Þjóðviljinn - 06.12.1983, Blaðsíða 1
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
■lirc d r
ISSSi VH '■«*lillli liííii Íllilt
Umsjón: Víðir Sigurðsson "—~TT?
Pfy/ý sf/fl / öllum deildum karla:_
Aukin sóknarknatt-
spyrna næsta sumar?
Sumarið 1984 verða veitt þrjú
stig fyrir sigur í leikjum deilda-
keppni karla í knattspyrnu. Til-
laga þess efnis var samþykkt á
ársþingi KSÍ sem haldið var á
Húsavík um helgina. Áfram
verður veitt eitt stig fyrir jaf ntefli
og ekkert fyrir tap. Kerfi þetta
hefur verið notað í tvö ár í ensku
knattspyrnunni með þeim ár-
angri að markaskorun hefur
aukist nokkuð og leikir eru
skemmtilegri en áður.
Ellert B. Schram var endurkjör-
inn formaður KSÍ rétt eins og síð-
ustu tíu árin. Stjórnin var öll
endurkjörin, nema hvað Sigurður
Hannesson gaf ekki kost á sér í
varastjórn áfram og tekur Ingvi
Guðmundsson sæti hans.
Eins og vænta mátti, samþykkti
þingið endanlega að lið ÍBV skyldi
leika í 2. deild að ári.
Framvegis verður aðeins einn
úrslitaleikur í 3. deild, í stað
tveggja, og fer hann fram á hlut-
lausum velli. Þetta er gert í sparn-
aðarskyni. Þá var ákveðið á þing-
inu að næsta sumar verði 9 lið í
suðvesturriðli 3. deildar en 7 í
norðausturriðlinum.
Málefnum aganefndar var vísað
til milliþinganefndar þannig að
engar breytingar verða á starfsemi
hennar í bili.
Felldir verða niður úrslitaleikir
neðri deilda á íslandsmótinu í
innanhússknattspyrnu. Sigurveg-
arar í einstökum riðlum fara beint
upp en neðstu lið þeirra falla. Þetta
er gert til að létta leikjaálaginu á
mótinu sem er orðið gífurlegt
vegna síaukinnar þátttöku.
Leikdagar mótsins voru ákveðnir
og verður framkvæmdin með öðru
sniði en áður. Leikið verður í B og
D-deildum 21.-22. janúar nk. en í
A og C-deildum, svo og í kvenna-
flokki, helgina 25.-26. febrúar.
-VS
Malcolm MacDonald - „Super-
mac“ - tekur hann við Arsenal,
sínu gamla félagi?
Ardiles varamað-
ur annað kvöld?
Osvaldo Ardiles, argentínski knattspyrnusnillingurinn hjá Tottenham,
er að koamst í gang á ný eftir langvarandi meiðsli. Allt bendir til þess að
hann verði meðal varamanna Tottenham í Evrópuleiknum gegn Bayern
Munchen á White Hart Lane í London annað kvöld. Tottenham tapaði 1 -0
í fyrri leiknum í Munchen og verður því að sigra með tveggja marka mun til
að komast í 8-liða úrslitin. Ardiles hefur leikið grimmt með varaliðinu
undanfarið, nú síðast á laugardaginn. Vegna meiðslanna þurfti að koma
málmplötu fyrir í fæti hans en hann kenndi sér einskis meins á laugardag,
hvorki í leiknum né eftir hann.
-VS
Þrengt að Arsenal úr öllum áttum:
Aðdáendurnir heimta
Malcolm MacDonald!
Vestur-þýska knattspyrnan:
Stuttgart heldur
sínu striki
Asgeir Sigurvinsson átti góðan
dag rétt eina ferðina enn þegar Stutt-
gart vann Werder Bremen 3-0 í
vestur-þýsku knattspyrnunni um
helgina. Með sigrinum er Stuttgart
áfram i efsta sæti deildarinnar. Öll
mörkin komu í síðari hálfleik, fyrst
skoraði Walter Kelsch, þá Karl
Allgöwer og loks Peter Reichert.
Bayern Múnchen er áfram með sömu
stigatölu og Stuttgart eftir 1-0 sigur á
Dortmund. Daninn Sören Lerby
skoraði eina mark leiksins. Hamburger
varð að sætta sig við markalaust jafn-
tefli gegn botnliði Frankfurt sem var
öllu nær sigri. Þá gerði Dusseldorf jafn-
tefli, 1-1, úti gegn Waldhof Mánnheim.
Holger Fach skoraði jöfnunarmark
Dusseldorf í leiknum. Atli lék ekki með
vegna meiðsla en Pétur Ormslev kom
inná sem varamaður.
Stuttgart og Bayern hafa 23 stig á
toppnum, Hamburger og Mönchen-
bladbach 22, Dússeldorf og Bremen 20
stig. Neðst eru Frankfurt og Núrnberg
með 9 stig.
-VS
Mætast Eng-
land og
Argentína?
Allt bendir nú til þess að England og
Argentína mætist í landsleik í knatt-
spyrnu næsta sumar, aðeins tveimur
árum eftir Falklandseyjastríð þjóð-
anna. Englandi hefur verið boðin þátt-
taka í afmælismóti brasilíska knatt-
spyrnusambandsins á næsta ári, sjö-
tugsafmæii, og hefur boðið verið þegið.
Líklegt er að Argentína verði þar einnig
meðal þáttakenda. „England mætir til
leiks og mun leika gegn hvaða þjóð sem
er,“ sagði Ted Croker ritari enska
knattspyrnusambandsins í gær.
1 -VS
Pétur aftur í
byrjunarliðið
Pétur Pétursson er á ný kom-
inn í byrjunarliðið hjá
Antwerpen en honum tókst ekki
að koma í veg fyrir 2-1 ósigur
gegn efsta liðinu í belgísku 1.
deildinni í knattspyrnu, Bever-
en, á sunnudaginn. Antwerpen
hefur dalað mjög eftir góða byrj-
un og er rétt um miðja deild með
14 stig úr 15 leikjum.
Anderlecht vann Lokeren 4-2 en
að sjálfsögðu gat Arnór Guðjohn-
sen ekki leikið með gegn sínu
gamla félagi. Hann er nýkominn af
sjúkrahúsi eftir uppskurð og leikur
ekki næstu vikurnar. CS Brugge
vann 3-0 útisgur í Beerschot en Sæ-
var Jónsson var ekki með, er enn
meiddur. Waterschei steinlá 4-1 í
Lierse og Lárus Guðmundsson var
settur út úr byrjunarliði Watersc-
hei en kom inná sem varamaður.
Beveren hefur nú 26 stig á
toppnum, Anderlecht 21, Seraing
20, CS Brugge, FCBrúgge og War-
egem 17 stig. -VS
Frá Heimi Bergssyni frétta-
manni Þjóðviljans í Eng-
landi:
Þrengt er að Arsenal úr öllum
áttum eftir hroðalegt gengi und-
anfarið í ensku knattspyrnunni.
Steininn tók úr þegar liðið tap-
aði 1-2 á heimavelli fyrir 3.
deilarliði Walsall í mjólkurbik-
arnum í síðustu viku. Þá héldu
aðdáendur liðsins til aðalstöðva
Arsenal og höfðu í frammi gífur-
leg mótmæli. Þeir kröfðust þess
að Terry Neill framkvæmdastjóri
yrði rekinn og heimta í staðinn
markakónginn fyrrverandi,
Malcolm Mac Donald, sem nú
stýrir 2. deildarliði Fulham. Að
lokum þurfti lögregluaðstoð til
að stilla til friðar.
Þórarar úr Vestmannaeyjum stefna
hraðbyri í 1. deildina í handknattleik og
um helgina unnu þeir tvo leiki til við-
bótar í 2. deildinni. í Sandgerði unnu
þeir Reynismenn 23-15 á föstudags-
kvöldið. Gylfi Birgisson skoraði þar 11
mörk fyrir Þór en Daníel Einarsson 5
fyrir Reyni.
Á laugardaginn unnu þeir svo HK
27-22 í Kópavogi. Þorbergur Aöal-
steinsson skoraði 6 mörk fyrir Þór og
Sigurður Sveinsson sama skammt fyrir
HK.
gengi liðs Arsenal sem hefur á að
skipa fjölda snjallra leikmanna?
Meiðsli hafa verið nokkur. Gra-
ham Rix, David O'Leary og Brian
Talbot eru allir meiddir og Stewart
Robson bættist í þann hóp á laugar-
daginn er hann slasaðist gegn
WBA. En hópuririn-er stór og liðið
ætti að ráða við slíkt. Blaðamaður
The Guardian setti hugleiðingar
sínar á blað í athyglisverðri grein
fyrir helgi og hann spyr hvort hug-
arfar leikmannanna sjálfra sé rétt.
Hann telur einna stærstu sökina
liggja hjá þeim sjálfum, þeir leggji
sig alls ekki nægilega fram til að ná
sér á strik.
Eftir leikinn gegn WBA á laug-
ardag, ræddi Ron Wylie, fram-
kvæmdastjóri WBA, um vandamál
Arsenal. „Ég tel að Terry Neill og
Don Howe hafi undanfarin ár gert
Fram vann góðan sigur á Gróttu á
föstudagskvöldið, 18-14, á Seltjarnar-
nesi. Fram var ávallt yfir en Gróttan
aldrei langt undan, en Fram gerði út um
leikinn með því að breyta stöðunni úr
13-12 í 17-12. Markvarsla Heimis Guð-
mundssonar og frábær varnarleikur
lögðu grunninn að sigri Fram. Dagur
Jónasson skoraði 5 mörk fyrir Fram en
Gunnar Lúðvíksson 3 fyrir Seltirninga.
Loks vann Breiðablik Fylki 23-18 í
slökum leik í Kópavogi á sunnudags-
kvöldið. -VS
frábæra hluti hjá Arsenal og aðdá-
endurnir ættu að minnast þess, í
stað þess að æsa sig upp þótt tveir
eða þrír Ieikir tapist," sagði Wylie
og vildi gera lítið úr vandamálum,
þau væru aðeins tímabundin.
James val-
inn á ný
Leighton James, útherjinn gam-
alreyndi hjá Sunderland, hefur
verið valinn á ný í velska landsliðið
í knattspyrnu eftir átta leikja fjar-
veru. Wales mætir Júgóslavíu í
næstu viku og þarf að sigra til að
tryggja sér sæti í úrslitum Evrópu-
keppni landsliða. Aðrar gleði-
fregnir fyrir Walesbúa eru þær að
Kenny Jackett, miðvallarspilarinn
öflugi frá Watford, er leikfær að
nýju °g er klár í slaginn. Hann var
ekki með í tapleiknum gegn Búlgar-
íu á dögunum.
-VS
Jafntefli
í Saloniki
Grikkir og Ungverjar gerðu jafn-
tefli, 2-2, í Evrópukeppni landsliða
á laugardaginn. Leikið var í Salon-
iki í Grikklandi en úrslitin höfðu
enga þýðingu, Danir hafa þegar
tryggt sér sigur í 3. riðli.
En hver er ástæðan fyrir slöku
Þórarar stefna hrað
byri á 1. deildina
Knattspyrnan á meginlandinu:
Allt í hnút á
Italíu
Nýlidinn hetja Real Madrid
Eftir leiki sunnudagsins í ít-
ölsku knattspyrnunni er allt í
hnút í þarlendu 1. deildinni.
Stórleikur helgarinnar var viður-
eign Juventus og meistaranna
AS Roma en honum lyktaðí með
jafntefli, 2-2. Um 70 þúsund
áhorfendur sáu leikunn í Torino
og honum var sjónvarpað tii sex
landa að auki. Bruno Conti og
Pruzzo skoruðu fyrir Roma en
Michel Platini og Penzo fyrir Ju-
ventus.
Verona átti kost á að ná foryst-
unni en tapaði 1-0 úti fyrir Sam-
pdoria, sem vann þarna sinn
fimmta leik í röð. Udinese og Tor-
ino gerðu jafntefli, 0-0, og Fiorent-
ina vann Lazio 2-1 uti. Juventus
hefur 14 stig en síðan koma fimm
lið með 13 stig hvert. Þau eru Fior-
entina, Sampdoria, Verona, Tor-
ino og Roma.
Manolito Sanchez heitir ungur
spænskur knattspyrnumaður sem
sló í gegn um helgina. Þá lék hann
sinn fyrsta leik með aðalliði Real
Madrid og tryggði liðinu tveggja
stiga forystu í 1. deildinni með því
að skora sigurmarkið, 1-0, gegn
Murcia á útivelli. Barcelona og
Real Zaragoza gerðu markalaust
jafntefli á meðan og hafa 17 stig
gegn 19 hjá Real Madrid.
Þrjú efstu liðin í Hollandi gerðu
4 mörk hvert. Feyenoord sigraði
Willem Tilburg 4-0, PSV Eindho-
ven sigraði Den Bosch 4-2 á útivelli
og Ajax vann Sparta 4-0. Feyeno-
ord hefur 26 stig og á leik inni, PSV
og Ajax eru með 25.
Benfica lék sinn tíunda leik í röð
án taps í portúgölsku 1. deildinni,
vann Boavista 2-1. Liðið hefur
áfarm eins stigs forskot á Porto sem
marði botnliðið Penafiel 1-0.
Sporting Lissabon er komið í
þriðja sætið eftir fremur slaka byrj-
un.
-VS