Þjóðviljinn - 25.10.1984, Qupperneq 4
LEIÐARI
Tukthúshótanir
í stað viðræðna
Lýðræöi felst ekki aðeins í reglum um kosn-
ingarog formlegan atkvæðisrétt. Það er í raun
byggt á vilja til að leita lausna með viðræðum
og samkomulagi. Réttur fólksins til áhrifa er
forsenda lýðræðisins. Þeir stjórnendur sem
fyrirlíta þann rétt eru að reiða öxi að rótum
frelsis sem ávallt hefur verið aðalsmerki hins
íslenska lýðræðis.
Þegar fjármálaráðherra ríkisins sendir for-
ystumönnum opinberra starfsmanna bréf að
næturlagi og hótar að beita ákvæðum hegn-
ingarlaga um allt að 8 ára tukthúsvist afhjúpar
hann hve gersamlega ríkisstjórnin fyrirlítur
helstu einkenni lýðræðisins í landinu. Forsæt-
isráðherra kemur síðan á Alþingi og fagnar
tukthúshótunum fjármálaráðherrans. Þær séu
reyndar frá ríkisstjórninni allri.
Tukthúsbréfið markar ný þáttaskil á maka-
lausum ferli þessarar ríkisstjórnar. Þótt brot
hennar á almennum leikreglum lýðræðisins
séu orðin ærið mörg hefur henni tekist að
ganga skrefi lengra á braut valdhrokans sem í
öðrum löndum hefur endað í ógnarstjórn fas-
ismans.
í upphafi ferils síns svipti hún launafólk rétti
til að semja um kaup og kjör. Frjálsir samning-
ar voru bannaðir í krafti ríkisvaldsins. Á síðustu
vikum hafa ráðherrarnir svo verið í fararbroddi
lögbrjóta sem réttlættu gerðir sínar með tilvís-
unum til hagsmuna valdsmannanna sjálfra.
Ráðherrarnir settu drottnunarviljann ofar
lögum og rétti. Það er hugarfarið sem í fjar-
lægum heimsálfum og í Evrópu kreppunnar
var frjómold fasismans.
Að undanförnu hafa borist þrjár tilskipanir
frá fjármálaráðherra ríkisins. í hinni fyrstu var
forstöðumönnum ríkisstofnana fyrirskipað að
hafa forgöngu um verkfallsbrot og troða þann-
ig á löghelguðum rétti starfsfólksins. í tilskipun
númer tvö var ögrað með því að allar gerðir
félagsmanna BSRB í löglegu verkfalli verði
skrásettarog sú „sakabók ráðuneytisins" not-
uð til að rökstyðja brottrekstur í náinni framtíð. í
hinni þriðju tilskipun er svo gerræðisskrefið
stigið til fulls og hóíað átta ára fangelsisvist ef
forystumenn BSRB haldi áfram að gæta réttar
félagsmanna._________________________________
Á undanförnum árum hafa borist fréttir frá
Póllandi og Chile um fangelsanir forystu-
manna launafólks. íslenskur almenningur hef-
ur fordæmt slíkt stjórnarfar. Nú blasir við að í
stjórnarráði íslands sitja samherjar Jarusel-
skis og Pinochets. Fjármálaráðherrann og for-
sætisráðherrann hafa nú gert tukthúsin að
vopni sínu í baráttunni við launafólk. Það er því
kominn tími til að allir lýðræðissinnar taki
höndum saman gegn gerræðisstefnu ráðherr-
anna. Það þarf að slá skjaldborg um
mannréttindi og lýðfrelsi í landinu.
Þegar samningar höfðu tekist á ísafirði og
Akureyri, í Kópavogi og víðarog verkfalli bóka-
gerðarmanna var lokið áttu flestir von á því að
ríkisstjórnin myndi setjast í fullri alvöru að við-
ræðuborðinu. Forystumenn BSRB höfðu búið
sig undir úrslitalotu sem leitt gæti til lausnar á
löngu verkfalli. En ráðherrarnir höfðu ekki
áhuga á viðræðum. Hugur þeirra var grafinn í
málsgreinum hegningarlaganna. Þeir virðast
hafa meiri trú á tukthúsunum en eðlilegum
samningum. Á hvaða braut er stjórnarfarið á
íslandi?
KLIPPT OG SKORIÐ
„Markmiðið er að koma
íslenzku stjórninni frá“
— segir Einar Karl Haraldsson í viðtali við Ny Dag, blað sænska kommúnistaflokksins
HHðmhal. 2S. •kUber. Pri fr«tariur> M«r
„N(J ER bant eftir mó skipU um
rfkiontjóni med hrmöi Þi böfum
rié máó títímm þeim markmidum,
sem Tié stefadum aó.“ Pannig
komst Eiaar Karl HarakLnon,
■ýakipaéur framkrcmdastjóri AF
kýéub—dslsfMÍus, nu. aé orði í
dag í Tiétali tíö blaðið Nj Dag,
komsBÍnistaflokksins ( Srf-
m-
Blaðið hefur það ennfremur
eftir Einari Karli, að helzta
hættan sé nú fólfin í því, að
stjórninni takist að koma á að-
skildum samningum við Verka-
mannasambandið og Landssam-
band iðnverkafólks. Þá muni
samstaðan gegn stjórninni
rofna.
„Markmiðið með verkfallinu
er jú að koma stjórninni frá og
að gera samninga á sama grunni
um leið. Ef samningar veröa
ekki gerðir á neinu sviði nú,
verður stjórnin að fara frá,“ seg-
ir Einar Karl Haraldsson í við-
taiinu við sænska kommúnista-
blaðið.
„Verkfallið hefur haft í för
með sér, að verkalýðsflokkarnir
hafa eflzt fyrir kosningar, sem
fram kunna að fara og ættu að
leiöa til nýrrar ríkisstjórnar
verkaiýðsflokkanna,” hefur blað-
ið ennfremur eftir Einari Karli
Haraidssyni.
Þá segir blaðið, að íslenzka
ríkisstjórnin sé að áliti margra í
Svíþjóð mun harðari stjórn en
hin umdeilda hægri stjórn
Margaret Thatcher í Bretlandi.
Tónnínn gefinn
Ekki var hann Einar Karl bú-
inn að vera lengi frá okkur á
Pjóðviljanum þegar hann fór að
gefa tóninn útí Skandínavíu um
það hvernig fjöldinn (frónski) á
að halda á baráttu sinni.
Einar Karl var sumsé búinn að
fá sér nýtt málgagn, „Ny Dag“,
blað VPK, kommúnistanna
sænsku. Og Morgunblaðið fékk
það blóð á tönnina (blod pá tand-
en) sem það hefur ásamt Albert
beðið eftir í yfirstandandi verk-
falli: ,Afarkmiðið er að koma ís-
lensku stjórninni frá“, segir í
tveggja hæða baksíðufyrirsögn í
Mogganum í gær.
Lengi beðið
Albert Guðmundsson hefur
löngum haldið því fram að bar-
átta tugþúsunda manna fyrir lífs-
viðurværi sé upprunnin á flokks-
kontórum Alþýðubandalagsins
og á ritstjórnarskrifstofum Þjóð-
viljans. Því til sönnunar hefur
hann gjaman hampað ályktun
kjördæmisráðstefnu Vestfjarða
einhvern tíma í sumar, en þar er
talað um að losna þurfi við Seðla-
bankann og auka valddreifingu í
landinu. Af röksnilld sinni hefur
ráðherrann komist að þeirri
niðurstöðu, að Vestfirðingarnir
hafi meint uppreisn og byltingu.
Ekki nóg með það, það sé eigin-
lega þessi hugmynd sem reki
áfram verkfall BSRB.
Rússinn kemur
Auðvitað er það eðli háborg-
aralegra valdaflokka einsog
Sjálfstæðisflokksins að brenni-
merkja allt andóf og hræringar
gegn veldi hans sem kommún-
isma. Óvinurinn, sá svarti djöfull
og erkiþrjótur; stendur á bakvið
alltsman - RUSSINN! Og man
nú enginn Iengur hver hefur klip-
ið af kaupinu síðasta árið, hvað
þá hverjir greiddu þriggja daga
laun um mánaðamótin.
Og einsog allir vita er Alþýðu-
bandalagið sú búklega ásjóna So-
vétkommúnismans herskáa sem
íslensk þjóð hefir fyrir augunum.
Þess vegna gat heldur ekki farið
hjá því að Sjálfstæðisflokkurinn
sækti Alþýðubandalagið til
ábyrgðar fyrir baráttu fólksins
fyrir lífsviðurværi. í rauninni var
tímaspursmál hvenær Morgun-
blaðið birti fréttina um að mark-
miðið með verkfallinu væri ekki
að berjast fyrir því að geta lifað
sómasamlega heldur að steypa
stjórninni í glötun - og að komm-
arnir stæðu á bakvið allt saman.
Mogginn kemur
til hjálpar
Morgunblaðið gat ekki búið til
neina slíka baksíðufrétt á síðustu
vikum því blaðinu auðnaðist ekki
að koma út. Og sömuleiðis er af-
skaplega erfitt að kenna komm-
unum um þessi ósköp, af því að
enginn Þjóðvilji var til að skrá-
setja línuna og halda þessu gang-
andi. Þess vegna varð aumingja
Albert að láta sér nægja að lesa
uppúr ályktunum kjördæmisráð-
stefnu Alþýðubandalagsins úr
Þjóðvilja frá því í ágúst.
Mogginn var ekki búinn að
finna sökudólginn fyrr en í öðru
tölublaði eftir verkfall. Jamm
þetta er nú ekkert venjulegt verk-
fall: Það er bara verið að koma
ríkisstjórninni í burt. Og hver er
heimildin? Kommarnir í Svíþjóð.
Það var mikið að Morgunblaðið
kom ekki upp um að byltingar-
stjórnin hefði aðsetur í Norræna
húsinu.
En einmitt þessi frétt sýnir vel
hvers vegna ráðamenn Sjálfstæð-
isflokksins hafa saknað Morgun-
blaðsins svo mjög. Meðan Morg-
unblaðsins naut ekki við var
tjöldunum svipt af þeim eitt
augnablik. Og þjóðin sá þá eins-
og þeir eru. En nú eru Potem-
kintjöldin komin upp og búið að
mála skrattann sjálfan uppá þau.
Staðreyndir
málsins
Nú er staðreynd málsins hins
vegar sú, að blaðamaðurinn
sænski hefur samband við fram-
kvæmdastjóra Alþýðubandalags-
ins og biður um almennar upplýs-
ingar en ekki viðtal. Uppúr því
sýður hann síðan grein sem hent-
ar hans málgagni og svarar vænt-
ingum hans sjálfs og blaðsins.
Hann tíðkar greinilega sömu
vinnubrögð og Mogginn. Auðvit-
að hefur framkvæmdastjóri Al-
þýðubandalagsins ekki látið sér
til hugar koma að opinberir
starfsmenn hafi farið í verkfall til
að steypa ríkisstjórninni. Hitt er
svo jafn sjálfsagt einsog að
auðvitað hlýtur markmið fram-
kvæmdastjóra stærsta stjórnar-
andstöðuflokksins í landinu að
vera að steypa ríkisstjórninni.
Hann hefði varla fengið starfið
öðruvísi.
Réttlætismál
Auðvitað vita allir, tugþúsund-
ir þeirra sem eru í verkfalli og
fylgst hafa með því, að fólk hefur
farið í verkfall af illri nauðsyn.
Fólk hefur nefnilega ekki getað
lifað af laununum sínum. Og í því
tilfelli að sá sem kaupir vinnuafl-
ið, í þessu tilfelli ríkið, neitar að
greiða hærra verð fyrir vinnuna
og hefur lengst neitað meira að
segja að ræða það mál, þá á fólk
ekki annan kost. Verkfallið er til
að knýja fram réttindamál, - og
grundvallarmannréttindi. Og
auðvitað vita allir að allra flokka
fólk er í verkfalli, enginn einn
flokkur hefur þar meiri ítök en
annar. Hitt er svo annað mál,
hvort sú vitundarbylting, sem
réttlætisstríðið hefur getið af sér,
sé ekki það mikil að enginn flokk-
ur fái staðist. Allir stjórnmála-
flokkar blikna í samanburði við
þúsundir manna sem heyja orr-
ustu í lífsstríðinu einsog BSRB-
fólk.
Góð hugmynd
Hitt er svo annað mál hvort
það sé ekki að verða tímabær
hugmynd fyrir fleiri en þá sem
skipa stjórnarandstöðuflokka á
íslandi að steypa þessari ríkis-
stjórn. Spyrja mætti hvort nokk-
ur hafi trúað á að verri ríkisstjórn
gæti komið en sú sem nú situr.
Spyrja mætti hvort nokkuð það
sé á vegum þessarar ríkisstjórnar
sem fólk vill fá haldið. f þessum
skilningi er túlkun Morgunblaðs-
ins, á túlkun sænska komma-
blaðsins á túlkun Einars Karls um
markmiðið með verkfallinu,
kannski ekki svo vitlaus.
-óg
DJÖÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefancfi: Útgáfufólag Þjóöviljans.
RlUtjórar: Ámi Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Rltstjórnarfulltrul: Oskar Guðmundsson.
Fróttaatióri: Valþór Hlöðversson.
Biaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Ásdís Þórhallsdóttir, Guðjón Friðriksson,
Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Ámason,
Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurösson (íþróttir).
Ljósmyndir: Atli Arason, Einar Karlsson.
tttllt og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson.
Handrtta- og prófaricaleatur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvœmdaatjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrtfstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Auglýsingastjóri: Ragnheiöur Óladóttir.
Auglýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir.
Afgroiöslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgroiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Húsmæöur: Bergljót Guðjónsdóttir, Ókjf Húnflörð.
Innhoimtumonn: Brynjóffur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson.
Utkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 22 kr.
Sunnudagsverð: 25 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 275 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 25. október 1984