Þjóðviljinn - 15.01.1985, Page 1
Bjarni Friðriksson-frábær
áranguríJapan.
Guido Buchwald er lykilmaður hjá
Stuttgart og losar mjög um Ásgeir
Sigurvinsson. Nú er hann úr leik á ný
næstu vikurnar.
Vignir Baldursson
Vignir
til Austra
Vignir Baldursson, miðvallar-
spilarinn sterki úr Breiðabliki,
hefur verið ráðinn þjálfari 3.
deiidarliðs Austra á Eskifírði í
knattspyrnu. Vignir hefur verið
einn burðarása Blikanna undan-
farin ár og slæmt fyrir þá að
missa hann. „Þetta er alveg frá-
gengið, bara eftir að undirrita
samninginn“, sagði Vignir í sam-
tali við Þjóðviljann í gærkvöldi.
-VS
Knattspyrna
Fimm til sex úr
ÍBK til Víðis!
V-Þýskaland
fengið til sín tvo sterka leikmenn
sem báðir hafa áður leikið með
liði þeirra. Óli Þór Magnússon er
kominn aftur eftir ársdvöl hjá
Þórsurum á Akureyri og Freyr
Sverrisson er einnig snúinn heim
á ný en hann var lykilmaður hjá
Njarðvíkingum í 2. deildinni í
fyrra.
-VS
Þorsteinn
ráðinn til
KA og Magna
Þorsteinn Ólafsson, fyrrum
landsliðsmarkvörður í knatt-
spyrnu, hefur verið ráðinn mark-
varðaþjálfari hjá 2. deildarliði
KA á Akureyri. Þorsteinn þjálf-
aði 1. deildarlið Þórs sl. sumar og
hefur leikið með því í tvö ár.
Hann hefur jafnframt verið ráð-
inn þjálfari hjá 3. deildarliði
Magna í Grenivík. -K&H/VS
Stórsigur Essen
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V-Þýskalandi:
Essen heldur forystu sinni í
Bundesligunni í handknattleik og
vann um helgina stórsigur á botn-
liði Handewitt, 29-14. Alfreð
Gíslason skoraði fímm mark-
anna. Essen hefur 17 stig eftir 12
leiki en Kiel stendur þó best að
vígi, er með 16 stig úr 11 leikjum.
Kiel vann Huttenberg auðveld-
lega, 29-15.
Sigurður Sveinsson og Atli
Hilmarsson mættust og Siggi
hafði betur, Lemgo vann Berg-
kamen 21-16. Sigurðurvartekinn
úr umferð allan leikinn en
skoraði 6 mörk, 4 úr vítum. Atli
gerði 3 mörk fyrir Bergkamen.
Grosswallstadt vann nauman
sigur á Dukla Prag, 23-21, í fyrri
leik liðanna í Evrópukeppni
meistaraliða. Hæpið að það dugi
gegn sterkum Tékkum í Prag.
Dukla skoraði síðasta mark
leiksins úr aukakasti eftir að
leiktíma var lokið og var það
mjög umdeilt.
Nýliðar Víðis úr Garði í 1.
deildinni í knattspyrnu hafa feng-
ið til liðs við sig hvorki meira né
minna en fímm leikmenn frá ná-
grönnunum IBK og fá sennilega
þann sjötta. Þrír þeirra hafa áður
leikið með Víðisliðinu.
Um helgina gengu þrír úr hópi
sterkustu leikmanna ÍBK yfir í
Víði, þeir Gísli Eyjólfsson, Einar
Ásbjörn Ólafsson og Rúnar Ge-
orgsson, og Ingvar Guðmunds-
son fylgir sennilega fordæmi
þeirra. Áður höfðu Björgvin
Björgvinsson og Helgi Sigur-
björnsson, sem eru fyrrum Víðis-
menn eins og Gísli, tilkynnt fé-
lagaskipti yfir í Víði.
Þetta er stór
og mikill fengur
Víðisliðið, ekki síst að fá aft-
ur Gísla sem væntanlega fyllir
skarð Marteins Geirssonar í
vörninni. Marteinn þjálfar Víði
ekki leikið með vegna
ÍBK fœr tvo sterka
Keflvíkingar sitja eftir með sár
enni en á móti kemur að þeir hafa
Stuttgart
Buchwald slasast aftur
Brotnaði í Genf. Gífurlegt áfall og bitnar ekki síst á leik
Asgeirs. Samningar tíu leikmanna Stuttgart renna út í vor
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V-Þýskalandi:
Guido Buchwald, hinn sterki
miðjumaður Stuttgart, ökkla-
brotnaði þegar Stuttgart tók þátt
í innanhússknattspyrnumóti í
Genf í Sviss um helgina. Buch-
wald slasaðist illa í haust og var
Knattspyrna
Einar aftur
á Ólafsf jörð
Nýliðar Leifturs frá Ólafsfirði í 2.
deildinni í knattspyrnu hafa ráðið
Einar Helgason, sem þjálfara fyrir
komandi keppnistímabil. Einar þjálf-
aði lið Leifturs 1983 og undir hans
stjórn varð það 4. deildarmeistari.
Með Einari kemur sonur hans, Logi
Einarsson markvörður, en þeir feðg-
ar voru hjá Magna sl. sumar. Logi
varð þá landsfrægur fyrir að skora
mark úr útsparki tvo leiki í röð og var
um tíma markahæstur í NA-riðli 3.
deildarinnar! -VS
frá í þrjá mánuði og nú er ljóst að
hann leikur ekki mikið meira með
Stuttgart á þessu keppnistímabili.
Þetta er gífurlegt áfall fyrir
Stuttgart, meira en margir gera
sér grein fyrir. í Kicker birtist ný-
lega grein um Stuttgartliðið og
slæmt gengi þess það sem af er
keppnistímabilinu og þar er rætt
við fyrirliðann Karl-Heinz Förs-
ter.
„Buchwald er geysilega þýð-
ingarmikill fyrir lið okkar. Hann
er sterkur varnartengiliður sem
við getum illa verið án og þegar
hann meiddist í haust voru Ásgeir
Sigurvinsson og Karl Allgöwer
látnir í staðinn leika aftar á miðj-
unni. Það voru gífurleg mistök,
einkum með Ásgeir, því hann
verður að fá að leika lausum hala
framar á miðjunni til að geta sýnt
allt sitt besta. Ég er mjög ánægð-
ur með að Buchwald sé byrjaður
að leika aftur og á von á að það
losi um Ásgeir og lyfti þar með
liðinu í heild upp á nýjan leik“,
sagði Karl-Heinz Förster. Nú er
Buchwald úr leik á ný og því get-
ur brugðið til beggja vona með
gengi Stuttgart á næstunni.
Þá vekur það mikla athygli að í
vor renna út samningar við tíu
leikmanna Stuttgart og stjórn fé-
lagsins hefur sýnt af sér óskiljan-
legan trega og hefur ekkert rætt
við þessa leikmenn ennþá. Þeirra
á meðal eru Roeleder markvörð-
ur, Förster-bræðurnir, Kurt Nie-
dermeyer, Guido Buchwald,
Hermann Olicher og Karl
Allgöwer. Þeir Roeleder og Nie-
dermayer hafa lýst því yfir að þeir
vilji leika áfram með Stuttgart en
hinir halda öllum möguleikum
opnum, innanlands sem utan.
Förster-bræðurnir hafa t.d. lýst
því yfir að fái þeir gott tilboð frá
erlendu félagi muni þeir fara
þangað. Það eru því ýmsar blikur
á lofti hjá Ásgeiri og félögum.
Miklar líkur eru þó á að Stutt-
gart kaupi nýjan framherja á
næstu dögum. Hann heitir Toni
Kurbos og leikur með Metz í
Frakklandi en er vestur-þýskur,
og meira að segja uppalinn hjá
Stuttgarter Kickers. Honum hef-
ur gengið mjög vel í Frakklandi
og átti t.d. drjúgan þátt í að slá
Barcelona frá Spáni útúr Evrópu-
keppni bikarhafa í haust.
Júdó
Bjami annar í Japan!
TapaðifyrirJapananum Sugai í úrslitaglímu
Bjarni Friðriksson úr Ármanni
náði öðru sæti í 95 kg flokki á
geysisterku júdómóti í Japan um
helgina, þriðja alþjóðlega
Matsutaru-shoriki-mótinu, en
þangað var honum boðið sérstak-
lega ásamt mörgum af sterkustu
júdómönnum heims.
Bjarni sat hjá í fyrstu umferð
en glímdi síðan við Marcus
Temming frá V.Þýskalandi og
lagði hann á „ippon“, með
fullnaðarsigri. Það sama gerði
Bjarni gegn Japananum Nishio í
undanúrslitunum. í úrslitaglím-
unni mætti Bjarni síðan Japan-
anum Hitoshi Sugai og var það
fremur stutt viðureign, Sugai
lagði Bjarna fljótlega og stóð
uppi sem sigurvegari í flokknum.
Frábær árangur hjá Bjarna sem
heldur áfram að gera það gott á
stórmótum erlendis.
- VS.
UMSJÓN: VtolR SIGURÐSSON
Þriðjudagur 15. janúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9