Þjóðviljinn - 16.02.1984, Qupperneq 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. febrúar 1984
íslenska óperan.
Náaflóðið
eftir Benjamin Britten.
Benjamin Britten samdi Nóa-
flóðið árið 1957 við texta ensks
miðalda undraleiks, Noey’s
Fludde, sem varðveist hafði í
handritum frá 16. öld. í Nóaflóðinu
útfærði Britten hugmyndir sem
hann hafði sett fram í Litla sótaran-
um frá 1949, um hvernig gera mætti
óperu fyrir börn og með þátttöku
barna. Óperan byggist því á þátt-
töku fjölmargra barna með mis-
jafnlega mikla reynslu og nám að
baki.ná byrjendumtil lengrakom-
inna. Mikil áhersla er því lögð á
uppeidislega þáttinn og er reyndar
í fullu samræmi við upprunalega
markmiðið með undraleikjunum
sem var ætlað að veita ólæsum al-
múga nokkra Biblíu- og trúarupp-
fræðslu Það geta allir verið með,
fengið hiutverk eftir þroska og getu
og þátttakan er ekki einskorðuð
við þau börn sem koma fram á svið-
inu, því áhorfendur hafa einnig
hlutverk sem heljarstór og mikill
kór. íslenska óperan hefur haft
samstarf við tónmentakennara
grunnskólanna sem hafa undirbúið
börnin og kennt þeim áhorfenda-
söngvana,svo hér er áreiðanlega
um að ræða einhverja þá víðtæk-
ustu leikhúsvinnu sem hægt er að
ímynda sér.
Verkið er afskaplega vel úr garði
gert og er vel til þess fallið að vekja
áhuga ungra áheyrenda. Óll
symbolík í verkinu er einföld og
fyrst og fremst mjög skýr, t.d. rign-
ingarhljóð, stormur, þrumur og
eldingar, hamarshögg o.s.frv. og
hópsöngvar eru mjög sönghæfir
jafnvel þótt þeir hljómi kannski
töluvert fióknir. Aftur á móti finnst
mér textinn í þýðingunni óþarflega
þungur og alls ekki í samræmi við
málþroska barna í yngri bekkjum
grunnskólans.
Mín reynsla sem tónmennta-
kennara sýndi að það var textinn
sem vafðist fyrir krökkunum, enda
ekki að furða með vers eins og t.d.:
„Hvað þá, er höfugt þagnar djúp
þeir þeytast kringum jarðarhjúp?
Hvað þá, er hvergi ómar orð
um allra þeirra hnatta storð?"
Með texta sem svo gjörsamlega
er ofvaxnir skilningi barnanna og
„Sýningin á Nóaflóðinu er ágætis framtak og viðleitni til þess að vega aðeins upp á móti því stórfljóti dægurlaga sem skellur nú linnulaust á
hljóðhimnum barna jafnt sem annarra“, segir Aagot Oskarsdóttir m.a. í umsögn sinni um barnaóperuna.
Aagot Óskarsdóttir
skrifar um
tónlist
Nóaflóðið
erfitt er að læra er stutt í að áhuginn
fari að dofna.
Sýningin á Nóaflóðinu var í heild
áferðarfalleg og smekkleg og hefur
Sigríður Þorvaldsdóttir unnið
mikið og gott starf við að leikstýra
öllum þessum fjölda. Það var ekk-
ert ofgert í leiknum, en gaman
hefði verið ef verkið hefði leyft ör-
lítið meira svigrúm fyrir dýrin að
bregða á leik. Flytjendur stóðu sig
undantekningarlaust eins og hetj-
ur, Halldór Vilhelmsson og Hrönn
Hafliðadóttir sem Nói og frú, Guð-
mundur, Lárus og Júlíus sem synir
þeirra, og Hrafnhildur, Bergdís og
Þórunn sem tengdadæturnar.
Skrafskjóðurnar voru mjög
skemmtilegar og dansar hrafns og
dúfu vel af hendi leystir af þeim
Guðmundi Eyfells og Jarþrúði
Guðnadóttur. Og ekki má gleyma
dýrahjörðinni og hljómsveitinni
sem áttu sinn þátt í að skapa áhrifa-
mikla sýningu.
Reyndar fannst mér ójafnvægi
milli söngvara og hljómsveitar of
mikið. Það verður að hafa það í
huga að þarna er í fæstum hlutverk-
um um þjálfaða söngvara með mik-
inn raddstyrk að ræða og alltof oft
var hljómsveitin í þann veginn að
yfirgnæfa sönginn. Svo verð ég að
minnast á staðsetningu trompet-
anna, en allavega þar sem ég sat í
salnum fóru þeir langt með að yfir-
gnæfa allt annað í síðasta hluta
verksins. Burtséð frá þessum
göllum var tónlistarflutningurinn
með ágætum og Jón Stefánsson
stjórnaði af röggsemi. Búningar
þóttu mér sérstaklega skemmti-
legir og sviðsmyndin sömuleiðis.
Sýningin á Nóaflóðinu er ágætis
framtak og viðleitni til að vega að-
eins upp á móti því stórfljóti mis-
jafnra dægurlaga sem skellur nú
íinnulaust á hljóðhimnum barna
jafnt sem annarra. Að taka þátt í
slíkri sýningu er áreiðanlega
skemmtiíeg reynsla og upplifun
bæði þeim börnum sem fram komu
á sviðinu og hinum á áhorfenda-
bekkjunum.
ULLIN
eins og hún getur best orðið
Prentist myndin vel sést hversu góður lokkur er í þessari gæru frá Reykhól-
um.
Til tals hefur komið að leggja
niðu.- tilraunabú það í : sauðfjár-
rækt,sem rekið hefur verið á
Reykhólum frá því haustið 1958.
Við fjárskipti 1960 var keyptur til
búsins nýr stofn og hafln ræktun á
hreinhvítu fé. Síðan þá hefur dr.
Stefán Aðalsteinsson haft yflrum-
sjón með þessari ræktun í sam-
vinnu við Inga Garðar Sigurðsson,
tilraunastjóra á Reykhólum.
Naumast mun um það deilt að
árangurinn af þessari ræktun á
Reykhólafénu hefur orðið mjög
góður, bæði að því er snertir ullar-
magn og ullargæði. Talið er að hver
kind á vísitölubúi skili 1,94 kg. af
ull. Á Reykhólabúinu er ullin af
hverri kind 2.80 kg. Þessi ull, sem
Reykhólaféð gefur umfram annað
fé, jafngildir að verðmæti 37 dilk-
um, miðað við vísitölubú. Munar
um minna og er þó sagan ekki öll
sögð.Hver er dómur þeirra, sem
metið hafa Reykhólaullina og unn-
ið úr henni? Og hvernig hafa gær-
urnar af Reykhólafénu reynst?
Við spurðum Árna Sigurðsson,
ullarmatsmann á Álafossi:
Hann sagði ullina af Reykhóla-
fénu kannske eitthvað grófari en
aðra ull en hún væri mjög vel hvít
og með öllu laus við rauðar illhær-
ur. Árið 1982 fóru 92% ullarinnar í
úrvalsflokk og6,37% ífyrstaflokk,
er þetta langt umfram það, sem
gerist með aðra ull. Árið 1983 var
útkoman lakari. Þá fóru 44% ullar-
innar í úrvalsflokk en 55% í fyrsta
flokk. Ástæðurnar fyrir þessari aft-
urför munu vera þær að veðurfar
gerði erfitt um vik með að halda
lofti í húsunum nægilega hreinu og
að gefið var vothey. Stækjumynd-
un var því meiri. En þetta er alhvítt
fé og ullin af því eins og hún getur
best orðið, sagði Árni.
Júlíus Steinarsson, feldskeri hjá
Sútunarverksmiðju Sláturfélags
Suðurlands sagði:
Skinnin af Reykhólafénu eru
mjög góð. Þau eru yfirleitt stærri
en af öðru fé og áberandi hvítt. Þær
flíkur, sem ég hef gert úr þessum
skinnum, finnst mér mjög fallegar.
Ég tel ræktun þessa fjár ákaflega
jákvæða fyrir skinnaiðnaðinn, og
gef þessari starfsemi mín bestu
meðmæli.
Ásgeir Nikulásson hjá Sútunar-
verksmiðju Sláturfélagsins sagði:
Við höfum fengið gærur af
Reykhólafénu nú í allmörg ár. Þær
eru mjög góð vara og á það bæði
við um skinnin og ullina, sem er
alveg hreinhvít. Þessar gærur eru
ákaflega góðar í pelsa, hvort held-
Alhvítt unglamb frá Reykhólum
Dr. Stefán Aðalsteinsson hefur haft
yflrumsjón með rannsóknum á
Reykhólafénu. Hér skoðar hann og
flokkar ullina.
ur þeir eru langhærðir eða klipptir.
Við höfum ekki ennþá gert úr þeim
mokkaflíkur en ég hef trú á því að
til þess séu þessi skinn einnig mjög
góð.
Þannig er nú dómur þessara fag-
manna.
Hér sýnist of mikið hafa áunnist
til þess að leggja árar í bát. Þvert á
móti ætti næsta skrefið að vera að
dreifa nú Reykhólafénu smátt og
smátt út um landið jafnframt því að
tilraununum sé haldið þar áfram.
Er það handhægast með því að
hafa hrúta þaðan á sæðingarstöðv-
unum.
Ullar- og skinnaiðnaður okkar
Islendinga er þýðingarmikill og
vaxandi atvinnugrein. En verð-
mætasköpun hans getur enn aukist
að miklum mun ef rétt er á málum
haldið. Takmarkið með sauðfjár-
ræktinni hlýtur að vera að sameina
ullar- og kjötgæði. En þá ríður á að
glata ekki því, sem áunist hefur.
- mhg