Þjóðviljinn - 31.01.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 31.01.1984, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 31. janúar 1984 'ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Besti árangur Islands íslcnska landsliðið í borðtennis náði sínum besta árangri í Evrópukeppninni, 3. deild, til þessa á Möltu um helgina. ísland varð í öðru sæti, tapaði úrslita- leiknum gegn Búlgaríu 7-0. Búlgarir eru 1. deildarþjóð en var felld niður í 3. deild síðast fyrir að mæta ekki til keppni. ísland vann Jersey 4-3 á fimmtudaginn og á föstudag vannst 4-3 sigur á Möltu í hörkuspennandi leik þar sem úrslit réðust ekki fyrr en í síðustu viðureign þegar Tómas Guðjónsson bar sigurorð af Kordonna í einliðaleik karla, 21-11 og 21-14. Jafntefli neðstu liðanna Fylkir og Reynir úr Sandgerði gerðu jafntefli, 21-21, í miklum baráttuleik í 2. deild karla í handknattleik á fóstudagskvöldið. Reynir var yfir mest allan tímann en Fylkir jafnaði loks 17-17 og gerði síðan jöfnunarmark 15 sekúndum fyrir leikslok. Gunnar Baldursson skoraði 7 mörk fyrir Fylki, Einar Einarsson 5 og Jón Leví 4. Daníel Einarsson 6, Snorri Jóhannesson 5 og Kristinn Arnarsson 3 voru markahæstir hjá Sandgerðingum. Fallbaráttan í deildinni jafnast enn, HK og ÍR hafa 6 stig, Fylkir 5 og Reynir 3 stig. - Frosti/VS. Lewis nálgast Beamon! Carl Lewis, sem af mörgum er álitinn mesti íþróttamaður heims um þessar mundir, nálgast óðfluga heimsmetið „óvinnandi" í langstökkinu, 8,90 metra, en þá vegalengd sveif Bob Beamon frá Bandaríkjunum í Mexíkó fyrir tæpum 16 árum. Lewis setti um hclgina heimsmet innanhúss, stökk 8,79 metra, sem er annað lengsta stökk sem um getur í sögunni. Hann vantar því aðeins 11 sm til að ná Beamon og kunnugir telja að hann fari létt með það á þessu ári, eigi eftir að svífa yfir 9 metrana áður en það sé úti. Skyldi ekki vera farið að lengja langstökksgryfjurnar þar sem von er á kappanum? Laugdælir í baráttunni Laugdælir eru með í baráttunni um sæti í úrvalsdeildinni í körfuknattleik eftir góðan sigur á Grindvikingum í Keflavík á föstudagskvöldið, 63-59. Laugdælir höfðu 38-31 yfir í hálfleik. Flest stig þcirra gerðu hástökkvarinn Unnar Vil- hjálmsson, 21, og sama stigafjölda skoraði Hjálmar Hallgrímsson fyrir Grinda- vík. Laugdælir eru með 14stigúr 11 leikjum, Fram 16 stig úr 11 leikjumogIS20 stig úr 14 leikjum. - VS. Heimaliðið komst ekki! Körfuknattleikslið Framara fór fýluferð í Borgarnes á föstudagskvöldið því þegar þangað var komið varð Ijóst að „heimaliðið" kæmist ekki til leiks vegna ófærðar! Snæfell úr Stykkishólmi, sem leikur heimaleiki sína í Borgarnesi, átti að mæta Fram í bikarkeppninni. Þeir Hólmarar lögðu af stað á kraftmiklum kerrum en eftir að hafa komist 30 km á rúmum tveim tímum sneru þeir heim á ný. Leikurinn hefur vcrið settur á í Borgarnesi í kvöld. -gsn/VS. Ólympíueldur tendraður Ólympíueldurinn, sem loga mun í Sarajevo meðan vetrarólympíuleikarnir standa þar yfir í næsta mánuði, var tendraður með geislum sólarinnar sjálfrar á Ólympsfjalli í Grikklandi á sunnudaginn. Það var grískur námsmaður sem sá um það og skeiðaði síðan af stað í átt til Sarajevo í Júgóslavíu. Tíu grískir námsmenn skiptu á milli sín fyrsta áfanga hlaupsins mikla. - VS. JR vann tvo af fimm Júdófélag Reykjavíkur átti sigurvegara í tveimur flokkum af limm i fyrri hluta afmælismóts JSÍ sem fram fór í íþróttahúsi Kennaraháskólans á laugar- daginn. Rúnar Guðjónsson sigraði í 65 kg flokki og Halldór Guðbjörnsson í 71 kg flokki. Kristján Valdemarsson, Ármanni, sigraði í 95 kg flokki, Sigurður Hauksson, UMFK, í 86 kg flokki og Gunnar Jóhannesson, Grindavík, í 60 kg flokki. Síðari hluti mótsins fer fram 11. febrúar og þá verður keppt í opnum flokki karla og kvenna, svo og í unglingaflokki. - VS. Annar sigur meistaranna íslandsmeistarar KR í körfuknattleik kvenna unnu sinn annan sigur í vetur, og hann óvæntan, 41-38 gegn Haukum á sunnudagskvöldið. Staðan í hálfleik var 25-22, KR í hag. Erna Jónsdóttir skoraði 12 stig fyrir KR og Cora Barker 6 en Sóley Indriðadóttir gerði 16 stig fyrir Hauka, Svanhildur Guðlaugsdóttir og Anna Guðmundsdóttir 8 hvor. Möguleikar Haukastúlknanna á mcistaratitlin- um eru því orðnar hverfandi. - VS. ÍR-stúlkurnar styrktu stöðu sína: Voru sterkari á lokasprettinum ÍR-ingar tryggðu stöðu sína á toppi 1. deildar kvenna í körfubolta með því að bera sigurorð af aðal kcppinautum sín- um. Stúdínum, í æsispennandi leik er háður var í Seljaskóla um helgina. Lokatölur urðu 56-52 ÍR-stúlkum í hag eftir að Stúdínur höfðu verið yfir í hálf- leik, 34-27. Mikið jafnræði var með liðunum mest allan fyrri hálfleikinn, Stúdínur þó yfirleitt með nauma forystu. f seinni hálfleik snerist dæmið við, ÍR-ingar náðu góðum kafla og tókst að jafna metin. Stúdínurgáfustþóekkiupp, þær komust í 46-42. ÍR-ingum tókst þá að jafna metin og gott betur, komust í 54- 46 og þrátt fyrir góða viðleitni tókst Stúdínum ekki að vinna upp þann mun. Lokatölur sem fyrr sagði 56-52. Emelia Sigurðardóttir átti bestan leik fR-inga. Þá komst Thelma Björnsdóttir vel frá leiknum þrátt fyrir að lenda í villuvandræðum snemma leiks. Hjá Stúdínum voru þær Þórunn Rafnar, Kolbrún Leifsdóttir og Þórdís Kristjánsdóttir bestar. Stig ÍR: Emelía 21, Thelma 12, Auður Rafnsdóttir og Guðrún Gunnarsdóttir 6, Fríða Torfadóttir 5, Þóra Steffensen 4. Stig ÍS: Þórunn 16, Kolbrún 10, Þórdís 8, Ragnhildur Steinback 6, Kristín Magnús- dóttir 5, Þorgerður Sigurðardóttir 2 og Guðný Eiríksdóttir 1. - Frosti - Suður-amerísku snillingarnir Zico (t.v.) og Diego Maradona skoruðu tvö mörk hvor fyrir félög sín á Ítalíu og Spáni um helgina. Maradona, Zico og Platini á ferð: Rétta hefndin! Diego Maradona kom fram réttu hefndinni fyrir fótbrotið slæma í fyrri leik Barcelona og Atletico Bil- bao í spænsku 1. deildarkeppninni í haust. Liðin mættust í Bilbao um helgina, Barcelona vann 2-1 og Maradona skoraði sjálfur bæði mörkin. Þetta var fyrsta tap meistaranna í 14 leikjum. Bilbao heldur þó forystunni, með 30 stig, því Real Madrid gerði aðeins markalaust jafntefli við Real Sociedad og er með 29 stig. Barcelona og Atletico Madrid koma næst með 26 stig. Juventus gerði 1-1 jafntefli við Napoli á útivelli í ítölsku 1. deildinni og missti forystuna niður í tvö stig því nágrannarnir Torino unnu AC Milano 3-1. Michel Plat- ini skoraði mark Juventus en Zico hinn brasilíski gerði tvö fyrir Udin- ese sem vann Avellino 2-1. Zico er því með 15 mörk, Platini 13. Ju- ventus hefur 26 stig, Torino 24, Fi- orentina 23, Roma, Verona og Udinese 22 stig. - VS. Enska bikarkeppnin - 5. umferð: Watford - Brighton og Hove Albion, sem svo eftirminnilega sló Liverpool útúr ensku bikarkeppninni í knatt- spyrnu á sunnudaginn, fékk vart verðlaun við hæfl þegar dregið var til 5. umferðarinnar í gær. Bright- on þarf að heimasækja 1. deildarlið Watford á Vicarage Road norður af London í 16-Iiða úrslitunum þann 18. febrúar. Vegna frestana og jafntefla er aðeins endanlega ljóst um tvær viðureignir af átta í 5. umferð. Hin er sú að 2. deildarlið Blackburn, sem hefur verið ósigrandi síðan í nóvember, fær Southampton í heimsókn. Niðurstaðan í gær varð þessi: Brighton Watford-Brighton Blackburn-Southampton Oxford-Sh. Wed/Coventry Derby/Telford-Tottenh./Norwich GiIIingham/Everton-Shrewsbury - Plymouth-WBA/Scunthorpe Birm .ham-W. Ham/Cr. Palace Huddersf./Notts. C.-Middlesb./ Bournem. Stórlið 1. deildar hafa beðið mikið afhroð og af ellefu efstu lið- um þar eru aðeins fjögur eftir í keppninni. Það eru því betri mögu- leikar en nokkru sinni fyrr fyrir uppgangslið á borð við Coventry, Norwich og Watford en ekkert þessara liða hefur leikið til úrslita í bikarkeppninni. - VS. Guðmundur í Víking ? Guðmundur Magnússon, drengja- og unglingalandsliðsmaðurinn efni- legi sem lék með ísfírðingum í 1. deildinni í knattspyrnu sl. sumar, hef- ur undanfarnar vikur æft stílt með 1. deildarliði Víkings. Hann hefur þú ekki tekið endanlega ákvörðun um hvort hann leikur með Hæðargarðs- liðinu í sumar. - Frosti. Logi aðstoð- ar Petterson Gunnar Pettersen, fyrirliði norska handknattleikslandsliðsins, sem lék hér á landi um helgina, er þjálfari og leikmaður með Fredensborg/Ski í heimalandi sínu. Aðstoðarþjálfari hans þar er íslenskur, FH-ingurinn Logi Olafsson sem nú er búsettur í Noregi. Pétur skorar Sævar útaf Pétur Pétursson skoraði eitt mark og lagði annað upp þegar Antwerpen vann Waterschei 4-2 í belgísku 1. deildarkeppninni í knattspyrnu á sunnudaginn. Lárus Guðmundsson kom inná sem varamaður hjá Wat- erschei en hann á í miklum útistöðum við þjálfara liðsins þessa dagana. Sævar Jónsson var rekinn af leikvelli fyrir slæmt brot þegar CS Brúgge tapaði 2-0 fyrir Standard í Liege. Beveren er áfram á sigurbraut, vann Beerschot 3-2 og er með 34 stig. Seraing hefur 28 stig, Anderlecht 26 og Standard 25 stig. - VS. Einar kom á óvart Einar Gunnarsson, ungur piltur úr Breiðabliki, varð óvæntur íslands- meistari í þrístökki karla án atrennu á meistaramóti íslands í atrennulausum stökkum sem fram fór á sunnudaginn. Hann stökk 9,54 metra. Unnar Garðarsson úr HSK sigraði í tveimur greinum, stökk 1,63 m í há- stökki án atrennu og 3,16 m í lang- stökki án atrennu. Kolbrún Rut Step- hens, KR, vann einnig tvöfalt, stökk 1,40 m í hástökki og flaug 7,97 m i þristökki í kvennaflokki. Loks sigraði Helga Halldórsdóttir KR, í langstökki kvenna, án atrennu, stökk 2,55 metra. - VS. „United getur þá ekki annað en selt mig“ Frá Heimi Bergssyni frétta- manni Þjóöviljans í Englandi: „Þessi upphæð er ótrúleg - ef hún reynist sönn - Manchester United getur þá ekki annað en selt mig. Annars er Bryan Robson mitt stærsta áhugamál þessa stundina að hjálpa Man. Utd. til að vinna ein- hverja titla“, sagði Bryan Robson, fyr- irliði Man. Utd. og enska landsliðsins í knattspyrnu, um helgina. ítalska félagið Sampdoria er sagt hafa boðið 3 miljónir punda í Robson en það yrði langhæsta upphæð sem greidd hefur verið fyrir enskan knatt- spyrnumann - helmingi hærri en risa- sölurnar sem áttu sér stað fyrir nokkr- um árum. Ron Atkinson, fram- kvæmdastjóri Man. Utd., er þó harður á að halda fyrirliða sínum og segir ekki hægt að meta hann til fjár. Real Madrid skoöar Rush Útsendarar frá spænska stórliðinu Real Madrid voru mættir á Goldstone Ground á sunnudaginn og sáu Ian Rush leika þar með Liverpool gegn Brighton. Þeir tóku leikinn uppá myndband til nánari athugunar, Spánverjarnir hafa mikinn áhuga á þessum mikla marka- skorara. Það er þó talið ólfklegt að Li- verpool láti hann fara í bráð, hann skrif- aði undir nýjan tveggja ára samning við félagið í sumar. Real Madrid er einnig með Gary Shaw hjá Aston Vdla í smá- sjánni (eða á myndbandinu). Hudson lögsækir Arsenal! Alan Hudson, fyrrum leikmaður Chelsea og Stoke, sem lék að nýju með Stoke um helgina, gegn Arsenal, hyggst lögsækja Arsenal fyrir slúður. Málið er snúið og fléttast inní brottrekstur Terr- ys Neill, framkvæmdastjóra Arsenal, frá félaginu í desember. Neill hafði ver- ið í einhverju sambandi við Hudson með það í huga að kaupa hann. Eindhoven vill fá Mariner Hollenska félagið PSV Eindhoven vill nú fá enska landsliðsmiðherjann Paul Mariner frá Ipswich til liðs við sig. Mariner er búinn að vera á sölulista síðan í haust þar sem Ipswich hefur ekki talið sig geta gengið að háum launa- kröfum hans. Félagið hafnaði boði Arsenal um að kaupa Mariner fyrir 150 þúsund pund en PSV er talið hafa boðið nokkuð hærri upphæð. - HB/VS.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.