Þjóðviljinn - 06.12.1983, Síða 4

Þjóðviljinn - 06.12.1983, Síða 4
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 6. desember 1983 íþróttir Umsjón: Víðir Sigurðsson Enska knattspyrnan: Enska knattspyrnan: Heilladísirnar Liverpool hliðhollar Liverpool hefur fjögurra stiga forystu í 1. deild ensku knattspyrn- unnar eftir leiki helgarinnar og get- ur þakkað það sínum heilladísum. Manchester United tapaði óvænt heima fyrir Everton, West Ham tapaði fyrir Aston Villa og Totten- ham beið ósigur í Norwich. Liver- pool lék hins vegar á heimavelli og vann sigur með heppnisstimpli, 1- 0. Kenny Dalglish lék ekki með Li- verpool, fyrsti deildaleikurinn sem hann missir af í tvö og hálft ár, og liðið var ekki svipur hjá sjón. Bar- áttuglaðir Birminghamleikmenn héldu meisturunum í skefjum og annað stigið í þeirra hlut hefði síður en svo .verið ósanngjarnt. Liverpool fékk þó besta marktæki- færið þegar Ronnie Whelan skaut í þverslá. Sigurmarkið kom aðeins fjórum mínútum fyrir leikslok. Phil Neal tók hornspyrnu, Craig Johns- ton fleytti boltanum til Ian Rush sem skoraði auðveldlega. Everton felldi ritstjórann! Óvæntustu úrslitin voru 0-1 tap Manchester United fyrir Everton. | Örlagarík fyrir marga, líka fyrir Einar Karl ritstjóra sem þar með missti af málsverði á kostnað Get- raunaleiks Tímans! United sýndi snilldartakta fyrstu 25 mínúturnar en eftir það var sóknarleikur liðsins fálmkenndur og framherjarnir Stapleton, Crooks og Whiteside höfðu engan Arthur Graham á kantinum til að mata sig, hann er meiddur. Á fyrstu mínútu síðari hálfleiksins skoraði Kevin Sheedy eina mark leiksins eftir undirbún- ing Alan Irvin og Peter Reid. Man. Utd. var mun betri aðilinn og Bry- an Robson besti maður vallarins en framlínan var gersamlega bitlaus og því fór sem fór. Sama mein felldi West Ham á Villa Park gegn Aston Villa. West Ham réði miðjunni, TrevorBróok- ing, Alan Devonshire og Geoff Kevin Sheedy, írski landsliðsmað- urinn sem er fæddur í Wales, skoraði sigurmark Everton á Old Trafford á iaugardaginn. Pike voru þar kóngar í ríki sínu, en framlínan vann ekki úr neinu. Paul Rideout skoraði síðan sigurmark Villa á 67. mínútu eftir fyrirgjöf Gary Williams. Síðan bjargaði Villa tvisvar á línu, í síðara skiptið var það hetjan sjálf, Rideout, sem forðaði því sem virtist jöfnunar- mark Pike. Colin Gibson hjá Villa slasaðist eftir 20 mínútur og er númer sjö á löngum sjúkralista liðsins. Norwich er á gífurlegri uppleið, vann Tottenham 2-1 að viðstödd- um 21 þúsund áhorfendum og hef- ur aðeins tapað einu sinni í síðustu 15 leikjunum. Keith Bertschin skoraði eftir 3 mínútur en Ally Dick jafnaði fyrir Tottenham strax á eftir. Gamla brýnið Mick Chann- on, sem varð 35 ára fyrir viku, skoraði sigurmark Norwich 7 mín- útum fyrir leikslok eftir sendingu John Devine. Mikill baráttuleikur en stórskemmtilegur þar sem bæði lið lögðu alla áherslu á sóknina. Arsenal er komið í mikinn öldu- dal, tapaði nú 0-1 fyrir WBA heima. Liðið réði gangi leiksins lengi vel en Charlie Nicholas og Paul Davis klúðruðu dauðafærum. Síðan skoraði Derek Monaghan eftir hornspyrnu Gary Owen og leikur Arsenal hrundi. Þar mis- tókst Tommy Caton að skalla frá marki en hann lék sinn fyrsta leik eftir söluna frá Manchester City. Caton var annars besti maður Arsenal ásamt öðrum nýjum leik- manni, Ian Allison, sem kom frá Colchester í sumar. „Nú verður bitið á jaxlinn" Watford vann sinn fyrsta deildarleik frá 17. september og hann eigi alllítinn, 5-0 í Wolver- hampton! Nýi Skotinn, Maurice Johnston sökkti Wolves, sköraði þrívegis á fyrstu 13 mínútunum. George Reilly bætti síðan tveimur við á 58. og 62. mínútu og sigur Watford var síst of stór. Popparinn Elton John, stjórnarformaður Watford, var í sjöunda himni. „Ég George Reilly (t. v.) og Maurice Johnston skoruðu öll fimm mörk Watford í Wolverhampton, tvö og þrjú. Reilly kom frá Cambridge í haust og Johns- ton frá Partick Thistle. er mjög ánægður, einkum vegna Graham Taylor framkvæmda- stjóra, með að hlutirnir hafl loksins gengið upp. Við höfum verið óheppnir undanfarið en þessi sigur kom á hárréttum tíma. Nú verður bitið á jaxlinn og haldið uppá við. Annars hef ég ekki verið sérlega stressaður og mér finnst sumir taka knattspyrnuna einum of alvarlega þegar illa gengur!“ sagði Elton. Luton og Coventry matreiddu markaleik eins og við var að búast, Coventry vann góðan utisigur, 2-4. Terry Gibson 2, Micky Gynn og Dave Bennett skoruðu fyrir Co- ventry sem er í fimmta sæti Covent- ry gerði sjálfsmark og hitt mark Luton skoraði Trevor Ayiott. Southampton vann loks á ný en lenti 0-1 undir gegn Stoke þegar Robbie Janes skoraði. Danny Wallace jafnaði og mörk David Armstrong og Mick Mills tryggðu Southampton sigur. Nýju menn- irnir, Mark Dennis frá Birming- ham og Alan Curtis frá Swansea, léku báðir með Southampton og áttu báðir góðan dag. QPR náði að sigra Notts county 1-0 með marki Gary Waddock snemma leiks. Glen Roeder hélt sig meðal áhorfenda, þessi fyrrum fyrirliði QPR virðist á leið til Notts á næstunni þar sem fjársöfnun Ur 2. deildinni: Alltaf hægt að skora 95 gegn Newcastle!“ Derby og Newcastle buðu uppá hörkufjörugan leik í 2. deildinni á Baseball Ground í Derby. New- castle komst í 0-2 með mörkum Kevin Keegan og Chris Waddle og virtist ætla að sigra örugglega, en leikmenn Derby voru ekki á sama máli. Þeir áttu síðari hálfleikinn. Bobby Davison skoraði á 61. mín- útu og jafnaði þar með og á 73. mínútu skoraði hinn gamalreyndi Archie Gemmill sigurmark Derby, 3-2, úr vítaspyrnu. Galopin vörn Newcastle eina ferðina enda sagði fréttamaður BBC um liðið: „Það er ekkert gagn í þjófabjöllu ef bak- dyrnar eru skildar eftir opnar!“ Peter Taylor, framkvæmdastjóri Derby, sagði eftir leikinn: „Ég haföi engar áhyggjur þótt við vær- um 0-2 undir í hálfleik. Við vorum að leika gegn andstæðingum sem kunna ekki að verjast; það er alitaf hægt að skora mörk hjá Newcastle“ Manchester City vann góðan sigur gegn Chelsea, 0-1 á Stamford Bridge. Jim Tolmie skoraði sigur- markið beint úr aukaspyrnu. Sheff. Wed. virðist aðeins vera að gefa eftir og varð að sætta sig við 1-1 jafntefli heima gegn Shrews- bury. Colin Pearson kom Shrews- bury yfir en Imre Varadi jafnaði. Þá telst til tíðinda að Swansea úrslit náði að vinna leik, sigraði Crystal Palace 1-0 með marki Darren Gale. Hann er nú undir smásjánni hjá Liverpool en útsendarar meistaranna hafa fylgst grannt með honum undanfarið. Nýliðar Huddersfield eru áfram í seilingarfjarlægð frá toppliðunum. Nú unnu þeir Portsmouth 2-1 með mörkum Daral Pugh og Kevin Stonhouse. Kevin Lock skoraði fyrir Fulham úr vítaspyrnu en Steve Fallon jafn- aði fyrir Cambridge. Þá vann Brig- hton Cardiff létt, 3-1, þrátt fyrir að Alan Young væri rekinn útaf í fyrri hálfleiknum. _ HB/VS . úrslit...*— Archie Gemmill, hinn 35 ára gamli fyrrum landsliðsmaður Skota, hef- ur reynst Derby ómetanlegur. I.deild Arsenal-W.B.A...............(2) 0-1 Aston Villa-West Ham........(1)1-0 Liverpool-Birmingham........(1) 1-0 Luton Town-Coventry City....(2) 2-4 Manch. United-Everton.......(2) 0-1 Norwich-Tottenham...........(1)2-1 Nottm. Forest-Leicester...... 3-2 Q.P.R.-NottsCounty.............1-0 Southampton-StokeCity..........3-1 Sunderiand-lpswichTown......(x) 1-1 Wolves-Watford..............(2) 0-5 2. deild: Blackburn-GrimsbyTown..........1-1 Brighton-Cardiff City..........3-1 CambridgeUnited-Fulham.........1-1 Carlisle-Leeds United...........1-0 Charlton-Middlesborough......(1)2-0 Chelsea-NanchesterCity.......(2) 0-1 Derby County-Newcastle......(1) 3-2 Huddersfield-Portsmouth........2-1 Oldham Athletic-Barnsley........1-0 Sheff.Wednesday-Shrewsbury.....1-1 Swansea-Crystal Palace.......(1)1-0 3. deild: Bolton-Brentford................1-C Bradford City-Plymouth Argyle...2-0 Bristoi Rovers-Sheff. United....1-1 Exeter City-Hull City...........2-1 Newport-Wigan Athletic..........5-3 Orient-Preston N.E..............2-1 Port Vale-Gillingham............0-1 Rotherham-Burnley...............1-1 Scunthorpe-Bournemouth..........1-2 Southend-Oxford United..........0-1 Walsall-Millwall City...........1-1 Wimbledon-LincolnCity...........3-1 4. deild: Blackpool-Peterborough..........1-2 Chester-Bury...,............... 2-1 Chesterfield-Tranmere...........3-3 Colchester-Hartlepool......... 6-0 Dariington-Mansfield Town.......3-0 Northampton-Bristol City........1-0 Reading-HalifaxTown.............1-0 Rochdale-Hereford United........3-3 Stockport-Torquay United........2-1 SwindonTown-Doncaster...........2-1 York City-Aldershot.............2-0 stuðningsmanna Notts til að kaupa hann gengur ótrúlega vel. Æstir stjórar! Loks gerðu Sunderland og Ipswich 1-1 jafntefli. Eric Gates kom Ipswich yfir en Gary Rowell jafnaði. Framkvæmdastjórar lið- anna, Alan Durban og Bobby Ferguson, voru báðir í æstu skapi eftir leikinn og hvor um sig taldi mark mótherjans kolólöglegt! - HB/VS Staðan l.deild: Q.P.R.. W.B.A....... Sunderland. 16 10 4 2 26-29 34 16 9 3 4 27-13 30 16 9 3 4 28-17 30 16 8 4 4 28-23 28 16 8 4 4 24-20 28 16 8 3 5 28-22 27 16 8 3 5 18-13 27 16 8 3 5 24-25 27 16 8 2 6 25-15 26 17 7 5 5 25-21 26 16 8 2 6 27-25 26 16 7 2 7 20-23 23 16 6 4 6 27-21 22 16 6 4 6 17-20 22 16 7 0 9 26-22 21 .16 6 3 7 10-17 21 16 5 3 8 14-19 18 16 4 2 10 18-27 14 16 3 4 9 25-30 13 17 3 4 10 20-34 13 16 2 6 8 16-29 12 16 1 4 11 11-37 7 Wolves..... Markahæstir: lan Rush, Liverpool.............13 David Svindlehurst, W.Ham.......11 Tony Woodcock, Arsenal..........11 Steve Archibald,. Tottenham......10 Paul Mariner, Ipswich............ 9 Simon Stainrod, QPR.............. 9 Frank Stapleton, Man, Utd........ 9 Peter Withe, Aston Villa......... 9 2. deild: Sheff.Wed.... Man. City.... Chelsea...... Newcastle.... Huddersfield. Charlton..... Grimsby........ Blackburn...... Cartisle..... Barnsley..... Middlesbro... Cr. Palace... Shrewsbury... Brighton..... Portsmouth... Leeds........ Cardiff...... Oldham....... Derby Co..... Fulham....... Cambridge.... Swansea...... ...17 11 5 ...17 11 2 ...18 9 7 ....17 10 2 ...17 8 6 6 1 5 4 5 4 3 5 1 30-13 38 4 31-19 35 2 35-17 34 5 35 25 32 3 25-15 30 4 23-23 28 4 24-20 27 4 24-25 27 4 15-11 25 8 28-25 23 7 21-19 22 7 19-20 22 5 21-23 22 8 31-33 21 9 28-22 20 7 21-26 20 10 19-22 19 8 19-29 19 8 16-31 19 9 18-27 14 ...18 ...17 ...17 ...17 ...17 ...17 ...17 ...17 ...17 ...17 ...17 ...17 ...17 ...17 ...17 ...17 2 4 11 15-35 10 ...17 2 3 12 12-28 9 Markahæstir: Kevln Keegan, Newcastle..........11 Derek Parlane, Manch. City.......11 Kerry Dixon, Chelsea.............10 Simon Garner, Blackburn..........10 3. deild: Oxford........18 11 4 3 38-22 37 Bristol R.......18 10 4 4 28-20 34 Sheff.Utd........18 9 6 3 35-21 33 HullClty.........18 8 8 2 30-15 32 Walsall.........18 9 5 4 28-25 32 Orient...........18 9 4 5 23-27 31 4. deild: YorkCity........18 11 3 4 39-19 36 Blackpool......18 10 2 6 23-28 32 Peterboro........18 9 4 5 34-21 31 Colchester.......18 8 6 4 30-16 30 Doncaster........18 8 6 4 32-24 30 Reading..........18 8 5 5 40-30 29

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.