Þjóðviljinn - 17.07.1984, Side 2
Innskrift
Óskum eftir starfskrafti á innskriftarborð.
Vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Upplýsingar hjá framkvæmdastjóra.
DUMIUINN
sími 81333.
Lausar
kennarastöður
Vopnafjarðarskóli óskar eftir að ráða íþrótt-
akennara.
Einnig vantar kennara í almenna kennslu.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 97-3218.
Kennarar
Kennara vantar að Dalvíkurskóla. Æskilegar
kennslugreinar eru íþróttir og kennsla yngri
barna.
Upplýsingar gefur skólastjóri í s.: 96-61491 e. kl.
19.
Skólastjóri
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
Tilkynning til símnotenda
Aðfaranótt miðvikudagsins 18. júlí n.k. verð-
ur tekin í notkun ný sex stafa sjálfvirk símstöð
á Seltjarnarnesi.
Þá breytast símanúmerin þar á þann hátt að
talan 6 kemur fyrir framan gömlu númerin.
Þar með hefur Símaskráin 1984 að fullu tekið
gildi.
Póst- og símamálastofnunin.
Þakkarávarp
Þakka innilega þann hlýhug sem mér var
sýndur með glæsilegum veitingum, gjöfum,
skeytum og Ijóðum á áttræðisafmæli mínu.
Otto Wathne
Notum ljós í auknum mæli
í ryki, regni,þoku
og sól.
Auglýsið í Þj óðvilj anum
ÍÞRÓTHR
1. deild
Akveðnir Valsarar
Valur stökk úr neðsta sœtinu upp íþaðfjórða
Ákveðnir Valsmenn náðu að
lyfta sér af botni 1. deildarinnar í
knattspyrnu er þeir sigruðu Vík-
ing 3-0 á laugardaginn á Valsvell-
inum. Staðan í hálfleik var 1-0.
Er 27. mínútur voru liðnar af
leiknum skoruðu Valsmenn sitt
fyrsta mark. Guðmundur Þor-
björnsson átti þá sendingu frá
hægri kanti inn í vítateig Víkings,
Staðan
í 4. deildarkeppninni:
A-riðill:
Ármann.........9 B
Augnablik......9 5
Afturelding....9 5
Haukar.........9 4
Vfkverji.......9 4
Árvakur........9 3
Hafnir.........9 1
Drengur........9 1
1 0 21-6 25
1 3 17-13 16
0 4 18-12 15
2 3 16-11 14
2 3 14-9 14
1 5 12-14 10
2 6 7-21 5
1 7 10-29 4
B-riðill:
Hildibrandur...8 5 3 0 27-9 18
Léttir........8 5 2 1 28-10 17
Þór.þ.........8 4 2 2 22-11 14
Stokkseyri.....6 4 0 2 19-12 12
Eyfellingur...7 2 1 4 15-20 7
Hveragerði....8 2 0 6 16-30 6
Drangur.......7 0 0 7 3-38 0
C-riðill:
ÍR.............7 6 0 1 39-7 18
Bolungarvík....8 6 0 2 19-12 18
Grótta.........7 4 0 3 14-14 12
Grundarfj......8 3 0 5 14-24 9
ReynirHn.......8 2 1 5 13-17 7
Loiknir R......8 2 1 5 11-27 7
Stefnir........6 2 0 4 8-17 6
D-riðill:
ReynirÁ........6 5 1 0 21-4 16
Svarfdælir.....6 3 12 17-16 10
Skytturnar.....6 3 0 3 15-13 9
Geislinn.......5 1 0 4 4-11 3
Hvöt...........5 1 0 4 4-17 3
E-riðill:
Tjörnes........5 4 0 1 15-2 12
Vaskur.........5 3 1 1 12-8 10
Árroðinn........5 2 2 1 8-8 8
Vorboðinn......5 1 1 3 8-15 4
Æskan..........4 0 0 4 4-14 0
F-riðill:
Leiknir.......10 8 2 0 34-4 26
Súlan.........10 6 1 3 25-17 19
Höttur........10 4 3 3 20-19 15
Neisti........9 4 2 3 24-15 14
Slndri........9 3 3 3 15-19 12
Borgarfjörður 9 3 1 5 15-20 10
Hrafnkell.....9 3 0 6 9-27 9
Egill rauði...10 0 2 8 8-29 2
Markahæstir
Tryggvi Gunnarsson, ÍR........23
ÓskarTómasson, Leikni F.......10
Andrés Kristjánsson, Létti.....9
Halldór Viðarsson, Stokkseyri..9
Ingvar Jóhannsson, Svarfdælum 9
Ögmundur Kristinsson var of
seinn í boltann sem barst til Hilm-
ars Sighvatssonar sem þakkaði
fyrir sig með marki. Valsmenn
sluppu síðan með skrekkinn er
skalla Ómars Torfasonar var
bjargað á línu og á síðustu mínútu
hálfleiksins bjargaði þversláin
Víkingum eftir fast skot Arnar
Guðmundssonar.
Seinni hálfleikur bauð síðan
upp á mikið að marktækifærum á
báða bóga en gestgjafarnir áttu
þau tvö er nýttust. Annað kom á
9. mínútu hálfleiksins. Guð-
mundur Þorbjörnsson átti þá
sendingu inn í vítateig Víkings
þar sem Valur Valsson kom
aðvífandi og skaut viðstöðulausu
skoti sem hafnaði upp í þakneti
Víkingsmarksins 2-0. Andri
Marteinsson og Einar Einarsson
fengu síðan báðir tækifæri til að
laga stöðuna fyrir Víking en færi
þeirra fóru forgörðum. Það voru
síðan Valsmenn sem gulltryggðu
sér sigurinn tveimur mínútum
fyrirleikslok. Guðmundurátti þá
einn eina sendinguna inn í víta-
teig Víkings þar sem Guðmundur
Kjartansson nýtti sér vel hik
markvarðar Víkings og skoraði
með skalla af stuttu færi.
Valsmenn voru mun fljótari á
boltann í öllum návígum og upp-
skáru að launum þrjú stig. Guð-
mundur Þorbjörnsson og Hilmar
Sighvatsson unnu mjög vel, þá
voru þeir Þorgrímur Þráinsson og
Valur Valsson einnig góðir.
Hjá Víkingi, stóð Magnús
Jónsson sig vel í vörninni, Andri
Marteinsson, Ómar Torfason og
Einar Einarsson voru einnig
ágætir.
-Frosti
ÍÞROTTIR
1. deild
Enn hækkar
flug Skagamanna
Komnir með sjö stiga forystu eftir 3-2 sigur
á Þórsurum í skemmtilegum leik á laugardaginn.
Hllmar Sighvatsson skora&i
marka Vals gegn Víkingi.
eitt
Forysta Akurnesinga í 1. deild
Islandsmótsins í knattspyrnu er
orðin sjö stig eftir 3-2 sigur á
Þórsurum frá Akureyri í fjörug-
um leik á Skaganum á laugardag-
inn. Ósigurinn þýðir hins vegar
fyrir Þórsara að þeir sitja nú í
fallsæti, eru næstneðstir með 11
stig en þá stigatölu hafa reyndar
þrjú önnur félög.
Strax á 6. mínútu kom fyrsta
markið. Karl Þórðarson gaf á
Hörð Jóhannesson sem komst í
opið færi en renndi til hliðar á
Árna Sveinsson sem skoraði ör-
ugglega, 1-0. Þór jafnaði aðeins
tveimur mínútum síðar, Óskar
Gunnarsson skallaði á Nóa
Björnsson sem skoraði með
glæsilegu þrumuskoti, 1-1. Á
næstu andartökum fengu Skaga-
menn tvö dauðafæri, Karl komst
einn innfyrir en Þorsteinn Ólafs-
son varði snilldarlega og Hörður
skaut í stöng.
ÍA tók forystuna á ný á 24.
mínútu. Árni gaf á Sigþór Óm-
arsson sem skallaði laglega yfir
Þorstein, 2-1. Skagamenn kom-
4. deild í knattspyrnu
Ingvar skoraði fjögur!
Ármann og Reynir Ár. nánast örugg með sœti í úrslitakeppninni.
Uppgjör Hildibranda og Léttis um nœstu helgi.
A-riðill:
Augnablik-Haukar..............1-0
Víkverji-Ármann...............2-3
Aftureiding-Hafnir............6-1
Árvakur-Drengur...............5-1
Ármenningar eru nánast búnir
að gulltryggja sig í úrslitin eftir
þennan sigur á Víkverja. Jóhann
Tómasson, Sveinn Guðnason og
Jens Jóhannsson skoruðu fyrir
Ármenninga en Svavar Hilmars-
son og Níels Guðmundsson fyrir
Víkverja.
Augnablik skaust í annað sætið
með 1-0 sigri á Haukum. Sigurð-
ur Halldórsson skoraði sigur-
markið og einn Haukamanna var
rekinn af leikvelli.
Sigurður Sveinsson skoraði 3
mörk í stórsigri Aftureldingar,
Lárus Jónsson 2 og Hafþór Krist-
jánsson eitt.
Björn „Blöffi" Pétursson
skoraði tvívegis beint úr auka-
spyrnu þegar Árvakur vann
Dreng. Haukur Arason gerði
einnig 2 mörk og Árni Guð-
mundsson eitt en Gústaf Alfreðs-
son
fyrir Drengina úr D.rjðiii:
svaraði
vítaspymu.
B-riðill:
Léttir-Hveragerði.............6-0
Þór Þ.-Hildibrandur...........1-1
Léttir skoraði þrívegis á fyrsta
korterinu gegn Hveragerði og
þar með voru úrslitin ráðin. And-
rés Kristjánsson 2, Kári Ragnars-
son 2, Örn Sigurðsson og Sverrir
Gestsson skoruðu mörkin sex.
Böðvar Bergþórsson náði að
jafna fyrir Hildibrandana korteri
fyrir leikslok í Þorlákshöfn og
forða þeim frá sínu fýrsta tapi.
Það er útlit fyrir mikinn slag er
toppliðin, Hildibrandur og Létt-
ir, mætast í Vestmannaeyjum
næsta laugardag.
C-riðill:
Grundarfjörður-Reynir Hn......2-0
Grundfirðingar eru að sækja
sig og mörk þeirra gegn
Hnífsdælingum gerðu þeir Freyr
Guðmundsson og Gunnar Þór
Haraldsson.
E-riðill:
Leikjum var frestað vegna
þátttöku UMSE í knattspyrnu-
keppni Landsmótsins.
Áml Svelnsson lék vel og skora&l
fyrsta mark Skagamanna.
ust síðan í 3-1 fyrir hlé er Hörður
Jóhannesson slapp innfyrir vörn
Þórs og skoraði af miklu öryggi,
3-1.
Þórsarar náðu fljótlega góðum
tökum á leiknum eftir hlé og sókn
þeirra þyngdist eftir því sem á
leið. Bjarni Sigurðsson varði
mjög vel skot frá Bjarna
Sveinbjörnssyni og Guðjón
Þórðarson bjargaði á marklínu
áður en Óskar Gunnarsson
skoraði með skalla eftir horn-
spyrnu á 62. mínútu. Þórsarar
sóttu talsvert eftir þetta en Sigþór
var rétt búinn að gera endanlega
útum leikinn á 76. mínútu. Hann
jkomst innað Þórsmarkinu, fram-
hjá Þorsteini, en skaut framhjá
fyrir opnu marki. Óli Þór
Magnússon var síðan nærri því að
jafna fýrir Þórsara á lokamínút-
unum en Bjarni varði skot hans
mjög vel.
Árni var bestur hjá Skaga-
mönnum og er í geysigóðu formi
þessa dagana. Bjarni var góður í
markinu og Karl ávallt hættu-
legur. Óskar Gunnarsson lék
mjög vel í liði Þórsara, sem og
þeir Halldór Áskelsson og Bjarni
Sveinbjörnsson.
1. deild kvenna
Íkyttumár-Ge'isl'inn 1-0 Vorboðinn-Árroðinn og Vaskur
Æskan mætast þvt siðar.
Ingvar Jóhannsson var í bana-
formi þegar Hólmvíkingar sóttu
Svarfdæli heim. Hann gerði 4
markanna og Ingólfur Kristjáns-
son eitt en Guðmundur Viktor
Gústafsson skoraði fyrir Geis-
lana.
Á sunnudag lék svo Geislinn
við Skytturnar á Siglufirði og
mátti aftur þola tap. Guðbrandur
Ólafsson skoraði sigurmark
heimamanna seint í leiknum.
Með þessum úrslitum er Reynir
Árskógsströnd 99 prósent örugg-
ur um sigur í riðlinum.
F-rÍðÍll:
Höttur-Neisti....................0-0
Egill rau&i-Borgarf jöröur.......1-1
Egill náði forystunni í síðari
hálfleik þegar Örn Rósmann
Kristjánsson skoraði úr víta-
spyrnu. Þorbirni Björnssyni tókst
að jafna fyrir Borgfirðinga og þar
við sat.
Markalaust jafntefli Hattar og
Neista í tilþrifalitlum leik á Egils-
stöðum og þar með eru bæði lið
orðin vonlaus um sigur í riðlin-
um. -Frosti/VS
Breiðablik efst
Breiðablik vann öruggan sigur
á KR, 3-0, er félögin mættust í 1.
deild kvenna í knattspyrnu á
Kópavogsvelli á
föstudagskvöldið.
Fyrsta markið kom seint í fyrri
hálfleiknum, Sigrún Sævarsdóttir
skoraði það mjög svo snyrtilega.
í síðari hálfleik tryggðu
Blikastúlkurnar sér sigur með
tveimur mörkum Erlu
Rafnsdóttur.
Staðan er þá þessi í A-riðli 1.
deildarkvenna:
Breiöablik...........6 4 2 0 16-1 14
Valur................6 4 1 1 19-3 13
IA...................5 3 1 1 16-5 10
IBI................5 2 0 3 5-9- 6
KR...................6 2 0 4 5-12 6
Vfkingur.............6 0 0 6 1-32 0
Markahœstar:
Erla Rafnsdóttir, Breiðabliki.....10
Laufey Siguröardóttir, ÍA..........7
Bryndís Valsdóttir, Val............5
Ragnheiður Jónasdóttir, ÍA.........5
1. deild
Þróttur í þriðja sætið
Framarar voru mannifœrri í klukkutíma en héldu þó forystu
langt fram í síðari hálfleik
3. deild SV í knattspyrnu
Ragnar jafnaði
á síðustu sekúndu!
Stjarnan g% g% Grindavík A Víkingur Ó g% •#
Reynir S. Selfoss U—jJ__ lK_____
Jafn og tvísýnn leikur í Garða-
bænum og Stjarnan tryggði sér
stig á síðustu sekúndunni þegar
Ragnar Þórðarson jafnaði af
miklu harðfylgi. Stjaman leiddi
1-0 í hléi, Þórhallur Guðjónsson
skoraði markið strax á 5. mínútu.
Ómar Bjömsson jafnaði með
skalla snemma í síðari hálfleik og
kom síðan Reyni yfir eftir að hafa
fengið stungusendingu innfyrir
Stjömuvömina. Ragnar sá síðan
til þess að Sandgerðingar hefðu
aðeins tveggja stiga forystu í riðl-
inum í stað fjögurra.
Það gekk á ýmsu suður með sjó
þótt mörkin vantaði. Stefán Hall-
dórsson þjálfari Selfyssinga lét
verja frá sér vítaspymu og Grind-
víkingurinn Símon Alfreðsson
skaut yfir Seifossmarkið þegar
auðveldara virtist að skora.
Undir lokin fékk síðan einn
heimamanna, Gunnlaugur að líta
rauða spjaldið fyrir grófan Ieik.
ÍK var sterkari aðilinn í fyrri
hálfleik og á lokamínútunum átti
Þórir Gíslason einn af sínum
frægu vinstrifótarfleygum í stöng
Víkingsmarksins. Orri Hlöðvers-
son kom ÍK yfir með skallamarki
fljótlega í síðari hálfleik en Vík-
ingarnir skoruðu tvívegis seint í
leiknum og náðu að tryggja sér
þrjú stig. Fyrst Magnús Gylfason
með hörkuskoti af 30 m færi og
síðan skallaði Pétur Finnsson í
stöngina og inn, upp við sam-
skeytin.
Leikjum í NA-riðli var frestað
vegna landsmótsins. -VS
Þróttarar komust á sunnudags-
kvöldið upp í 3. sætið í 1.
dcildarkeppninni í knattspyrnu
er þeir sigruðu Fram með þremur
mörkum gegn tveimur á Laugar-
dalsvellinum. Staðan í hálfleik
var 2-1 Fram í hag.
Þróttur komst yfir strax á 8.
mínútu, Kristján Jónsson átti þá
Staðan
í 1. deildarkeppninni í
knatt spymu:
ÍA 9 1 1 20-7 28
(BK 11 6 3 2 13-9 21
Þróttur 3 6 2 12-10 15
Valur 3 4 4 11-10 13
KA 3 4 4 16-17 13
Vfkingur .11 3 4 4 15-18 13
Fram 3 2 6 13-15 11
Braiöabllk 2 5 4 10-12 11
ÞórA 3 2 6 14-18 11
KR 2 5 4 11-19 11
Markahœstir:
Guömundur Stoinsson, Fram......6
Ámi Svoinsson, ÍA..............4
Höröur Jóhannesson, IA.........4
Páll Ólafsson, Þróttl..........4
sendingu frá vinstri kanti, boltinn
sveif yfir tvo varnarmenn Fram
og þaðan til Þorvalds Þorvalds-
sonar sem skallaði boltann neðst í
markhornið af stuttu færi. Fram
náði síðan að jafna á 20. mínútu
er Ómar Jóhannsson átti fasta
sendingu inn í vítateig Þróttar,
þar sem Guðmundur Steinsson
var á réttum stað og náði að stýra
boltanum í fjærhornið. Þremur
mínútum síðar var Ómar aftur á
ferðinni og átti langa sendingu
inn í vítateig Þróttar, á Guðmund
Torfason sem náði að skalla á
markið af stuttu færi, Guðmund-
ur Erlingsson náði að slá boltann
í þverslána en þaðan fór boltinn
innfyrir línuna, 2-1. Á 33. mínútu
varð Fram síðan fyrir nokkru
áfalli er Guðmundur Torfason
fékk að sjá rauða spjaldið fyrir að
láta skapið bitna á einum Þróttar-
anum.
Seinni hálfleikur var síðan
langt frá því að vera jafn vel
leikinn og sá fyrri ogóþarfa harka
setti leiðinda svip á leikinn. Það
var ekki fyrr en hálfleikurinn var
rúmlega hálfnaður að spil fór að
sjást. Á 70. mínútu jöfnuðu
Þróttarar, Pétur Amþórsson átti
þá sendingu innfyrir vörn Fram
þar sem Þorsteinn Sigurðsson
fékk boltann og náði að senda
hann framhjá Guðmundi í Fram-
Þorsteinn Slgur&sson skora&l tví-
vegls og trygg&l Þrótturum slgur.
markinu. Á 81. mínútu kom síð-
an sigurmark leiksins, Þorsteinn
Sigurðsson átti þá skot frá víta-
teigslínu, boltinn fór í einn Fram-
ara og þaðan yfir Guðmund
markvörð og í netið. Litlu síðar
slapp Frammarkið vel er fast skot
Júlíusar Júlíussonar lenti á mark-
stönginni.
Þrátt fýrir sigur Þróttar var
langt frá því að þeir léku
sannfærandi, samspil liðsins oft á
tíðum ekki upp á marga fiska en
þó ágætir leikkaflar inn á milli.
Þorvaldur Þorvaldsson og Þor-
steinn Sigurðsson voru þeirra
bestir en Pétur Arnþórsson og
Ásgeir Elíasson fylgdu þeim
skammt á eftir.
Kristinn Jónsson og Ómar Jó-
hannsson voru bestu menn Fram.
Liðið var heldur betri aðilinn
framanaf en er líða tók á leikinn
misstu þeir takið enda einum
færri.
Dómarinn Ragnar Örn Péturs-
son hefur átt betri daga.
-Frosti
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrl&judagur 17. júlf 1984
Þrl&judagur 17. júlf 1984 ÞJOÐVIUINN - SÍÐA 11
Zola Budd - heimsmet i 2000 m hlaupi.
Budd og Bubka
settu heimsmet
Tvö heimsmet í frjálsum íþróttum voru sett um helgina.
Sovétmaðurinn óstöðvandi, Sergei Bubka, nálgast sex
metrana í stangarstökki óðfluga og á föstudagskvöldið fór
hann yflr 5,90 m á móti í London. Hann hefur áður bætt
heimsmetið tvívegis á þessu ári. Bubka er aðeins tvítugur
að aldri.
Zola Budd, suður-afríska stúlkan sen nú keppir fyrir
Breta, setti heimsmet í 2000 m hlaupi kvenna á sama móti.
Hún hljóp vegalengdina á 5:33,15 mín. og bætti met rúm-
ensku stúlkunnar Puicu um 3/10 úr sekúndu.
Sergei Bubka - heimsmet í stangarstökki.
Frjálsar íþróttir
Kalott-keppnin
hefst í kvöld
í kvöld kl. 18.30 hefst á Laugardalsvelli í Reykjavík
Kalottkeppnin, landskeppni íslands og norðurhéraða
Svíþjóðar, Finnlands og Noregs í frjálsum íþróttum.
Island vann þcssa keppni í fyrra en þá fór hún fram í
Noregi og áður hafa sigrar unnist árið 1975 og 1980.
Nokkuð af okkar besta fólki er ekki með að þessu sinni
þar sem það býr sig undir Ólympíuleikana erlendis en
fleiri fá tækifæri og keppnisreynslu í staðinn. Keppt verð-
ur fram á tíunda tímann í kvöld en mótinu lýkur annað
kvöld.
-VS