Þjóðviljinn - 17.12.1983, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 17.12.1983, Blaðsíða 13
Helgin 17.-18. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Suðurnesjaljóð Arnartak hefur sent frá sér kass- ettuna Suðurnesjaljóð og lög frá liðnum árum eftir Kristin Reyr, mikið prógramm sem níu lista- menn flytja, tónlistarmenn.söngv- arar, leikarar, kvæðamenn. Kristinn Reyr er fæddur 1914 í Grindavík og er af bændum og sjó- mönnum kominn. Hann sleit barnsskónum á Suðurnesjum, en fluttist á unglingsárum til Reykja- víkur og stundaði þar nám og versl- unarstörf um árabil, uns hann um tvítugt lagði leið sína á ný til Suður- nesja. Hann stofnaði og rak bóka- búð í Keflavík um tveggja áratuga skeið og vann jafnframt ötullega að félags- og menningarmálum stað- arins. Flutt og útgefin verk Kristins eru á þriðja tug, leikrit,ljóðog söngv- ar. Á kassettunni er samankomið úrval þess efnis sem í verkum Krist- ins á rætur að rekja til Suðurnesja og hefur höfundurinn haft veg og vanda af vali efnisins. Flytjendur á samt honum eru Árni Tryggvason, Eyþór Þorláks- son, Jón Atli Jónasson, Jón Sigur- björnsson, Jónína H. Jónsdóttir, Kjartan Hjálmarsson, Reynir Jón- asson, og Páll Steingrímsson. Upptöku annaðist Kvik sf. Ernst Kettler. Umsjón var á hendi Jó- hannesar Helga. Um Hinrik og Hagbarð Iðunn hefur gefið út tvær nýjar teiknimyndasögur um kappana Hinrik og Hagbarð. Eru þetta þriðja og fjórða bókin um þá félaga sem út koma á íslensku. Höfundur þeirra er belgíski teiknarinn Peyo. Priðja bókin heitir Stríðið um Iindirnar sjö og segir frá því er þeir Hinrik og Hagbarður koma í gaml- an Iöngu yfirgefinn kastala. Þar reynist draugur borgarmeistarans vera á ferli og getur ekki öðlast frið fyrr en borgin er aftur komin í rétt- ar hendur ættar hans. - Hin sagan heitir Landið týnda. Bjarni Karls- son þýðir. Fermingarveislan * H VETINGA MAÐURINN Brúðkaupið Biðjið um tilboð og kynnið ykkur hvað við höfum gott að bjóða. Stórafmælið Þá getið þið sjálf notið gestanna, laus við tímafrekan veisluundirbúning. Þorraveislan Rekstrarst jórinn okkar hefur mikla reynslu í tilreiðslu þorramatar. Vagnhöfða 11 Lárus Loftsson rekstrarstjóri Slrni 86880 Glæsilegt veisluborð er prýði brúð- kaupsvei^lunnar. Og matsveinninn og þjónninn koma líka ef þið óskið. Önnur þjónusta Veitingamaðurinn býður marg- háttaða aðra þjónustu, s.s.hádeigis- verði í fyrirtæki, nestispakka í fjölskyldu- og fyrirtækisferðina o.m.fl. Veisluborðin eru hagkvæm og ódýr og allir réttir í hæsta gæðaflokki. Við sjáum um veitingamar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.