Þjóðviljinn - 29.05.1984, Blaðsíða 1
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
FH marði sig-
ur á Einherja
FH er enn með fullt hús stiga í 2.
deild knattspyrnunnar eftir að hafa
sigrað Einherja frá Vopnafirði með
tveim mðrkum gegn einu í leik sem
háður var að Kaplakrika I gær-
kvöldi.
Lítiö sást af góðri knattspymu í
fyrri hálfleik, FH-ingamir vom
heldur skárri og áttu tvö hættuleg
tækifæri, fyrst átti Ólafur Danivals-
son skot í stöng og nokkm seinna
þurfti markvörður Einherja að
taka á honum stóra sínum til að slá
boltann í þverslá, en fyrri hálfleik-
urinn var án marka.
Vopnfirðingar komu mjög á-
'kveðnir til leiks eftir leikhlé og eftir
tíu mínútna leik náðu þeir að skora
mark og var Gísli Davíðsson þar að
Staðan
f 2. delld I knattspyrnu ottlr lelk FH og
Elnherja f gærkvöldl.
FH................3 3 0 0 10-2 9
Vfðlr.............2 110 3-2 4
NJarövfk..........2 10 1 2-13
Skallagr..........2 10 1 3-3 3
Völaungur.........2 10 1 1-13
ÍBf...............2 10 1 3-4 3
(BV...............1 0 10 2-2 1
KS................0 0 0 0 0-0 0
ElnherJI..........2 0 0 2 1-3 0
Tlndaatóll.........2 0 0 2 1-8 0
Markahæstir
Ingl B. Albertsson, FH........4
Jón E. Ragnarsaon, FH.........3 Ingj Bjöm
verki. En Hafnfirðingar létu ekki
deigan síga og 4 mínútum seinna
höfðu þeir jafnað metin og var þar
að verki Ingi Bjöm Albetsson.
Sigurmark FH kom síðan strax í
næstu sókn, Guðmundur Hilmars-
son skoraði það mark sem var
nokkuð umdeilt því nokkur rang-
stöðulyktvarafmarkinu. FH-ingar
sóttu síðan stíft það sem eftir var
leiksins en mörkin urðu ekki fleiri.
Ig/f
Punktar frá
V.
Þýskalandi
Dusseldorf, lið Atla Eð-
valdssonar og Péturs Orms-
lev, vann aðeins einn af síð-
ustu 15 leikjum sínum í
,JBundeslijgunni“ í knatt-
spyrnu. I síðari umferðinni
var árangur liðsins sá næst-
lélegasti í þeim hluta mótsins
frá upphafi, Nurnberg, sem
hafnaði í botnsætinu, gerði
enn „betur“, kvaddi með tíu
tapleikjum í röð og fékk að-
eins 14 stig alls. Offenbach,
sem féll f 2. deild, fékk á sig
106 mörk, það næstmesta f
sögu Bundesligunnar. Metið
er 108.
Aldrei hafa verið skoruð
fleiri mörk f Bundesligunni en
f vetur. Þau urðu alls 1097 en
urðu mest áður 1085 árið
1974.
Ásgeir Sigurvinsson skoraði
12 mörk f Bundesligunni í vet-
ur og varð nr. 18-25 á listan-
um yfir markhæstu menn. Atli
Eðvaldsson skoraði 8 mörk
fyrir Dússeldorf og varð núm-
er 39-48. Rummenigge
skoraði flest, 26, Klaus Allofs,
Köln, gerði 20, Frank Mill,
Mönchengladbach, 19, Rudi
Völler, Bremen, og Christian
Schreier, Bochum, skoruðu
18 mörk hvor og Pierre Litt-
barski, Köln, skoraði 17
mörk. -JHG/V.Þýskalandi
Umsjón: Viðir Sigurðsson;
Ásgeir vestur-þýskur meistari og Knattspyrnumaður ársins:
Ásgeir Sigurvinsson:
,,Verð alltaf
Islendingur!"
Frá Jóni H. Garðarssyni
fréttamanni Þjóðviljans í V.
Þýskalandi:
Eftir að Stuttgart hafði tryggt sér
vestur-þýska meistaratitilinn í
knattspyrnu á laugardaginn spurði
fréttamaður sjónvarps Asgeir Sig-
urvinsson hvort hann vildi ekki að
hann væri Vestur-Þjóðverji. Ásgeir
svaraði af bragði: „Ég er Islending-
ur og mun alltaf vera Islendingur!“
Ásgeiri var fagnað langmest af
öllum leikmönnum Stuttgart í upp-
hafi leiksins gegn Hamburger og
þegar hann birtist á torginu í Stutt-
gart eftir leikinn þar sem leikmenn
liðsins voru hylltir, ætlaði allt vit-
laust að verða. Hann hefur verið
lykilmaður hjá Stuttgart í vetur og
unnið sér gífurlega hylli áhangenda
félagsins. Ekki kunna mótherjar
hans í Bundesligunni síður að meta
Ásgeir, það sýndu þeir með því að
velja hann Knattspymumann árs-
ins með ótvíræðum yfirburðum.
Leikurinn sjálfur gegn Hambur-
ger var slakur, eins og sást í ís-
lenska sjónvarpinu. Stuttgart hélt
sínum hlut, mátti enda tapa með
fjórum mörkum og verða meistari
samt. Jurgen Milewski skoraði
eina mark leiksins fyrir Hamburger
fimm mínútum fyrir leikslok og
þetta var fyrsti ósigur Stuttgart á
heimavelli síðan 6. nóvember 1982
en þá tapaði liðið einmitt fyrir
Hamburger. Ásgeir gerði góða
hluti í leiknum þótt ekki bæri sér-
lega mikið á honum. Hann fékk 4 í
einkunn hjá Bild en 3 hjá Kicker.
Síðarncfnda blaðið valdi Ásgeir
alls tíu sinnum í „lið vikunnar“ í
vetur og varð hann þar jafn Karl-
Heinz Rummenigge í öðru sæti.
Herget frá Uerdingen var valinn 11
sinnum. Enginn þeirra þriggja
komst í „liðið“ í lokaumferðinni;
Rummenigge kvaddi þó vestur-
þýsku knattspymuna með því að
skora mark í 3-2 sigri Bayem
Munchen á Bayer Uerdingin.
Hann gerði 26 mörk alls og varð
lang markahæstur.
Lokastaðan hjá efstu og neðstu
liðum í Bundesligunni varð þannig:
Stuttgart......34 19 10 5 79-33 48
Hamburger......34 21 6 7 75-36 48
Gladbach.......34 21 6 7 81-48 48
Bayem..........34 20 7 7 84-41 47
Bremen.........34 19 7 8 79-46 45
DOaaeldorf...34 11 7 16 63- 75 29
Bochum.......34 10 8 16 58- 70 28
Frankfurt....34 7 13 14 45- 61 27
Offenbach....34 7 5 22 48-106 19
Númberg......34 6 2 26 38- 85 14
Frankfurt leikur aukaleiki við
Duisburg, þriðja efsta lið 2.
deildar, um sæti í Bundesligunni en
Offenbach og Numberg féllu beint
niður. Dusseldorf endaði á 6-1
ósigri í Bochum en hvorki Atli Eð-
valdsson né Pétur Ormslev léku
með vegna meiðsla.
„Varla búinn ao
átta mig ennþá“
„Þó ég væri búinn að fá góða
dóma í ijölmiðlum hér í Vestur-
Þýskalandi í vetur þá datt mér alls
ekki í hug að ég yrði kjörinn
Knattspyrnumaður ársins, ekki
síst þar sem hér í landi eru menn
ekki vanir að velja útlendinga. Ég
er að sjálfsögðu yfir mig ánægður
með þetta, ég er þó varla búinn að
átta mig almennilega á þessu öllu
ennþá,“ sagði knattspyrnusnilling-
urinn Ásgeir Sigurvinsson í samtali
við Þjóðviljann f gær.
Ásgeir varð eins og kunnugt er
vestur-þýskur meistari með Stutt-
gart á laugardaginn og eftir leikinn
var hann útnefndur Knattspyrnu-
maður ársins af leikmönnum
Bundesligunnar. Þá kosningu vann
hann með glæsibrag, hlaut 78 at-
kvæði af 198 mögulegum, en sjálf-
ur Karl-Heinz Rummenigge komst
næstur með 32 atkvæði.
- Hvenær fenguð þið hjá Stutt-
gart virkUega trúna á að þið gætuð
orðið meistarar í ár?
„Þegar fyrri umferðinni lauk
vorum við í efsta sæti deildarinnar
og staðreyndin er sú að í 70% til-
fella verður „haustmeistarinn" sig-
urvegari þegar upp er staðið að
vorinu. Þarna gerðum við okkur
virkilega grein fyrir því að við átt-
um góða möguleika á að vinna
deildina. Síðari hlutann létum við
svo leikmenn Hamburger og Bay-
ern um það að tala um meistaratit-
ilinn og þannig varð pressan meiri á
þeim en okkur."
- Hverju vUtu þakka árangur
Stuttgart í vetur?
„Fyrst og fremst góðri liðsheild
og frábærum þjálfara, Helmut
Benthaus. Hann hefur byggt upp
nýtt lið á tveimur árum, þetta hefur
verið samvinna hans og okkar leik-
mannanna.“
- Voru það ekki einhver von-
brigði að tapa leiknum gegn Hamb-
urger á laugardaginn?
„Það er ekki gaman að tapa, en
það er svo sannarlega gleymt og
grafið núna! Við vissum að það
hefði þurft mikið til ef við ættum að
tapa með fimm mörkum og missa
af meistaratitlinum og það var ekki
okkar að sækja eða taka áhættu."
- Hvað segirðu um áhuga stór-
liða á borð við AS Roma á þér?
„Ég er samningsbundinn Stutt-
gart til 1987 og býst fastlega við því
að halda þann samning. Engin fé-
lög hafa sett sig í samband við mig,
þau verða að ræða við félagið sjálft
og hafa sjálfsagt gert það.“
- Meistarvörnin næsta vetur?
„Biddu fyrir þér, ég er sko ekki
farinn að hugsa svo langt, þetta
dugar í bili! Næsta mál á dagskrá er
að kúpla sig algerlega frá fótbolt-
anum. Það er að vísu ekki hægt
alveg strax, við leggjum uppí Am-
eríkuför á fimmtudaginn og leikum
í henni sex leiki en þar á eftir tekur
fríið við...“
-VS
Melstarar Stuttgart: Aftasta röft frá vlnatri: Jðrg Braun nuddari, Aagalr Slgurvlnsson, Dan Cornellsson, Walter
Kelsch, Hans-Peter Makan, Quldo Buchwald, Kurt Niedermayer, Konietko nudslari. Ml&röð: Helmut Benthaus
þjálfsrl, Wllll Entenmann aðstoðarþjólfarl, Peter Relchert, Andreaa Múller, Uwe Blalon, Ralner Zletsch, Karl
Allgöwer, Seltz, Richard Steimle, Helmar Muller. Fremata röö: Karl-Helnz FÖrster, Thomas Kempe, Achim
GIQckler, Helmut Roleder, Armln Jáger, Hermann Ohllcher, GÚnther Scháfer og Bemd Förster.