Þjóðviljinn - 20.11.1984, Page 3
I
IÞROTTIR
ÍÞROTTIR
V-Þýskaland
„Bayer- Víkingurinn
skoraði tvisvar“
Besti leikur Lárusar - skoraði tvö. Ásgeir skoraðifallegasta mark helgarinnar
Frá Jóni H. Garðarssyni
fréttamanni Þjóðviljans
í V-Þýskalandi:
Lárus Guðmundsson lék sinn
langbesta leik í Bundesligunni í
knattspyrnu á laugardaginn þeg-
ar Bayer Uerdingen varð fyrsta
liðið til að sigra í Karlsruher á
þessu keppnistimabili. Það var
stórsigur, 4-0, og skoraði Lárus
tvö markanna og lagði eitt upp og
var hann valinn í „lið vikunnar“
hjá Kicker - fékk 2 í einkunn.
„Bayer-Víkingurinn skoraði
tvisvar“ er flennifyrirsögn í Ex-
press og í einni álíka í Kicker
segir: „Guðmundsson hefur
meðfædda eiginleika til að skora
mörk“. Honum er hælt mjög fyrir
leik sinn og var vel fagnað af leik-
mönnum og stuðningsmönnum
Uerdingen.
Á 29. mínútu byrjaði fjörið -
Lárus gaf góða sendingu á Wolf-
gang Scháfer sem þurfti bara að
ýta knettinum yfir marklínuna, 0-
1. Lárus átti síðan hörkuskot í
stöng á 38. mín.. Á 49. mín.
skoraði Dietmar Klinger með
góðu skoti, 0-2, á 52. mín. stakk
Lárus tvo varnarmenn af og
skoraði af öryggi, 0-3, og sama
leik lék hann aðeins sjö mínútum
síðar. Undir lokin hefðu leik-
Lárus Guðmundsson lék sinn besta
leik í Bundesligunni á laugardag.
menn Uerdingen getað bætt við
mörkum en voru einum of kæru-
lausir.
Ásgeir Sigurvinsson skoraði
fallegasta mark dagsins í Bund-
esligunni. Á 8. mínútu leiks
Stuttgart í Mönchengladbach
komst hann inní sendingu við
eigin vítateig og brunaði upp all-
an völl. Varnarmaður Gladbach
gerði örvæntingarfulla tilraun til
að stöðva hann og hékk í honum
drjúgan spöl en Ásgeir hristi
hann af sér og þrumaði síðan í
bláhornið af 20 metra færi, 0-1.
Nico Claesen hjá Stuttgart var
rekinn af leikvelli á 53. mfn. og
skömmu síðar skoraði Gladbach
tvívegis. Fyrst Hans-Jörg Criens
og síðan gerði Bernd Förster
sjálfsmark - knötturinn stefndi
framhjá Stuttgartmarkinu þegar
Förster kom aðvífandi og hugðist
hreinsa frá en þrumaði í eigið
marknet. Leikurinn var lélegur
og það eina merkilega var mark
Ásgeirs. Hann fékk 3 í einkunn í
Kicker.
Urslit á laugardag urðu þessi:
Hamburger-Mannheim.............5-2
Frankfurt-Dortmund.............2-1
Braunschwelg-Bielefeld.........0-0
Kalserslautern-Bremen..........2-2
Karisruher-Uerdlngen...........0-4
Leverkusen-Bayern Múnchen......3-0
Bochum-Köln....................1-3
Gladbach-Stutgart..............2-1
Schalke-Dússeldorf.............1-0
Blak
Víkingar veittu HK
hörkukeppni
Víkingar veittu HK harða og
hressilega keppni í 1. deild karla í
blaki í Hagaskólanum í fyrra-
kvöld. HK náði að sigra 3-1 og
komast í efsta sæti deildarinnar
en með talsverðri fyrirhöfn.
Víkingar fengu 15 tækifæri til
að gera útum fyrstu hrinuna! Þeir
voru yfir 14-13 drykklanga stund
en HK náði síðan að snúa
leiknum sér í hag og vinna 14-16.
Víkingur vann aðra hrinuna
glæsilega, 15-5, en HK náði síðan
að vinna næstu tvær, 11-15 og 13-
15, og tryggja sér sigur.
IS fór létt með Framara, 3-0.
Hrinurnar enduðu 15-11,15-6 og
15-9.
í 1. deild kvenna mættust KA
og Þróttur tvívegis á Akureyri.
Þróttur vann 0-3 (10-15,4-15,10-
15) á föstudagskvöldið og aftur
0-3 (2-15, 13-15, 10-15) á laugar-
daginn. Loks vann ÍS Víking í
fyrrakvöld, 3-0 (15-13,15-11,15-
6).
Þróttur Neskaupstað fékk
HSK í heimsókn í 2. deildinni á
laugardaginn og náðu sunnlend-
ingarnir að vinna, 2-3. Hrinurnar
enduðu 15-9, 9-15, 8-15, 15-7 og
11-15.
Körfubolti
Haukar unnu
Haukar sigruðu Njarðvík 35-
25 í 1. deild kvenna í Njarðvík á
laugardaginn. Sólveig Pálsdóttir
skoraði 11 stig fyrir Hauka, Svan-
hildur Guðlaugsdóttir 9 og Ásta
Óskarsdóttir 8 en stigahæstar hjá
Njarðvík voru Dóra Magnúsdótt-
ir með 9 stig og Sigríður Guð-
bjömsdóttir með 6 stig.
Badminton
Kraftlyftingar
Heimsmetið
ekki gilt!
Torfi Ólafsson, KR, bætti
heimsmet sitt í réttstöðulyftu um
20 kg á bikarmóti KR í
kraftlyftingum á laugardaginn.
Torfi, sem er handhafi fjögurra
heimsmeta í unglingaflokki, lyfti
340 kg en það fæst ekki staðfest
sem heimsmet þar sem dómarar á
mótinu uppfylltu ekki alþjóðleg
skilyrði.
Þrjú komust í
aoalkeppnina
Fjórir íslendingar tóku þátt í
Norðurlandamótinu í badminton
sem haldið var í Osló um helgina,
Broddi Kristjánsson, Guðmund-
ur Adolfsson, Kristín Magnús-
dóttir og Þórdís Edwald, öll úr
TBR.
Fyrst fór fram forkeppni með
þátttöku íslensku, norsku og
finnsku keppendanna. Broddi,
Þórdís og Kristín komust öll í
gegnum hana með tveimur sigr-
um en töpuðu síðan öll fyrir
sænskum andstæðingum í aðal-
keppninni. Guðmundur féll úr í
forkeppninni.
Broddi og Guðmundur lentu
gegn heimsmeisturunum dönsku,
í tvíliðaleik karla, Steen Fladberg
og Jesper Helledie, og stóðu sig
ágætlega. Danirnir sigruðu 15-3
og 15-6. Þórdís og Kristín töpuðu
fyrir sænskum stúlkum í tvíliða-
leik kvenna, Broddi og Kristín
fyrir dönsku pari og Þórdís og
Guðmundur fyrir sænsku pari í
tvenndarleik.
-VS
Atli Eðvaldsson náði sér ekki á
strik þegar Dússeldorf tapaði í
Schalke en fékk þó 3 í einkunn í
Kicker. Þetta var lélegasti leikur
helgarinnar - Dieter Schatzsc-
hneider skoraði eina markið með
góðu skoti.
Leikur Braunschweig og Bielef-
eld var hinn sögulegasti þótt ekk-
ert mark hefði verið skorað. Pet-
er Lux hjá Braunschweig brenndi
af vítaspymu og tveir leikmenn
Bielefeld, annar þeirra mark-
vörðurinn, voru reknir af
leikvelli. Þjálfari Bielefeld vildi
að iið sitt gengi af leikvelli í mót-
mælaskyni en var talaður til.
Bayem Múnchen fékk skell
gegn miljónaliði Leverkusen sem
loks sýndi eitthvað. Bayern var
yfirspilað og hefur gefið mjög
eftir að undanförnu. Werder
Bremen klúðraði niður unnum
leik í Kaiserslautern, leiddi 0-2
þegar 10 mínútur voru eftir -
Uwe Reinders og Gúnter Her-
mann höfðu skorað en Thomas
Allofs og Gerhard Bold jöfnuðu.
Hamburger lék vel í hálftíma og
það dugði til að vinna Mannheim
5-2. Köln var þrælheppið í Boc-
hum og Toni Schumacher færði
liðinu 1-3 sigur með heimsklassa-
markvörslu.
Efstu og neðstu lið Bundeslig-
unnar eru þesi:
Bayern M........13 8 3 2 27-16 19
Bremen..........14 5 7 2 37-24 17
Hamburger.......14 5 7 2 26-20 1 7
Kalserslautern..14 5 7 2 23-18 17
Gladbach........13 6 4 3 39-24 16
Uerdlngen.......14 7 2 5 30-21 16
Næstu leikir eru annað kvöld í
Hagaskóla. Þróttur og ÍS leika í
karlaflokki kl. 18.30, Fram-
Víkingur kl. 20 og loks Víkingur
og Breiðablik í kvennaflokki kl.
21.30. -VS
Diisseldorf 10
Blelefeld ...14 1 8 5 1 3-30 1 0
Dortmund ...14 4 1 9 16-26 9
Braunschweig.... ... 14 4 1 9 21-36 9
Handbolti
Góður
Framsigur
Fram vann góðan sigur á
Haukum í Hafnarfirði, 25-17, í 2.
deild karla í handknattleik á
laugardaginn. Staðan er þá þessi í
2. deild:
KA.......4 4 0 0 101-85 8
Fram.............5 3
HK...............4 3
Fylkir...........3 1
Haukar...........3 1
ÞórAk............4 0
Armann...........2 0
1 1
0 1
1 1
0 2
1 3
0 2
120-109
93-87
66-73
65-69
89-96
39-44
Steindór Gunnarsson svífur innaf línunni og skorar sitt mark í leiknum, 18-21. (Mynd: Atli).
Handbolti/IHF-keppnin
„Vorum þreyttir og
héldum ekki haus“
Lokamínútur beggja hálfleikja slœmar
og Valur missti tvívegis niður gott forskot
Með normal leik úti komumst við áfram segir Jón Pétur
„Þarna í lokin vorum við orðnir
þreyttir 'eftir 50 mínútna keyrslu og
héldum ekki haus. Við klúðruðum
hraðaupphlaupum og dauðafærum á
meðan þeir kláruðu sínar sóknir. En
við förum þó með þrjú mörk í plús til
Svíþjóðar, á leiknum i Ystad verða
2-300 íslenskir áhorfendur og afhverju
ættum við ekki að geta haldið jöfnu
gegn þeim úti? Annað eins hefur nú
gerst í Evrópukeppni,“ sagði Valsar-
inn leikreyndi, Jón Pétur Jónsson, í
samtali við Þjóðviljann eftir 20-17
sigur Vals á Ystad í Laugardalshöll-
inni í fyrrakvöld.
Lokamínútur beggja hálfleikja
gerðu útslagið um að Valur vann að-
eins þriggja marka sigur. Valur var
yfir frá fyrstu mínútu, staðan eftir 19
mínútur var 6-1, en Ystad sótti sig
undir lok fyrri hálfleiks og minnkaði
muninn í 10-8. Valur stakk aftur af
eftir hlé og staðan var 19-12 þegar átta
mínútur voru eftir, en Ystad gerði
fimm mörk gegn einu á lokakaflanum.
„Það er ekkert við þessu að gera,
leikur okkar var sveiflukenndur og við
vorum óheppnir að sveiflan var okkur
í óhag þegar flautað var til leiksloka.
Mér sýnist engin ástæða til að vera
hræddur við leikinn í Y stad, miðað við
þennan leik er frekar ástæða til-
bjartsýni. Þeir voru aldrei í samkeppni
við okkur nema þegar við vorum
manni færri, þá skoruðu þeir flest sín
mörk,“ sagði Hilmar Björnsson þjálf-
ari Vals.
Það var greinilegt á leik Valsmanna
að þeir eru ekki komnir í neina leikæf-
ingu, enda ekki furða. Reykjavíkur-
mótið í september og einn leikur í
l.deild, léttur, eru einu verkefni liðs-
ins til þessa. Sóknarleikurinn var
stirður og þunglamalegur en línuspilið
þó gott. „Við munum beita því mikið
meira úti, þeir leika vörnina framar-
lega og opna hana mikið,“ sagði Jón
Pétur. Hann var besti maður liðsins í
fyrrakvöld ásamt Einari Þorvarðar-
syni markverði sem varði ein átta skot
í hvorum hálfleik. Jón Pétur skoraði
góð mörk og átti árangursríkar línu-
sendingar. Valdimar Grímsson var
ógnandi í hægra horninu en hann og
hinir ungu leikmennirnir í liðinu voru
mistækir - reynsluleysið í Evrópu-
keppni sagði oft til sín. Þorbjörn Jens-
son batt vel saman góða vörnina og
þar var nafni hans Guðmundsson
einnig sterkur en Jensson gerði sig
sekan um nokkur sóknarmistök.
Ystad var ekki sannfærandi, lítil ógn-
un nema hjá hinum öfluga horna-
manni, Lars Faxe, sem hélt liðinu á
floti á þýðingarmiklum köflum. „Með
normal leik úti komumst við áfram í
keppninni,“ sagði Jón Pétur og það
ætti vissulega að geta reynst rétt hjá
honum.
Mörk Vals:Jón Pótur 6 (1 víti), Valdimar 3,
Þorbjörn J. 3, Geir Sveinsson 2, Jakob Sigurðs-
son 2, Július Jónasson 2, Steindór Gunnarsson
1 og Theodór Guðfinnsson 1.
Mörk Ystad: Faxe 7 (2), S. Rassmusson 3, B.
Rassmusson 2, Nyberg 2, Larsson 1, Magnus-
son 1 og Eriksson 1.
Dönsku dómaramir Jensen og Knu-
dsen dæmdu mjög vel framan af en
einstakir dómar þeirra seinni hlutann
vöktu furðu. -VS
Körfubolti/ Úrvalsdeild
Karfa Guðna
kom of seint
Haukar unnu nauman sigurá KR, 79-78
Haukar sigruðu KR í æsi-
spennandi leik í Hafnarfirði á
sunnudaginn. Lokatölur urðu 79-
78 og skoraði Pálmar Sigurðsson
sigurkörfuna sex sekúndum fyrir
leikslok. Staðan í hálfleik var 36-
34, Haukum í vil.
Leikurinn var mjög jafn fram-
anaf og skiptust liðin á um að
hafa forystu og var mikið um mis-
tök hjá báðum liðum. í síðari
hálfleik voru það KR-ingar sem
vom yfir nær allan tímann og
lengi leit út fyrir að þeir færu
óvænt með bæði stigin heim.
Munurinn var mestur átta stig en
þá tóku Haukar að saxa á for-
skotið. Þegar ein mínúta var eftir
var staðan 78-75 fyrir KR en
Hálfdán Markússon minnkaði
muninn í 78-77 þegar 45 sek. voru
eftir. KR-ingar hófu sókn en vörn
Hauka var sterk og þeir náðu
ekki skoti innan 30 sekúndna.
Haukar fengu þá knöttinn og
Pálmar skoraði með langskoti,
79-78. KR-ingar brunuðu fram
og Guðni Guðnason skaut og
skoraði en það var of seint -
leiknum var lokið með sigri
Hauka sem því eru í öðru sæti
úrvalsdeildarinnar.
Pálmar Sigurðsson og Ólafur
Rafnsson áttu mjög góðan leik og
voru bestir í liði Hauka. Einnig
var ívar Webster góður í vörninni
en oft á tíðum mistækur í sókn-
inni þó hann hafi skorað 20 stig.
Hjá KR-ingum voru það aðeins
þeir Guðni Guðnason og Birgir
Mikalesson sem spiluðu af eðli-
legri getu.
Stlg Hauka: Pálmar 22, Ivar Webster
20, Ólafur 12, Hálfdán 8, Kristinn Kristins-
son 8, Reynir Kristjánsson 3, Henning
Henningsson 2 og Sveinn Sigurbergsson
2.
Stlg KR: Guöni 22, Birgir 20, Þorsteinn
Gunnarsson 10, Ástþór Ingason 8, Ólafur
Guðmundsson 7, Ómar Scheving 6 og
Kristján Rafnsson 5. ~Logi
Körfubolti
Aftur vann
ÍBKFram
Keflvíkingar sigruðu sína
skæðustu keppinauta í 1.
deildinni í körfuknattleik, Fram-
ara, öðru sinni í vetur á sunnu-
daginn, 86-84 í Hagaskóla. Jón
Kr. Gíslason átti stórleik með
ÍBK og skoraði 24 stig en Guðjón
Skúlason gerði 21. Jóhann
Bjarnason skoraði 25 stig fyrir
Fram, Ómar Þráinsson 17 og Þor-
valdur Geirsson 16.
Grindvíkingar unnu Laugdæli
auðveldlega í Njarðvík, 70-46.
Eyjólfur Guðlaugsson skoraði 34
stig fyrir Grindavík og Guð-
mundur Bragason 13 en Ingi
Þorkelsson, Bjarni Þorkelsson og
Ingólfur Kjartansson gerðu 10
stig hver fyrir Laugdæli. -VS
Handbolti/l.d.kv.
Tveir skellir
Eyjastúlkna
Erla skoraði sautján
Nýliðar ÍBV höfðu lítið að gera
í risana í 1. deildinni, FH og
Fram, um helgina. Hvorugt lið
lenti í erflðleikum með óstyrkar
Eyjastúlkurnar, FH vann ÍBV 29-
15 á laugardaginn og Fram vann
ÍBV 34-12 á sunnudag.
í Hafnarfirði tók FH strax for-
ystu, 3-0, og leiddi 15-5 í hálfleik.
Mestur varð munurinn 25-10
seint í leiknum. Kristjana Ara-
dóttir skoraði 8 (2) mörk fyrir
FH, Kristín Pétursdóttir 5 og Sig-
urborg Eyjólfsdóttir 4. Eyrún
Sigþórsdóttir, örvhent vinstri-
handarskytta, er langöflugust í
liði ÍBV og hún skoraði 6 mörk
og Ragna Birgisdóttir 3.
Leikur Fram og ÍBV í Höllinni
var jafn uppað 5-5 en síðan var
það búið. Fram komst í 17-6 fyrir
hlé og vann 34-12. Erla Rafns-
dóttir skoraði hvorki meira né
minna en 17 mörk fyrir Fram,
Guðríður Guðjónsdóttir 7, Mar-
grét Blöndai 4 og Sigrún Blom-
sterberg 4. Eyrún skoraði 6 mörk
fyrir ÍBV og Guðrún H. Aðal-
steinsdóttir 2.
-HrG
Ítalía
Maradona hefur enn eina ferðina
komiðsérívandræði- nú slóst hann
við andstaeðing.
Maradona
fékk rautt
Diego Maradona var rekinn útaf við annan
mann fyrir slagsmál þegar lið hans, Napoli, gerði
jafntefli við Ascoli, 1-1, í ítölsku 1. deildinni í
knattspyrnu á sunnudaginn.
Meistarar Juventus töpuðu eina ferðina enn og
eru nú í sjötta neðsta sæti. Það var beiskur ósigur,
1-2 gegn sambýlingum sínum Torino í hörku-
spennandi leik. Michel Platini kom Juventus yfir
eftir 15 mínútur en Torino jafnaði í byrjun síðari
hálfleiks. Sigurmark Torino gerði síðan Serino
þegar 30 sekúndur voru til leiksloka.
Verona gerði markalaust jafntefli við Sampdor-
ia og er áfram ósigrað og hefur 15 stig eftir 9 leiki.
Torino hefur 14 stig, Inter Milano og Sampdoria
12 stig og AC Milano 11. - VS
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 20. nóvember 1984
Pálmar Sigurðsson er með besta
meðalskor í úrvalsdeildinni, 27 stig að
meðaltali.
Stadan
í úrvalsdeildinni:
Njarðvfk.....6 5 1 517-106 10
Haukar.......4 3 1 347-315 6
Valur........5 3 2 426-395 6
KR...........4 2 2 300-288 4
(R...........5 1 4 357-401 2
ÍS...........4 0 4 265-407 0
Stigahæstir:
Valur Ingimundarson, Njarðv. ...158
PálmarSigurðsson, Haukum ....108
ívar Webster, Haukum.....81
Tómas Holton, Val........81
Hreinn Þorkelsson, ÍR.....79
Körfubolti/Úrvalsdeild
IR náði ekki skoti
Valur vann ÍR 78-76 í jöfnum og spennandi leik
Síðustu 32 sekúndurnar í leik
Vals og IR voru ÍR-ingar með
boltann, 78-76 undir, og gátu
ríyggt , sér framlengingu eða
sigur. Á öllum þessum tíma náðu
þeir ekki skoti fyrir ágengri Val-
svörninni og máttu sætta sig við
ósigur í þessum jafna og spenn-
andi leik.
Viðureignin í Seljaskóla á
sunnudagskvöldið var tvísýn all-
an tímann. ÍR hafði frumkvæðið í
fyrri hálfleik og var mest yfir 21-
34 en Valur minnkaði muninn í
40-43 fyrir hlé og komst síðan
strax yfir, 48-43. Seinni hálfleikur
var allur hnífjafn, Valur yfir
nema þegar ÍR komst í 65-69.
Valur svaraði strax, 72-71, og
hélt sínum hlut í lokin.
Valsliðið var jafnt. Kristján
Ágústsson, Torfi Magnússon,
Tómas Holton, Jón Steingríms-
son og Leifur Gústafsson gerðu
allir góða hluti en allir nema
Kristján gerðu sig einnig seka um
slæmar skyssur. Aldrei þessu
vant voru innáskiptingar Vals
mjög skynsamlegar og skiluðu
sér í engum villuvandræðum
undir lokin.
ÍR-liðið hefur tekið greini-
legum framförum og er á réttri
leið. Hreinn Þorkelsson var yfir-
burðamaður í fyrri hálfleik og
skoraði þá 23 af 43 stigum ÍR en
síðan lét hann reka sig útaf þegar
átta mínútur voru eftir fyrir
óþarfa munnsöfnuð. Gylfi Þork-
elsson átti góða spretti og Karl
Guðlaugsson lék skemmtilega í
lokin. Ragnar Torfason var
sterkur í fráköstunum og Kristinn
Jörundsson þjálfari hafði góð
áhrif á liðið þegar hann var inná.
Stlg Vals: Kristján 14, Tómas 14, Torfi
14, Leifur 13, Jón 10, Björn Zoega 7 og
Einar Ólafsson 6.
Stig ÍR: Flreinn 26, Gylfi 14, Karl 11,
Björn Steffensen 9, Kristinn 6, Ragnar 4,
Benedikt Ingþórsson 4 og Hjörtur Oddsson
2.
Hörður Tulinius og Jóhann
Dagur dæmdu þokkalega.
-HG
Ragnar Ólafsson stóð sig vel í Róm
ásamt Sigurði Péturssyni.
Golf
Island
í 29.
sæti
íslsnd, nánar tiltekið Sigurður
Pétursson og Ragnar Ólafsson,
hafnaði í 29. sæti af 33 þjóðum í
heimsmeistarakeppninni í golfi
sem lauk í Rómarborg um helg-
ina. Allir keppendur nema þeir
tveir voru atvinnumenn en þjóð-
irnar sem höfnuðu fyrir aftan Is-
land voru Danmörk, Grikkland,
Bermúda og Jamaíka.
Ragnar og Sigurður voru í 29.
sætinu nánast alla keppnina.
Spánverjar urðu öruggir sigur-
vegarar, höfðu forystu allan tím-
ann og létu hana ekki af hendi.
Skotar komu næstir, átta höggum
á eftir, og sveit Taiwan hafnaði í
þriðja sæti.
Körfubolti
A gegn B
í Njarðvík
Landsliðsnefnd KKÍ gengst i
kvöld fyrír skemmtikvöldi í
Njarðvík til stuðnings landsliðinu
í körfuknattleik. Fjögur atríði
eru á dagskrá, fyrst leikur Suður-
nesjaúrval við „gamla“ landsliðs-
menn af Suðurnesjum, Gunnar
Þorvarðarson, Jónas Jóhannes-
son, Þorsteinn Bjarnason og
fleiri. Næst leika Keflavík og
Njarðvík í minnibolta, þá verður
keppni í þriggja stiga skotum og
loks er það rúsínan - leikur A-
landsliðsins gegn B-Iandsliðinu.
A-landsliðið er þannig skipað:
Pálmar Sigurðsson, Tómas Holt-
on, Jón Kr. Gíslason, Hreinn
Þorkelsson, ívar Webster, Sturla
örlygsson, Birgir Mikaelsson,
Guðni Guðnason, Torfi Magnús-
son og Valur Ingimundarson.
B-liðið skipa: ísak Tómasson,
Henning Henningsson, Ólafur
Guðmundsson, Hjörtur Odds-
son, Ragnar Torfason, Kristinn
Kristinsson, Gylfi Þorkelsson,
Ólafur Rafnsson, Leifur Gústafs-
son, Hreiðar Hreiðarsson og
Björn Steffensen. Skemmtunin
hefst kl. 20.
Þriðjudagur 20. nóvember 1984 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 11
r