Þjóðviljinn - 29.05.1985, Side 2
fslensku keppendurnir, eöa hluti þeirra, ganga eftir leikvanginum viö lokaathöfnina. Pétur Guðmundsson kúluvarpari ber fánann.
Mynd: Ólafur Gíslason.
Smáþjóðaleikarnir
Tólf gull í sundi
ísland hlautflestgullverðlaun allra. Eðvarð hlautfjögur,
Ragnheiður og Bryndís þrjú.
íslensku keppendurnir fengu flest
gullverðlaun allra á Ólympíuleikum smá-
þjóða í Evrópu sem haldnir voru í ríkinu
San Marino á Ítalíu um helgina. ísland
hlaut 21 gull, 7 silfur og 4 brons. Kýpur
fékk 15 gull, 8 silfur og 9 brons, Luxem-
burg 11 gull, 23 silfur og 18 brons og því
52 verðlaun alls, San Marino fékk 2 gull,
11 silfur og 11 brons, Lichtenstein og
Andorra fengu 4 brons hvor þjóð, Món-
akó fékk 2 brons og Malta eitt brons.
Sund
Sundfólkið íslenska var atkvæðamest
og fékk 12 gull og 4 silfur.
Eðvarð Þ. Eðvarðsson var yfirburða-
maður í sínum greinum og hlaut 4 gull.
Hann sigraði í 100 m bringusundi á
1:06,95 mín, í 100 m baksundi á 58,95 sek,
í 200 m baksundi á 2:09,67 mín, og í 200 m
fjórsundi á 2:12,22 mín.
Ragnheiður Runólfsdóttir fékk 3 gull
og 2 silfur. Hún sigraði í 100 m baksundi á
1:09,77, í 200 m baksundi á 2:29,22 og í
200 m fjórsundi á 2:28,19 mín, sem er
íslandsmet. Hún varð önnur í 100 m
bringusundi á 1:15,12 mín. og í 200 m
bringusundi á 2:43,97 mín.
Bryndís Ólafsdóttir hlaut 3 gullverð-
laun. Hún sigraði í 100 m skriðsundi á
59,75 sek, í 200 m skriðsundi á 2:13,41
mín, og í 100 m flugsundi á 1:07,60 mín.
Magnús Ólafsson, bróðir Bryndísar,
fékk 2 gull og 2 silfur. Hann sigraði í 100
m skriðsundi á 53,49 sek, og í 200 m skrið-
sundi á 1:58,02 mín. Magnús varð annar í
100 m flugsundi á 1:00,58 mín, og í 200 m
fjórsundi á 2:18,44 mín.
Frjálsar
Frjálsíþróttafólkið fékk 4 gull, 3 silfur
og 3 brons.
Aðalsteinn Bernharðsson sigraði í 400
m hlaupi á góðum tíma, 48,60 sek. Hann
varð annar í 200 m hlaupi á 22,07 sek.
Bryndís Hólm sigraði í hástökki með
1,69 metra og varð önnur í langstökki
með 5,76 metra.
Pétur Guðmundsson sigraði í kúlu-
varpi, kastaði 16,01 metra.
Soffía Gestsdóttir sigraði í kúluvarpi
kvenna, kastaði 12,54 metra.
Oddný Árnadóttir varð önnur í 400 m
hlaupi á 55,49 sek, og þriðja í 200 m
hlaupi á 25,18 sek.
Unnar Vilhjálmsson varð annar í há-
stökki, stökk 2,06 metra.
Gísli Sigurðsson varð annar í 110 m
grindahlaupi, hljóp á 14,83 sekúndum.
Júdó
Júdómennirnir skiluðu 100 prósent ár-
angri. Þeir voru fjórir og unnu allir
gullverðlaun.
Karl Erlingsson lagði Luxemburgara
að velli í úrslitaglímunni í 65 kg flokki.
Halldór Guðbjörnsson vann einnig
Luxemburgara í úrslitaviðureigninni í 71
kg flokki.
Ómar Sigurðsson vann í 78 kg flokki og
sigraði Kýpurbúa í úrslitum.
Magnús Hauksson vann Luxemburg-
ara í sögulegri viðureign í úrslitum 86 kg
flokksins. Andstæðingur Magnúsar hafði
náð undirtökum í glímunni en þá skellti
Magnús honum og Luxemburgarinn
skreið útaf dýnunni! Fyrir það fékk hann
7 stig í mínus og sigurinn var Magnúsar.
Lyftingar
Þar var árangurinn líka 100 prósent,
einn keppandi og gullverðlaun.
Guðmundur Sigurðsson var þar á ferð í
dpnum flokki, sigraði með 328,202 stig.
Hann lyfti samtals 297,5 kg.
Skotfimi
Karl J. Eiríksson vann til bronsverð-
launa í keppni með loftskammbyssu af 10
m færi. Hann fékk 559 stig en Luxem-
burgararnir sem urðu í efstu sætunum
fengu 566 og 560 stig af 600 mögulegum.
Agætlega heppnuð ferð, að sögn Há-
konar Arnar Halldórssonar fararstjóra,
þó misbrestir hafi verið í skipulagningu
mótsins.
- VS
Jón Kr.
FékkekkT leyfi!
íþróttakennaraskólinn stöðvar landsliðsmann!
Webster ekki með tilAusturríkis.
Jón Kr. Gíslason verður ekki með í Austurríki.
Islenska landsliðið í körfuknattleik fer í
fyrramálið til Austurríkis og tekur þar
þátt í alþjóðlegu móti um helgina. Leikið
verður við Austurríkismenn á föstudags-
kvöld, Ungverja á laugardag og Tyrki á
sunnudagsmorguninn.
ívar Webster, risinn úr Haukum, kemst
ekki með í ferðina. Hann stendur í íbúða-
kaupum og getur ekki sleppt vinnu. Þá
fékk Jón Kr. Gíslason ekki frí en hann
stundar nám við íþróttakennaraskólann á
Laugarvatni. Furðuleg framkoma skóla-
yfirvalda þar. í staðinn koma í liðið hinn
hávaxni Matthías Matthíasson sem leikur
í Bandaríkjunum og ÍR-ingurinn Björn
Steffensen.
Aðrir í liðinu eru Torfi Magnússon,
Val, Valur Ingimundarson, UMFN,
Pálmar Sigurðsson, Haukum, Tómas
Holton, Val, Árni Lárusson, UMFN,
Hreiðar Hreiðarsson, UMFN, Guðni
Guðnason, KR, og Birgir Mikaelsson,
KR.
-VS
Noregur
Amundsen aftur
í slaginn!
Skrifaði undir samning í
íþróttaþœtti sjónvarpsins
Frá Markúsi Einarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í Noregi:
Roy Amundsen fyrrum lands-
liðsmarkvörður Norðmanna í
knattspyrnu skrifaði undir samn-
ing við 1. deildarliðið Mjöndalen
í íþróttaþætti norska sjónvarps-
ins í fyrradag. Markvörður
Mjöndalen tilkynnti þá strax að-
hann væri hættur, svo liðið er illa
statt þar til Amundsen verður
löglegur.
Amundsen er frægur langt út-
fyrir Noreg síðan hann sló niður
dómara í deildarleik fyrir nokkr-
um árum. Hann fór í langt keppn-
isbann og hóf síðan að leika með
4. deildarliði - sem útispilari! En
nú er hann á leið f 1. deildina á ný
með pompi og pragt og verður án
efa mjög í sviðsljósinu að vanda.
Noregur
Start situr
á botninum
Markvörður Brann hélt hreinu
Frá Markúsi Einarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í Noregi:
Start, lið Guðbjörns Tryggva-
sonar, situr á botni norsku 1.
deildarinnar í knattspyrnu eftir
1:0 ósigur gegn Rosenborg í
fyrradag. Guðbjörn lék allan
leikinn með Start en sýndi ekkert
sérstakt, frekar en aðrir leik-
menn liðsins sem átti ekki góðan
dag.
Varamarkvörður Brann tók
stöðu Bjarna Sigurðssonar og
hélt hreinu í 0:0 leik gegn Molde í
Bergen. Um 10 þúsund áhorf-
endur sáu leikinn.
Lilleström gerði jafntefli við
Viking 2:2 og er efst með 10 stig
Rosenborg hefur 9, Molde, Vik-
ing, Bryne, Kongsvinger og
Brann 6 stig, Valerengen og
Moss 5 og Mjöndalen, Eik og
Start reka lestina með 4 stig. Start
hefur lökustu markatöluna. Öll
liðin hafa leikið 6 leiki nema Ros-
enborg og Valerengen fimm.
Lárus
Lárus Guðmundsson,
bikarmeistari með
Waterschei og
Bayern Uerdingen.
V. -Þýskaland
Gífurleg spenna
fallbaráttunni
i
Sjö lið íhœttu, þar á meðal Stuttgart! Dusseldorfífallsœti og úrþvíaftur.
Atli lagði upp mark í Hamborg
Frá Jóni H. Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Gífurlega spenna er komin í
fallbaráttu Bundesligunnar í
knattspyrnu eftir leiki 32. um-
ferðar. Þegar tveimur umferðum
er ólokið koma enn sjö lið til
greina með að lenda í þriðja
neðsta sætinu og þurfa að leika
aukaleik um að halda sér uppi.
Karlsruher og Braunschweig eru
þegar fallin í 2. deild. Meðal þess-
ara 7 liða eru meistarar Stuttgart,
en þeir eru þó ekki í verulegri
hættu.
Dússeldorf var komið í þriðja
neðsta sætið eftir sigur Bielefeld í
Dortmund á föstudagskvöldið,
en vann óvæntan sigur í Ham-
borg, 2:1. Gífurleg barátta skóp
Körfubolti
Dregið í
C-keppnina
í gær var dregið í riðla fyrir
C-keppnina í körfuknattleik en
annar riðillinn verður leikinn hér
á landi í apríl 1986.
ísland er í sterkum riðli - með
Norðmönnum, Skotum, írum og
Portúgölum. Hinn riðillinn verð-
ur leikinn í Danmörku og þar eru
m.a. Englendingar meðal þátt-
takenda. Efsta liðið í hvorum
riðli kemst í B-keppnina.
- VS
sigurinn hjá Atla Eðvaldssyni og
félögum og Kaiser kom þeim yfir
með marki á 28. mínútu. Á 2.
mínútu seinni hálfleiks átti Atli
góða sendingu á Ralf Dusend
sem skoraði, 0:2, en strax á eftir
fékk Hamburger vítaspyrnu sem
Manny Kaltz skoraði úr, 1:2.
Dússeldorf hefði getað bætt
mörkum við eftir það. Atli lék
sem knatttengiliður að þessu
sinni og fékk 3 í einkumm, lék
vel.
Úrslit urðu þessi:
Hamburger-Dússeldorf............1:2
Dortmund-Bielefeld..............13:
Leverkusen-Köln.................4:4
Braunschweig-Bremen.............0:2
Frankfurt-Schalke..............1:1
Bochum-Stuttgart...............2:1
Gladbach-Mannhelm...............3:0
Þriðjudagskvöldið í síðustu
viku vann Kaiserslautern Boc-
hum 5:2 og Karlsruher tapaði 0:4
fyrir Bayern Múnchen.
Bielefeld, Dússeldorf, Dort-
jnund, Kaiserslautern, Frankfurt
og Leverkusen eru öll í mikilli
fallhættu og Stuttgart má passa
sig. Leverkusen var aðili að átta
marka stórgóðum leik gegn Köln
og jafnaði í lokin með tveimur
mörkum frá Herbert Waas. Pi-
erre Littbarski átti enn einn stór-
leikinn með Köln og gerði 2
mörk.
Bremen lifir enn í voninni um
að ná Bayern og þeir Rudi Völler
og Uwe Reinders gerðu tvö glæsi-
leg mörk í annars lélegum leik í
Braunschweig. Borussia Mönc-
hengladbach sýndi loks sitt rétta
andlit og malaði Mannheim. Cri-
ens 2 og Mill gerðu mörkin. Ralf
Zumdick markvörður Bochum
átti stórkostlegan leik gegn Stutt-
gart og tryggði liði sínu 2:1 sigur
með þvf að verja vítaspyrnu frá
Nico Claesen sem rétt áður hafði
jafnað fyrir Stuttgart. Sigurmark
Bochum var sjálfsmark frá Karl-
Heinz Förster.
Staðan í Bundesligunni þegar
aðeins tvær umferðir eru eftir er
þannig:
Bayern.......32 19 8 5 75:38 46
Bremen........32 17 10 5 85:48 44
Köln..........32 18 4 10 66:56 40
Gladbach......32 15 8 9 73:49 38
Uerdingen......31 14 8 9 55:43 36
Hamburger......32 13 9 10 56:48 35
Mannheim.......32 12 11 9 44:48 35
Schalke........32 12 8 12 60:59 32
Bochum.........32 11 10 11 52:52 32
Stuttgart......32 13 4 15 74:57 30
Leverkusen.....32 8 12 11 49:49 29
Frankfurt.......32
Kaiserslaut.....31
Dortmund........32
Dusseldorf.......32
Bielefeld........32
Karlsruher......32
Braunschweig....32
Bikaimeistari í
tveimur löndum!
Uerdingen vann sanngjarnan sigur á Bayern í úrslitaleiknum.
Lárus átti þátt í sigurmarkinu.
9 11 12 58:64 29
9 11 11 44:56 29
12 4 16 48:62 28
9 9 14 51:64 27
7 12 12 44:59 27
4 11 17 42:84 19
8 2 22 37:75 18
Dússeldorf á eftir heimaleik
við Mönchengladbach og útileik
gegn Bochum.
Frá Jóni H. Garðarssyni, frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Lárus Guðmundsson hefur
unnið það einstæða afrek að
verða bikarmeistari í knatt-
spyrnu í tveimur löndum á þrem-
. ur árum. Hann varð bikar-
meistari með Waterschei í Belgíu
fyrir tveimur árum - tryggði þá
liðinu sigur með tveimur mörk-
um - og á sunnudaginn unnu
hann og félagar hans í Bayer Uer-
dingen óvæntan en sanngjarnan
sigur á Bayern Múnchen, 2-1, í
úrslitaleik vestur-þýsku bikar-
keppninnar.
Áhorfendur í Berlín voru 70
þúsund og þeir voru nær allir á
bandi Uerdingen. Úrslitin voru
sanngjörn, Uerdingen átti mun
meira í leiknum og sigurinn gat
orðið enn stærri því einu sinni var
dæmt löglegt mark af liðinu og
þeir Wolfgang Scháfer, Lárus og
Peter Loontiens fengu allir
dauðafæri sem þeir náðu ekki að
nýta.
Dieter Höness, sem lék með
tvíbrotið nef en var einna besti
maður Bayern, skoraði strax á 8.
mínútu með laglegu vinstrifótar-
skoti frá vítateig, stöngin inn.
Udo Lattek þjálfari og aðrir
Bæjarar voru enn að fagna þegar
Horst Feilzer jafnaði á næstu
mínútu, 1-1. Sending frá vinstri
fyrir mark Bayern, Klaus
Áugenthaler náði ekki að skalla
frá og Feilzer skoraði með dúnd-
urskoti af 10 metra færi.
Uerdingen náði góðum tökum
á leiknum og stjórnaði honum.
Wolfgang Funkel og Werner
Buttgereit tóku Lerby og Matt-
háus alveg úr sambandi og
lömuðu miðvallarspil Bayern.
Vendipunkturinn kom síðan á
48. mín. þegar Dremmler hjá Ba-
yern var rekinn af leikvelli fyrir
sitt annað grófa brot. Bæjarar
léku því 10 það sem eftir var og
voru heppnir að Mattháus skyldi
ekki vera líka rekinn útaf fyrir
gróft brot en hann hafði áður
fengið gula spjaldið.
Sigurmarkið kom á 67. mín-
útu. Herget gaf jarðarsendingu
inní vítateig Bayern og Lárus
steig í veg fyrir Áugenthaler svo
hann komst ekki að boltanum
sem rann óhindrað fyrir fætur
Scháfers sem skoraði örugglega,
2-1 ..Scháfer hefur verið Uerding-
en óhemju dýrmætur og komið á
óvart á sínu fyrsta ári í Bundeslig-
Handbolti
Fjortan næsta vetur
Unnið að framtíðarskipulagi íslandsmótsins. Meistarar 1986
krýndir í desember 1985!
unni en hann var keyptur frá So-
lingen sl. sumar. Aðeins síðustu 5
mínúturnar náði Bayern að sækja
eitthvað að ráði og þá varði
Werner Wollack markvörður
Uerdingen lúmskt skot frá Lerby
uppi í samskeytunum.
Leikmenn Úerdingen léku allir
mjög vel en W. Funkel og
Buttgereit skiluðu þó þýðingar-
mesta hlutverkinu. Herget var
frábær og stjórnaði leik liðsins
eins og herforingi og þeir Lárus,
Scháfer og Feilzer sköpuðu allir
hættu með snerpu sinni. Þá tók
Wöhrlin hinn hættulega Kögl al-
veg úr umferð. Hjá Bayern voru
Höness og Raimond Aumann
markvörður þeir einu sem
eitthvað sýndu.
Aganefnd
KR tapar
stigunum!
Reglur skýrar, segir Garðar.
Hneyksli, segir Gunnar
Aganefnd KSI úrskurðaði í
gær að KR skyldi missa stigin
þrjú úr sigurleiknum við Þrótt í 1.
umferð Islandsmótsins, 4:3, og
teljast hafa tapað honum 3:0. KR
notaði í leiknum Jón G. Bjarna-
son sem dæmdur hafði verið í
leikbann sl. haust, en KR hafði
fengið skeyti aganefndar um það
- skeytið var borið í næsta hús við
formann knattspyrnudeildar KR
eins og frægt er.
„Starfsreglur aganefndar KSÍ
eru skýrar. Skeytið var sent frá
KSÍ og það staðfest af Pósti og
síma. Það er allt sem þarf, sam-
kvæmt 2. grein starfsreglna aga-
nefndar. Það var eini í nefndinni
um þessa niðurstöðu, reglurnar
eru til að starfa eftir þeim og ef
menn eru óánægðir með þær
verður að breyta þeim á þingi
KSÍ,“ sagði Garðar Oddgeirsson
formaður aganefndar í samtali
við Þjóðviljann.
„Þetta er hreinasta hneyksli,
anda
Við
það er ekki dæmt eftir
starfsreglna aganefndar.
erum dæmdir fyrir skeyti sem al-
veg eins hefði getað lent í Síberíu.
Það stendur svart á hvítu að mót-
tökustimpill skeytisins eigi að
gilda og þá eiga starfsmenn Pósts
og síma að fara að settum reglum
við útburð skeytisins. Við ætlum
að skoða málið vel næstu daga og
kanna hvort möguleiki sé að að
áfrýja þessum úrskurði. Hér er
aganefnd KSÍ að dæma í eigin
sök, það er framkvæmdavald en
ekki dómsvald sem dæmir af okk-
ur stigin," sagði Gunnar Guð-
mundsson formaður knattspyrn-
udeildar KR.
Samkvæmt 4. grein títtnefndra
reglna verður úrskurði aganefnd-
ar ekki áfrýjað. Standi það
óhaggað eru KR-ingar komnir í
næstneðsta sæti 1. deildarinnar
með 2 stig en Þróttur situr hins
vegar í öðru sæti með 6 stig.
- VS
Keppni í 1. deild íslandsmóts-
ins í handknattleik næsta vetur
verður með gamla forminu. Átta
lið leika tvöfalda umferð, 14 leiki
alls, og efsta liðið að þeirri keppni
lokinni er íslandsmeistari. Þetta
er það sama og gert var áður en
úrslitakeppnin var tekin upp.
Þetta var niðurstaðan á árs-
þingi HSÍ sem fram fór um helg-
ina. Svonaverðurfyrirkomulagið
þó aðeins næsta vetur, skipuð var
sérstök nefnd til að móta tillögur
fyrir framtíðarskipulag íslands-
mótsins í heild og á hún að hafa
lokið sínu verki fyrir 1. október í
haust. Veturinn 1986-87 ætti því
að verða leikið með nýju framtíð-
arfyrirkomulagi.
Mótið næsta vetur fer að öllum
líkindum allt fram fyrir árarnót,
frá september framí desember.
íslandsmeistari 1986 verður því
krýndur í desember 1985! Fyrir-
hugað er að koma á sérstöku móti
eftir áramót þar sem liðin leika án
landsliðsmannanna og eftir A-
heimsmeistarakeppnina í Sviss
tekur bikarkeppnin við.
-SV
Stórsigur
Austra
Austri gerði góða ferð á Fá-
skrúðsfjörð í gærkvöldi, vann
þar Leikni 4-0 í NA-riðli 3.
deildarinnar í knattspyrnu.
Óvænt eftir stórsigur Leiknis og
Einherja í fyrstu umferðinni.
Þróttur og Huginn skildu jöfn í
Neskaupstað, 1-1. Þróttur var
mun betri aðilinn og náði forystu
í fyrri hálfleik með sjálfsmarki
Seyðfirðinga en Birgir Guð-
mundsson náði að jafna fyrir
Hugin í seinni hálfleik.
Engin dómari mætti í Mývatns-
sveitina en þar átti HSÞ.b að
leika við Magna. -VS
Bræður á
burtleið
Bræðurnir Hreinn og GylFi
Þorkelssynir, helstu máttarstólp-
ar ÍR í körfuboltanum og lands-
liðsmenn, eru að öllum líkindum
báðir á leið frá félaginu.
Hreinn stendur í viðræðum við
Grindvíkinga um að þjálfa lið
þeirra og leika með því í 1.
deildinni næsta vetur. Gylfi hefur
hug á að breyta til og þá helst að
ganga til liðs við Hauka. „Það er
þó ekkert afráðið í þeim efnum,“
sagði Gylfi í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
-VS
V.Þýskaland
Féllu öll úr bikamum
Frá Jóni H. Garöarssyni fréttamanni
Þjóöviljans í V.Þýskalandi:
fslendingaliðin þrjú sem eftir voru í
bikarkeppninni í handknattleik féllu
öll út í 8-liða úrslitunum um helgina.
Gummersbach vann Kiel 20-19
eftir 12-10 í hálfleik. í leik 2. deildar-
liða tapaði Gunzburg, liðið sem Atli
Hilmarsson fer til, fyrir Erhard
Wunderlich og félögum í Milberts-
hofen, 23-24, eftir framlengingu.
Wunderlich skoraði 11 mörk í
leiknum. Grosswallstadt vann Bjarna
Guðmundsson og félaga í Wanne-
Eickel 28-21 og Lemgo tapaði 17-21
heima fyrir Reinefusche Berlin og var
undir, 5-13, í hálfleik.
Gummersbach leikur við Milberts-
hofen og Grosswallstadt við Reinef-
usche í undanúrslitunum.
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. maí 1985
Miðvlkudagur 29. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11