Þjóðviljinn - 17.12.1983, Síða 2

Þjóðviljinn - 17.12.1983, Síða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 17.-18. desember 1983 Úthverfa- sýningar iFramhald af 1. siðu - örsmá jDvottavél, lítið sjónvarp o.s.frv. A stól við höfðalag kon- unnar sat svo maður með grímu. Er þetta ádeila á fjölskylduna sem neyslueiningu, ádeila á hin hefð- bundnu hlutverk kynjanna eða raunsæ lýsing á kjarnafjölskyldu nútímans? Svona túlkanir segja yf- irleitt meira um túlkandann en listaverkið. Ef hægt væri að skapa þá dramatísku stemmingu sem ríkti í þessu herbergi með þrem setning- um skrifuðum á blað þá væri mynd- sköpun bara marklítið púl. Stund- um, þegar andlaus verk verða á vegi mínum, finnst mér mynd- sköpun furðulegt fyrirbæri. Dæmi? Ja, önnur instalation sem einng fjallaði um neyslu! Áhorfandinn gekk í gegnum göng með ámáluð- um menningarsögulegum mynd- um. f byrjun voru myndir af hella- ristum og egypskum faraóum og svo framvegis vestræna menning- arsögu sem endaði í skýjakljúfum og stórverslunum. Burtséð frá því að þessar myndir virtust málaðar með heilmiklu meira af vilja en getu, þá vantaði innri rökvísi í verkið og það virkaði eins og eld- gömul lumma. Talandi um gamlar lummur, -þá var þarna instalation verk sem nefndist „mig dreymdi að ég kæmi inn í svona hús“. Á beru steingólf- inu voru regnbogasilungar gerðir úr marglitu glitrandi dufti og á veggina voru máluð fiðrildi. Man- erískt hippatímabils-verk? Kann- ski. Annars er glitterduft, gull og silfurlitir mjög áberandi í myndum hér og nú. Ðæmi er mynd Lee Jaffe af Rosenberg hjónunum. Risavax- ið málverk sem skipt er í tvo hluta. Vinstri hluti verksins er byggður á mjög þekktri mynd af Julius og Et- hel Rosenberg á leið í fangelsi er vírnetið gert úr silfurlitu glitter- dufti. Hinn hluti myndarinnar er af Ethel í rafmagnsstólnum og er grunnur myndarinnar gulllitaður. Svona málverk jaðrar við að vera pólitísk kitsch-list. Pólitísk list hef- ur talsvert verið til umræðu hér að undanförnu. Lucy R. Lippard skrifaði heilsíðugrein í seinasta Vil- lage Voice um hlut listamanna í mótmælagöngu sem farin var í Washington 12. þessa mánaðar. Mótmælt var fyrst og fremst innrás Bandaríkjanna í Granada. Ég var ekki í þessari göngu og veit því mest lítið um listræna framsetningu mótmælanna, en þekki þó íslensk- an trotskiista sem hældi henni. Fylkingarfélagar eru fyrir flest ann- að þekktir en að bera lof á liðið hér að ástæðulausu. Sýningin út í Queens nefndist „Expressions: New Art from Germany" og var í P.S.l. Pí- esswonn var, frá því árið 1888 og fram á sjöunda áratuginn barna- skóli. Skólinn var lagður niður þeg- ar hverfið sem hann stendur í var orðið hálfgert verksmiðjuhverfi og fátt orðið um börn. Fyrir sjö árum kom The Institute . for Art and Urban Resources því til leiðar að húsið var gert að Tvö fimmtán ára gömul málverk eftir Georg Baselitzá P.S.l.-sýningunni. HVAD ERIOHHNUM? RÚLLETTUR — hvaö annaö Síðan RÚLLETTURNAR frá ísfugl komu á markaðinn hafa þær rúllaö inní ofna og grill um allt land og veriö frábærlega vel tekið, þær eru líka nýjung á íslenskum matvælamarkaöi. RÚLLETTUR eru úrbeinaðir- upprúllaöir holdakjúklingar í hæsta gæðaflokki. RÚLLETTUR eru fylltar með ýmsu góðgæti t. d. sveskjum eða bacon og einnig er hægt að fá þær reyktar. RÚLLETTUR má steikja eða grilla og úr soðinu býrðu til afbragðs sósu. Semsagt herramannsmatur. Hvað með að rúlla RÚLLETTU inn í ofninn þinn? ísfugl Fuglasláturhúsið að Varmá Reykjavegi 36 Mosfellssveit Slmar: 91-66103 og 66766 sýningar- og Vinnuhúsnæði fyrir listamenn. Fyrirtækið er rekið með styrk frá „hinu opinbera", nánar tiltekið menntamáladeild borgar- innar, New York fylki og svo The National Endowment for the Arts. Jafnvel hér í háborg kapitílismans er ekki reiknað með að almannafé sé kastað á glæ með því að fjárfesta í menningu. Á fyrstu hæð P.S.l er stórt sýn- ingarsvæði, á annarri hæð eru mörg lítil herbergi til minni sérsýninga og á þeirri þriðju er stór salur þar sem haldnir eru hljómleikar, gjörning- ar framkvæmdir o.s.frv. A húsinu eru tvær álmur þar sem þrjátíu og fjórar vinnustofur eru. Tíu þeirra hafa Þýskaland, Kanda, Ástralía, Holland, Noregur og Svíþjóð tryggt sínum landsmönnum, en f hinum vinna innfæddir. var með kunnar myndir eins og „Dauði og málari“, tvö stykki næstum eins takk. Litanotkun hans minnti helst á Braque en það er svo sem ekkert til að ræða því Lúpertz skiptir um stíl eins og annað fólk skiptir um sokka og skyrtur. Pench var með risavaxin málverk af þess- um fígúrum sem líkjast teikni- myndafígúrum en eru það ekki. Þessir fimm málarar eru mjög ó- líkir og það sem virtist helst tengja þá var stærðin á verkunum. Það vekur þá spurningu hvort stærð mynda sé sterklega tengd mikil- vægi þeirra? Þarf ekki annað og meir til þess að mynd sé góð en það að hún sé fimmtíu metrar að um- máli? Eða er flatneskjan og tilfinn- ingaleysið svo ríkjandi í mynd- sköpun í dag að ódýr trix séu helstu vörður á leiðinni til metorða í Ný-expressionistar frá Þýskalandi „Expressions: New Art from Germany" sýningin var á fyrstu hæðinni. Verkin á henni voru eftir fimm „fyrstu kynslóðar" ný- expressionista í Þýskalandi, - þá Georg Baselitz, Jörg Immendorf, Anselm Kiefer, Markus Lúpertz og A.R. Penck. Mörg verkanna voru fimmtán til tuttugu ára gömul og það gerði heiti sýningarinnar að hálfgerðum brandara. Verkin voru greinilega ekki ný nema að tíma- viðmiðunin væri sjálf eilífðin. Auðvitað skiptir ekki höfuðmáli hvort verkin eru ný eða ekki. Kraf- an um endalaust nýjabrum getur auðveldlega orðið að kröfu um yfirborðsmennsku. Yfirborðs- mennska er nokkuð sem ber meira á hjá annarri og þriðju kynslóð ný- expressíonistanna en þeirri fyrstu. Myndirnar á þessari sýningu voru þær myndir sem þessir málarar hafa orðið þekktir fyrir. Kiefer var með landslagsmyndir unnar á grófan hátt með sandi, stráum og þvíumlíku í málningunni ásamt letri hér og þar. Letrið í einni myndinni kom kunnuglega fyrir sjónir... „urð Werdandi skuld“ stóð á einni myndinni og voru þar komin nöfn skapanornanna. Baselitz var bæði með nýjar og gamlar myndir. Elstu myndir hans voru mjög hefðbundnar að öllu leyti nema því að á þeim, eins og nýrri myndunum, voru allar fígúr- ur á hvolfi. Immendorf var með nokkrar risavaxnar „Cafe Deuts- land“ myndir, fullar af karakterum sem gætu sæmt sér í hvaða Fass- binder kvikmynd sem er. Lúpertz myndlistarheiminum? Þetta eru áleitnar spurningar meðal þeirra sem lifa í fyrrgreindum heimi. Þrjár góðar Það voru fleiri sýningar í P.S.l en sú þýska. Þrjár af litlu sýningun- um voru mjög góðar. Ein þeirra var „The way we live: beyond soci- al documentary". Ljósmyndasýn- ing sem fókusaði á vinstri gagnrýni og félagslegar aðstæður fólks. Önnur góð sýning var á verkum Scott Richter. Hann var með svo sem tíu skúlptúra sem allir voru einhvers staðar á bilinu milli þess að vera fígúratívir og abstrakt. Stórar fígúrur úr tré sem byrjuðu á einhverju sem líktist fótum og end- uðu í einhverju sem minnti kannski á hús. Mætti segja mér að hann væri nákunnugur skúlptúrum Lou- ise Bourgeois. Þriðja sýningin var „Seven women/image impact" og voru verk þeirra sjö kvenna sem sýnduvalinafNancySpero. Meðal þáttakenda í þeirri sýningu voru Susan Rothenberg, Judy Rifka og Sonia Balassanina. Síðast nefnd var með verk sem hún nefndi „Kolsvartir dagar“, - mjög sterkt verk. Almennt eru sýningarnar í P.S.l ekki í grundvallaratriðum ólíkar þeim sýningum sem eru í galleríun- um inn í bæ. Þessi expressionista- sýning hefði getað verið í söfnum eins og Whitney eða Nútímalista- safninu. P.S.l er ekki endilega neitt „andófs“ sýningarhúsnæði heldur eykur fyrst og fremst á þá fjölbreytni sem fyrir er í myndlist í New York borg. Brooklyn, N.Y. 29. nóvember 1983.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.