn fá að sjá leik Ipswich og Li-
verpool í beinni sjónvarpsútsend-
inu á laugardaginn kemur. Verk-
falli hjá bresku sjónvarpsstöðinni
ITV lauk í gær og þar með er ljóst
að leikurinn á Portman Road fer
Nú í vikunni var dregið í bikar-
keppninni í blaki, karla og kvenna.
Stórleikur verður háður í karla-
flokki, Þróttur og HK, tvö efstu lið
1. deildar, leika saman. Þau léku
einmitt til úrslita í fyrra og þar sig-
ruðu Þróttarar. Niðurstaðan varð
þessi:
Liverpool
fyrir augu okkar en ekki viðureign
Tottenham og QPR. Leikurinn
sjálfur hefst kl. 15 en Bjarni Felix-
son íþróttafréttamaður sjónvarps
byrjar „upphitun" kl. 14.30.
-VS
ÍS-Þróttur Nes.
Fram-Breiðablik
Þróttur R.-HK
Víkingur-Samygð
2. umferð
ÍS/Þróttur N-Fram/Breiðablik
Þróttur/HK-Víkingur/Samhygð
Fimm til sex lið af Norðurlandi
verða einnig meðal þátttakenda og
eitt þeirra fer í þriggja liða úrslit.
Þegar þangað er komið, situr eitt
lið hjá og fer beint í úrslitaleikinn
og það gæti því hæglega orðið hlut-
skipti norðanliðsins sem eftir verð-
ur.
Kvennaflokkur:
ÍS-Breiðablik
Þróttur-Víkingur
Völsungur-KA
Bikarkeppnin hefst í byrjun
febrúar og leikir fyrstu umferðar
fara allir fram sömu helgina.
Vandræða-
leikir?
Þegar hcfur verið dregið um
hvaða lið leiki saman í riðlum í
undankeppni heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu í
Norður- og Mið-Ameríku. I fyrsta
skipti er ekki farið eftir land-
fræðilegri legu og útkoman er hálf
vandræðaleg fyr suma. Bandaríkin
og E1 Salvador lentu nefnilega sam-
an í riðli og ekki er ólíklegt að leikir
þeirra verði með hápólitísku ívafí.
Þriðja liðið í riðlinum er Pucrto
Rico.
Þetta er B-riðillinn, í A-riðli eru
Kanada, Guatemala og Hollensku
Antilla, í C-riðli Kúba, Haiti og
Hondúras og í D-riðli Costa Rica,
Surinam og Trinidad/Tobago. Eitt
þessara 16 liða kemst í lokakeppn-
ina sem haldin verður í Mexíkó.
-VS
Vetrarsýn-
ing Gerplu
íþróttafélagið Gerpla heldur
sína árlegu vetrarsýningu á morg-
un, laugardaginn 26. nóvember, í
íþróttahúsi félagsins að Skemmu-
vegi 6, Kópavogi, og hefst hún kl.
13.
Fram koma mörg glæsileg sýn-
ingaratriði frá öllum aldurshópum,
þar á meðal landsliðsfólk í fim-
leikum, Júdó og Karate, en Gerpla
hefur átt keppendur í öllum þess-
um íþróttagreinum á Norðurlanda-
mótum á þessu ári. Þetta verður
fjölbreytt og góð sýning fyrir alla
fjölskylduna og er aðgangur
ókeypis.
Ársþing FSÍ
Ársþing Fimleikasambands Is-
lands verður haldið á morgun,
laugardag, í Félagsheimili Kópa-
vogs. Þinghaldið hefst kl. 14.
Þessar þrjár konur voru þátttakendur í helgarnámskeiði Trimmnefndar
ÍSÍ fyrir leiðbeinendur í örvunaræfingum á vinnustöðum. Þær eru frá
vinstri Svana Jörgensdóttir, í Trimmnefnd ÍSÍ, Sigríður Sigurðardóttir,
Aðalverktökum, og Aðalheiður Franzdóttir, Bæjarútgerð Reykjavíkur.
-VS
FIFA framúr Sam-
einuðu þjóðunum!
Sextán þjóðir hafa sótt um inngöngu í FIFA, alþjóða knatt-
spyrnusambandið, á þessu ári. Þar á mcðal er ein Kvrópuþjóð,
nágrannar okkar, Færeyingar. Nánast allar eru eyþjóðir, þekktast-
ar þcirra, í okkar augum, eru Grenada og Grænhöfðaeyjar. Að-
ildarþjóðir FIFA eru 150 talsins. Fái þessar 16 þjóðir inngöngu, eða
stór hluti þeirra, verða fleiri lönd aðilar að FIFA en að sjálfum
Sameinuðu þjóðunum. í síðarnefndu samtökunum eru um 160
þjóðir. _VS
Opið bréf frá handknattleiksdeild FH:
Verðskuldar FH
gagnrýni?
Vegna neikvæðra ummæla og skrifa
íþróttafréttamanna ríkisfjölmiðla og
blaða eftir Evrópuleiki FH og ísraelska
liðsins Maccabi Tel Aviv í handknatt-
leik, og ásakana um villandi og vísvit-
andi rangar upplýsingar um mótherja
okkar í þeim tilgangi að tæla áhorfend-
ur á leikina, óskar stjórn handknatt-
leiksdeildar FH að koma á framfæri
eftirfarandi athugasemdum:
Eftir að vitað var um mótherja FH í
16-liða úrslitum Evrópukeppni félags-
liða, gekk maður undir manns hönd að
afla upplýsinga um þá en það eina sem
menn vissu um ísraelskan handbolta
var að íslenska landsliðið tapaði fyrir
því ísraelska fyrir nokkrum árum í
Frakklandi með 6 mörkum, og gerði við
það jafntefli í síðustu heimsmeistara-
keppni í Hollandi. Allt var þetta til að
auka virðingu okkar fyrir væntanlegum
andstæðingum og sigurinn var engan
veginn bókaður.
Þá var það að einhverjum góðum
manni datt í hug að hringja í mann,
búsettan í Tel Aviv sl. 20 ár, og spyrja
hann útúr um liðið. Hann kannaðist
mæta vel við Maccabi Tel Aviv, þeir
ættu yfirburðalið í ísrael um þessar
mundir og með því léku sterkir erlendir
leikmenn, m.a. 3 Þjóðverjar og einn
Rússi, örvhentur. Með því að símasam-
band var ekki uppá það besta, enda um
langan veg að fara, þá lofaði hann að
senda nánari upplýsingar í pósti. Þessar
upplýsingar höfum við ekki séð enn.
Á blaðamannafundi nokkrum
dögum síðar létum við íþróttafrétta-
mönnum þessar upplýsingar í té en gát-
um þess þá og jafnan síðan að við viss-
um nákvæmlega ekkert um þetta ísra-
elska lið. Um þetta geta þeir íþrótta-
fréttamenn borið sem komu á fundinn,
en það gerðu því miður ekki allir sem
þó hafa látið svo lítið að atyrða okkur
fyrir villandi, og vísvitandi rangar upp-
lýsingar í sérhagsmuna skyni.
Nú að afloknum leikjum vitum við þó
a.m.k. að þetta ísraelska lið er ekki í
sama gæðaflokki og FH og með því
leika engir erlendir leikmenn, „Þjóð-
verjarnir” reyndust bornir og
barnfæddir í Guatemala og „Rússinn” í
ísrael. En hvað stendur þá eftir? Verð-
skulda leikmenn gagnrýni fyrir að hafa
rassskellt þetta lið eða stjórn hand-
knattleiksdeildarinnar fyrir fátæklega
tilraun til upplýsingaöflunar sem
reyndist svo á misskilningi byggð, eða
hverju reiddust goðin? Að sjálfsögðu er
það ámælisvert ef gefnar eru vísvitandi
rangar upplýsingar og engum til fram-
dráttar. Það er heldur engum til fram-
dráttar að níða menn niður án þess að
leita sannleikans, sem einhverjum þótti
á skorta í þessu máli. Sannleikann
hefðu menn fengið ef eftir honum hefði
verið leitað. Með þessum orðum ætlar
stjórn handknattleiksdeildar FH ekki
að víkja sér undan ábyrgð í þessu máli,
en biður alla hlutaðeigandi afsökunar á
þessum leiðu mistökum og vonast til
þess að það varpi ekki skugga á sam-
skipti okkar við áhorfendur og íþrótta-
fréttamenn, sem hafa verið með ágæt-
um í gegnum tíðina. FH mun áfram
kappkosta að sýna skemmtilegan og
hraðan handbolta sem allir hafa gaman
af að sjá og það sýndi sig á áhorfenda-
fjöldanum á síðari leiknum í Hafnar-
firði að þetta er það sem áhorfendur
vilja sjá, og skiptir þá ekki máli hvort
það er Þjóðverjanum eða Rússanum
meira eða minna í liði andstæðinganna.
Þess má að lokum geta, ísraelska lið-
inu til afsökunar, að samkvæmt samtali
við fararstjóra þeirra urðu þeir að skilja
5 leikmenn sína eftir heima vegna hern-
aðarástands í heimalandi sínu, sá
fimmti var sóttur útí flugvélina við
brottför. Að sögn fararstjórans var þar
um aðalmarkaskorara þeirra að ræða.
Hann gat þess til hugsanlegrar skýring-
ar á röngum upplýsingum okkar að
Maccabi Tel Aviv ætti á að skipa yfir-
burðaliði í körfuknattleik í ísrael og
með því liði lékú nokkrir erlendir leik-
menn.
Með íþróttakveðju
Stjórn Handknattleiksdcildar FH
Athugasemd
Eru FH-ingar virkilega hissa á við-
brögðum íþróttafréttamanna? Leikir
FH og Maccabi fengu virkilega góða
umfjöllun í fjölmiðlum síðustu dagana
og þar var rætt og ritað um eldfljóta
snillinga, Þjóðverja og Rússa. Að auki
átti Maccabi Tel Aviv að vera langsterk-
asta lið ísraels. Er nokkur furða að
íþróttafréttamönnum og íslenskum
handknattleiksáhugamönnum þættu
þeir vera illilega sviknir þegar í Laugar-
dalshöllina var komið sl. föstudags-
kvöld?
Undirritaður telur ekki að FH-ingar
hafi vísvitandi gefið rangar upplýsing-
ar. Að sjálfsögðu vissu menn sama og
ekkert um ísraelska liðið en þá var
skáldað í eyðurnar, í lélegu símasam-
bandi til ísraels urðu til fjórir erlendir
snillingar (hafa sennilega komið inná
línuna á hinni löngu leið). FH-ingar
segja að 5 leikmenn hafi vantað í lið
Maccabi. Staðreyndin reyndist vera sú
að einungis einn þeirra hafði verið í
byrjunarliði, hinirallirvaramenn. Einn
ónafngreindur FH-ingur sagði reyndar
á föstudagskvöldið: „Hvað áttum við
að gera til að fá fólk á leikinn?“. Mál
þetta á eftir að leiða af sér varkárni og
tortryggni íþróttafréttamanna gagnvart
öllum upplýsingum frá öllum félögum í
framtíðinni, það virðist ætla að spilla
fyrir hingað til góðri samvinnu þarna á
milli, og ekki er ólíklegt að afleiðingar
þess komi í ljós innan skamms þegar tvö
íslensk félög leika í 8-liða úrslitum Evr-
ópumótanna í handknattleik.