Þjóðviljinn - 06.11.1984, Page 8
ATVINNULIF
Kjörin dregist
mikið saman
Hjónin Eyjólfur Guðlaugsson og Sigrún Jónsdóttir
hjálpastað við söltunina
Á næsta boröi viö hliðina á
Sigríði kepptust ung hjón við
að hausa og salta. Það voru
þau Eyjólfur Guðlaugsson
lögregluþjónn og Sigrún
Jónsdóttirskólaritari.
Ég var á næturvakt í nótt og
ætla að salta núna eftir hádegið.
Það er þó nokkuð um það að fjöl-
skyldur hjálpist að, bæði börn og
fullorðnir, sagði Eyjólfur meðan
hann hamaðist við afhausunina.
- Þetta er fjórða vertíðin hjá
mér í sfldinni og mér finnst sífellt
verr borgað. Það var miklu meira
uppgrip í þessu áður. Maður rétt
nær næturvinnukaupi með öllum
þessum hamagangi. Það miða ég
við almennt verkamannakaup.
Kjörin hafa dregist allt of mikið
saman í þessari vinnslu.
Þú ert eins konar aukahjól í
vinnslunni með konu þinni?
- Já ég kem í plássið og sker og
salta þegar ég hef lausan tíma.
Þetta hefur tíðkast nokkuð hérna
að eiginmenn og börn hjálpi til.
Þetta stendur stutt og menn
reyna því að ná sem mestu út úr
þessu. Það þýðir ekki annað en
að ná í það sem mögulegt er eins
og kjörin eru í dag.
Hvað hafið þið svo upp úr
þessu?
- Ætli við höfum ekki náð um
300 kr. hvort á tímann í gær. Það
er ekkert miðað við þá vinnu sem
þetta kostar, sagði Eyjólfur.- lg.
Eyjólfur og Sigrún: Þetta stendur stutt og menn reyna að ná sem mestu út úr
því. Ljósm.-eik.
Eðvarð Júlíusson: Sama fólkið ár eftir ár.
dag frá degi hversu margir eru við
vinnsluna en þetta er mest sama
fólkið sem við höfum haft í sfld-
inni undanfarin ár.
Hvernig er svo sfldin?
- Það kom leiðinlegur átukafli
en nú hefur þetta skánað. Sfldin
er bæði sterk og góð.
Hvað ef engin sfldarsöltun
hefði orðið?
- Þá hefði orðið ljótt ástand
hér og í öllum smærri bæjarfé-
lögum sem byggja allt sitt á sjáv-
arútvegi. Sem betur fer rættist úr
og við getum ekki horft framhjá
því að Sovétríkin eru okkar
stærsta markaðsland og það held-
ur þessari sfldarverkun hér uppi
sem um Ieið tryggir vinnu hér á
ströndinni.
-Ig-
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir: Væri ekki úti að vinna ef ekki væri síldin. Mynd-eik.
Uppgrip fyrir marga
- Ég kann ágætlega við mig í
þessu starfi. Vinnutíminn er að
vísu nokkuð óreglulegur. Allur
gangur á því hvenær er byrjað,
sagði Ingibjörg Gunnlaugsdóttir
sem kepptist við að hausa, en
þetta er annað haustið sem hún er
í síldarsöltun.
- Mér finnst allir dagar ósköp
svipaðir í þessu. Og þó ég segi
ekki að þetta sé ekki að komast á
ákveðna vertíð. Þetta eru örugg-
lega góð uppgrip fyrir marga. Eg
hugsa ekki að ég væri úti að vinna
ef ekki væri sfldin, sagði Ingi-
björg.
- Ig-
- Það er búið að salta hér í
7060 tunnur á hádegi en á
vertíðinni í fyrra náðum við að
salta í 8200 tunnur.sagði Eð-
varð Júlíusson framkvæmda-
stjóri Hópsness sem erein
stærsta söltunarstöðin í
Grindavík.
- Heilsöltuninni fer að ljúka
hvað úr hverju en við ætlum líka
að salta eitthvað af flökum fyrir
Svíþjóðarsamninginn.
Það var mikið um að vera í sölt-
unarstöðinni þegar vinna hófst að
nýju eftir hádegishléið og við
spurðum Eðvarð hversu margir
væru við sfldarvinnsluna.
- Ætli það hafi ekki verið um
100 umslög sem fóru út sl. föstu-
dag. Það er nokkuð breytilegt
Sembeturfer
rættistúr
Sovétsamningurinn hefur tryggt
vinnu á ströndinni segir Eðvarð Jú-
líussonframkvœmdastjóri
Hópsness
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 6. nóvember 1984