Þjóðviljinn - 16.02.1984, Page 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. febrúar 1984
Alþýðubandalag Borgarness og nærsveita
Almennur félagsfundur
veröur haldinn
sunnudaginn
19.febrúaríhúsi
félagsins Brák-
arbraut 3. Fund-
arefni: 1) Inn-
taka nýrra fé-
laga. 2) Skuli Al-
exandersson
segir fréttir frá
Alþingi. Skúli Vllborg Halldór
3) Vilborg Harðardóttir varaformaður AB segir frá flokksstarfinu und-
anfarið og framundan. 4) Halldór Brynjúlfsson ræðir atvinnumál í
Borgarfirði og nágrenni. 5) Önnur mál. - Stjórnin.
Félagsmálanámskeið
Félagsmálanámskeið hefst mánudaginn 20. febrúar kl. 20 að Hverfis-
götu 105, Reykjavík. Námskeiðið er tvisvar í viku, sjö kvöld og lýkur 10.
mars. Leiðbeinendur verða:
Ræðumennska: Baldur Óskarsson
Framsögn: Kristín Á. Ólafsdóttir
Fundir og félagsstörf: Karl Rafnsson
Hópefli: Gunnar Ámason.
Þátttökugjald er kr. 200.- Mjög fáir komast að í þetta sinmog er fólk því
beðið aö skrá sig strax að Hverfisgötu 105 eða í síma 17500.
-Stjórn AfAb.
Alþýðubandalagið
Miðstjórnarfundur
Miðstjórn Alþýðubandalagsins er boðuð til fundar laugardaginn 3. og
sunnudaginn 4. mars n.k. að Hverfisgötu 105, Reykjavík. Fundurinn
hefst kl, 13.30 á laugardag.
Á dagskrá fundarins verða m.a. kjaramál, utanríkismál, fjármál Alþýðu-
bandalagsins, undirbúningur stefnuskrárumræðu flokksins, nefndakjör
og önnur mál.
Almennir fundir
á Siglufiröi og í Hofsósi
Alþýðubandalagið boðar til almennra stjórnmálafunda á Norðurlandi
vestra um næstu helgi:
í Alþýðuhúsinu, Siglufirði, n.k. laugardag 18. febrúar kl. 16.30.
I Félagsheimilinu.Hofsósi, n.k. sunnudag 19. febrúar kl. 15.
Ragnar Amalds alþingismaður hefur framsögu á þessum fundum.
Fundimir eru öllum opnir.
Laugardaginn 4. febrúar sl. var
nýtt íþróttahús vlgt á Egilsstöðum.
„Markar það kærkomin tímamót í
íþróttalíflnu hér eystra, en iðkun
íþrótta hefur staðið með miklum
blóma á Héraði, eins og kunnugt er
en mun nú væntanlega enn eflast
verulega“, sagði Magnús Magnús-
son á Egilsstöðum í viðtali við blað-
ið.
- Hingað til hefur leikfimi-
kennsla á vegum Grunnskólans
farið fram í félagsheimilinu Vala-
skjálf,við fremur fátæklegar að-
stæður, eins og gefur að skilja. Það
var því mikill fögnuður á ferðum á
vígsluhátíðinni, sem hófst með leik
Lúðrasveitar Tónskólans, stund-
víslega kl. 14.00. Guðmundur
Magnússon, sveitarstjóri, rakti
byggingarsögu hússins, en byrjun-
arframkvæmdir hófust 1978. Fram-
reiknaður kostnaður um sl. áramót
var kr. 22.480 þús. Fjárframlög
hreppanna, sem að húsinu standa,
Egilsstaða- ogFellahrepps, héldust
í hendur við framlag ríkisins þar til
á sl. ári, en þá gerðu hrepparnir
sérstakt átak og fóru fram úr fram-
lagi ríkisins, til þess að koma hús-
inu í notkun nú um áramótin.
Aðalbyggingarmeistarinn var
Þórarinn Hallgrímsson en aðal-
verktaki Brúnás hf. á Egilsstöðum.
Helga Alfreðsdóttir íþróttakennari og nokkrir verðandi íþróttamenn.
Mynd: -mm.
Húsið er 8750 rúmm. en flatarmál
þess er 1315 ferm. Stærð íþróttasal-
ar er 22Vi x 26 m.
Við vígsluathöfnina töluðu, auk
sveitarstjóranna Guðmundar
Magnússonar og Svölu Eggerts-
dóttur, Björn Magnússon fyrir
hönd menntamálaráðuneytisins,
Guðmundur Magnússon fræðslu-
stjóri, Víðir Guðmundsson, for-
maður íþróttafélagsins Hattar á
Egilsstöðum, Ólafur Guðmunds-
son skólastjóri og Vilhjálmur Ein-
arsson, skólameistari. Kirkjukór
Egilsstaðakirkju söng og sr. Vigfús
Ingvar Ingvarsson flutti blessunar-
orð. Húsinu barst gjöf frá Sam-
vinnubankanum, Búnaðarbankan-
um og Kaupfélagi Héraðsbúa, veg-
leg markatafla, sem um leið er
klukka.
Að vígsluathöfninni lokinni
hófst íþróttadagskrá í gamni og al-
vöru en mikill fjöldi manns var við-
staddur. - Húsvörður hefur verið
ráðinn Hreinn Halldórsson.
mm/mhg
Grafík
í Safari
í kvöld
Það er semsé í kvöld og eins got
að ekki verði mikið særok á Skúla-
götunni.
Á þessari mynd sjást grafísku sveinarnir, talið frá vinstri: Rúnar Þórisson
gítaristi, Örn Jónsson bassisti, Rafn Jónsson trommari og Helgi Björnsson
söngvari.
Alþýðubandalagið Dalvík
Árshátíð
verður haldin laugardaginn 18.
febrúar nk. í Bergþórshvoli og
hefst með borðhaldi kl. 20.30.
Gestir skemmtunarinnar verða
þeir Jónas Árnason og Stefán
Jónsson. Þátttaka tilkynnist til
Svanfríðar, s. 61460, eða Ing-
vars, s. 61411.
- Árshátíðarnefnd.
Jónas
Stefán
Hljómsveitin Graflk sem mun
vera ættuð af ísaflrði er nú enn eina
ferðina komin til höfuðstaðarins og
hefur geflð út svohljóðandi yfirlýs-
ingu:
„Grafíska sveinafélagið vakti at-
hygli fyrir prúðmannlega fram-
komu í Safari í desember s.l. Mun
hljómsveitin halda uppteknum
hætti og kyrja nokkra lauflétta
söngva sjálfum sér og öðrum til
skemmtunar I Safari
fimmtudagskvöldið 16. febrúar.
- Grafíska sveinafélagið“.
ALÞYÐUBANDALAGID
Alþýðubandalagið Hafnarfirði,
Garðabæ og Seltjarnarnesi
Þorrablót
Sameiginlegt
þorrablót Al-
þýðubandalags-|
félaganna í
Hafnarfirði,
Garðabæ og á
Seltjarnarnesi
verður haldið
laugardaginn Hulda Biarnl Hallgrímur
18. febrúar á
Garðaholti.
Skemmtunin hefst með borðhaldi kl. 20.00. Miðaverð er 450.- kr. og
eru miðar seldir hjá eftirtöldum félögum: Garðabær: Guðmundur
43956, Hafnarfjörður: ína, 51531, Sólveig Brynja 53642, Seltjarnar-
nes: Gunnlaugur 23146.
Hulda Runólfsdóttir, Bjarni Eiríkur Sigurðsson og Hallgrímur
Hróðmarsson flytja blöndu af Ijóðrænu glensi og pólitískum djassi.
Þeim sem ætla á þetta þorrablót er vinsamlega bent á að panta
miða sem allra fyrst. Mætum öll hress og kát! - Skemmtinefndin.
Húsvíkingar -Þingeyingar
Alþýðubandalagið á Húsavík auglýsir árshátíð sína sem haldin verður
laugardaginn 25. febrúar í Félagsheimili Húsavíkur.
Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 20.00. Húsið opnað kl. 19.30.
Steingrímur og Stefán koma og verða með ef færð og veður leyfa.
Skemmtiatriði við allra hæfi. Látið skrá ykkur sem allra fyrst í símum
41813 og 41397.
Athugið: Hátíðin er ætluð öllum Allaböllum í Þingeyjarþingi. Hafið
samband. - Nefndin.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Verkalýðsmálaráð
Fundur verður haldinn í Verkalýðsmálaráði fimmtudaginn 16. febrúar
kl. 20.30 í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18. Á fundinn kemur Helgi
Guðmundsson og segir frá aðalfundi Verkalýðsmálaráðs Alþýðu-
bandalagsins. Mætið vel og stundvíslega. - Verkalýðsmálaráð.
Það var þéttsetinn bekkurinn á vígsluhátíðinni. Mynd: -mm.
s
Iþróttahús vígt
á Egilsstöðum