Þjóðviljinn - 30.10.1984, Blaðsíða 3
Knattspyrna
Ítalía
Hateley
skorar enn
Mark Hateley, sá ungi enski
landsiiðsmiðherji, heldur áfram
að gera þaðgott á Ítalíu. Á sunnu-
daginn skoraði hann sigurmark-
ið, 2-1, fyrir AC Milano gegn
erkifjendunum Inter Milano, á
heimavelii beggja, San Siro,
frammi fyrir 80 þúsund áhorf-
endum. Fimmta mark hans í 7
leikjum. Altobelli hafði komið
Inter yfir eftir sendingu frá Karl-
Heinz Rummenigge en Eng-
lendingurinn Ray Wilkins lagði
upp jöfnunarmark AC fyrir Di
Bartolomei.
Hinn enski Trevor Francis
skoraði jöfnunarmark Sampdor-
ia, 2-2, á lokamínútunni í heima-
leik gegn Torino. Það var
Skotinn Graeme Souness sem
skoraði fyrra mark Sampdoria en
hann lét verja frá sér vítaspyrnu
áður en Francis jafnaði. Brasilíu-
maðurinn Junior var einnig í
hörkuformi í leiknum, hann lagði
upp fyrra mark Torino og skoraði
það síðara sjálfur.
Juventus og AS Roma skildu
jöfn, 1-1, og eru bæði um miðja
deild. Verona vann Fiorentina 2-
1 og er efst með 12 stig. Torino og
AC Milano hafa 10 stig og Sam-
pdoria 9. -VS
Spánn
Barcelona
ósigraö
Barcelona heldur áfram
tveggja stiga forystu í spænsku 1.
deildinni og er enn ósigrað. El
Barca vann góðan útisigur gegn
Atletico í Madrid á sunnudaginn,
2-1 - varnarmaðurinn Barnardo
skoraði sigurmarkið sex mínút-
um fyrir leikslok.
Barcelona hefur 14 stig úr 8
leikjum, en Valencia, sem vann
Hercules 3-0, og Sevilla, sem
sigraði nágrannana Real Betis 1-
2 á útivelli, koma næst með 12
stig. Real Madrid er aðeins að
taka við sér, vann Elche 0-1 og er
í sjötta sæti með 9 stig.
-VS
Belgía
Anderlecht
óstöðvandi
Anderlecht heldur áfram sigur-
göngu sinni í Belgíu. í 11. umferðinni
á sunnudag vann Anderlecht Wat-
erschei 3-1 á útivelli og er áfram fjór-
um stigum á undan næstu liðum. Þau
eru nú Waregem, sem vann FC
Brúgge 2-1 á útivelli, og FC Liege sem
vann Beerschot 2-1. CS Brúgge, lið
Sævars Jónssonar, tapaði 1-0 í
Antwerpen og er í 10. sæti af 18 liðum.
Anderlecht hefur 19 stig, Waregem og
Liege 15, Beveren, Ghent og FC
Brúgge 13 stig, Lokeren og
Antwerpen 12 stig. Neðst eru Wat-
erschei og Lierse með 6 stig og Racing
Jet með 5 stig.
Frakkland
Bordeaux
eitt efst
Eftir að hafa tapað sínum fyrsta
leik um síðustu helgi komst Bordeaux
aftur á sigurbraut í Frakklandi á
laugardaginn með því að sigra Soc-
haux 1-0. Nantes mátti á meðan sætta
sig við 2-2 jafntefli gegn Strassbourg á
heimavelli þannig að Bordeauc hefur
23 stig úr 14 leikjum en Nantes 22.
Næstu Uð eru Auxerre og Laval með
16 stig.
Vestur-Þýskaland
Díisseldorf óhemju
óheppið gegn Stuttgart
Uerdingen betri aðilinn í Hamborg
Magnús og Lárus ekki með - Atli og Ásgeir fengu fjóra
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V,-
Þýskalandi:
Dússeldorf var reglulega
óheppið að sigra ekki Stuttgart í
Bundesligunni á laugardaginn.
Atli Eðvaldsson og félagar voru
mun betri aðilinn, fengu t.d. 15
hornspyrnur gegn tveimur og
voru komnir í 2:0 eftir 28 mínút-
ur. Júrgen Fleer og Ralf Dusend
skoruðu. Belgíumanninum Nico
Claesen tókst að jafna fyrir Stutt-
gart með tveimur mörkum, því
fyrra úr vítaspyrnu en því síðara
eftir góða sendingu frá Ásgeiri
Sigurvinssyni. Það var það eina
sérstaka sem Ásgeir gerði í
leiknum og hann og Atli fengu
báðir 4 í einkunn hjá Kicker. Atla
var skipt útaf 7 mínútum fyrir
leikslok og kom Gúnter Thiele í
hans stað.
Bayern Uerdingen fór til
Hamborgar og gerði þar óvænt
jafntefli við Hamburger SV, 1:1.
Uerdingen hefði reyndar átt
skilið sigur, liðið átti fimm
stangar- og sláarskot en allt virtist
tapað er Wolfgang Rolff skoraði
fyrii HSV á 76. mín. Á lokamín-
útunni tókst Dietmar Klinger að
jafna fyrir Uerdingen. Lárus
Guðmundsson lék ekki með Uer-
dingen og kemur það mjög á
óvart eftir góðan leik hans um
síðustu helgi.
Magnús Bergs lék ekki með
Eintracht Braunschweig sem
kom mjög á óvart með því að
sigra Leverkusen 3:0 á útivelli.
Úrslit urðu þessi:
Hamburger-Uerdingen 1:1
Frankfurt-Köin 1:4
Dússeldorf-Stuttgart 2:2
Mannheim-Dortmund 1:2
Karlsruher-Kaiserslautern 0:0
Bochum-Bielefeid 1:1
Leverkusen-Braunschweig 0:3
M.GIadbach-Bremen 1:1
Schalke-Bayern Múnchen 1:1
í fyrsta skipti í sögu Bundeslig-
unnar var enginn heimasigur í
leikjunum níu. Bayern Múnchen
heldur fimm stiga forystu þrátt
fyrir jafnteflið í Schalke en í þeim
leik hélt Junghaus markvörður
Schalke heimaliðinu á floti.
Hann Iék áður með Bayern en
fékk fá tækifæri. Klaus Áugent-
haler kom Bayern yfir með skoti í
vinkilinn og inn af 35 m færi en
Bernard Dietz, hinn 36 ára
fyrrum landsliðsmaður, skellti
sér í sóknina og jafnaði fyrir
Schalke.
Dortmund réð Eric Riebbeck,
fyrrum aðstoðarmann Derwalls
landsliðseinvaldar, sem fram-
kvæmdastjóra fyrir helgina og
uppskar sinn fyrsta útisigur, gegn
Mannheim. Köln lék eins og
meistari í Frankfurt og vann 4:1-
liðið hefur sýnt ótrúlegar fram-
farir í síðustu leikjum. Uwe Bein
átti snilldarleik og skoraði 2 mörk
og var útnefndur maður dagsins
hjá Kicker. Mönchengladbach og
Bremen gerðu jafntefli í leiðin-
legum leik þar sem hvorugt lið
þorði að sækja. Frank Mill kom
Gladbach yfir en félagi hans, Wil-
fried Hannes, jafnaði fyrir Brem-
en með sjálfsmarki. Karlsruher
átti fjögur stangarskot í marka-
lausa jafnteflinu gegn Kaisers-
lautern og í leik Bochum og Biel-
efeld bar helst til tíðinda að Klaus
Fischer tókst ekki að skora fyrir
Bochum.
Efstu og neðstu lið í Bundeslig-
unni eru þá þessi:
BayernMúnchen... 10 8 1 1 24:10 17
Gladbach.........10 4 4 2 30:19 12
Bremen...........10 4 4 2 26:19 12
Bochum...........10 3 5 2 17:15 11
Hamburger........10 3 5 2 16:15 11
Kaisersl.........10 3 5 2 16:15 11
Stuttgart........10 4 2 4 26:17 10
Dússeldorf........10 2 3 5 20:26 7
Bielefeld.........10 1 5 4 11:24 7
Dortmund..........10 3 0 7 12:20 6
Braunschw.........10 3 0 7 17:31 6
NM stúlkna
Best gegn Noregi
ísland vann einn leik en tapaði þremur
íslenska stúlknalandsliðið í
handknattieik hafnaði í fjórða
sæti á Norðurlandamótinu sem
fram fór í Noregi um helgina. Þær
töpuðu fyrir Svíum, Norð-
mönnum og Dönum en sigruðu
Finna í síðasta leiknum. Urslit í
mótinu lágu ekki fyrir er liðið hélt
heim á sunnudag en norsku stúlk-
urnar voru sigurstranglegastar,
að sögn Bjargar Guðmundsdótt-
ur fararstjóra.
Á föstudag var leikið við Svía.
fslensku stúlkurnar voru þjakað-
ar af taugaspennu og töpuðu 10-
22 eftir 5-13 í hálfleik. Á laugar-
dag lék liðið við Noreg og náði
þar sínum besta leik. Hinar
geysiöflugu norsku stúlkur höfðu
nauma forystu í hálfleik, 10-12,
og sigruðu 16-23. Aðeins einum
og hálfum tíma seinna var leikið
við Dani og útkeyrt íslenskt lið
tapaði 15-29 eftir 6-12 í hálfleik.
Dönsku stúlkurnar beittu óspart
hraðaupphlaupum sem þær ís-
lensku réðu ekki við. Á sunnudag
var loks leikið við Finna. íslensku
stúlkurnar voru varla með í fyrri
hálfleiknum og voru undir 6-7 í
hléi en náðu síðan að rífa sig í
gang og sigra 20-12.
Björg sagði að Sigurbjörg Sig-
þórsdóttir hefði verið í aðlahlut-
verki í leikjunum og skorað lang-
mest. Halla Geirsdóttir mark-
vörður lék frábærlega, Snjólaug
Benjamínsdóttir var drjúg og
Hanna Leifsdóttir átti stórgóðan
Ieik gegn Finnum. Allar hinar
voru áþekkar- „við stöndum hin-
um þjóðunum talsvert að baki,
norsku, sænsku og dönsku stúlk-
umar em í geysigóðri þjálfun og
þær norsku fá t.d. aðeins hvfld frá
æfingum í einn mánuð á ári,“
sagði Björg.
Stúlkurnar munu í vetur æfa
fyrir heimsmeistarakeppnina
sem fram fer í vor.
-VS
Körfubolti
ÍS sigraði
fS vann öruggan sigur á
UMFN, 51:26, í 1. deild kvenna í
körfuknattleik í Njarðvík á
laugardaginn.
IKeflavík vann f BK UMFL 61-
53 í fyrsta leiknum sem háður er í
2. deild kvenna á íslandsmóti.
Tveir leikir áttu að fara fram í
2. deild karla í Borgarnesi um
helgina en Hörður frá Patreks-
firði gaf þá báða, gegn Snæfelli og
Skallagrími.
Badminton
Frost vann
Daninn Morten Frost bætti enn
einum bikarnum í safnið er hann
sigraði Han Jian frá Kína í úrslita-
leik um Skandinavíubikarinn í
einliðaleik karla í badminton á
sunnudaginn. Keppnin fór fram í
Danmörku og Frost sigraði 15:10
og 15:9. Jian vann Frost fyrir
skömmu á opna hollenska
meistaramótinu. Han Aiping frá
Kína vann löndu sína Wu Dixi
9:11,11:2,11:2 í úrslitum einliða-
leiks kvenna.
Beggö bestur
Bergþór Magnússon var kjör-
inn leikmaður ársins 1984 á upp-
skeruhátíð knattspyrnudeildar
Vals á sunnudaginn. Guðmundur
Kjartansson fékk einnig sérstaka
viðurkenningu fyrir góða frammi-
stöðu í sumar.
Körfuboltil 1. d. karla
IBK vann Fram
með einu stigi
Handbolti/l. d. kvenna
Jafntefli
nýliðanna
ÍBK sigraði Fram 58-57 í
hörkuspennandi og skemmti-
legum leik í 1. deild karla í körfu-
knattleik í Keflavík á laugardag-
inn. Keflvíkingar eru þar með
einir á toppi deildarinnar með 6
stig úr þremur leikjum.
Fram komst í 10-2 í byrjun en
ÍBK jafnaði fljótlega og leikurinn
var síðan í járnum til leiksloka.
ÍBK varyfirí hléi, 31-29, en undir
lok Ieiksins höfðu liðin forystuna
til skiptis uns ÍBK komst í 58-55 á
lokamínútunni. Fram átti síðan
lokaorðið, 58-57.
Óskar Nikulásson skoraði 18
stig fyrir ÍBK, Jón Kr. Gíslason
16 og Guðjón Skúlason 10.
Auðunn og Ómar skoruðu 12 stig
hvor fyrir Fram og Jóhann 11.
-SÓM/Suðurnesjum
Nýju liðin tvö í 1. deild kvenna
í handknattleik, Þór Akureyri og
ÍBV, gerðu jafntefli, 14-14, í
hörkuspennandi leik á Akureyri
á föstudagskvöldið. Leikurinn
var hnífjafn allan tímann og úr-
slitin við hæfi en staðan í hléi var
6-6. Inga Huld Pálsdóttir skoraði
5 mörk fyrir Þór, Valdís Hallg-
rímsdóttir 4 og Þórunn Sigurðar-
(var (áður Dakarsta) Webster býr sig undir að skjóta á körfu Vals í leiknum (fyrrakvöld. Mynd: -eik
Körfuboltií Úrvalsdeild
Haukarnir hikstuöu
en höfðu það þó
Valsmenn töpuðu 83-80 í spennandi leik í Hafnarfirði
dóttir 2 en Ragna Birgisdóttir 7
og Eyrún Sigþórsdóttir 3 skoruðu
flest mörk Eyjastúlkna sem í vet-
ur leika í fyrsta skipti í 1. deild.
-KH/Akureyri
Haukarnir stóðust prófið - hikstandi
þó. Eftir að hafa fengið Dakarsta (nú
Ivar) Webster til liðs við sig sem
fullgildan íslending er reiknað með
Hafnarfjarðarliðinu unga í baráttunni
um meistaratitilinn í vetur og í fyrsta leik
tókst Haukunum að leggja Valsmenn að
velli í Hafnarflrði í fyrrakvöld, 83-80.
Allt gekk ljúflega hjá þeim í byrjun.
Þeir komust í 6-0 og þaðan í 22-11 með
ágætum leik. Mest náðu þeir þrettán
stiga forystu og daufir og illa hittandi
Valsmenn gengu til hálfleiks 39-28
undir.
Strax í byrjun seinni hálfleiks lentu
Haukarnir í villuvandræðum og misstu
Hálfdán Markússon útaf á klaufalegan
hátt. Valur saxaði á forskotið og um
miðjan hálfleikinn tók Tómas Holton
leikinn í sínar hendur. Óframfærinn
framað því, en þarna skoraði hann
hverja glæsikörfuna á fætur annarri og
Valur náði sex stiga forystu, 68-74. A
meðan var allt í pati hjá Haukunum,
sendingar útí loftið og mistök af öllum
gerðum. Allsherjar panik. En þeir náðu
að halda haus og jöfnuðu þegar ein og
hálf mínúta var eftir, 78-78. Þegar 0,58
stóð á klukkunni skoraði Ólafur Rafns-
son þriggja stiga körfu utan úr horni,
81-78, en Leifur Gústafsson svaraði
jafnharðan, 81-80, og taugastríðið í al-
gleymingi. Haukar héldu boltanum eins
lengi og þeir gátu, lengur vildu sumir
meina, áður en þeir reyndu körfuskot.
Það mistókst en Haukarnir náðu boltan-
um á ný oe á síðustu sekúndunni skoraði
Ólafur öðru sinni, 83-80.
Haukarnir eru með sama lið og í
Handbolti/3. deild
Skellir Sindramanna
Háar tölur litu dagsins Ijós í A-
riðli 3. deildarinnar í handknatt-
leik um helgina. Sindri frá
Hornafirði er í fyrsta sinn meðal
þátttökuliða og lék tvo leiki á
Suðurnesjum. I Sandgerði vann
Reynir Sindra 44-9 á föstudagsk-
völdið og á laugardag vann
UMFN Sindra 43-16 í Njarðvík.
Þá vann Afturelding Ogra að
Varmá 27-8.
í B-riðlinum lentu Týrarar úr
Eyjum óvænt í erfiðleikum í
Borgarnesi gegn vaxandi liði
Skallagríms. Týr hafði nauma
forystu allan leikinn og sigraði
16-14.
-VS
Handbolti/2. d. karla
13 mörk Oskars ekki nóg
Óskar Þorsteinsson var í miklum
ham er KA og Fram léku á Akureyri
á laugardaginn. Hann skoraði 13
mörk fyrir Framara en það dugði þó
ekki til stiga, KA vann sanngjarnt,
28-23, eftir 14-12 í hálfleik. KA hafði
ávallt undirtökin og náði mest sex
marka forystu. Friðjón Jónsson
skoraði 6 marka KA og Erlingur
Kristjánsson og Erlendur Her-
mannsson 5 hvor. Jón Árni Rúnars-
son kom næstur Óskari hjá Fram
með 5 mörk.
Á föstudagskvöldið hafði Fram
sigrað Þór 22-18. Framarar komust í
7-1 í byrjun og við það réðu nýliðar
Þórs ekki þó þeir næðu að laga
stöðuna í 11-9 fyrir leikhlé. Óskar
skoraði 7 mörk fyrirFram,JónÁrni,
besti maður liðsins, gerði 6 og Er-
lendur Davíðsson 3. Sigurður Páls-
son skoraði 6 marka Þórs og Gunnar
M. Gunnarsson og Hörður Harðar-
son 3 hvor.
-KH/Akureyri óskar Þorsteinsson.
10 S(ÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30. október 1984
fyrra, að viðbættum Webster og
ársreynslu í úrvalsdeildinni. Webster er
óhemju sterkurí fráköstunum en hittnin
hjá honum var ekki góð. Pálmar Sig-
urðsson var driffjöður liðsins að vanda
en á hann er alltof mikið treyst, sam-
herjarnir reyna að troða boltanum til
hans þegar hann er í tveggja manna
gæslu í stað þess að nota sér eyðurnar
sem þá myndast. Hálfdán var ágætur í
fyrri hálfleik en fékk fimm klaufalegar
villur. Kristinn Kristinsson var ötull í
fráköstunum, Henning Henningsson og
Eyþór Árnason voru drjúgir og Ólafur
var ómetanlegur undir lokin. Haukarnir
gætu verið meistaraefni - en það er langt
til vorsins.
Valsmenn sýndu köflóttan leik sem
byggðist einum of á einstaklingsfram-
taki. Kristján Ágústsson skoraði grimmt
á sinn látlausa hátt, Tómas var óstöðv-
andi síðustu 10 mínúturnar og Einar Ól-
afsson sýndi að hann er maður framtíð-
arinnar. Torfi Magnússon þjálfari kom
inná um miðjan fyrri hálfleik, hitti illa
framan af en sýndi síðan sitt rétta andlit
og lék síðari hálfleik vel, seinni hluta
hans með 4 villur á bakinu. Valsmenn,
sem leyfðu sér þann munað að láta Jón
Steingrímsson sitja á bekknum mest all-
an leikinn, sýndu á köflum gamla takta
og þeir ættu að öllu óbreyttu að verða
áfram í fremstu röð.
Stig Hauka: Þálmar 21, Webster 19, Henning
10, Eyþór 9, Ólafur 9, Hálfdán 8 og Kristinn 7.
Stlg Vals: Kristján 22, Torfi 19, Einar 14, Tómas
14, Leifur 6, Páll Arnar 3 og Björn Zoega 2.
Jón Otti Ólafsson og Hörður Tulinius
dæmdu og höfðu þokkaleg tök á
leiknum og voru ákveðnir en ekki nógu
samstilltir. _yg
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Eitt mest selda
VHS rrwndbands-
tældð
ánorðurlöndum,
er fráOrion.
Hið virta finnska tæknitímarit, TM, veitti nýlega
myndbandstæki, sem það prófaði, sérstök
heiðursverðlaun fyrir tæknilega eiginleika og
hagstætt verð.
Hér var um 0RI0N myndbandstæki frá
utanlandsdeild okkar að ræða, en þau eru nú ein
mest seldu myndbandstækin á Norðurlöndum...
.. .með þráðfjarstýringu, 14 daga upptökuminni,
myndleit, kyrrmynd og frábærum myndgæðum er
verðið á ORION myndbandstækjunum hér á Islandi
næsta ótrúlegt.
3E.900.-
STGR.
Á ORION myndbandstækjunum er, ennfremur,
7 daga reynslutími, 2ja ára ábyrgð og
greiðsluskilmálarnir eru afar hagstæðir.,
LAUGAVEG110 SIMI27788
FYRIRTÆKIÐ. SEM LÆKKAR VÖRUVERÐ A ÍSLANDIMEÐ ÞÁTTTÖKU í ALÞJÓÐA VIÐSKIPTUM