Þjóðviljinn - 26.02.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 26.02.1985, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTT1R Undankeppni HM nn ánægja -Þýskalandi rábœr úrslit V. -Þjóðverja í Lissabon þráttfyrirflensu Fjórir veiktustfyrir leikinn Rudi Völler frá Bremen átti frábæran leik meö Vestur- Þjóðverjum i Lissabon á sunnudaginn. Frjálsar Met og þrjú gull Bryndís Hólm með ' glœsiárangur Bryndís Hólm setti nýtt Islandsmct í langstökki kvenna innanhúss á Meistaramóti íslands í frjáls- um íþróttum innanhúss sem fram fór um helgina. Hún stökk 6,02 metra og sigraði með yfírburðum. Bryndís varð einnig íslandsmeistari í hástökki þar sem hún stökk 1,66 m og í 50 m hlaupi þar sem hún hljóp á 7,6 sek. Gísli Sigurðsson, ÍR, jafnaði íslandsmetið í 50 m grindahlaupi er hann hljóp á 6,7 sek. í undanrás- um. Hann sigraði síðan í úrslitahlaupinu á 7,0 sek. Magnús Haraldsson, FH, sigraði í 800 m hlaupi karla á 2:04,0 mín. og einnig í 1500 m hlaupi á 4:21,3 mín.. Guðrún Eysteinsdóttir, FH, sigraði í 800 m hlaupi kvenna á 2:33,4 mín., Pétur Guð- mundsson, HSK, í kúluvarpi karla með 15,12 metra, Steingrímur Kárason, HSÞ, í kúluvarpi drengja með 12.04 m, Gunnlaugur Grettisson, IR, í hástökki karla með 1,97 m, Jóhann Jóhannsson, ÍR, í 50 m hlaupi karla á 5,9 sek., Svanhildur Kristjónsdóttir, UMSK, f 50 m hlaupi kvennaá6,4 sek., Aðalsteinn Bernharðsson, UMSE, í lang- stökki með 6,95 m, Soffía Gestsdóttir, HSK, í kúluvarpi kvenna með 13,29 m, og Jón Arnar Magnússon, HSK, í þrístökki karla með 13,60 m en sá árangur hans er sveinamet. -VS Evrópuknattspyrnan Maradona í markaham Jafnt á Ítalíu Anderlecht og Bordeauxvinna enn Báðir toppleikir I. deildar ítölsku 1. deildarinnar um helgina enduðu með jafntefli, 1-1, og staðan á toppnum breyttist því sáralítið. Juventus og Verona skildu jöfn, 1-1, og Inter Milano og Torino sömuleiðis. Það var Liam Brady sem skoraði mark Inter. En Diego Maradona stal senunni með því að skora 3 mörk þegar Napoli malaði Lazio 4-0. Síðan Argentínu- maðurinn snjalli hrökk í gang hefur Napoli ekki tapað og hefur nú fengið 11 stig úr síðustu sjö leikjunum. Trevor Francis gerði það einnig gott - hann skoraði tvö mörk þegar Sampdoria vann nágranna sína Fiorentina 3-0 á útivelli. Verona er með 29 stig á toppnum, Inter hefur 28 stig, Torino 26 og Sampdoria og AC Milano 25 stig hvort. Anderlecht er áfram ósigrað í Belgíu og rótburstaði nú Seraing 6-0. Ef svo heldur fram sem horfir verður liðið meistari án þess að tapa leik. Waregem er á mikilli sigl- ingu og er eina liðið sem getur ógnað Anderlecht úr þessu. Stórsigur á Waterschei, 5-0. Anderlecht er með 35 stig en Waregem 30. Bordeaux jók forystu sína í Frakklandi uppí 7 stig - vann Marseilles 1-0 á útivelli á meðan Nantes tapaði 1-0 í Auxerre. Bordeaux er þá með 43 stig, Nantes 36 og Auxerre 32 stig. -VS Frá Jóni H. Garðarssyni fréttamanni Þjóðviljans í V. Þýskalandi Það ríkir almen ánægja hér í landi með frammistöðu knatt- spyrnulandsliðsins sem vann frækilegan sigur á Portúgölum í Lissabon á sunnudaginn, 2-1, í undankeppni heimsmeistara- keppninnar. Fyrirfram var ekki búist við stórafrekum - Olaf Thon, Karl-Heinz Rumenigge og Karl-Heinz Förster veiktust af flensu þegar komið var til Lissa- bon og gátu ekki leikið með og Hans-Peter Briegel var með hita en lék þó með. V.Þjóðverjar voru hikandi í byrjun en tóku leikinn í sínar hendur eftir 15 mínútur. Á 28. mín. náðu þeir frábærri sókn. Herget gaf langa stungusendingu upp vinstri kant á Rudi Völler sem gaf hárnákvæma sendingu á Pierre Littbarski sem skoraði með viðstöðulausu skoti uppí þaknetið. Á 37. mín. óð Briegel upp völlinn og gaf mjög góða sendingu á Völler sem skaut undir markvörðinn og í netið, 0- 2. V.Þjóðverjar bökkuð eftir hlé, Briegel fór aftar og við það veiktist miðjan mikið. Á 57. mín. skoraði Diamantino, sem kom inná í hléi, fyrir Portúgali, 1-2. Við markið vöknuðu V.Þjóð- verjar á ný og voru nálægt því að Fimleikar KR vantar tvö KR er aðeins tveimur stigum frá sæti í efri hluta úrslitakeppn- innar eftir sigur á Þór í Vestmannaeyjum í fyrrakvöld, 22-16. Nái KR-ingar 15 stigum eru þeir öruggir þó Þróttur geti náð sömu stigatölu því KR-ingar standa betur í innbyrðis leikjum liðanna. Leikurinn í Eyjum var jafn lengi vel. Staðan í hálfleik var 8-7 fyrir KR en liðið komst síðan í 16-12. Þór lagaði stöðuna í 18-16 en KR skoraði síðustu fjögur mörkin. Mörk KR: Jakob Jónsson 7, Jóhannes Stefánsson 5 (1v), Friörik Þorbjörnsson 3, Páll Björgvinsson 2, Hörður Harðarson 2, Pétur Árnason 1, Haukur Ottesen 1 og Ólafur Lárusson 1. Mörk Þórs: Gylfi Birgisson 4, Herbert Þorleifsson 4 (2v), Sigurbjörn Óskarsson 2, Óskar Brynjarsson 2, Stefán Guð- mundsson 2, Sigurður Friðriksson (yngri) 1 og Sigurður Friðriksson (eldri) 1 (1v). bæta við mörkum. Völler sýndi snerpu sína með 60 m einleik upp allan völlinn. Þegar inní vítateig var komið var hann felldur en ekkert dæmt nema hornspyrna! Völler gaf síðan á Briegel sem skaut rétt framhjá úr góðu færi. Sanngjarn sigur V.Þjóðverja, einn þeirra besti landsleikur lengi. Briegel, Völler og Littbar- ski voru langbestir en allt liðið lék vel, nema kannski Felix Magath sem sást ekki í leiknum. Staðan í 2. Evrópuriðli er þá þessi: V.Þýskaland..........3 3 0 0 7-3 6 Portúgal.............5 3 0 2 8-7 6 Svlþjóð..............4 2 0 2 7-4 4 Tékkóslóvakía........2 10 15-2 2 Malta................4 0 0 4 3-14 0 Jóhannes og Hjördís unnu í öllum greinum Jóhannes N. Sigurðsson úr Ár- Akureyringar voru mjög sig- manni hlaut 7 gullverðlaun á ursælir á mótinu og sýndu miklar Unglingamóti FSI í fímleikum framfarir. Þá komu keppendur sem fram fór í Laugardalshöllinni frá Stjörnunni í fyrsta skipti á mót um helgina. Jóhannes keppir I FSÍ. Keppendur í mótinu voru flokki 15-16 ára og hann sigraði í um 100 og var þetta í fyrsta skipti öllum greinum í þeim flokki. sem keppt var í íslenskum fim- leikastiga en hann er unninn af Hjördís S. Sigurðardóttir úr Berglindi Pétursdóttur og Jónasi Gerplu var sigursælust stúl- Tryggvasyni. A-landsliðið tók knanna en hún hlaut fimm ekki þátt í mótinu en það mun gullverðlaun í flokki 10 ára og taka þátt í Unglingameistaramóti yngri, sigraði í öllum greinum íslands sem haldið verður 23. sem keppt var í. mars. Handbolti KA tapaði aftur Fram, KA, HK og Haukar leika um 1. deildarsœtin tvö HK er komið í baráttuna um albjörn Svanlaugsson 7. Þór situr sæti í 1. deild eftir góðan sigur á þvf á botninum með slæma stöðu KA í Digranesi á laugardaginn, þegar úrslitakeppnin hefst. 27-25. Leikurinn var hörku- Staðan í 2. deild spennandi, HK hafði 13-11 yfir í Fram.....n 9 1 1 264-218 19 hálfleik og náði að halda sínum KA......12 9 0 3 278-241 18 hlut. Björn Björnsson skoraði 11 .....]2 8 1 3 252-238 17 marka HK en Friðjón Jónsson Fylkir ..Z'.'Z'Z'. 12 4 2 6 237-250 10 skoraði 7 mörk fyrir KA og Er- Ármann..12 4 0 8 258-266 8 lendur Hermannsson 6. KA tap- Grótta..12 2 3 7 250-267 7 aði einnig fyrir Fram á föstu- ÞórAk....14 2 1 11 275 335 5 dagskvöldið eins og við höfum Fram, KA, HK og Haukar áður sagt frá. leika í efri hluta úrslitakeppninn- Hitt Akureyrarliðið, Þór, tap- ar. Haukar eru öruggir þar sem aði einnig öðru sinni í sinni suður- þeir hafa betri útkomu en Fylkir ferð - 24-15 fyrir Fylki á laugar- útúr innbyrðis leikjum liðanna. daginn. Gunnar Baldursson Hin fjögur leika síðan í skoraði 9 mörk fyrir Fylki en Að- fallkeppninni. -VS Handbolti Staðan i urvalsdeildinni í körfuknattleik eftir leiki helgarinnar: Njarðvík... 19 17 2 1752-1491 34 Haukar..... 19 14 5 1606-1446 28 Valur..... 19 12 7 1714-1619 24 KR........ 19 8 11 1571-1520 16 (R........ 19 4 15 1503-1683 8 ÍS....... 19 2 17 1381-1768 4 Stigahæstir: Valurlngimundarson, Njarðvík.482 PálmarSigurðsson, Haukum...390 IvarWebster, Haukum........372 Guðni Guönason, KR...........362 Kristján Ágústsson, Val....328 Staðan í 1. deild karla í handknattleik eftir leikina um helgina: FH..........12 11 1 0 332-271 23 Valur.......12 7 4 1 276-244 18 KR..........11 5 3 3 234-21713 Víkingur.... 12 5 3 4 290-271 13 Þróttur..... 12 4 3 5 289-294 11 Stjarnan.... 12 32 7259-277 8 ÞórVe....... 11 3 0 8 218-265 6 Breiðablik.12 1 0 10 250-309 2 Markahæstir: KristjánArason, FH............85 Þorbergur Aöalsteinsson, Víkingi.... 77 HansGuðmundsson, FH..........66 Páll Ólafsson, Þrótti........65 GuðmundurÞórðarson, Stjörnunni 62 Björn Jónsson, Breiðabliki..61 Jakob Jónsson, KR............61 Handbolti Naumt hjá Víkingum gegn frískum Blikum Blikar nýttu ekki færin í lokin og töpuðu Víkingar rétt náðu að sigra fríska Breiðabliksmenn í Digranesi á sunnudags- kvöldið. Leiknum lauk 26-28 eftir að staðan var 13-13 í hálfleik. Fyrri hálfleikur var mjög sveiflukenndur og skiptust liðin á að skora 3-5 mörk í röð, staðan 3-2,3-6,6-6,6-10 og 11-10 og síðan jafnræði og 13-13 í hálfleik. Víkingar voru ívið sterkari í byrjun seinni hálfleiks og náðu þriggja marka forskoti, 15-18. Það reyndist nægja, Blikarnir náðu ekki að jafna og munurinn var 1-2 mörk það sem eftir var. Einni mínútu fyrir leiks- lok var staðan 26-27. Þá varði Kristján Sig- mundsson og síðan áttu Blikar skot í stöng. Viggó Sigurðsson átti síðasta orðið þegar hann fiskaði víti og skoraði, 26-28. Það er auðsjáanlegt að Björgvin þjálfari Björgvinsson er á réttri leið með Blikana. Þeir áttu ágætan leik og voru mun agaðri og öruggari en oftast áður. Aðalsteinn Jóns- son og Kristján Halldórsson voru þeirra bestir í þessum leik auk Guðmundar Hrafnkelssonar sem varði mjög vel í síðari hálfleik. Víkingsliðið var mjög jafnt og naut þess að Viggó hefur náð sér eftir meiðslin. Mörk Breiðabliks: Aðalsteinn 6, Kristján H. 6, Magn- ús Magnússon 5 (2v), Björn Jónsson 4, Alexander Þór- isson 3 og Brynjar Björnsson 2. Mörk Víkings: Viggó 7 (2v), Þorbergur Aðalsteins- son 7, Karl Þráinssson 6, Hilmar Sigurgíslason 3, Steinar Birgisson 3 og Guðmundur Guðmundsson 2. Dómarar voru Gunnlaugur Hjálmarsson og Óli P. Ólsen og vantaði nokkuð uppá að ÍÞRÓTTIR Viggó Sigurðsson rífur sig í gegnum vörn Breiðabliks og skorar. Hann gerði gæfumuninn fyrir Víkinga í leiknum. Mynd: -eik Handbolti Engin vandræði Létt hjá Fram. Valur í basli. IBV sama og fallið. Fram átti ekki í neinum vand- ræðum með KR í 1. deild kvenna á föstudagskvöldið. Framstúlk- urnar léku mjög vel, voru komn- ar í 12-4 og leiddu síðan 13-7 ■ hálfleik. KR reyndi nokkrar varnaraðferðir í byrjun seinni hálfleiks, en án árangurs - Fram jók forskotið og vann að lokum 29-16. Mörk Fram: Sigrún Blomsterberg 7, Guð- ríður Guöjónsdóttir 5, Erla Rafnsdóttir 5, Oddný Sigsteinsdóttir 4, Arna Steinsen 3, Ingunn Bernótusdóttir 2, Margrét Blöndal 1, Kristín Birgisdóttir 1 og Guðrún Gunn- arsdóttir 1. Mörk KR: Karólína Jónsdóttir 6, Sigur- björg Sigþórsdóttir 4, Pála Skúladóttir 2, Kristbjörg Magnúsdóttir 1, Snjólaug Benja- mínsdóttir 1, Bryndís Harðardóttir 1 og Nellý Pálsdóttir 1. Valur lenti í miklum vand- ræðum með Þór á Akureyri en náði að vinna sigur, 23-19. Þórs- stúlkurnar léku vel og varð vel ágengt gegn lélegri vörn Vals- stúlkna. Staðan í hálfleik var 13- 9, Val í hag. Mörk Vals: Kristín Arnþórsdóttir 7, Guð- rún Kristjánsdóttir 5, Soffia Hreinsdóttir 3, Magnea Friðriksdóttir 3, Erna Lúðvíksdóttir 2, Harpa Sigurðardóttir 1, Steinunn Einars- dóttir 1 og Katrín Fredriksen 1. Mörk Þórs: Þórunn Sigurðardóttir 6, Inga Huld Pálsdóttir 6, Þórdis Sigurðar- dóttir 5, Borghildur Freysdóttir 1 og Sigur- laug Jónsdóttir 1. í Vestmannaeyjum vann Vík- ingur stórsigur á ÍBV í fyrra- kvöld, 23-14. Fyrri hálfleikur var jafn, Víkingur 9-8 yfir í hálfleik, en Eyjastúlkurnar voru skildar eftir í byrjun seinni hálfleiks. Með þessum úrslitum eru þær nánast fallnar í 2. deild - þær verða að sigra Val í sínum síðasta leik til að eiga möguleika á að forðast fall því Þór Akureyri og í A eiga eftir báða sína innbyrðis leiki. Staðan í 1. deild: Fram........13 12 0 Valur.......13 11 0 FH..........12 10 0 Víkingur....12 6 0 KR..........11 3 1 IBV.........13 1 2 ÞórAk.......10 1 1 lA..........10 1 0 Leik FH og ÍA var frestað vegna flensufaraldurs á Akra- nesi. FH og Fram leika næsta laugardag. Þar dugir Fram jafn- tefli til að tryggja sér meistaratit- ilinn en sigri FH má búast við þriggja liða úrslitakeppni Fram, FH og Vals um efsta sætið. -HrG/VS 10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 26. febrúar 1985 Handbolti Páll í stuði Skoraði níu í fyrri hálfleik. fallkeppnina. Stjarnan í Þróttarar unnu léttan sigur á daufum Stjörnumönnum í 1. deildinni í Digranesi á sunnu- dagskvöldið. Páll Ólafsson lagði grunninn að þessum sigri með 9 mörkum í fyrri hálfleik. Staðan var 9-15 í hálfleik og leiknum lauk 21-29 fyrir Þrótt. Þar með er öruggt að Stjarnan leikur í fallkeppninni en Þróttarar eiga veika von um að komast í efri hlutann. Stjarnan skoraði fyrsta markið en Páll svaraði með þremur mörkum. Þróttur komast í 4-8, þá tók Stjarnan Pál úr umferð og minnkaði muninn í 9-11 en Palli stal þá boltanum tvisvar og skoraði og í hléi var staðan orðin 9-15. Munurinn fór í átta mörk í byrj- un seinni hálfleiks, 10-18, og aldrei var spurning eftir það hvar sigurinn lenti. Leikurinn var lélegur og hjá Stjörnunni voru það helst Sigur- jón Guðmundsson og Magnús Teitsson sem héldu haus, auk þess að Birkir Sveinsson varði þokkalega í seinni hálfleik. Páll var bestur á vellinum og Guðmundur A. Jónsson varði vel allan leikinn, alls 15 skot. Birgir Sigurðsson átti góðan seinni hálf- leik. Mörk Stjörnunnar: Sigurjón 7, Magnús 5, Guðmundur Þórðarson 4 (1v), Her- mundur Sigmundsson 2, Hannes Leifsson 2, Gunnlaugur Jónsson 1. Mörk Þróttar: Páll 10, Konráð Jóns- son 6, Birgir 5, Sverrir Sverrirsson 4, Haukur Hafsteinsson 2 og Brynjar Ein- arsson 1. Dómarar voru Ævar Sigurðs- son og Kristján Örn Ingibergsson og munu þeir eins og flestir aðrir helst vilja gleyma frammistöðu sinni í þessum leik. ~gsm Körfubolti Valur var óstöðvandi s Skoraði 53 stig þegar Njarðvík vann IR 116-113 eftirframlengingu Það var heppnisstimpill á sigri Njarðvíkinga gegn ÍR í Seljaskól- anum á sunnudaginn. ÍR var síst verra liðið í leiknum sem var mjög spennandi allan tímann. Eftir venjulegan leiktíma voru liðin jöfn að stigum, 100-100 en Suðurnesjamenn reyndust vera sterkari aðilinn í framlenging- unni. Lokatölur urðu 116-113. Valur Ingimundarson reyndist ÍR-ingum erfið hindrun í þessum leik; hann skoraði hvorki fleiri né færri en 53 stig. ÍR var mun sterkari aðilinn lengst af fyrri hálfleik, liðið hafði Körfubolti Haukar höfðuKR Haukar unnu 10 stiga sigur á KR er liðin mættust í úrvalsdeild körfubult- ans á laugardaginn. Leikurinn fór fram í Hafnarfirði og náðu heima- menn fljótlega frumkvæðinu sem þeir síðan héldu að mestu óslitnu út leikinn. Lokatölur 81-71. Það var aðeins á fyrstu mínútum hálfleiksins að jafnræði var með lið- unum en munurinn varð þó aldrei mikill, í hálfleik höfðu heimamenn yfir 43-33. Seinni hálfleikur var lítt spennandi, munurinn á liðunum var 5-15 stig en KR-ingar gerðu sig aldrei líklega til að láta sverfa til stáls og úrslitin urðu sem áður sagði 81-71 Haukum í hag. f var Webster og Pálmar Sigurðsson voru sterkastir Hauka. Þá átti Ólafur Rafnsson góða kafla. Hjá KR var Guðni Guðnason best- ur en Þorsteinn Gunnarsson stóð sig einnig vel. Flestir aðrir spiluðu undir getu. Stig Hauka: Ivar W. 20, Pálmar 17, Ólafur 15, Kristinn Kristinsson 11, Henning Henningsson 8, Hálfdán Markússon 6, (var Ásgrímsson og Sigurgeir Tryggvason 2. Stig KR: Guðni 22, Þorsteinn 17, Birgir Jóhannsson 12, Mafthías Einarsson 8, Ástþór Ingason, Jón Sigurðsson og Björn Indriðason 4. náö 10 stiga forskoti á tímabili en í hléi var 5 stiga munur á liðun- um, 50-45. UMFN náði að jafna leikinn á byrjunarmínútum seinni hálf- leiksins en einkaframtak Gylfa Þorkelssonar breikkaði bilið aft- ur. Gylfi fékk síðan sína 5. villu fljótlega eftir það. Njarðvík náði að jafna 80-80 er sjö mínútur voru til Ieiksloka. Á loka mínút- um voru skoruð 40 stig og var þeim bróðurlega skipt. Síðasta orðið fyrir venjulegan leiktíma átti Hreinn Þorkelsson er jafnaði leikinn fyrir ÍR, 100-100. í framíengingunni náði UMFN snemma frumkvæði, náðu 6 stiga forystu 110-104 en ÍR náði að minnka muninn í 114-113 rétt fyrir leikslok, Gunnar Þorvarðar- son skoraði þá fyrir Njarðvík úr tveimur vítaskotum og tilraun ÍR-inga til að jafna leikinn með þriggja stiga körfu undir lokin mistókst. Valur Ingimundarson var hreint óstöðvandi, hann skoraði rúmlega helminginn af stigum Njarðvíkinga eftir venjulegan leiktíma en það því síðan rólega í framlengingunni. Þeir Gunnar Þorvarðarson og ísak Tómasson voru einnig sterkir en lítið bar á öðrum leikmönnum liðsins. ÍR liðið náði að sýna sínar bestu hliðar, léku allan tímann mjög sannfærandi og er það mikil framför frá hinum köflóttu leikjum liðsins í vetur. Liðið var mjög jafnt. Gylfi og Hreinn að venju traustir, en ungu strákarnir voru einnig stór þáttur í góðum leik liðsins, sérstaklega þeir Björn Steffensen og Vignir Hilm- arsson. Stig UMFN: Valur 53, Gunnar 23, ísak 17, Ellert Magnússon 10, Helgi Rafnsson 5, Teitur örlygsson og Hafþór Óskarsson 4, Stig ÍR: Hreinn 25, Gylfi og Björn 16, Vignir 15, Karl Guðlaugsson 13, Hjörtur Oddsson 12, Ragnar Torfason 9, Bragi Reynisson-7. Þeir Jóhann Dagur og Jón Otti dæmdu leikinn vel. -Frosti Körfubolti ÍBK einum frá Keflvíkingar eru aðeins cinum sigri frá úrvalsdeildinni eftir að hafa unnið Þór tvívegis í 1. deildinni á Akureyri um helgina. Á föstudagskvöldið 87-81 og á laugardaginn 85-78. Keflvíkingar leika ekki aftur í deildinni fyrr en 15. mars, þá við Reyni á heima- velli, og sigur þar myndi tryggja þeim úrvalsdeildarsætið. Leikurinn á föstudagskvöldið jafn og tvísýnn allan tímann, og liðin skiptust á um forystuna. Staðan í hálfleik var 45-41, ÍBK í hag. Guðmundur Björnsson skoraði 24 stig fyrir Þór, Björn Sveinsson 14, Konráð Óskarsson 13 og Jón Héðinsson 11. Guðjón Skúlason og Jón Kr. Gíslason voru yfirburðamenn hjá ÍBK - Guðjón skoraði 32 stig og Jón 20. Hrannar IJólm og Ingólfur Har- aldsson komu næstir með 10 stig hvor. Keflvíkingar höfðu laugar- dagsleikinn ávallt í hendi sér eftir góðan fyrri hálfleik en staðan í hléi var 53-37 þeim í hag. Guðjón Skúlason átti frábæran fyrri hálf- leik og skoraði þá 27 stig. Hann lét síðan það gott heita. Jón Kr. skoraði 10 stig og Björn 9. Kon- ráð skoraði 29 stig fyrir Þór, Jón H. 13 og Guðmundur 9. -K&H/Akureyri Viltu bjóða gestum þínum gott brauð? Snittur - brauðsneiðar af öllum stærðum og gerðum. Okkar brauð er öðruvísi. Seljum út - sendum heim. Hringdu í síma 11440. Hótel Borg Þriðjudagur 26. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.