Þjóðviljinn - 07.02.1984, Qupperneq 1
Þriðjudagur 7. febrúar 1984 ÍþJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Everton
hafði það
tilraun
í þriðju
Everton tryggði sér sæti í 5. um-
ferð ensku bikarkeppninnar í
knattspyrnu í gærkvöldi með því að
sigra GUlingham 3-0 á útivelli. Lið-
in höfðu áður tvívegis skilið jöfn.
Úrslitin réðust nánast undir lok
fyrri hálfleiksins þegar 1. deildar-
liðið sökkti 3. deildarliðinu með
þremur mörkum á tíu mínútum.
Kevin Sheedy skoraði tvívegis og
Adrian Heath skaut einu inn á
milli, sínu níunda marki í síðustu
átta leikjum Everton. Andstæðing-
ar Everton í 5. umferð verða 2.
deildarlið Shrewsbury sem sló
Ipswich utúr 4. umferðinni.
Leikurinn fer fram á Goddíson
Park í Liverpool, heimavelli Evert-
on.
Motherwell, lið Jóhannesar Eð-
váldssonar, er komið í 4. umferð
skosku bikarkeppninnar eftir 3-0
sigur á Queen’s Park í gærkvöldi.
Tvö önnur úrvalsdeildarlið lögðu
andstæðinga úr neðri deildunum,
meistarar Dundee United mörðu
Ayr heima 1-0 og Hearts sigraði
Partick Thistle, efsta lið 1. deildar,
2-0.
-VS
Framarar sluppu
með skrekkinn!
Framarar, sem hafa tapað fæst-
um stigum í 1. deild karia í körfu-
knattleik, máttu þakka fyrir sigur,
86-82, á Snæfelli í bikarkeppninni í
Borgarnesi á laugardaginn. Stykk-
ishólmsliðið, sem leikur í 2. deild,
lék stórvel í síðari hálfleik og vann
upp gott forskot Fram sem hafði
góða stöðu, 43-29 í hálfleik. Snæfell
skoraði 53 stig gegn 43 í seinni hálf-
leik og var búið að minnka muninn
í fjögur stig þegar fimm mínútur
voru eftir en herslumuninn vant-
aði.
Ríkharður Hrafnkelsson skoraði
29 stig fyrir Snæfell en besti maður
liðsins, Sigurður Bjarnason,
skoraði 28. Sigurður Páll gerði 12
stig og Guðmundur Stefán 8. Ómar
skoraði 29 stig fyrir Fram, Þorvald-
ur 22 og Guðbrandur 10. Fram
mætir Keflvíkingum í 8-liða úr-
slitum bikarkeppninnar.
-gsm/Stykkishólmi
Þór lagði Ármann
Kolbrún Rut Stephens, frjálsíþróttakonan fjölhæfa úr KR, vippar sér yfir 1,58 m í hástökki á meistaramótinu.
Meistaramótid í frjálsum íþróttum innanhúss
Stefán nældi í tvö
gull og tvö silfur
Þórsarar frá Akureyri gerðu
hörkugóða ferð á Reykjavíkur-
svæðið um helgina, unnu þar þrjá
leiki í 3. deild karla í handknattleik.
Fyrst léku þeir þýðingarmesta
leikinn, við Ármenninga í Laugar-
dalshöll og sigruðu 24-22 eftir
hörkuspennandi viðureign. Staðan
var 22-22 rétt fyrir leikslok en á
allra síðustu stundu skoruðu Krist-
inn Hreinsson og Sigurður Pálsson
og tryggðu Þórsurum dýrmætan
sigur.
Daginn eftir vann Þór auðveldan
sigur á Ögra, 44-14, og loks lágu
Selfyssingar á sínum heimavelli,
24-19.
Afturelding vann góðan sigur á
Tý í Vestmannaeyjum, 18-15, og
þau úrslit, ásamt tapi Ármanns,
hleypa gífurlegri spennu í deildina.
Akurnesingar lentu í dulitlu basli
Real á
toppinn
Real Madrid tók forystuna í 1.
deildarkeppninni í knattspyrnu á
Spáni um hclgina, vann Cadiz 3-2
meðan Atletico Bilbao tapaði 1-0
fyrir Atletico Madrid. Barcelona
vann Murcia 2-0 með tveimur
mörkum Bernds Schuster og er í
þriðja sæti með 28 stig eins og Atl-
etico Madrid. Real Madrid hefur
31 stig og Bilbao 30 stig. -VS
ÍR vann í
Njarðvík
ÍR náði í gærkvöldi sex stiga for-
ystu í 1. deild kvenna í körfuknatt-
lcik með því að sigra UMFN í
Njarðvík 54-51. IR-stúIkurnar
hafa því 24 stig gegn 18 hjá ÍS en ÍR
hefur leikið einum leik meira. 1
fyrrakvöld unnu Haukar KR 61-39
í Hafnarfirði og Haukastúlkur eru
því með 14 stig. -VS
með Skallgrím í Borgarnesi en
unnu 29-20 eftir 13-10 í hálfleik.
Staðan í 3. deild:
Týr..............12 9 2 1 297-193 20
ÞórAk............13 9 1 3 339-229 19
Ármann...........12 9 0 3 344-267 18
Afturelding......12 9 0 3 292-201 18
Akranes..........11 7 1 3 274-216 15
Keflavík.........11 6 0 5 279-230 12
Selfoss..........12 2 0 10 206-259 4
Skallagrimur.....12 1 0 11 177-326 2
Ögri.............13 0 0 13 186-473 0
-K&H/VS
Stefán Þór Stefánsson úr ÍR var mest áberandi allra
á meistaramóti íslands í frjálsum íþróttum innanhúss
sem haldið var í Reykjavík um helgina. Hann sigraði í
tveimur greinum, stökk 7,36 m í langstökki og hljóp 50
m grindahlaup á 7,2 sek. Hann varð einnig annar í
hástökki og 50 m hlaupi karla.
Magnús Haraldsson úr FH náði einnig að sigra í
tveimur greinum. Hann hljóp 800 m á 2:02,1 mín. og
1500 m á 4:31,8 mín.
Bryndís Hólm, ÍR, sigraði í langstökki kvenna,
stökk 5,88 m. Hún stökk mjög óvænt 1,72 m í há-
stökki en var ekki skráð í keppnina. Þórdís
Hrafnkelsdóttir, UÍA, sigraði því í hástökki, með
l, 61 m.
Aðrir sigurvegarar urðu þessir: 50 m hlaup kvenna
-Oddný Arnadóttir, ÍR, 6,4 sek. 800 m hlaup kvenna
- Súsanna Helgadóttir, FH 2:31,1 mín. 50 m grinda-
hlaup kvenna - Helga Halldórsdóttir, KR, 7,3 sek.
Kúluvarp kvenna- Soffía Gestsdóttir, HSK, 12,66 m.
50 m hlaup karla - Jóhann Jóhannsson, ÍR, 5,9 sek.
Hástökk karla - Gunnlaugur Grettisson, íR, 1,96 m.
Kúluvarp karla - Garðar Vilhjálmsson, UÍA, 14,35
m. Þrístökk karla - Guðmundur Sigurðsson, ÚMSE,
14,27 m.
Fréttir frá Englandi.
Maxwell vill kaupa
Manchester United!
Frá Heimi Bergssyni frétta-
manni Þjóðviljans í Eng-
landi:
Robert Maxwell, milljónamær-
ingurinn og blaðaeigandinn sem á
3. deildarlið Oxford United, mun
vera reiðubúinn til að kaupa knatt-
spyrnuliðið Manchester United.
Hann var ekki til umræðu um mál-
ið við enska blaðamenn nú um
helgina en C.M. Edwards, formað-
ur Man. Utd, lét hafa eftir sér að
eitthvað væri að gerast þó svo ekk-
ert hefði enn komið inná borð hjá
sér. Talið er að Maxwell hafi boðið
10 milljónir í félagið en sunnu-
dagsblöðin ráðlögðu honum að
lækka boðið ef Man. Utd héldi
áfram að leika eins illa og gegn
Norwich á laugardaginn. Þá leiða
þau getum að því, að fari svo að
Maxwell taki völdin, sé eins víst að
hann leiði Jim Smith, fram-
kvæmdastjóra Oxford, í stól Ron
Atkinsons, stjóra Man. Utd.
2. deildarlið Barnsley hefur boð-
ið 100 þúsund pund í Jimmy Case,
fyrrum Liverpool-leikmann sem
nú leikur með Brighton. Barnsley
hefur gengið illa undanfarið, en
framkvæmdastjóri félagsins er
Norman Hunter, fyrrum járnkarl í
vörn Leeds og enska landsliðsins.
Á undan honum hélt þar um
stjórnvölinn Allan Clarke, félagi
hans úr Leeds. í vetur hefur fá-
menn en hávær klíka haldið sig aft-
an við þjáifaraboxið á heimavelli
Barnsley, Oakwell, látið ófriðlega
og gargað í sífellu: „Burt með
Hunter, við viljum Clarke". Á
laugardaginn, þegar Barnsley beið
2-3 ósigur fyrir Cardiff var þolin-
mæði Hunters á enda, hann stökk
ÍR-ingar eru á uppleið á ný í hand-
knattleik karla, þar sýndu þeir í fyrra-
dag er þeir unnu frækinn sigur á
Gróttu, 21-19, í 2. deildinni. Gróttan
var yfir, 10-7, í hálfleik, en góður varn-
arleikur IR-inga eftir hlé lagði grunninn
að þessum óvænta sigri þeirra. Atli Þór
Þorvaldsson skoraði 7 mörk fyrir ÍR og
Þorsteinn Guðmundsson 4, en Sverrir
Þór Sverrisson var atkvæðamestur Sel-
tirninga, skoraði 7 mörk.
afturfyrir boxið og sagði görgurun-
um ærlega til syndanna.
Wolves, sem situr á botni 1.
deildar, hefur gert tilboð í írska
landsliðsmanninn Eamonn O’Kee-
fe sem leikur með Port Vale í 3.
deild. O’Keefehefursannaðsigíl.
deild, lék þar með Everton fyrir
fáeinum árum.
Liverpool hefur á ný sýnt áhuga
á að fá Terry Adcock frá Colchest-
er. Það sama var uppi á teningun-
um fyrr í vetur, Adcock virtist á
leið til Anfield, en meistararnir
hættu við á síðustu stundu.
Þórarar úr Vestmannaeyjum nálgast
1. deildina hægt og bítandi, þeir unnu
sex marka sigur á Fram, 24-18, í
Reykjavík á lostudagskvöldið og
fullkomnuðu ferðina með því að vinna
Fylki 22-16 á laugardaginn. Þorbergur
Aðalsteinsson skoraði 13 markanna í
leiknum við Fram. Þá léku einnig Kópa-
vogsliðin í deildinni. Breiðablik vann
HK 2M8.
Jimmy Case - á förum frá Brigh-
ton?
Staða framkvæmdastjóra hjá 4.
deildarliði Torquay er laus. Meðal
umsækjenda eru Emlyn Hughes,
hinn eini og sanni, og Gordon Lee,
sem áður stýrði m.a. Everton og
Preston, en var rekinn frá báðum.
Staðan í 2. deild:
ÞórVe.......... 12 12 0 0 271-202 24
Fram........... 12 9 1 2 268-230 19
Breiðablik......12 9 0 3 256-225 18
Grótta..........12 6 1 5 259-243 13
ÍR............. 12 4 0 8 200-239 8
HK............. 12 3 0 9 215-245 6
Fylkir......... 12 1 3 8 214-250 5
ReynirS........ 12 1 1 10 253-302 3
-Frosti/VS
ÍR-ingar á örri uppleið