Þjóðviljinn - 24.07.1984, Page 4
IÞRÓiriR
Völsungur
Víðir
1-4
Þær hafa verið erfiðar, síðustu
180 mínúturnar hér á Húsavík.
Fyrst spörkuðu bláhvítir Fram-
arar Völsungum útúr bikarnum,
og það hressilega, og á laugardag
voru það hinir bláhvítu Víðis-
menn sem rótburstuðu okkar
menn. Völsungar sjá því blátt
þessa dagana!
Markalaus fyrri hálfleikur, en
stööug traffík í markteig beggja
liða. Svavar Geirfinnsson skall-
aði yfir mark Víðis strax á 2. mín-
útu og rétt á eftir átti Guðjón
Guðmundsson skot á Völsungs-
2. deild í knattspyrnu
Völsungar
sjá blátt!
Fyrirliði Einherja lenti í átökum við sinn gamla þjálfara og
báðir voru reknir af leikvelli.
Martelnn Geirsson - kampakátur á Húsavík.
markið en Gunnar Straumland
varði. Þaðan hrökk boltinn útí
teig og inn að marki á ný en Sig-
mundur Hreiðarsson barg á línu.
Á sömu mínútunni fengu Völ-
sungar tvö góð færi. Fyrst lék Sig-
urður Illugason Jónas Hallgríms-
son frían en skot hans klikkaði.
Strax á eftir var Sigurður í dauða-
færi en máttlítið skot hans fór
beint á markvörðinn. Á 33. mín-
útu bjargaði Ólafur Róbertsson á
línu eftir stórsókn Völsunga. Og
enn björguðu Víðismenn á línu á
40. mínútu, sneru vörn í sókn er
endaði með skoti sem Gunnar
varði vel. Rétt áður en flautað
var til leikhlés var Grétar Einars-
son í dauðafæri í markteig Völsu-
nga en varnarmenn náðu að
bjarga.
Fyrsta markið kom á 53. mín.
Kristján fékk góða sendingu frá
Jónasi innfyrir Víðisvömina en í
stað þess að hann skoraði, fengu
Víðismenn boltann og hófu
skyndisókn. Vilberg Þorvaldsson
lét boltann fara og Grétar birtist
fyrir aftan hann og skaut Víði
yfir. Fjórum mín. síðar kom 0-2.
Gunnar varði skot frá Guðmundi
Jens Knútssyni með því að slá
boltann útí teig. Þar kom Guðjón
á siglingu og skallaði í netið.
Þremur mín. síðar náðu Völs-
ungar skemmtilegri sókn. Krist-
ján fékk góðan bolta útá kant,
stakk sér uppað markteig og
renndi beint í fætur Jónasar og
boltinn lá í netinu, 1-2. Tvö næstu
færi voru Víðismanna. Guð-
mundur komst innfyrir og mikilli
baráttu hans við Gunnar mark-
vörð lauk með því að sá fyrrnefn-
di skaut framhjá. Enn var Guð-
mundur á ferð í gegnum vörnina
Staðan
í3. deildarkeppninni:
SV-riðill:
ReynirS.........11 8 3 0 27-8 27
Fylkir..........11 8 1 2 31-14 25
VíkingurÓ.......11 8 1 2 24-12 25
Stjaman.........11 5 2 4 28-16 17
SeHoss..........10 4 2 4 14-13 14
Grindavfk.......10 3 4 3 12-1313
HV..............10 2 1 7 14-25 7
|K..............11 1 2 8 10-27 5
Snæfell.........11 0 2 9 5-37 2
Markahœstir:
Ómar Björnsson, Reyni..........12
Brynjar Jóhannesson, Fylki......8
Þórhallur Guðjónsson, Stjörnunni.8
NA-riðill:
Leiftur..........9 7 2 0 25-7 23
Austrl...........8 3 4 1 12-8 13
Þróttur N........7 3 3 1 16-9 12
Magni............9 3 2 4 13-14 11
HSÞ.b............8 3 2 3 9-1411
Huginn...........7 0 4 3 11-19 4
ValurRf..........8 0 1 7 8-23 1
Markahœstir:
Hafsteinn Jakobsson, Leiftrl....7
Halldór Guðmundsson, Leiftri....5
Kristján Kristjánsson, Þróttl....5
ÞórhallurGuðmundsson, HSÞ.b......5
en að þessu sinni var Sigmundur
mættur á marklínu og bjargaði í
horn. Á 71. mín. kom mark
leiksins. Grétar var staddur á
miðjum vallarhelmingi Völsungs
og sá að Gunnar var kominn ögn
of framarlega í markinu. Glæsi-
leg vinstrifótarspyrna, boltinn
hafnaði efst í hominu þrátt fyrir
góða tilburði Gunnars. 1-3. Áð-
eins tveimur mín. síðar fékk
Guðjón boltann 7 m. frá marki.
Hann þurfti ekki annað en að
snúa sér í hálfhring og planta
boltanum í homið, 1-4. Vel gert.
Undir lokin áttu Völsungar tví-
vegis stangarskot.
Sigur Víðis var fyllilega sann-
gjam. Báðir markaskoraramir,
Grétar og Guðjón, átti feykigóð-
an leik, sem og allt liðið. Heisti
veikleikinn er vömin en þar var
Marteinn Geirsson tveggja
manna maki. Völsungsliðið virk-
aði hikandi og enná ný tapaðist
leikur á ferlega lélegu miðjuspili.
Björn Olgeirsson og Leifur
Grímsson stóðu uppúr í þessum
leik. Marteinn þjálfari Víðis var
að vonum kampakátur eftir
leikinn og sagði: „Strákamir em
tilbúnir að leggja sig alla fram.
Við vissum, að ef við ynnum
þennan leik yrðum við í öðru sæti
og með leik inni. Nú þurfum við
að vinna leikina fyrir frí, þá erum
við ömggir með annað sætið“.
-AB/Húsavík
Njarðvík
Tindastóll
söm. Ekkert gekk eftir þetta og
1-1 því úrslitin.
Benedikt átti mjög góðan leik
með Njarðvíkingum og Grétar
var besti maður Tindastóls.
-ÞBM/Suðurnesjum
Bjöm Kristbergsson skallaði rétt
framhjá samskeytunum á 74.
mín. og undir lokin komst Hjört-
ur tvívegis í dauðafæri - fyrst var
bjargað á línu frá honum og síðan
skallaði hann framhjá galopnu
markinu af markteig.
Ólafur þjálfari var besti maður
Skallagríms, var ömggur og hélt
saman sterkri vöm. Lítið bit var í
Borgnesingum í þetta skiptið
enda voru þeir án Gunnanna,
Orrasonar og Jónssonar. Aðal-
bjöm og Helgi Ásgeirsson vom
bestu menn Einherja og þeir
Hjörtur og Baldur vom einnig
mjög sprækir í framlínunni.
-JS/Vopnafirði
FH
ÍBÍ
0-0
Einherji
Skallagrímur
0-1
1-1
TindastóU náði óvænt jafntefli í
Njarðvík á sunnudaginn, og það
nokkuð sanngjarnt í fremur tíð-
indalitium en jöfnum rigningar-
leik.
Á 13. mínútu gaf Grétar
Ævarsson fyrir mark Njarðvík-
inga á Elvar Grétarsson sem
skoraði með fallegu skoti í blá-
homið, 0-1. Á 27. mínútu tók
Benedikt Hreinsson aukaspymu
og Bjöm Ingólfsson skallaði í
netið, 1-1. Nokkuð ósanngjarnt
því aukaspyman var ærið vafa-
Eina ferðina enn gerðu Ein-
herjar flest nema skora - og án
marka vinnast ekki leikir. Undir
lokin lentu saman þeir Aðalbjörn
Björnsson fyrirliði Einherja og
Ólafur Jóhannesson þjálfari
Skallagríms, áður þjálfari Ein-
herja, og voru báðir reknir af
leikveUi á spennuþrungnum loka-
mínútum.
Á 18. mínútu komust tveir
Borgnesingar einir upp að marki
Einherja. Hreiðar Sigtryggsson
bjargaði með glæsilegu úthlaupi,
Garðar Jónsson náði boltanum
og skaut en Aðalbjörn bjargaði á
hnu. Nákvæmlega það sama
gerðist á 25. mínútu en í það
skiptið var enginn Aðalbjöm og
Garðar skoraði, 0-1. Undir lok
fyrri hálfleiks fékk Hjörtur Dav-
íðsson dauðafæri en þmmaði
beint á markvörð Borgnesinga.
Síðari hálfleikur var nánast
einstefna að marki Skallagríms
en færin létu á sér standa. Einar
Það var hvorki glæsUeg né
skemmtUeg knattspyrna sem
FHingar og Isfirðingar sýndu í
Kaplakrika á laugardaginn. Mest
um spörk út í loftið og fá hættuleg
tækifæri sem liðin sköpuðu sér.
Það verður þó að segjast að Is-
firðingar börðust grimmar en
heimamenn allan leikinn og ekki
verið ósanngjarnt þó sigurinn
hefði orðið þeirra.
Völlurinn í Kaplakrika var erf-
iður, blautur og þungur eftir
vætutíðina undanfarið. Lítið fór
fyrir samspili heldur var hart bar-
ist á miðjunni. ísfirðingar sóttu
ívið meira í fyrri hálfleik og áttu
nokkur sæmileg marktækifæri
sem misfómst. Þeir hófu síðari
hálfleikinn af miklum krafti og
FHingar með Halldór í markinu
urðu oft að taka á honum stóra
sínum til að halda hreinu. Eina
umtalsverða færi FHinga kom á
55. mín. þegar Ingi Bjöm lék lag-
lega inn í vítateiginn og átti
hörkuskot í hliðametið. Hinum
megin á vellinum barðist Kristinn
Kristjánsson vel og skapaði sér
mörg færi en inn vildi boltinn
ekki. Það var ekki að sjá annað
en heimamenn vörpuðu öndinni
léttar þegar blásið var til leiks-
loka. -Ig.
3. deild í knattspyrnu
Skalli, vinstri, hægri!
Ómar með þrjú stílhrein mörk gegn HV.
ÍK lánlaust-Heimir brellinn - Ingvar útaf - Leiftur með 10 í forskot
- „come-back“ hjá Þórhalli.
SV-ridill:
Reynir S.
HV
4-1
Ómar Bjömsson var þrívegis
réttur maður á réttum stað í
Sandgerði á laugardaginn og sá til
þess að Reynir heldur forystu
sinni í riðlinum. Hann afgreiddi
þrjár fyrirgjafir snoturlega, fyrst
með skalla, þá með vinstra fæti
og loks með þeim hægri. Jón
Guðmann Pétursson átti reyndar
fyrsta orðið fyrir Reyni, skoraði
af 20 m færi, og síðan skallaði
Ómar, 2-0 í hléi. Ómar kom
Reyni í 3-0, Guðni Þórðarson
svaraði fyrir HV áður en Ómar
innsiglaði sigurinn. Leikurinn var
jafnari en tölurnar gefa til kynna
og HV átti sín marktækifæri sem
ekki nýttust.
Hlöðversson skoraði með skalla
á 9. mínútu og Samúel Öm Er-
lingsson kom IK í 2-0 á 43. mín-
útu með „Péturs Ormslev-marki“
þmmaði í varnarmann og boltinn
fór í háum boga í markhomið. ÍK
fékk síðan tvö dauðafæri til að
gera útum leikinn en þau nýttust
ekki. Þegar 90. mínútan var
mnnin upp skallaði Jónas Skúla-
son í mark ÍK, 2-1, og hann hrifs-
aði tvö stig úr höndum Kópa-
vogsliðsins með síðustu spymu
leiksins, hálfri mínútu síðar 2-2.
Víkingur Ó.
Snœfell
4-1
Þróttur N.
HSÞ.b
4-0
Selfoss
Fylkir
2-3
ÍK
Stjarnan
2-2
ÍK er án efa lánlausasta lið
landsins um þessar mundir. Eftir
þrjá eins marks ósigra í röð
stefndi allt í sigur gegn Stjörn-
unni á föstudagskvöldið. Orri
Heimir Bergsson, hinn snjalli
framherji Selfyssinga og tíðinda-
maður Þjóðviljans í Englandi sl.
vetur, var í sprellformi gegn
Fylki. Fyrst sólaði hann innað
marklínu, stoppaði á henni og
leyfði Fylkismönnum að koma
nær áður en hann pikkaði boltan-
um í netið með stríðnisglotti.
Rétt á eftir sló hann boltann í
mark Fylkis með hendi, sótti
tuðmna og hljóp með hana útá
miðju og kallaði: „Mark“. Línu-
vörður lét blekkjast en dómari
ekki! Staðan 1-0 í hléi en Valur
Ragnarson, Jón Bjarni Guð-
mundsson og Gústaf Vífilsson
komu Fylki í 1-3 áður en Þórarinn
Ingólfsson skoraði annað mark
Selfyssinga úr vítaspyrnu.
Það tók Víkingana tæpar 45
mínútur að skora hjá botnliði
Snæfells en þá gerði Gunnar Öm
Gunnarsson mark úr vítaspymu.
í byrjun seinni hálfleiks var Ing-
var Jónsson hjá Snæfelli rekinn af
leikvelli fyrir að toga niður Vík-
ing sem var kominn einn í gegn.
Úr aukaspymunni sem dæmd var
skoraði Gunnar Öm beint, 2-0.
Magnús Teitsson skoraði síðan
fallegt mark af 20 m færi, 3-0,
Pétur Rafnsson svaraði úr víta-
spymu, 3-1. en Pétur Finnsson
átti lokaorðið - vippaði yfir
markvörð Snæfells eftir sendingu
Hermanns Hermannssonar, 4-1.
NA-ríðill:
Mývetningar mættu fáliðaðir
austur og sögðu að heyskapnum
væri um að kenna. Strax á 2. mín-
útu skoraði Guðmundur Ingva-
son fyrir Þrótt, beint úr auka-
spymu, og fimm mínútum síðar
skaut hann í stöng úr vítaspymu.
Kristján Kristjánsson skoraði
fyrir hlé, 2-0, og aftur rétt fyrir
leikslok, 3-0. Þórhallur Jónas-
son, sem er hættur við að hætta
alveg strax, sýndi svo gamla takta
á síðustu mínútunni. Skoraði
fyrst eftir góðan einleik, 4-0, og
var kominn í dauðafæri þegar
leikurinn var flautaður af.
Austri
Magni
3-0
Valur Rf.
Leiftur
1-3
Tíu stig er forskot Ólafs-
firðinga eftir þennan sigur og 2.
deildin nálgast enn. Fyrri hálf-
leikur var jafn, Hafsteinn Jak-
obsson kom Leiftri yfir en Gústaf
Ómarsson náði að jafna fyrir
Reyðfirðinga með skalla fyrir
hlé. Leiftur var betri aðilinn í
síðari hálfleik og tryggði sér sigur
með mörkum Hafsteins og Geirs
Harðar Ágústssonar.
Fyrri hálfleikur var ansi dapur
en Austri náði að komast yfir rétt
fyrir hlé er Guðmundur Ámason
skoraði með góðu skoti. Austri
náði sér síðan vel á strik í síðari
hálfleik. Kristján Svavarsson
skoraði fljótlega, 2-0, og Halldór
Ámason fylgdi vel þegar mark-
vörður Magna missti boltann frá
sér og gerði þriðja markið. Undir
lokin var Austramaðurinn Magn-
ús Guðnason rekinn af leikvelli
fyrir óþarfa röfl við dómarann.
-VS
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þdðjudagur 24. júlí 1984