Þjóðviljinn - 25.10.1984, Qupperneq 10
FLOAMARKAÐURINN
TILKYNNING
Frá Fiskveiðasjóði ísiands
Umsóknir um lán á árinu 1985
og endurnýjun eldri umsókna
Um lánveitingar úr Fiskveiðasjóöi íslands á árinu
1985 hefur eftirfarandi verið ákveðið:
1. Vegna framkvæmda í fiskiðnaði
Engin lán verða veitt til byggingarframkvæmda
nema hugsanleg viðbótarlán vegna bygginga, sem
áður hafa verið veitt lánsloforð til, eða um sé að
ræða sérstakar aðstæður að mati sjóðsstjórnar.
Eftir því sem fjármagn sjóðsins þar með talið hag-
ræðingarfé hrekkur til, verður lánað til véla, tækja
og breytinga, sem hafa í för með sér bætt gæði og
aukna framleiðni.
Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð
Fiskveiðasjóðs liggur fyrir.
2. Vegna fiskiskipa
Eftir því sem fjármagn sjóðsins hrekkur til verður
lánað til skipa á aflvél og til tækjakaupa og endur-
bóta, ef talið er nauðsynlegt og hagkvæmt.
Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð
Fiskveiðasjóðs liggur fyrir.
3. Endurnýjun umsókna
Aliar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf að
endurnýja. Gera þarf nákvæma grein fyrir hvernig
þær framkvæmdir standa sem lánsloforð hefur ver-
ið veitt til.
4. Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur er til 15. desember 1984.
5. Almennt
Umsóknum um lán skal skila á þar til gerðum eyðu-
blöðum, ásamt þeim gögnum og upplýsingum, sem
þar er getið, að öðrum kosti verður umsókn ekki
tekin til greina (eyðublöð fást á skrifstofu Fiskveiða-
sjóðs íslands, Austurstræti 19, Reykjavík, svo og í
ýmsum bönkum og sparisjóðum utan Reykjavíkur).
Umsóknir er berast eftir tilskilinn umsóknarfrest
verða ekki teknar til greina við lánveitingar á árinu
1985, nema um sé að ræða ófyrirséð óhöpp.
Reykjavík 16. október 1984.
Fiskveiðasjóður íslands
Framkvæmdastjóri
og forstöðumaður
Svæðisstjórn Vestfjarða um málefni fatlaðra auglýsir
eftirtaldar stöður lausar til umsóknar:
1. Stöðu framkvæmdastjóra svæðisstjórnar.
Umsóknarfrestur er til 15. nóv. n.k.
Nánari upplýsingar veita formaður svæðisstjórnar í
síma 94-3722 eða 94-3816.
2. Stöðu formanns Bræðratungu - þjálfunar- og þjón-
ustumiðstöð fatlaðra á Vestfjörðum.
Umsóknarfrestur er til 15. nóv. n.k.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri svæð-
isstjórnar í síma 94-3224 eða 94-3816.
- Auglýsing -
frá fjárveitinganefnd Alþingis
Fjárveitinganefnd Alþingis mun sinna viðtölum vegna
afgreiðslu fjárlaga 1984 frá 29. okt - 16. nóv n.k.
Beiðnum um viðtöl við nefndina þarf að koma á fram-
færi við starfsmann nefndarinnar, Jón R. Pálsson, í
síma 1-15-60 eftir hádegi eða skriflega eigi síðar en 9.
nóvember n.k.
Skrifleg erindi um fjárveitingabeiðnir á fjárlögum 1984
þurfa að berast skrifstofu Alþingis fyrir 15. nóvember
n.k. ella er óvíst að hægt verði að sinna þeim.
Fjárveitinganefnd Alþingis
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi
Steinþór Sæmundsson
gullsmíðameistari
Alfhólsvegi 54, Kópavogi
andaöist á Borgarspítalanum 19. október sl.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 29. október
kl. 13.30.
Sólborg Sigurðardóttir
Álfheiður Steinþórsd. Sigurður G. Steinþórsson
Magnús Steinþórsson Steinþór Steinþórsson
Tengdabörn og barnabörn
Tvenn hjón
Tvenn hjón, önnur meö barn og ann-
að á leiðinni óska eftir að taka á leigu
3ja-4ra herb. íbúð í Reykjavík. Vin-
samlega hafið samband í síma 18715
utan vinnutíma.
Allt nýlegt
Isskápur, frystiskápur og þvottavél til
sölu vegna flutnings. Allt nýlegt.
Uppl. í síma 41214.
Þverflauta
Mjög vel með farin ársgömul þver-
flauta (skólaflauta) til sölu. Selst
ódýrt. Sími 74102.
Til sölu beykikojur,
175 cm á lengd. Hægt að taka í sund-
ur sem 2 sjálfstæð rúm. Dýnur fylgja.
Uppl. í síma 30820. Kristín.
Hreinsýn,
gluggaþvottaþjónusta, sími 621676.
Þvoum glugga jafnt úti sem inni, hátt
sem lágt. Tekið á móti pöntunum og
upplýsingar veittar á mánudögum kl.
8-10.30 f.h. og fimmtudögum kl. 14-
17. Einnig á kvöldin og um helgar.
Físnarbiót
Haustblót Físnar verður laugardag-
inn 3. nóv. kl. 19.30 á Hverfisgötu 105
(á horni Snorrabrautar). Aðgangs-
eyrir 500 kr. (kalt borð). Tilkynnið
þátttöku eigi síðar en mánudag 29.
okt. í síma 19327, 22248, 31998,
32335 og 35639. Blótsnefnd.
Skólaritvél (Brother)
til sölu. Uppl. í síma 79614.
Miðbær-Vesturbær
2ja til 3ja herb. íbúð óskast til leigu,
öruggar greiðslur. Vinsamlegast haf-
ið samband við Hafdísi í síma 16298
e. kl. 6.
Hjónarúm
Til sölu vel með farið hjónarúm, hvít-
lakkað með áföstum náttborðum og
dýnum. Komið og gerið tilboð. Uppl. í
síma 14667.
Málverk til sölu
Til sölu er úrval fallegra málverka,
mest landslagsmyndir, bæði olíu- og
vatnslitamyndir. Einnig fást minni
myndir óinnrammaðar á mjög vægu
verði. Upplýsingar í dag og næstu
daga í síma 18752.
Á að henda -
10 kr. kg.
Enn vantar mig gamalt og slitið til að
vefja úr. Gömul, ónýt lök, sængurver,
slitna dúka eða eitthvað þvílíkt. Borga
10 kr. á kílóið og sæki tauið að sjálf-
sögðu. Uppl. í s. 19244 og 13297.
14 ára stúlka
f Kópavogi (austurbæ) vill taka að sér
að gæta barna á kvöldin. Uppl. í síma
40281.
Til söiu
er svo til ónotuð Passap prjónavél
með mótor. Verð 15000 kr. Uppl. í
síma 32413.
Til sölu
kringlótt eldhúsborð á stálfæti og
mjög sjarmerandi rúm fyrir par. Selst
ódýrt. Sími 40618.
Gamalt píanó
til sölu, selst mjög ódýrt. Píanóið er
með heilum hljómbotni. Uppl. í síma
621486 e. kl. 18.
Tapast hefur
frá Þórufelli 14 fimm mánaða gömul
læða, grábröndótt. Þeir, sem gætu
gefið upplýsingar um hvað orðið hef-
ur af henni, vinsamlegast hringið í
síma 77654.
Ódýr bíll
Af sérstökum ástæðum er til sölu
Wartburg station '79, ekinn 56 þús.
km. Bíllinn lítur mjög vel út og er í
góðu standi. Verð aðeins kr. 35 þús.
ef um staðgreiðslu er að ræða. Uppl. í
síma 667250 eða 613635.
Einstaklingsherbergi
með forstofu, sérinngangi og snyrt-
ingu til leigu á góðum stað I Hlíðun-
um. Aðeins reglusöm manneskja
kemur til greina. Uppl. í síma 18590
eftir kl. 17.
Fyrir ungbörn
Til sölu burðarrúm á hjólagrind, 2000
kr., taustóll á 500 kr. og skiptimotta
400 kr.. Sími 53840.
Til sölu
Til sölu námsbækur á 25 kr. hver, alls
konar blöð á 5 kr. hvert, 2 stólar á 200
kr. báðir: hnífapör og margt fleira
ódýrt á Blönduhlíð 5 efri hæð eftir kl.
6.
Dagmamma/pabbi
Dagmamma/pabbi óskast fyrir And-
rés (7 ára) og Freyju (4ra ára). 2-3
daga í viku (I2:oo-16:30). Get sjálf
tekið 2 börn í pössun 1 -2 daga í viku á
sama tíma. Eigum heima við tjörnina.
S: 19513.
Óska eftir
Óska eftir að kaupa. rafmagnshita-
túbu í einbýlishús. S: 53840.
Óskum eftir
Óskum eftir að ráða stundvísa og
barngóða konu/stúlku til að koma
heim og gæta Söru 2ja ára. Vinnutími
hæfist k. 7:30 virka daga en lengd
hans eftir samkomulagi allt niður í 3
tíma. Búum við Vesturgötu. Uppl. í
síma 22464.
NONNI KJÓSANDI
Nei og aftur nei. Ég gerist ekki áskrifandi að Heróp- Svona er lífið. Mígandi rigning, ekkert frí og hand-
inu. leggsbrot, og sumarið er búið.
Þeir voru með nýjar fréttir. Það á að rigna á morgun. Eina sem óg bið um eru nokkrir aurar svo ég komist
á Arnarhól.
KR0SSGÁTAN
Lárétt: 1 band 4 nauðsyn 6 svefn
7 varga 9 skoðun 12 órólegri 14
þráður 15 fantur 16 ílát 19 kná 20
ugga 21 Ijósið
Lóðrétt: 2 tæki 3 ílát 4 þver 5 stilli
7 fjölmiðill 8 hæfast 10 líffærið 11
stúlkan 13 hald 17 þykkni 18 rasa
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt: 1 labb 4 sami 6 áll 7 þrár 9
örir 12 lukka 14 ósi 15 kös 16
tarfa 19 alir 20 árin 21 niðri
Lóðrétt: 2 aur 3 báru 4 slök 5 mói
7 þjórar 8 álitin 10 rakari 11 rás-
ina 13 kör 17 Ari 18 fár.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 25. október 1984