Þjóðviljinn - 08.03.1985, Side 9
Agla Marta Marteinsdóttir og synir hennar Marteinn og Gunnar
Bláfjöll
Iþrótt fyrir
alla fjölskylduna
Agla Marta Marteinsdóttir: Allir geta lært á skíðum
Bláfjöllin eru stærsta og
vinsælasta vetrarútivistar-
svæði þeirra sem búa á höfuð-
borgarsvæðinu. Þegar fjöl-
mennast er ( Bláfjöllunum um
helgar er talið að fjöldinn fari
jafnvel yfir 10 þúsund. Þrátt
fyrir snjóleysið víða um land
hef ur veríð ágætur skíðasnjór í
Bláfjöllunum að undanförnu
og þangað eru reglulegar rútu-
ferðir alla daga vikunnar þegar
vel viðrar.
Þau voru hress í bragði Agla
Marta Marteinsdóttir og synir
hennar Marteinn og Gunnar þar
sem við hittum þau víð stólalyft-
una í Bláfjöllum.
Ég fer hingað þegar viðrar,
sagði Agla Marta, en oft er hér
ansi kalt. En það er gott að kom-
ast hingað á rúmhelgum dögum
þegar maður er heimavinnandi.
Farið þið oft saman mæðginin?
Já, það má segja það. Annars
er frekar stutt síðan ég byrjaði á
skíðum. Það var fyrir um það bil 5
árum. Þetta verður ólæknandi
baktería. Strákarnir hafa verið í
þessu frá blautu barnsbeini.
Sá eldri sagðist þó hafa gert hlé
á meðan hann var í háskólanámi,
en nú væri hann að byrja á ný.
Það er merkilegt, sagði Agla
Marta, en það er hægt að kenna
öllum á skíði. Aldur eða þrek
skiptir ekki máli í því sambandi.
Agla Marta sagðist oftast fara í
Bláfjöllin, enda væri snjórinn
jafnan bestur þar. Hins vegar
væri það ókostur að brekkurnar
væru í skugga. Því væru brekk-
umar í Hveradölum oft skemmti-
legri í sólskini þegar sólin er kom-
in hærra á loft. ólg.
Dalvík
Ein bestu
skíðalönd
á íslandi
Gísli Pálsson:
Skíðasnjór fram í miðjan
maí
Skíðalyfturnar á Dalvík
verða opnaðar nú á laugardag,
þann 26. janúar, sagði Gísli
Pálsson æskulýðsfulltrúi á
Dalvík í samtali við Þjóðvilj-
ann.
Við teljum okkur vera með
einhver bestu skíðalönd landsins
hérna rétt í bæjarjaðrinum og
erum svolítið óhressir með hvað
fjölmiðlar hafa sýnt þessu lítinn
áhuga, sagði Gísli.
Hér em tvær togbrautir, sam-
tals um 750 m langar. Svæðið er
ekki ýkja stórt, en þeim mun
betra og innan við kílómeters
göngufæri frá bænum. Aðstaðan
þarna er í eigu Skíðafélags Dal-
víkur, sem rekur þetta alfarið,
reyndar með einhverjum fjár-
styrk frá bæjarfélaginu. Hér er
oft góður skíðasnjór fram í miðj-
an maí og skíðin mikið stunduð
þegar sólin fer að hækka á lofti. í
byrjun verður opið hjá okkur frá
kl. 1.00,till6eðal8um eftirmið-
daginn um helgar, allt eftir veðri
og aðsókn. Á þriðjudögum og
fimmtudögum verður síðan opið
frá kl. 16 til 22 á kvöldin. Þegar
kemur lengra fram á vorið verður
opnunartíminn lengdur.
Gísli sagði að árskortið fyrir
fullorðna kostaði 1800 kr, 1000
kr. fyrir unglinga 13-15 ára og 560
kr. fyrir börn. Tíu daga kortið
kostar 1120 fyrir fullorðna, 650
kr. fyrir unglinga og 280 kr. fyrir
böm. Dagskortið kostar 140 kr.
fyrir fullorðna, 70 kr. fyrir ung-
linga og 35 kr. fyrir börn.
Þetta hefur verið einstakur vet-
ur hér á Dalvík og elstu menn
muna ekki sambærilegt snjóleysi,
sagði Gísli að lokum, en nú er
snjórinn kominn og við kvíðum
engu um framhaldið.
ólg.
Steinar Aðaibjörnsson 14 ára við stólalyftuna í Bláfjöllum. Stólarnir speglast í
gleraugunum. Ljósm. E.ÓI.
Steinar Aðalbjörnsson
Á skíöum tvisvar í viku
Búnaðurinn kostaði 10 þúsund
Steinar Aðalbjörnsson er
fjórtán ára nemandi í Austur-
bæjarskóla og var að fara í
stólalyftuna í Bláfjöllum þegar
við náðum tali af honum.
Hvers vegna ert þú ekki í skól-
anum Steinar?
Ég átti að vera til kl. 2 í skól-
anum, en fékk frí til þess að ná í
rútuna sem fór kl. 2 úr bænum.
Kemur þú oft hingað?
Já, ég kem einu sinni eða tvisv-
ar i viku. Ég fór tvisvar um síð-
ustu helgi.
Hefur þú fengið einhverja
kennslu í skíðaíþróttinni?
Já, það er vinur minn sem er
einu ári yngri en ég sem kennir
mér. Hann er mjög klár og keppir
líka á mótum.
Er þetta dýrt fVrir þig?
Já, nokkuð. Ég endurnýjaði
búnaðinn fyrir um 10 þúsund
krónur í haust. Keypti mér buxur
og skíði. Svo er ég með árskort í
lyfturnar, það kostar 1800 krón-
ur.
Er gaman á skíðum?
Já, annars væri ég ekki að
þessu.
ólg.
Föstudagur 8. mars 1985 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 9‘