Þjóðviljinn - 29.05.1985, Page 4
ÍÞRÓTTIR
4. deild
Nóg af mörkum
Alls58íll leikjum. Sigurður með 4, Garðar, Halldór og Ari
3. Handboltakappar líka á skotskónum.
Einar Vilhjálmsson byrjar vel í Grand-Prix keppninni. Hann sigraði
í San Jose og takist honum að halda sér í hópi fimm bestu í
sumar kemst hann i úrslit keppninnar í haust.
Frjálsar
Einar tekur
forystuna!
Sigraði ífyrsta Grand-Prix mótinu og
kastaði tœpa níutíu metra
Keppni í 4. deildinni í knatt-
spyrnu hófst um helgina og var
leikið í öllum riðlum nema
Austfjarðariðli. Mikið var
skorað og víða sáust háar tölur og
í 11 leikjum voru gerð 58 mörk,
eða ríflega 5 að meðaltali í leik.
A-riðill:
Grótta-Léttir IR-Grundarfjöröur 5-2 4-0
Víkverji-Grundarfjörður 4-1
í liðum Gróttu og Léttis leika
nú margir kunnir leikmenn og
sumir þeirra skoruðu í leiknum á
Nesinu. Erling Aðalsteinsson 2,
Sverrir Herbertsson, Erlingur og
Sigurður Benediktsson skoruðu
fyrir Gróttuna en Baldur Hann-
esson og Egill Ragnarsson fyrir
Létti.
Guðmundur Magnússon kom
ÍR á bragðið gegn Grundfirðing-
um með glæsimarki af 35 m færi.
Páll Rafnsson, Bragi Björnsson
Unglingaleikurinn
Þorsteinn
forðaði frá
stórtapi
Skosku unglingalandsliðsmennirn-
ir reyndust þeim íslensku ofjarlar á
öllum sviðum knattspyrnunnar í Evr-
ópuleik þjóðanna 16-18 ára á Val-
bjarnarvellinum í fyrradag. íslenska
liðið átti aldrei möguleika og slapp vel
með 2-0 tap.
Skotarnir voru samstilltari, kröft-
ugri, sneggri, leiknari og ákveðnari
en íslensku leikmennirnir, þeir léku
virkilega sannfærandi. Wright stýrði
knettinum í íslenska markið eftir fyr-
irgjöf frá Norwich-leikmanninum
Kinnard strax á 9. mínútu og síðan
var það einungis frábær markvarsla
Eyjamannsins Þorsteins Gunnars-
sonar sem hélt markatölunni í 0-1 þar
til 10 mínútur voru eftir. Þá tók
Wright aukaspyrnu og skaut hörku-
skoti, Þorsteinn varði glæsilega en
McFarland fylgdi vel og skoraði, 0-2.
Þorsteinn var yfirburðamaður í ís-
lenska liðinu sem saknaði sárlega Sig-
urðar Jónssonar, A-landsliðsmanns.
Theodór Jóhannsson og Atli Einars-
son sluppu sæmilega frá leiknum. Það
vakti athygli að Guðmundur Magnús-
son úr KR var látinn leika þó hann
hefði greinilega ekkert erindi í
leikinn, langt frá því að vera orðinn
góður af meiðslunum sem hann varð
fyrir í vor. f unglingalandsliði leynast
jafnan verðandi A-landsliðsmenn, en
miðað við þennan leik verða fáir úr
þessum hópi sem ná svo langt.
- VS
(víti) og Eyjólfur Sigurðsson
gerðu hin mörkin.
Gísli Felix Bjarnason hand-
boltamaður úr Ribe varð einn
fjögurra Víkverja til að skora
gegn Grundfirðingum á sunnu-
dag. Hinir voru Svavar Hilmars-
son, Óskar Óskarsson og Vil-
hjálmur Sigurhjartarson. Guð-
mundur Ásgeir Björnsson gerði
mark Grundfirðinga.
B-riðill:
Hafnir-Þór Þ....................5-1
Stokkseyri-Hveragerði...........4-2
Afturelding-Mýrdælingur.....frestað
Halldór Viðarsson skoraði
þrennu fyrir Stokkseyri í Suður-
landsslagnum og Páll Leó Jóns-
son 1. Stefán Halldórsson og
Árni Svavarsson gerðu mörk
Hvergerðinga.
Hafnamenn fóru létt með Þór
Þorlákshöfn og mörk liðsins
gerðu Haraldur Gíslason, Ómar
Borgþórsson, Óskar Gíslason,
Hilmar Hjálmarsson og Gunnar
Björnsson. Hannes Haraldsson
svaraði fyrir Pór.
Garðar Jónsson byrjar vel sem þjálf-
ari Hvatar, þrjú mörk strax.
C-riðill:
Haukar-Bolungarvík.................3-2
Augnablik-Bolungarvík..............9-0
Snorri Leifsson handbolta-
kappi, Grétar Hilmarsson og
gamla kempan Loftur Eyjólfsson
skoruðu fyrir Hauka en Runólfur
Pétursson og Jóhann Kristjáns-
son fyrir Bolvíkinga.
Að undirrituðum stórsamningi
við Auglýsingaþjónustuna skor-
uðu Augnablikar níu mörk gegn
dösuðum Bolvíkingum á sunnu-
dag. Sigurður Halldórsson var
fremstur f flokki með 4 mörk,
Birgir Teitsson, Kristján Hall-
dórsson, Sverrir Hauksson,
Gunnlaugur Helgason (víti) og
síðast en ekki síst Óskar Guð-
mundsson læddu allir inn marki.
D-riðill:
Svarfdælir-ReynirÁ........frestað
Höfðstrendingur-Hvöt..........1-6
Borgnesingurinn Garðar Jóns-
son byrjar vel sem þjálfari Hvat-
ar. Hann skoraði 3 mörk í Skaga-
firðinum, Kristinn Guðmunds-
son 2 og Hörður Sigurðsson eitt.
Jón Jóhann Jónsson skoraði fyrir
Höfðstrending.
E-riðill:
Tjörnes-Bjarmi....................2-0
Vaskur-UNÞ.b......................4-0
Árroðinn-UNÞ.b....................3-0
Sigurður Illugason, Völsungur
í fyrra, gerði bæði mörk Tjörnes-
inga gegn nýja liðinu úr S. Þing-
eyjarsýslu, Bjarma.
Fyrstu leikir liðs úr N. Þing-
eyjarsýslu á íslandsmóti fóru
fram í Eyjafirðinum. UNÞ.b sótti
Vask og Árroðann heim en náði
ekki að skora mark. AriTorfason
3 og Svanur Kristinsson gerðu
mörk Vasks og fyrir Árroðann
gegn UNÞ.b skoruðu Orri Ótt-
arsson, Ingi Haraldsson og Örn
Tryggvason. -hs/K&H/VS
Einar Vilhjálmsson vann það
glæsilega afrek að sigra í spjót-
kasti á fyrsta Grand-Prix frjáls-
íþróttamótinu sem haldið var í
San Jose í Kaliforníu um helgina.
Einar kastaði 88,28 metra sem er
með því besta sem náðst hefur í
heiminum í ár. Annar varð Tom
Petranoff frá Bandaríkjunum,
fyrrum heimsmethafi, með 87,22
metra.
Grand-Prix mótin verða haldin
víðsvegar um Ameríku og Evr-
ópu í sumar og lýkur með stóru
mót í september þar sem fimm
bestu í hverri grein keppa.
Áhorfendur í San Jose voru
9000 og þeir urðu vitni að tvenn-
um óvæntum úrslitum. Brasilíu-
maðurinn Joachim Cruz tapaði í
fyrsta sinn í 800 m hlaupi karla í
tæp tvö ár. Johnny Gray frá
Bandaríkjunum vann á 1:45,76
en Cruz varð annar á 1:45,89.
„Þetta er mikill léttir, það er of
mikil pressa þegar gert er ráð
fyrir að maður vinni hvert einasta
hlaup," sagði Cruz. Grete Waitz
frá Noregi tapaði óvænt fyrir La-
vier frá Bandaríkjunum í 3000 m
hlaupi kvenna, varð önnur en 16
sekúndur skildu þær að.
Stórstirnin Carl Lewis og
Edwin Moses áttu að vera meðal
keppenda í San Jose en urðu báð-
ir að hætta við vegna meiðsla.
-VS
Knattspyrna
England
Norwich niður
Coventry tókst það ómögulega
- að vinna þrjá síðustu leiki sína í
1. deild ensku knattspyrnunnar
og halda sér uppi á kostnað mjólk-
urbikarmeistaranna Norwich,
sem þar með eru fallnir í 2. deild
ásamt Sunderland og Stoke.
Coventry kórónaði glæsilegan
endasprett með því að vinna
Englands- og Evrópubikar-
meistara Everton 4-1 á Highfield
Road á sunnudagsmorguninn.
Cyrille Regis átti sinn albesta leik
í mörg ár og var maðurinn á bak-
við sigurinn.
Regis skoraði strax á 4. mínútu
og gaf tíu mínútum síðar á Mick
Adams sem kom Coventry í 2-0.
Paul Wilkinson svaraði fyrir
Everton mínútu fyrir hlé en
áhorfendur vörpuðu öndinni létt-
ar þegar Regis skoraði eftir send-
ingu frá Terry Gibson strax á 2.
mínútu seinni hálfleiks. Loks 12
mínútum fyrir leikslok bætti Gib-
son fjórða markinu við - Norwich
var fallið, Coventry heldur áfram
að leika í 1. deild eins og 18 und-
anfarin ár.
- VS.
3. deild SV
Þrjú með fullt hús sdga
Selfoss, Stjarnan og Armann. Heimirvarðivíti. Tvö skallamörk á Skaganum
Ármann-ÍK 2-1 (1-0)
Bragi Sigurðsson skallaði Ár-
mann yfir um miðjan fyrri hálf-
leik en stuttu síðar varði mark-
vörður Ármanns, Heimir Gunn-
arsson, vítaspyrnu frá Guðjóni
Guðmundssyni. Smári Jósafats-
son kom Ármanni í 2-0, vel rang-
stæður, og í kjölfar þess var Ólaf-
ur Petersen, ÍK, rekinn af leik-
velli fyrir mótmæli. Tíu ÍK-ingar
sóttu stíft það sem eftir var og
Guðjón Guðmundsson skallaði í
netið, 2-1, en fleiri urðu mörkin
ekki.
Stjarnan-Grindavík 2-0 (2-0)
Stjarnan lék undan strekkings-
vindi í fyrri hálfleik og skoraði
tvö mörk á þremur mínútum
snemma. Rúnar Sigurðsson og
Jón Bragason voru þar að verki.
Leikurinn var jafn, Stjarnan ívið
sterkari ef eitthvað var, en
Grindavík sótti talsvert í seinni
hálfleik án þess að komast á blað.
Selfoss-Víkingur Ó. 4-1 (1-0)
Selfyssingar léku ekki sannfær-
andi en nógu vel þó til að sigra
ungt lið Ólafsvíkinga. Viðar
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. maí 1985
Gylfason jafnaði fyrir Víking
snemma í seinni hálfleik en þá
tóku heimamenn við sér og
skoruðu þrívegis. Hilmar
Hólmgeirsson 2, Gylfi Garðars-
son og Daníel Gunnarsson gerðu
mörk Selfyssinga.
HV-Reynir S. 0-2 (0-2)
Tvö skallamörk eftir auka-
spyrnur færðu Reynismönnum
þrjú stig á Akranesi. Fyrst skall-
aði Ævar Finnsson í mark HV og
síðan Ari Haukur Arason. Að
auki áttu Reynismenn skot í
þverslá og niður, innfyrir línu að
þeirra mati. Einn leikmanna HV
var rekinn af leikvelli rétt fyrir
leikslok.
Staðan í SV-riðli:
Selfoss...............2 2 0 0 6-2 6
Stjarnan..............2 2 0 0 3-0 6
Ármann................2 2 0 0 3-1 6
ReynirS................2 10 1 3-2 3
Grindavík..............2 10 12-33
ÍK....................2 0 0 2 2-4 0
HV....................2 0 0 2 0-3 0
VíkingurÓ.............2 0 0 2 1-5 0
Öllum leikjum í NA-riðli 3.
deildar sem fram áttu að fara á
laugardag var frestað vegna ó-
færðar.
-VS
Góð upp-
hitun
Skotar hituðu vel upp fyrir
leikinn á Laugadalsvellinum með
því að sigra Englendinga 1-0 á
Hampden Park í Giasgow. Þetta
var jafn og spennandi leikur,
Skotar voru sterkari framanaf en
Englendingar náðu smám saman
yfirhöndinni. Það var því gegn
gangi leiksins þegar Richard Go-
ugh frá Dundee United skallaði í
mark Englendinga á 68. mínútu.
Þessi leikur er það eina sem
lifir af bresku meistarakeppninni
sem fór fram í síðasta sinn fyrir
ári síðan. Hann átti að fara fram á
Wembley í London en var færður
til Glasgow vegna hættu á
óeirðum. _ ys.