Þjóðviljinn - 26.02.1985, Síða 1

Þjóðviljinn - 26.02.1985, Síða 1
Sigurður Sveinsson skoraði sjö mörk í sigri Lemgo á Berlin. Glíma Sund Olafur sigraði Ólafur H. Ólafsson úr KR bar sigur úr býtum í bikarglímu Glímusam- bands Islands sem fram fór í íþróttas- al Melaskóla á sunnudaginn. Ólafur lagði alla sex andstæðinga sína að velli. Kristján Yngvason, HSÞ, var annar með 5 vinninga og Hjörtur Þrá- insson þriðji með 4 vinninga. Islandsmet Ragnheiðar Ragnheiður Runólfsdóttir frá Akranesi bætti íslandsmet sitt í 100 m baksundi á sundmóti Armanns á sunnudaginn. Hún synti á 1:08,50 mín. en gamla metið hennar var 1:08,59 mín.. V. Þýskaland Hástökk Heimsmet tvo daga í röð! Sjöberg átti það ísólarhring áður en Mögenburg tók við Frá Jóni H. Garðarssyni fréttamanni Þjóðviljans í V.Þýskalandi Dietmar Mögenburg, vestur- þýski Ólympíumeistarinn, setti glæsilegt heimsmet í hástökki innanhúss I Köln í fyrradag, að- eins sólarhring eftir að Svíinn Patrik Sjöberg hafði eignað sér metið! Sjöberg, sem er tvítugur að aldri, keppti á móti í Vestur- Berlín á laugardaginn og þar stökk hann 2,38 metra - bætti heimsmet V.Þjóðverjans Carlos Tránhardts um einn sentimetra. Sigurgleði Svíans entist fram á sunnudag þegar Mögenburg vippaði sér yfir 2,39 m í Köln. Þar með er nú heimsmetið innanhúss orðið jafnt utanhússmetinu. Keppnistímabil frjálsíþrótta- manna er nýbyrjað og stökk þeirra Sjöbergs og Mögenburgs lofa mjög góðu fyrir sumarið og ekki er ólíklegt að annar þeirra verði fyrstur yfir 2,40 m markið. Kraftlyftingar Metið fauk í Gríndavík Stórleikur Atla Það dugðiþó skammt gegn Essen. Kielfékk á sig eitt mark í fyrri hálfleik. Sigurðurskoraði sjö. Alfreð heiðraður Frá Jóni H. Garðarssyni fréttamanni Þjóðviljans í Þýskalandi: Essen þurfti engan stórleik til að sigra Atla Hilmarsson og fé- laga frá Bergkamen í Bundeslig- unni í handknattleik um helgina, 20-15. Alfreð Gíslason ætlaði ekki að leika með vegna meiðsla, hann sneri sig á æfíngu á þriðju- daginn og var búinn að fá 12 sprautur í fótinn. Tveir aðrir hjá Essen voru líka meiddir þannig að Alfreð varð að leika með en gat ekki beitt sér mikið. Atli Hilmarsson hélt uppi merki landans og var langbesti maður Bergkamen, sem lék án sinnar aðalskyttu, Rabka. Alti skoraði 4 mörk, átti þrjár línu- sendingar sem gáfu mörk og fisk- aði tvö vítaköst. Hann var sá eini hjá liðinu sem gat skotið fyrir utan og var hans því gætt vel. Greinilegur munur var á liðunum strax í upphafi og eftir 14-9 í hléi var aldrei spurning um úrslit. Hinn 21 árs gamli Fraatz hjá Ess- en átti frábæran leik, skoraði 10 mörk og einu skotin sem klikk- uðu hjá honum voru tvö vítaköst! Hann hefur allt til að bera, leikinn og snöggur hornamaður. Fimm leikmanna Essen voru sér- staklega heiðraðir áður en leikur- inn hófst, fyrir frammistöðu sína á Ólympíuleikunum sl. sumar. Alfreð var einn þeirra. Kiel, lið Jóhanns Inga Gunn- arssonar, sýndi stórkostlega vörn í fyrri hálfleiknum gegn sterkasta útiliði Bundesligunnar, Dankers- en, og staðan í hléi var 10-1, Kiel í hag! Liðið slakaði síðan á en vann 20-13. „Ég er ánægður með fyrri hálfleikinn en ekki þann seinni. Ég lagði fyrir leikmenn mína að halda áfram að berjast en slaka ekki á, en í heildina er ég ánægð- ur með sigur eins og alltaf", sagði Jóhann Ingi í samtali við Kicker. Sigurður Sveinsson skoraði 7 mörk, 4 úr vítum, þegar Lemgo lyfti sér upp um eitt sæti með því að sigra Reinefusche Berlin 21- 19. Sigurður var tekinn úr umferð allan tímann en átti þó ágætan leik. Kiel er nú með þriggja stiga forystu í Bundesligunni, hefur 24 stig. Gummersbach og Essen hafa 21 stig og Grosswallstadt 19. Neðst eru Berlin og Húttenberg með 12 stig, Lemgo 11, Ber- gkamen 9 og Hándewitt með 7 stig. Torfi Olafsson, kraftajötu- nninn ungi úr KR, fór til Grinda- víkur á laugardaginn með það fyrir augum að setja nýtt heim- smet unglinga í réttstöðulyftu á íslandsmeistaramóti unglinga sem fram fór í samkomuhúsinu Festi. Til að vigta Torfa inní keppnina dugði engin venjuleg vigt þannig að honum var skellt á hafnarvogina í Grindavík! Þar reyndist hann vera 155 kg - og síðan skellti hann sér uppí Festi Blikur eru komnar á loft hjá Vestur-Þjóðverjum og ekki eins öruggt að þeir fái til sín úrslit Evr- ópukeppni landsliða í knatt- spyrnu árið 1988 og útlit var fyrir. Pólitíkin er komin í málið - framkvæmdanefnd UEFA hefur farið framá að ekki yrði leikið í Berlín en vestur-þýsk stjórnvöld eru hörð á því að Berlín verði leikstaður ef keppnin verður haldin í landinu. Knattspyrnu- þar sem heimsmetið féll - 322,5 kg - bæting um hálft þriðja kfló. Fyrir utan afrek Torfa voru sett 13 íslensk unglingamet á mótinu, Hjalti Árnason, KR, Baldur Borgþórsson, KR, og Ólafur Sveinsson, KR, settu þrjú met hver, Björgúlfur Stefánsson, ÍBV, tvö og Matthías Eggerts- son, KR, og Magnús Magnússon, UÍA, eitt hvor. Keppendur á mótinu voru sextán frá KR, ÍBV, UÍA, ÍBA og FH. - VS samband Vestur-Þýskalands hef- ur fallist á málaleitanir UEFA og þá er eftir að sjá hvaða pól stjórnvöld landsins taka í hæðina á næstu dögum og vikum. - VS í 26. leikviku Getrauna komu fram þrjár raðir með 12 réttum leikjum, sem gefur 131,965 krón- ur á röð. Með 11 rétta voru 56 raðir og er vinningurinn kr. 3,029 á röð. EM 1988 Blikur á lofti B-keppnin Úrsltt næstum ráðin A. Evrópuþjóðirnar og Spánn standa langbest að vígi V. Þýskaland Hilmar skoraði Frá Jóni H. Garðarssyni fréttamanni Þjóðviljans í V.Þýskalandi: Hilmar Sighvatsson skoraði mark fyrir Siegen sem vann Ham- mer 2-1 á útivelli í 3. deildarkeppninni í knattspyrnu á laugardaginn. Það var fyrsta mark lciksins. Hilmar og Omar Jóhannsson léku allan leikinn með Siegen sem er komið uppí 14. sæti af 18 liðum í deildinni eftir að hafa verið á botninum í mest allan vetur. Aðeins tvö stig skilja nú liðið frá því sem er í sjöunda sæti. Hilmar Sighvatsson. Tékkar, Sovétmenn, A.Þjóð- verjar og Pólverjar eru næsta ör- uggir með sæti í næstu A-keppni í handknattleik eftir fyrstu umferð milliriðla B-keppninnar í Noregi í fyrrakvöld. Úrslit þá urðu þessi og staðan fylgir: A-rlðill: T ékkóslóvakía-Frakkland.........20-19 Spánn-Finnland...................29-19 Sovétríkin-Noregur...............31-17 Sovétríkin...........3 3 0 0 86-54 6 Tókkar...............3 3 0 0 65-55 6 Spánn 3 2 0 1 66-57 4 Finnland 3 10 2 71-84 2 Frakkland 3 0 0 3 61-77 0 Noregur 3 0 0 3 49-71 0 B-rlðill: A. Þýskaland-Bandaríkin ....21-15 Ungverjaland-Búlgaría ....28-22 .. 29-33 A.Þýskaland 3 3 0 0 70-39 6 Pólland 3 3 0 0 83-65 6 Ungverjaland 3 2 0 1 72-64 4 Búlgaria 3 0 12 54-71 1 3 0 12 53-73 1 Bandaríkin 3 0 0 3 45-65 0 Spánn og Ungverjaland ættu að hreppa sæti númer fímm og sex að öllu óbreyttu þannig að lítil spenna ríkir í keppninni. Frakkar gætu þó mögulega ógnað Spán- verjum með því að sigra bæði þá og Norðmenn stórt og Spánverjar steinlægju á meðan fyrir Sovét- menn. Ungverjar ættu að vinna Hollendinga í B-riðlinum og þá er sæti þeirra í höfn. - VS Þriðjudagur 26. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 UMSJÓN: VÍÐIR SIGURÐSSON

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.