Þjóðviljinn - 03.04.1984, Síða 2
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 3. aprfl 1984
Þriðjudagur 3. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Sundmeistaramót íslands 1984:
Góður árangur
breidd - átján
Gottlieb Konráðsson, skíðagönguharðjaxl 1984,
krýndur af Matthíasi Sveinssyni. Magnús Óskars-
son keppnisstjóri fylgist með
Gottlieb fyrstur
til Þingvaiia
Gottlieb Konráðsson frá Óiafsfirði vann yfir-
burðasigur í Þingvallagöngunni 1984, skíðagöngu
fyrir harðjaxla eins og hún er kölluð, á laugardag-
inn. Gengnir voru 42 km, frá Hveradölum að Þing-
völlum, og iauk Gottlieb þeirri yfírreið á sléttum 3
klukkustundum. Tvær konur gengu, Guðbjörg
Haraldsdóttir varð á undan Sigurbjörgu Helga-
dóttur, á 3 klst og 40 mín, gegn 4 klst og 4 mín.
Halldór Matthíasson kom annar í mark, 27 mín-
útum á eftir Gottlieb. Þriðji varðGuðni Stefánsson
á 3 klst 32 mín, en 15 karlar lögðu upp og luku allir
keppni. Ýmsir voru ansi léttir á sér þegar í mark
var komið, enda dæmi um að menn væru þá orðnir
5 kg léttari en í upphafí göngunnar miklu.
- VS
Sundmeistaramót Islands, sem
haldið var í Sundhöll Reykjavíkur
um helgina, er án efa eitt það allra
besta sem haldið hefur verið hér.
Bæði var árangur keppenda stór-
góöur þegar litið er á bætinga ís-
landsmeta því í ein 18 skipti var um
metsund að ræða, svo og kom í
Ijós ört vaxandi breidd, sem lýsti
sér í jafnbetri árangri þegar á
heildina er litið og í jafnari keppni
um efstu sætin en fyrr.
Eðvarð Þ. Eðvarðsson, Njarð-
vík, setti fimm sinnum fslandsmet
á mótinu, í þremur greinum. Uppi
standa eftir mótið met í 200 m
baksundi, 2:09,90 mín, og í 100 m
baksundi, 59,53 mín, en í þessum
greinum sigraði hann, og þá setti
hann íslandsmet í 50 m baksundi,
28,25 sek, í boðsundskeppninni.
Eðvarð hlaut tvö gull og eitt silfur.
Bryndís Ólafsdóttir, HSK, hin
bráðefnilega stúlka úr Þorláks-
höfn, tvíbætti met sitt í 100 m
skriðsundi og náði á sunnudaginn
þeim áfanga að verða fyrst ís-
Lárus skoraöi Vítin voru
lenskra kvenna til að synda á undir
einni mínútu, 59,79 sek. Hún setti
einnig met í 100 m flugsundi,
1:06,66 mín. Bryndís sigraði í þess-
um tveimur greinum, fékk gull í
boðsundi að auki og tvenn silfur-
verðlaun.
Tryggvi Helgason, HSK, setti
fslandsmet og sigraði í 100 m
bringusundi, 1:05,51 mín, og bætti
í leiðinni met sitt í 50 m bringus-
undi, 31,33 mín. Hann lék sama
leik í 200 m bringusundi, sigraði á
nýju íslandsmeti, 2:24,27 mín.
Tryggvi fékk tvö gull í boðsundum,
og sílfur og brons að auki.
Guðrún Fema Agústsdóítir,
Ægi, sigraði í tveimur greinum og
setti íslandsmet 200 m bringus-
undi, 2:41,12 mín, og einnig met í
50 m bringusundi,34,84. Hún sig-
raðií 100 m bringusundi, á 1:14,43,
og var þar aðeins 3/100 frá ísland-
smeti sínu.
Ragnheiður Runólfsdóttir, ÍA,
veitti Guðrúnu Femu gífurlega
keppni í 100 og 200 m bringusundi
Lárus Guðmundsson skoraði gott mark á sunn-
udaginn þegar Waterschei vann sigur á Lierse,
3-1, í bclgísku 1. deildarkcppninni í knattspyrnu.
Arnór Guðjohnsen lék loks að nýju með Ander-
lecht er liðið vann 1-0 sigur á Lokeren. Hið langa
hlé vegna meiðslanna kom niður á honum er á leið
og honum var skipt útaf þegar kortcr var eftir af
leiknum.
Pétur Pétursson og félagar í Antwerpen töpuðu
0-1 fyrir efsta liðinu, Beveren, og CS Briigge, lið
Sævars Jónssonar, gerði 2-2 jafntefli við Beer-
schot.
Beveren og Anderlecht virðast ætla að heyja
einvígi um meistaratitilinn. Þcgar leiknar hafa ver-
ið 28 umferðir af 34 er Beveren með 41 stig gegn 39
hjá Anderlecht.
- VS.
Vésteinn vann
Vésteinn Hafsteinsson, HSK, sigraði í kringlu-
kasti á frjálsíþróttamóti í Flórída í Bandaríkjunum
á laugardaginn, kastaði 63,60 metra. Ilann var
eini íslenski keppandinn á mótinu, en flestir íslend-
inganna sem dvelja í Bandaríkjunum keppa á
miklu móti í Austin í Texas um næstu helgi.
UBK í úrslitin
Breiðablik sigraði Þrótt 3-1 í undanúrslitum
bikarkeppni kvenna í blaki um helgina og mætir
því Völsungi í úrslitaleik um næstu helgi. Leikur-
inn var óhemju sveiflukenndur, Þróttur vann
fyrstu hrinu 2-15 en Breiðablik þá næstu 15-0!
Þróttur komst í 6-14 í þriðju hrinu en tapaði samt
16-14 og síðan í 0-4 í fjórðu hrinu en tapaði henni
15-6 og þar með leiknum 3-1.
- VS.
Dýrmæt stig
til Stuttgart
Þrátt fyrir fremur slakan leik gegn Armcnia
Bieldfeld á laugardaginn tókst Stuttgart að sigra
1-0 og ná í dýrmæt stig í toppbaráttu vestur-þýsku
Bundesligunnar í knattspyrnu. Lítið bar á Ásgeiri
Sigurvinssyni að þessu sinni enda var hann í
strangri gæslu. Guido Buchwald skoraði eina
mark leiksins.
Bayern Miinchen vann upp 0-2 forystu Kölnar
og sigraði 4-2. Borussia Mönchengladhach heldur
áfram sigurgöngu sinni og vann Nurnberg 3-1 á
útivelli en Hamburger SV beið óvænt ósigur á
heimavelli gegn Waldhof Mannheim, 2-3. Fortupa £
Dússeldorf tapaði eina ferðina enn, nú 2-0 í Le-
verkusen, en hangir þó í sjöunda sætinu með 26
stig úr jafnmörgum leikjum.
Bayern og Mönchengladbach eru með 37 stig á
toppnum, Stuttgart er með 36 stig, Hamburger 35
og Bremen 32 stig,
- VS.
Vítaspyrnur voru miklir örlagavald-
ar í ítölsku knattspyrnunni um helgina.
Juventus náði að sigra Fiorentina og
skoraði Vignola sigurmarkið úr víta-
spyrnu, 1:0. Roma vann Inter Milano
1:0 með vítaspyrnu fyrirliðans Bartol-
omei og markvörður Roma varði síðan
vítaspyrnu frá leikmanni Inter. Þá varð
allt vitlaust í Catania þegar Lazio jafn-
aði þar, 1:1, úr umdeildri vítaspyrnu.
Liam Brady skoraði eitt marka Samp-
doria í 3:0 útisigri á Udinese. Juventus
hefur 37 stig gegn 34 hjá Roma þegar 5
umferðum er ólokið.
Atletico Biibao vann toppslaginn á
Spáni gegn Real Madrid, 2:1, og hefur
43 stig, Real 41, Barcelona og Atletico
Madrid 40 þegar fjórar umferðir eru
eftir.
Johan Cruyff skoraði mark Feyeno-
ord sem gerði jafntefli, 1:1, við PSV í
Hollandi. Gasselich frá Austurríki
skoraði tvö fyrir Ajax sem vann Den
Bocsh 5:12. Feyenoord hefur 44 stig,
PSV 43 og Ajax 41.
Dieter Múller skoraði 3 mörk þegar
Bordeaux vann gamla stórveldið St. Et-
ienne 7:0 í Frakklandi. Monaco sigraði
Rennes 2:1 og er með 45 stig gegn 46
hjá Bordeaux - VS
og setti síðan íslandsmet er hún
sigraði í 200 m baksundi á 2:31,52
mín. Hún vann einnig glæsilegan
sigur í 100 m baksundi á 1:11,54
mín. og hlaut tvö silfur til viðbótar.
Ingi Þór Jónsson, ÍA, setti ís-
landsmet í 200 m flugsundi, 2:19,76
mín. Hann sigraði í tveimur grein-
um til viðbótar, 100 m skriðsundi á
53,45 sek, mjög góðum tíma, og í
100 m flugsundi á 59,60 sek.
Önnur íslandsmet voru í boð-
sundum. Karlasveit HSK synti
4x100 m fjórsund á 4:13,30 mín,
kvennasveit HSK 4x100 m skrið-
sund á 4:15,03 mín, og kvennasveit
Ægis 4x100 m fjórsund á 4:49,97
mín.
Þórunn Kristín Guðmundsdóttir
og Ragnar Guðmundsson, syskinin
efnilegu úr Ægi sem komu frá Dan-
mörku, urðu mjög sigursæl þótt fs-
landsmetin féllu ekki að þessu
sinni. Þau fengu 3 gull hvort, Þór-
unn 2 brons að auki og Ragnar eitt
silfur. Anna Gunnarsdótir, Ægi,
hlaut ein gullverðlaun og ein silfur-
verðlaun og til viðbótar þeim, sem
þegar hafa verið nefnd, komust 16
á verðlaunapall, Guðbjörg Bjarna-
dóttir, HSK, Olafur Einarsson,
Ægi, Sigríður Björgvinsdóttir,
ÍBV, Magnús M. Ólafsson, HSK,
Þorgerður Diðriksdóttir, Ár-
manni, Árni Sigurðsson, ÍBV,
Smári Harðarson, ÍBV, Jóhann
Björnsson, Njarðvík, Hugi Harð-
arson, HSK, Guðmundur Gunn-
arsson, Ægi, Matha Ernstsdóttir,
Ægi, Sigurlín Pétursdóttir,
UMFB, Ingólfur Arnarsson, Ve-
stra, Þórður Óskarsson, Njarðvík,
Erla Traustadóttir, Ármanni, og
Ólafur Hersisson, Ármanni.
Staðan
í úrslitum deildakeppni karla á Is-
landsmótinu í handknattleik:
1. deild - efri:
FH..............6 6 0 0 168:142 12
Vikingur........6 3 0 3 150:145 6
Valur...........6 2 0 4 128:134 4
Stjarnan........6 1 0 5 128:153 2
Markahæstir:
Gunnar Einarsson, Stjörnunni.....51
Sigurður Gunnarsson, Víkingi.....40
Kristján Arason, FH..............39
Atli Hilmarsson, FH..............33
Stefán Halldórsson, Val..........32
Þorgils Óttar Mathiesen, FH......26
Hans Guðmundsson, FH.............25
SteinarBirgisson, Víkingi........23
l.deild - neðri:
Þróttur .... 20 10 3 7 450:456 23
KR 9 3 8 377:370 21
Haukar 5 1 14 430:497 11
KA 0 3 17 366:456 3
2. deild - efri:
ÞórVE 0 1 472:361 38
Breiðablik.. ...20 15 0 5 434:389 30
Grótta ...20 10 1 9 436:412 21
Fram 9 1 10 414:420 19
2. deild - neðri:
HK 12 1 10 446:437 25
Fylkir 23 6 4 13 416:442 16
IR 7 0 16 415:474 14
ReynirS 4 1 18 487:576 9
(leikirnir í gærkvöldi ekki taldir með).
íí
Eðvarð Þ. Eðvarðsson geysist af
stað í 200 m baksundi þar sem hann
setti glæsilegt íslandsmet á laugar-
daginn. Mynd: - eik.
Þá sýndu sig sundstjörnur fram-
tíðarinnar, fremst í flokki margra
efnilegra voru Hannes Sigurðsson
frá Bolungarvík og Hugrún Ólafs-
dóttir, HSK, systir Bryndísar. Ekki
enn verðlaunahafar á móti sem
þessu en þess veður vart langt að
bíða. -VS
Celtic lagði Aberdeen
Celtic náði að leggja efsta liðið, Aber-
deen, að velli, 1:0 í skosku úrvals-
deildinni í knattspyrnu á laugardaginn.
Jim Melrose skoraði eina mark leiksins,
sem fram fór á Celtic Park í Glasgow, á
35. mínútu. Þó er ólíklegt að Celtic tak-
ist að ná Aberdeen sem er fjórum stig-
um á undan og á tvo ieiki til góða.
Motherwell, lið Jóhannesar Eðvalds-
sonar, tapaði 0:3 heima fyrir Rangers
oger samaog fallið. Motherwell barðist
þó af krafti, markvörðurinn Hugh
Sproat varði vítaspyrnu á 37. mínútu og
mörk Rangers komu öll á síðustu 20
mínútunum.
Dundee tapaði 1-2 heima fyrir Hi-
bernian, Hearts og Dundee United
gerðu markalaust jafntefli og St. John-
stone sigraði St. Mirren 4:2.
- VS
1. deild karla í handknattleik — 2. úrslitaumferð í Digranesi:
Meistaratitillinn blasir við FH-ingum
Hafa sex stiga forskot þegar úrslitakeppnin er hálfnuð - FH 12- Víkingur 6 - Valur 4 - Stjarnan 2
FH-Víkingur 30:29
Leikur þessi var tvímælalaust
leikur umferðarinnar. Eins og fyrs-
ti leikur þessara liða einkenndist
hann af opnum sóknarleik ásamt
mikilli spennu. Varnarleikur iið-
anna gleymdist hinsvegar oft í
öllum iátunum og útkoman varð
markaflóð. En snúum okkur að
leiknum.
Víkingar komust í 6:4 eftir 10
mínútna leik en þá tóku FH-ingar
við sér skoruðu næstu 3 mörk en
Víkingar jöfnuðu 7:7 en þar skildu
leiðir. FH náðu mjög góðum kafla
og Víkingar voru sem áhorfendur.
í hálfleik var staðan 18:12.
í seinni hálfleik tóku Víkingar
það til bragðs að taka þá Kristján
Arason og Atla Hilmarsson úr um-
ferð, en þá losnaði um Hans Guð-
mundsson, hann kom FHí 20:12 og
síðan aftur í 21:13 og það virtist
aðeins tímaspursmál að Ijúka
leiknum en hið ótrúlega skeði:
Víkingar röðuðu inn 6 mörkum og
munurinn skyndilega aðeins 2
mörk, 21:19. Liðin skiptust síðan á
því að skora, FH komst í 25:22 en
Víkingur lét ekki sitt eftir liggja í
þessum „leik sveiflunnar“ þeir
komust í 28:26 er rúmlega 7 mínút-
ur voru til leiksloka. FH-ingar
settu þá menn til höfuðs þeim Sig-
urði Gunnarssyni og Herði Harð-
arsyni, það dæmi gekk upp og
næStu 3 mörk voru FH. Guðmund-
ur jafnaði fyrir Víking, 29:29 og
voru þá 4 mínútur til leiksloka.
Víkingar áttu síðan gullið tækifæri
til að komast yfir en Haraldur
Ragnarsson varði vítakast Steinars
Birgissonar. Atli Hilmarsson
tryggði FH síðan sigur með marki 2
mínútum fyrir leikslok. Lokatölur
30:29.
Haraldur markvörður, Atli,
Kristján og Þorgils Óttar áttu allir
mjög góðan dag, hver öðrum betri
ef undanskildir eru slæmir kaflar í
seinni hálfleik.
Hjá Víking voru þeir Sigurður
Gunnarsson og Guðmundur Guð-
mundsson bestir en einnig áttu þeir
Steinar, Hörður og Karl Þráinsson
- góðan leik.
Mörk FH: Krlstján 6/3 og Þorgils Óttar 6,
Atli og Hans 5, Pálmi Jónsson 4, Guð-
mundur Magnússon og Sveinn Bragason
2
Mörk Víkings: Sigurður 6, Guðmundur,
Hörður og Steinar 5, Karl 4, Hilmar Sigur-
gíslason og Ólafur Jónsson 2.
- Frosti
Stjarnan-Valur 22:20
Nokkurt jafnræði var með liðun-
um á fyrstu mínútum þessa leiks td.
var jafnt á flestum tölum upp í 6:6
en þá tóku Stjörnumenn heldur
betur við sér og skoruðu næstu 5
mörk, staðan þá 11:7. Valsmenn
náðu að minnka muninn niður í 2
mörk, staðan þá 11:7.
Seinni hálfleikur var síðan held-
ur tilþrifalítill, Stjörnumenn voru
2:4 mörkum yfir er ein mínúta var
til leiksloka og staðan þá 21:19
tóku Valur það til bragðs að spila
maður á mann og freistaði þess að
ná boltanum af Stjörnunni, Birkir
Sveinsson markvörður kórónaði
þá sigur Stjörnunnar, hann spilaði
upp allan völlinn og skoraði síðan
af línu. Þorbjörn Jensson átti síðan
síðasta orð leiksins fyrir Val með
marki frá miðju. Lokatölur því
22:20.
Stjörnumenn virðast nú aðeins
vera að koma til eftir mjög slaka
leiki í byrjun mótsins. Gunnar Ein-
arsson var rétt eina ferðina enn að-
almaðurinn í sóknaraðgerðum liðs-
ins. Þá voru þeir Magnús Teitsson
Birkir Sveinsson og Guðmundur
Þórðarson góðir.
Hjá Valsliðinu réð meðal-
mennskan ríkjum og liðið var frek-
ar baráttulaust að þessu sinni, og
mega þeir þakka ágætis varnarleik
því að sleppa með 2 marka tap.
Jakob Sigurðsson, Einar Þorvarð-
arson og Geir Sveinsson voru
þeirra bestir.
Mörk Stjörnunnar: Gunnar Einarsson 10/
5, Magnús Teitsson 4, Guðmundur Þórð-
arson 3, Bjarni Bessason 2, Birkir Sveins-
son, Eyjólfur Bragason og Hermundur
Sigmundsson 1.
Mörk Vals: Stefán Halldórsson 4/2, Geir
Sveinsson og Jakob Sigurðsson 3, Jón
Pótur Jónsson, Steindór Gunnarsson,
Þorbjörn Guðmundsson og Þorbjörn
Jensson 2, Björn Björnsson og Július
Jónasson 1.
- Frosti
FH-Valur 27-21
Rétt eins og í leik liðanna í fyrstu
úrslitaumferðinni, byrjuðu Vals-
menn af miklum krafti og náðu
góðri forystu. Þeir komust í 6-2 og
síðan í 8-3 eftir 14 mínútna leik.
Vörnin var leikin framarlega, bar-
áttan var gífurleg í liðinu og í sókn-
inni gekk línuspilið frábærlega,
enda gerði Steindór Gunnarsson 4
af fyrstu 6 mörkunum, öll eftir að
vörn FH hafði verið galopnuð.
En þarna urðu kaflaskipti. Valur
komst að vísu í 10-6 en sex mínút-
um fyrir hlé jafnaði FH í fyrsta
sinn, 11-11, kornst yfir 13-12 en
jafnt var í hléi, 14-14.
Á fyrra korteri seinni hálfleiks
réðust úrslitin. Allt small saman
hjá FH meðan flest fór úr skorðum
hjá Val, og um miðjan hálfleikinn
hafði FH gert 8 gegn einu, 22-15.
Síðan var staðan 26-19 tveimur
mínútum fyrir leikslok. Valur hafði
þá aðeins gert 5 mörk á 28 mínút-
um en skoraði tvö í lokin. Þorgils
Óttar átti síðan lokaorðið, 27-21.
Liðsheild FH var geysisterk,
loks er hún fór í gang. Kristján
Arason átti einna bestan leik, lék
samherja sína snilídarlega uppi
hvað eftir annað. Atli Hilmarsson
var mjög atkvæðmikill og skoraði
glæsimörk, Sveinn Bragason,
Þorgils Óttar og Pálmi Jónsson
Atli Hilmarsson og félagar í FH léku
mjög vel í seinni hálfleiknum gegn
Val. Mynd: -eik
léku allir mjög vel og þá ekki síður
Sverrir Kristinsson í markinu sem
varði 11 skot áð baki óhemju góðr-
ar varnar í seinni hálfleik. Nei, all-
ur vafi ætti að vera úr sögunni,
meistaratitillinn 1984 hlýtur að
hafna í Hafnarfirði.
Valsmenn áttu sem fyrr segir
mjög góðan fyrri hluta leiks en virt-
ust sprengja sig á látunum. Liðið
býr yfir fjölda karftmikilla leik-
manna og heint ótrúlegt að ógnun-
in í sóknarleiknum skuli ekki vera í
samræmi við það. Einar Þorvarð-
arson markvörður var besti maður
liðsins og undirstrikaði hver er sá
besti á landinu um þessar mundir.
Steindór og Jón Pétur léku báðir
mjög vel framan af en duttu síðan
niður eins og aðrir. Valsmenn urðu
fyrir miklu áfalli snemma í seinni
hálfleik er landsliðsfyrirliðinn og
varnarmaðurinn öflugi, Þorbjörn
Jensson, missté sig illa og hvarf af
leikvelli. Án hans átti Valur aldrei
viðreisnar von, og án hans yrðu
Valsmenn illa settir um næstu
helgi.
Mörk FH: Atli 7, Þorgils Óttar 5, Pálmi
5, Sveinn 4, Kristján 2, Hans 2/(1) og Jón
Erling 2.
Mörk Vals: Jón Pétur 5, Steindór 5,
Stefán 5(3), Valdimar 2, Jakob 1, Þorbjörn
J. 1, Júlíus 1 og Þorbjörn G.1.
-vs
Víkingur-Stjarnan 28-23
Úrslitin sama og réðust á fyrstu
25 mínútum leiksins. Staðan var 5-
4 fyrir Víking eftir 11 mínútur en
var orðin 12-14 fjórtán mínútum
síðar. Víkingar voru óhemju
baráttuglaðir og ákveðnir en leik-
menn Stjörnunnar virtust þreyttir
og kraftlitlir. Þeir tóku sig þó sam-
an í andlitinu og löguðu stöðuna í
14-9 fyrir hlé.
Víkingar héldu sínu striki fram-
an af seinni hálfleik og komust í
21-14. Þá kom besti kafli Störnunn-
Úrslit ráðast í handboltanum:
Þórarar eru
komnir upp
Þór, Vestmannaeyjum, tryggði
sér sæti í 1. deiid karla í handknatt-
leik á laugardaginn en um helgina
var önnur úrslitaumferð 2. deildar
leikin á Seltjarnarnesi. Þórarar
höfðu unnið Gróttu naumlega á
föstudagskvöldið, 26-25, en á
laugardaginn fóru þeir upp með
glæsibrag, sigruðu Breiðablik með
10 marka mun, 31-21. Á sunnudag
unnu þeir svo heillum horfna
Framara sannfærandi, 30-22.
„Ofseint
Skallagrímur og Grindavík áttu að
leika í 1. deild karla í körfuknattleik í
Borgarnesi á laugardaginn. Á föstu-
dagskvöld hringdu Skallagrímsmenn til
KKÍ og tilkvnntu stutt og laggott að þeir
gætu ekki tekið á móti Grindvíkingum.
,JÞetta var alltof seint tilkynnt hjá þeim
og ég á von á að Skallagrími verði
dæmdur leikurinn íapaður", sagði Kol-
brún Jónsdóttir framkvæmdastjóri
KKÍ í gær.
Haukar í úrslit
Haukar sigruðu IR-b í undanúrsiit-
um bikarkeppni kvenna í körfuknatt-
leik um helgina 64:43. Haukastúlkurn-
ar mæta því Njarðvík eða IS í úrslitaleik
á fimmtudagskvöldið.
Sagt eftir
2. umferð
Breiðablik er sama og öruggt
uppí 1. deild, vann Fram 26-22 og
Gróttu 22-19, og þarf bara 3 stig úr
síðustu sex leikjunum til að komast
upp í fyrsta skipti. Grótta vann
Fram 23-21 og á veika von ef
eitthvað fer úrskeiðis hjá Blikun-
um. Framarar hafa hins vegar misst
alla möguleika, hafa tapað öllum
sex leikjum sínum í úrslitaumferð-
unum.
- VS.
en KA er fallið
KA frá Akureyri féll um helgina í
2. deild karla ■ handknattleik, tap-
aði þá öllum þremur leikjum sínum
í 2. umferð fallkeppninnar sem
leikin var i Hafnarfírði. Osigrarnir
voru þó fremur naumir, 24-26 gegn
Þrótti, 17-21 gegn Haukum og 17-
20 gegn KR.
Haukar, KR og Þróttur fengu 4
stig hvert um helgina. Haukar
töpuðu 23-29 fyrir KR en unnu síð-
an góðan sigur á Þrótti, 26-21.
Þróttur vann loks KR 26-20 og þarf
því bara eitt stig enn til að vera 100
prósent öruggur um áframhaldandi
1. deildarsæti. Haukar eru sama og
fallnir, eru 10 stigum á eftir KR
þegar 6 leikjum er ólokið. - VS.
„Stress að
haldasínustriki"
„Við erum ekki orðnir (slandsmeistarar enn, en næsta umferð verð-
ur afar mikilvæg. Það er mikið stress að halda svona sínu striki og öll
liðin geta hirt af okkur stig,“ sagði Geir Hallsteinsson, þjálfari FH í
samtali við Þjóðviljann á sunnudagskvöldið.
„Mlnir menn hafa átt sveiflukennda leiki en hafa greinilega lært af
þeim og síðari hálfleikurinn gegn Val er sennilega það besta sem þeir
hafa gert í vetur, bæði í sókn og vörn.“
- Ertu ekki farinn að gæla við þá hugmynd að þið farið í
gegnum allt íslandsmótið án þess að tapa stigi?
„Ég hugsa ekki svo langt, okkar mottó er aðtaka aðeins einn leik í
einu," sagði Geir Hallsteinsson.
„FH þegar
búið að vinna“
ar, munurinn minnkaði í 22-19 og
hefði getað orðið minni ef Gunnar
Einarsson hefði ekki bombað í
þverslá Víkingsmarksins úr víta-
kasti. Við þetta tóku Víkingar við
sér á ný, fóru í 26-21 og eftir það
var bara formsatriði að kíára
leikinn.
Barátta og kraftur einkenndi
leik Víkinga í 50 mínútur af 60. Þeir
tóku Garðbæinga föstum tökum
strax, og leiki leiðið þannig áfram,
gæti það hæglega gert FH skráveifu
í síðari umferðunum tveimur.
Sterk liðsheild, Sigurður Gunnars-
son, Hilmar Sigurgíslason, hinn
vaxandi Karl Þráinsson og Steinar
Birgisson léku allir mjög vel og
aðrir voru skammt að baki.
Sigurjón Guðmundsson var
einna frískastur Stjörnumanna og
skoraði lagleg mörk úr vinstra
horninu. Gunnar var í rólegara
lagi, miðað við undanfarna leiki og
Eyjólfur Bragason var daufur
framan af en reif sig upp í seinni
hálfleik. Birkir Sveinsson varði
mjög vel fyrsta korterið og furðu-
legt að hann kæmi ekki meira í
markið eftir það. Þá er einkenni-
legt hve Bjarni Bessason hefur ver-
ið „sveltur“ út í horni, þar á Stjarn-
an karftmikla skyttu sem hlýtur að
mega nýta mikið betur.
Mörk Vfkings: Siguröur 9 (5), Steinar
6, Hilmar 4, Karl 4, Guömundur 3 og
Ólatur 2.
Mörk Stjörnunnar: Gunnar 7 (2), Sig-
urjón 6, Eyjóltur 5, Bjarni 3, Guðmundur 1
og Magnús 1.
„Við eigum enga möguleika lengur, mér sýnist FH vera þegar búið
að vinna mótið. Það stöðvar fátt Hafnfirðinga, þeir eru með mjög gott
og heilsteypt lið,“ sagði Hilmar Björnsson þjálfari Vals eftir tapið gegn
FH.
„Fyrri hálfleikur hjá okkur í kvöld var í lagi en þó var að sjálfsögðu
slæmt að tapa niður fimm marka forystu. Menn fóru að „slútta" sókn-
unum of snemma og lélega og 3-4 hraðaupphlaupum var klúðrað í
röð. Það sama var uppi á teningunum í byrjun seinni hálf leiks og þá var
hreinlega um uppgjöf hjá strákunum að ræða," sagði Hilmar Björns-
son.
„Berjumstframá
síðustu stundu“
„Hjá okkur er alltaf stefnt á toppinn, sama hver staðan er. Það
er staðreynd að FH er með besta liðið en við og Valsmenn getum
unnið þá á góðum degi. Við berjumst fram á síðustu stundu,“sagði
Sigurður Gunnarsson landsliðsmaður úr Víkingi eftir sigurinn á Stjörn-
unni.
„Þetta er alltaf sama sagan hjá okkur gegn Stjörnunni; viö náuum
góðu forskoti á móti þeim en töpum því siðan alltaf niður síðari hluta
leiksins," sagði Sigurður.
„Stefnum á
annað sætið“
„Þessi umferð var betri hjá okkur en sú fyrsta, en ég er ósáttur við að
hafa tapað þessum leik gegn Víkingi. Við byrjuðum illa, en tókum
okkur á, enda get þetta ekki versnað. Stefnan er sett á annað sæti í
deildinni, við eigum ekki síður möguleika á því en aðrir, sagði Eyjólfur
Bragason fyrirliöi Stjömunnar.
„FH vinnur mótið, en ég reikna með að mesta baráttan úr þessu
verði um hverjir verða fyrstir til að sigra Hafnfirðingana," sagði Eyjólf-
ur.
-VS