Þjóðviljinn - 08.03.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 08.03.1985, Blaðsíða 3
FRÉTTIR Grundarfjörður Sigurfari boðinn upp? Uppboðskrafan á milli 150 og 160 miljónir króna. Fiskveiðasjóður með aðal kröfuna Idag verður ákveðið hjá sýslu- manni Snæfells- og Hnappa- dalssýslu hvenær skuttogarinn Sigurfari SH 105 verður boðinn upp, en hann er gerður út frá Grundarfirði. Jóhannes Árnason sýslumaður sagði í gær að það væri hans að ákveða uppboðs- daginn að undangenginni auglýs- ingu í dagblaði. Oftast væri það svo að uppboðin væru tvö og sagðist hann eiga von á því að svo yrði einnig nú. Uppboðskröfurnar hljóða uppá upphæð á milli 150 og 160 miljónir króna og er Fiskveiða- sjóður lang stærsti kröfuhafinn með 3,7 milj. dollara. Upphaf- lega var dollaralánið sem Fisk- veiðasjóður lánaði til smíði skips- ins 1981 5,1 miljón dollarar. Þá er Byggðasjóður með kröfu uppá 600 þúsund v-þýsk mörk, auk tveggja skuldabréfa 1,8 miljónir og 1,3 miljónir króna og síðan kemur Olíufélagið með rúmar tvær miljónir króna. Að öllum líkindum verður það Fiskveiðasjóður sem eignast skipið og enginn veit því á þessari stundu hvort skipið verður eða fer frá Grundarfirði. Heima- menn segja að verði skipið selt frá Grundarfirði verði það rot- högg fyrir atvinnulíf staðarins, sem nær eingöngu byggist á út- gerð og fiskvinnslu. -S.dór Tollgæsla Smyglaramir skrefi á undan okkur Kristinn Ólafsson tollgœslustjóri: Smyglgóssið í Alafossi getur hafa verið fœrt til eða því kastað í hafið Viðskiptaráðherra Ekki stór- mannlegt Matthías Mathiesen: Peir hefðu sjálfir átt að bera kostnaðinn Bankinn taldi sig hafa hag af því að þessar athuganir yrðu gerðar og ákvað því að iána fé til þeirra. Hitt hefði verið miklu stórmannlegra að þeir menn, sem komu og buðu fram krafta sína, hefðu sjálfir borið kostnaðinn, sagði Matthías Mathiesen, við- skiptaráðherra í gær. Matthías sagðist ekki muna tímasetningar með það mikilli vissu að hann gæti tilgreint hve- nær honum hefði borist vitneskja um þessa fyrirgreiðslu Norræna fjárfestingabankans. í ljósi þess að engar athugasemdir hefðu verið gerðar af hálfu stjórnar eða endurskoðenda bankans vegna hennar, hefði hann ekkert við fyrirgreiðsluna að athuga. að sem við erum vissir um er að smyglgóss fór um borð í Álafoss erlendis. Hvað svo hefur orðið af því er en ráðgáta. Hins- vegar getur enginn ímyndað sér hugkvæmni smyglara nema sá sem reynir og það fullyrði ég að þeir eru alltaf einu skrefí á undan okkur, fundvísi þeirra á aðferðir og felustaði eru með ólíkindum. Þetta sagði Kristinn Ólafsson toll- gæslustjóri í samtali við Þjóðvilj- ann í gær, vegna Álafossmálsins. Kristinn sagði að ótal mögu- leika yrði að skoða í þessu máli. Góssinu hefðu skipverjar getað hent í sjóinn og það síðan verið sótt af einhverjum báti. Eins gætu þeir hafa hent því í hafið hér á ytri höfninni. Það gæti verið fal- ið í gámum, eða að það hefði ver- ið flutt til í skipinu einhverja nótt- ina, eða þá að skipverjar vissu um felustað, sem tollverðir finna ekki. Kristinn var spurður að því hvort engin ástæða væri til að ef- ast um þær upplýsingar sem toll- urinn fékk að utan. Sagði hann svo ekki vera, enda hefði hvorki skipstjóri skipsins né forstjóri skipafélagsins dregið í efa þau gögn sem þeim voru sýnd varð- andi málið. í gær leituðu tollverðir í gám- um þeim sem skipið flutti og er ekki búist við að þeirri leit ljúki fyrir helgi. -S.dór Tollverðir leita í gámunum, sem Ála- foss flutti til landsins, en ekki er búist við að gámaleitinni Ijúki fyrir helgi. (Ljósm. —eik) Borgin Áfengisvamir til einkaaðila Á borgarstjórnarfundi í gær samþykkti meirihlutinn að leggja niður áfengisvarnardeild heilsu- verndarstöðvarinnar og fela SÁÁ að sjá um hluta þeirrar starfsemi sem deildinni var ætluð. SÁÁ fær til þess arna það fé sem á fjár- hagsáætlun rann til áfengisvarna á heilsuverndarstöðinni, rúmlega tvær og hálfa iniljón króna. Fulltrúar allra minnihluta- flokkanna í borgarstjórn mót- mæltu samningnum við SÁÁ harðlega. - Aílir sérfræðingar sem ég hef rætt við eru á móti þessum samningi, sagði Jósteinn Kristjónsson framsóknarmaður: ábyrgð stjórnvalda er mikil við heilsugæslu og um félagslegt ör- yggi, „þangað á frjálshyggjan ekki að ná“. Adda Bára Sigfúsdóttir, Al- þýðubandalagi, lagðist eindregið gegn því að SÁÁ yrði afhentur þessi heilsugæsluþáttur. - Nú þegar brýnt er að efla varnir gegn vímuefnum ætlar borgin að kasta frá sér áfengisvarnardeildinni, sagði Adda Bára og sagði að þarmeð væri þetta starf ekki undir merkjum borgarinnar. Hún vakti athygli á að SÁÁ væri í samningnum aðeins falinn einn þáttur í starfi áfengisvarnar- deildarinnar sálugu: ráðgjöf við aðstandendur, en ekkert minnst á almennt fræðsluhlutverk og ráðgjöf til áfengis- og vímuefna- neytenda með upphafseinkenni sjúkdóms. Adda Bára og aðrir fulltrúar minnihlutaflokkanna töldu að þótt SÁÁ væru alls hróss verð teldist varla rétt að fela þeim ráð- gjöf um framhaldsmeðferð: eng- in patentlausn er til í meðferð drykkjusjúkra, sagði Guðrún Jónsdóttir, Kvennaframboði. Páll Gíslason mælti fyrir samn- ingnum af hálfu meirihluta. Samr.ingurinn var sam- þykktur gegn minnihlutaat- kvæðum. -m Gyllenhammer-hópurinn Inn um bakdymarí norræna Guðrún Helgadóttir: Pukur og röng svör ráðherra bera dauðann í sér fyrir norrœnt samstarf Eg hef ekkert á móti því að einkaaðilar fái fyrirgreiðslu frá Norræna fjárfestingabankan- um, en ég mótmæli þeim vinnu- brögðum sem ráðherranefndin hefur beitt í þessu máli. Pukur og röng svör eins og viðhöfð hafa verið gagnvart Norðurlandaráði bera dauðann í sér fyrir norrænt samstarf á lýðræðisgrundvelli“, sagði Guðrún Helgadóttir á þingi Norðuriandaráðs í gær. í gærmorgun svaraði Svend Lundkvist fyrirspurnum Guðrún- ar varðandi fjármögnun Gyllenhammers-hópsins, sem eru topparnir í norrænu atvinnu- lífi, m.a. Erlendur Einarsson, forstjóri SÍS og dr. Pehr Gyllen- hammer, forstjóri Volvo- samsteypunnar. í Stokkhólmi í fyrra spurði Guðrún hvernig ætlunin væri að fjármagna starfsemi hópsins og fékk þau svörf.h. forsætisráðherr- anna að ekki væri óskað eftir neinni fyrirgreiðslu af hálfu ein- stakra ríkja eða norrænna sjóða til hennar. í gær vakti Guðrún svo athygli á því að Norræni fjárfestinga- bankinn hefur þegar veitt Gyllenhammer-hópnum 750 þús- und norskar krónur í lán og veitt vilyrði fyrir annarri jafnhárri upphæð, ef hópurinn telur sig þurfa. Hún benti á að heilu ári áður en þing Norðurlandaráðs var haldið í fyrra, hefði hópurinn sent Olof Palme, forsætisráð- herra Svía bréf, þar sem farið var fram á nákvæmlega þessa fjár- hæð, 5 miljónir norskra króna. Svörin sem hún hafði þá fengið hefðu því verið hreinar lygar! „Hvernig er norrænni sam- vinnu komið, þegar ráðherrar bara taka sínar eigin ákvarðanir og þykjast ekki einu sinni þurfa að segja Norðurlandaráði frá þeim, þegar spurt er“, sagði Guð- rún. „Það er ekkert ólöglegt við að bankinn veiti slíka fyrir- greiðslu, en það verður bara að gerast á heiðarlegan hátt. Vinnu- brögð af þessu tagi staðfesta það sem ég og margir óttast að það er verið að breyta Norðurlandaráði í já-samkomu sem ætlað er að blessa yfir ákvarðanir sem löngu ■ r fC ■ SJ00I hafa verið teknar. í svari Svend Lundkvist kom fram að hópurinn hefði verið stofnaður fyrir frumkvæði þeirra sem í honum eru, en ekki að frumkvæði forsætisráðherranna eins og Erlendur Einarsson sagði í blaðaviðtali í vetur. Þá sagði hann að ákvörðun bankans hefði verið tekin á eðlilegan hátt en svaraði í engu fyrirspumum Guðrúnar um hverjir aðrir en forsætisráðherrarnir hefðu vitað um fjárbeiðnimar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.