Þjóðviljinn - 25.10.1984, Page 2

Þjóðviljinn - 25.10.1984, Page 2
FRETTIR Verkfallið Engin laun 1. nóv.? SKYRR ekki ennfengið undanþágu til að vinna launaseðla þeirra sem vinna í verkfalli. Starfsfólk spítalannafengi aðeins föstu launin greidd nú Við þurfum sko alls engar 48 klukkustundir til að hugsa okkur um - auðvitað segjum við nei strax! Blindra- bókasafnið opnað Frá og með deginum í dag, 25. október, hefjast að nýju útlán á bókum frá Blindrabókasafni ís- lands. Er safnið opið virka daga frá kl. 10-16. Vegna verkfalls geta póstsendingar bóka ekki hafist að svo stöddu. -v. AUt er nú í óvissu um það hvort laun verða greidd 1. nóvem- ber n.k. tU þeirra opinberu starfs- manna sem hafa verið að vinna í verkfalli. Kjaradeilunefnd hefur enn ekki skorið úr um það hvort starfsmönnum Skýrsluvéla ríkis- tla má að verkfall bókagerð- armanna hafi þær afleiðing- ar, að færri bækur komi út nú fyrir jólin en fyrirhugað var. Sú mun líka verða raunin þótt ekki gildi það um öll bókaforlögin. Hjá Máli og menningu var okkur sagt að bókatitlum mundi ekki fækka frá því, sem ákveðið hafði verið. Þeir myndu verða um 30. Ástæðan er sú hversu félagið var komið vel á veg með bækur sínar áður en til verkfallsins kom. Prentun tveggja bóka lauk t.d. á mánudag og fimm verða búnar nú í vikulokin. Fyrsta bókin frá bókbandi og prentsmiðju kemur ins og Reykjavíkurborgar verður veitt undanþága til að keyra út launaseðla. Þá fengust þær upp- lýsingar í gær að enda þótt slík undanþága fengist í tíma væri úti- lokað að greiða starfsfólki Ríkis- spítalanna eftirvinnu og álag, að- út í næstu viku og svo koll af kolli. - Nei, nei, hér ríkir engin svartsýni, sagði Árni Einarsson. Hjá Álmenna bókafélaginu fengum við hinsvegar þær fréttir, að fækkun bókatitla yrði veruleg frá því, sem ætlað var. Trúlega verða nýjar bækur vart yfir 20 að tölu, e.t.v. færri. Því er ekki að neita, að verkfallið var fjárhags- legt áfall fyrir okkur og mun það eiga við um bókaútgáfuna í heild, sagði Kristján Jóhannsson. Ekki taldi hann, né aðrir viðmælend- ur, að prentun hefði mikið flust úr landi. Þar væru ýmis ljón í vegi og auk þess hefði í byrjun ekki eíns föst laun. Jón Hauksson starfsmaður Kjaradeilunefndar sagðist í gær ekki vita hvenær hefndin felldi úrskurð sinn. Pétur J. Jónasson hjá Ríkisspítölunum sagði að um 2500 manns væru að störfum á verið búist við svona löngu verk- falli. - Verkfallið hefur auðvitað leikið okkur bölvanlega, sagði Örlygur Hálfdánarson hjá Erni og Órlygi. Við verðum að láta einhverjar bækur bíða en slíkt er alltaf viðkvæmt mál og vont í að komast. Við erum nú ekki með margar bækur en hinsvegar nokkuð stór- ar. Þar ber auðvitað af ensk- íslenska orðabókin, sem er á við margar bækur og við vonumst til að komi út fyrir jól. Þá er það Landið þitt ísland, Jón Sólnes, sem Halldór Halldórsson skráir, sjúkrahúsum og að ef undanþága fengist ekki í dag eða á morgun yrði erfitt að greiða út launin um mánaðamótin. Hvemig sem allt færi yrði útilokað að greiða önnur laun en gmnnlaunin. Guðmundur Kærnested, skrásett af Sveini Sæmundssyni, og Ágúst á Brúnastöðum en þar er Halldór frá Kirkjubóli skrásetjari. -mhg Frestað Fyrirhuguðum tónleikum ís- lensku hljómsveitarinnar, sem vera áttu í Bústaðakirkju í kvöld, verður frestað, þar sem einleikar- inn, Stephanie Brown, kemst ekki til landsins í tæka tíð vegna samgönguerfiðleika. -v. Fæni bækur vegna verkfallsins FRÉTTASKÝRING Kjaradeilunefnd er fram- lenging á fjáimálaráðheira Það skiptir alla verkalýðshreyfinguna miklu að BSRB takist að stöðva lögbrot nefndarinnar. í verkfalli BSRB skýtur hvað eftir annað upp kolli svokölluð KjaradeUunefnd sem á fundum sínum f Rúgbrauðsgerðinni í Reykjavík gefur út skipanir um hitt og ályktar um þetta. Kjara- deUunefnd lætur einsog sá sem valdið hefur, en BSRB-menn draga þetta vald í efa og gagnrýna nefndina harkalega fyrir að fara með grófum hætti útfyrir lagaleg vébönd sín. Reiptog ríkisstjórnarinnar og BSRB um lagagUdi nefndarsam- þykktanna gæti reynst einn af- drifaríkasti slagurinn í þeim kjar- adeUum sem nú standa. Væring- arnar birtast á fréttayfirborði sem orðabang um hafrannsóknir, skólahúsverði og fjósamenn, en í raun er tekist á um sjálfan verk- fallsrétt opinberra starfsmanna. Takist ríkisvaldinu að hafa sitt í gegn kynni að verða þröngt fyrir dyrum allrar verkalýðshreyfing- arinnar í kjaradeUum komandi ára. Kjaradeilunefnd var búin til þegar verkfallsréttur BSRB var lögfestur árið 1976. Hana skipa níu menn, þrír fulltrúar BSRB, þrír fulltrúar nkisins, tveir kjörn- ir af sameinuðu alþingi og for- maður skipaður af Hæstarétti. Þannig veldur sjálf skipanin því að ríkisstjórn með mikinn þing- styrk getur gengið að meirihluta í nefndinni. Lög kveða svo á að ýmsir lykil- menn í ríkiskerfi og bæjarfé- lögum skuli starfa í verkfalli. Rísi ágreiningur um túlkun þeirra laga skal félagsdómur úrskurða, - og einn slíkur úrskurður hefur litið dagsljós í þessu verkfalli: fé- lagsdómur staðfesti þá skoðun BSRB að byggingarfulltrúinn í Garðabæ heyrði ekki til þeim sem lögskyldaðir eru til vinnu í verkfallinu. Öryggi og heilsa Þar sem þeim lögum sleppir sem kveða á um vinnuskyldu í verkfalli taka við lagagreinar um kjaradeilunefnd. 26. grein laga um kjarasamninga BSRB er svo- hljóðandi: „Pótt löglegt verk- fall sé hafið er starfsmönnum, sem í verkfalli eru, skylt að starfa svo að haldið verði uppi nauðsyn- legri öryggisvörslu og heilsugœslu. Kjaradeilunefnd ákveður hvaða einstakir menn skuli vinna í verk- falli og hún skiptir vinnuskyldu á milli manna. Um laun og kjör þessara manna meðan á verkfalli stendur skalfara eftir þeim kjara- samningi sem gerður verður að loknu verkfalli". Önnur grein laga fjallar svo um skipan nefndarinnar. Engin reglugerð er til um kjaradeilu- nefnd, en í athugasemdum þeirrar nefndar sem samdi laga- ffumvarpið á sínum tíma er kveð- ið enn skýrar að orði: „Hérergert ráð fyrir að verkfallsrétti verði þau takmörk sett að öryggi og heilsu fólks verði ekki stefnt í hcettu. Upptalning á þeim störfum sem hér um rœðirgetur ekki orðið tœmandi og erþvísérstakri nefnd falið að ákveða hvaða störf þurfi að vinna...“. Af þessu virðist augljóst að verksvið nefndarinnar takmark- ast af allra nauðsynlegustu störf- um við öryggisvörslu og heilsu- gæslu, - og undanþágur til ann- arra starfa gefur verkfallsstjórn BSRB samkvæmt íslenskri og al- þjóðlegri hefð um vinnubrögð í verkfalli. í fyrsta verkfalli BSRB sem lauk fyrir réttum sjö árum (25.10.1977) töldu verkfallsmenn nefndina hafa farið nokkrum sinnum útfyrirverksviðsitt. Nú er hins vegar enn alvarlegra uppi á teningi. Ríkisstjórnin ákvað í upphafi verkfalls að kippa stoð- unum undan verkfallsmönnum með því að gera kjaradeilunefnd einráða um undanþágur frá verk- fallinu. Þetta kemur skýrt í ljós í bréfi fjármálaráðuneytisins til hinna ráðuneytanna frá 25. sept- ember þar sem forstöðumönnum MÖRÐUR ÁRNASON ríkisstofnana er skipað að leita eingöngu til nefndarinnar um undanþágur og því haldið fram að „meðan á verkfalli stendur taki ábyrgð ríkissjóðs sem vinnu- veitanda aðeins til þeirra félaga innan BSRB er kvaddir hafa verið til starfa af Kjaradeilunefnd, eða eru undanþegnir verkfalli Formaður nefndarinnar, lög- fræðingurinn Helgi V. Jónsson sem meðal annars endurskoðar reikninga Flugleiða, hefur lýst þeirri skoðun sinni að nefndin sé einráð um undanþágur, og með samþykki ríkisstjórnarinnar hef- ur nefndin úrskurðað um mál sem með engu meðalmannviti geta flokkast undir „öryggi og heilsu fólks“. Þar má nefna hinn fræga úrskurð nefndarinnar um að hafrannsóknarskipin leggi úr höfn, úrskurð nefndarinnar um dánartilkynningar í útvarpi, úr- skurð nefndarinnar um pressuger fyrir bakarí, úrskurð nefndarinn- ar um svína- og hænsnafóður, um fjósamenn Bændaskólans á Hvanneyri og nú síðast umfjöllun nefndarinnar um undanþágu til starfsmanna SKÝRR til að reikna út laun. Samkvæmt lögum átti Kjaradeilunefnd að vísa frá slíkum málum og þvílíkum þar sem þau varða ekki öryggisvörslu og heilsugæslu. Umsækjendur eiga í staðinn að snúa sér til verkfallsstjómar BSRB sem sýnt hefur mikla sann- girni og lipurð í undanþágumál- um. Því er haldið fram að með því að krefjast úrskurðarvalds um þær undanþágur sem ekki heyra undir Kjaradeilunefnd sé BSRB að taka landsvöld í sínar hendur. Slíkt er vitanlega útúrsnúningur þar sem gagnaðili í deilunni, ríkisvaldið, getur bannað þeim að vinna sem hafa fengið undan- þágur frá BSRB. Ríkisstjómin hefur óspart veifað áliti lögmannsins Bene- dikts Sigurjónssonar. Lokaorð álitsgerðar Benedikts em að álit hans beri því vott að hann hafi haft ónógan tíma til að athuga málið, og í álitsgerðinni, sem snýst um leyfi til hafrannsókna- manna, kemur í ljós að eina af- staðan sem lögmaðurinn tekur er að málið hafi verið lögformlega afgreitt, - ákvörðun Kjaradeilu- nefndar standi þartil henni verði hnekkt af dómstólum. Hvergi í álitsgerðinni heldur Benedikt því hins vegar fram að Kjaradeilu- nefnd hafi tekið ákvörðun sína samkvœmt þeim lögum sem henni ber að starfa eftir. Pólsk fyrirmynd Átök í verkfallinu nú hafa flest sprottið af þeim rótum sem hér eru grafnar upp að framan. Nið- urstöður kjarabaráttu opinberra starfsmanna ráðast af því að verkfallsmenn haldi sínum hlut, - og ekki síður af því að aðrir launamenn og allur almenningur styðji BSRB í að koma í veg fyrir lögbrot ríkisvalds og Kjara- deilunefndar. En slagurinn niðrá Sundahöfn og víðar um verksvið Kjara- deilunefndar stendur ekki ein- ungis um samningsniðurstöður hjá BSRB. Vinni ríkisþursinn sigur hefur verkfallsréttur opin- berra starfsmanna skerst veru- lega. Kjaradeilunefnd gæti þá dregið vígtennurnar hverja af annarri úr hvofti verkfallsmanna framtíðarinnar, og hætt er við að í slóð BSRB yrðu önnur stéttarfé- lög dregin. „Þetta minnir á pólskt fyrir- komulag", sagði Kristján Thorl- acius í fyrradag um fangelsishót- anir ríkisstjórnarinnar. Pólskt fyrirkomulag er það sem hugur íhaldsins stendur til, Alberts, Re- agans og Thatcher: bitlaus, þæg og fylgispök verkalýðshreyfing. Alræði Kjaradeilunefndar i verk- falli opinberra starfsmanna er stórt skref í þá átt. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 25. október 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.