Þjóðviljinn - 08.06.1985, Síða 3
FRETTIR
Fóstrumálin
EKKI BENDA A MIG
Ragnhildur vísarfrá sér ábyrgð. Stakk upp á að stytta dagvistarvikuna.
Stjórnarandstaðan: Hneisa
IHS aliri ábyrgð á fóstruflóttan-
um frá sér á alþingi í gær og sagði
að undir sitt ráðuneyti heyrði
ekki annað en bygging dagvistar-
heimila og Fóstruskólinn. Það
væri sveitarfélaganna og fjár-
málaráðherra að semja við fóstr-
ur og það væri ekki vaninn að
menntamálaráðuneytið skipti sér
af kjarasamningum.
Þetta er hneisa, sagði Kristín
S. Kvaran um svör ráðherra, en
Kristín hóf umræðuna og spurði
hvort og hvernig hún hygðist
bregðast við því neyðarástandi
sem upp er komið á dagheimilum
þegar börnin þurfa að kynnast
10-12 uppalendum á ári vegna
fóstruflóttans. Ragnhildur
Helgadóttir, sem loks hafði feng-
ist til að ræða þessi mál á alþingi
flutti langa skýrslu um störf
menntamálaráðuneytisins að da-
gvistarmálum frá upphafi vega og
tók fram að ráðuneytið þætti of
fast að orði kveðið að neyðar-
ástand ríkti í þessu efni. Eina
hugmyndin sem hún varpaði
fram var að skipta mætti plássum
á milli barna, þannig að hvert
barn fengi dagvist t.d. tvo eða
þrjá daga í viku!
Guðrún Helgadóttir sagði að
ætla mætti að ráðherrann kæmi
aftan úr fornöld, svo úrelt væru
viðhorf hennar til dagvistarmála
og svo lítill væri skilningurinn á
þeirri þjóðfélagslegu nauðsyn og
því mikilvæga uppeldishlutverki
sem dagvistarheimili gegndu í nú-
tímaþjóðfélagi. Skoraði hún m.a.
á ráðherra að taka nú stökkið
stóra inn í nútíðina svo hún yrði
viðræðuhæf.
Jóhanna Sigurðardóttir krafði
ráðherra m.a. svara um hvort
hún vildi beita sér fyrir endurmati
á kvennastörfum eins og fóstru-
störfum á sama hátt og kennara-
starfinu. Ráðherra svaraði loks
eftir mikla brýningu að sér hefði
ekki borist nein erindi þar að lút-
andi, en kennarar hefðu á sínum
tíma farið fram á umrætt endur-
mat.
Steingrímur J. Sigfússon sagði
ljóst að ástæðan fyrir fóstruflótt-
anum væri láglaunastefna ríkis-
stjórnarinnar og ef menntamála-
ráðherra vildi ekki taka ábyrgð á
henni, þá yrði a.m.k. að tryggja
að aðrir ráðherrar væru viðstadd-
ir umræðu sem þessa.
-ÁI
Ormaveiðar
Sá skoski
á sex krónur
Mikið tíntfyrir
veiðimenn í vœtunni
undanfarnar nœtur
Stangveiðar eru nú að komast í
fullan gang og samhliða því tekur
við aðalvertíðin hjá maðka-
sölum. Úrvals skoskur laxamaðk-
ur fer í dag á 6 kr. stykkið á höf-
uðborgarsvæðinu og í bland með
öðrum minni á 5 kr. stykkið.
„Þetta þýkir alls ekki dýrt.
Miðað við verðið hér áður þá ætti
maðkurinn að kosta uppundir 20
krónur“, segir Hörður Smári Há-
konarson sem hefur það fyrir
aukabúgrein að tína og selja
maðka.
„Það borgar sig ekki að standa í
því að rækta þetta, það þarf svo
gott húsnæði til þess. Ég hef
stundað þetta frá því ég var
smástrákur að ná mér í aukapen-
ing með maðkasölu. Ég hef verið
á sjónum en er nú nýkominn í
land“, sagði Hörður.
Hann sagðist lítið auglýsa því
hann væri með fasta viðskiptavini
sem versluðu við hann á hverju
sumri. -Ig-
Borgarreikningar
Endurskoða
sjálfa sig!
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins mótmæltu því harðlega á
fundi borgarstjórnar í fyrrakvöld
að kjörnir endurskoðendur borg-
arinnar tækju af sér að endur-
skoða reikninga borgarfyrir-
tækja borgarinnar og endur-
skoðuðu síðan sína eigin endur-
skoðun.
Endurskoðendur 1984, þeir
Bjarni Bjarnason og Sævar Sig-
urgeirsson, voru verktakar við
endurskoðun hjá SVR, raf-
veitunni, heilbrigðisgeiranum og
víðar, og skrifa síðan undir eigin
endurskoðun þegar farið er yfir
heildarreikninga. Davíð Odds-
son og Kristján Benediktsson
(Framsókn) vörðu endurskoð-
endurna, sem kosnir eru af Sjálf-
stæðisflokki og miðflokkabanda-
laginu.
Við kjör endurskoðenda fyrir
1985 buðu AB-fulltrúar fram
Hrafn Magnússon gegn Bjarna
frá Sjálfstæðisflokki og Sævari frá
Framsókn, krötum og Kvennó.
Kvennaframboðskonur léku feg-
urðardrottningar, skiluðu auðu í
kosningunni og náði Hrafn óvænt
kjöri.
-m
Maðkurinn er vandmeðfarinn ef hann á að lifa i geymslunni. Hann er best geymdur í mosa, hitinn má alls ekki verða mikill
og sfðan þarf að eiga nóg af sölnuðu laufi til að fæða þann skoska. Hörður Smári sýnir afrakstur síðustu næturaevintýra.
Mynd - Valdís.
Sólheimagangan
Göngu-Reynir
á Egilsstöðum
Gengur allt að 70 km
á dag
Reynir Pétur Ingvarsson held-
ur ótrauður áfram göngu sinni
hringinn í kringum landið. í dag
kemur hann til Egilsstaða og þar
verður tekið á móti honum með
pompi og prakt.
íþróttafélög staðarins ætla að
fylkja liði og ýmislegar uppákom-
ur verða á dagskrá þegar Reynir
Pétur kemur í hlaðið.
Á sunnudag heldur hann á
Möðrudalsöræfi og þrammar að
minnsta kosti 40 kílómetra áður
en næst verður áð. Reynir Pétur
hefur nú verið hálfan mánuð á
göngu. í upphafi var gert ráð fyrir
að hringgangan tæki fjórar til
fimm vikur og að hann gengi 40
kílómetra á dag en erfitt hefur
reynst að hemja kappann og
hann farið allt upp í 70 kílómetra
á dag. Sem þykir dágóður spotti
ef farið er ríðandi.
Á meðan Reynir Pétur þram-
mar hringinn í kringum landið
streyma inn áheitaseðlar og
undirtektir fólks hafa verið mjög
góðar. aró
Hafnarfjörður
Bitist um BUH
Aðeins rœtt við Samherja ennþá en Stálskip og Þorleifur Björnsson vilja vera með íslagnum
Eg held þeir geti ekki verið svo
vitlausir að ganga frá samn-
ingum við aðra án þess að ræða
málin við okkur. Ég sé enga skyn-
semi í því. Menn hljóta að þurfa
að skoða málin frá öllum hliðum.
Ég væri ekki svo vitlaus að ætla
kannsi að bíta af mér einhverja
aðila sem hugsanlega gætu boðið
eitthvað betur en núna liggur
fyrir, sagði Guðrún Lárusdóttir
framkvæmdastjóri Stálskipa í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Stálskip hafa ásamt eigendum
Byggðarverks h/f í Hafnarfirði
Seðlabankinn
Höllin þjóðnýtt?
Efri deild vill endurskoða nýtingu á Seðlabankahúsinu ogstöðva
framkvœmdir sem ekki eru samningsbundnar.
Efri deild alþingis samþykkti í
gær að gerð verði athugun á
>ví hvernig æskilegast sé að nýta
>eðlabankahúsið og þá einkum
ívort það mundi henta fyrir
Stjórnarráð íslands. Þá verði
framkvæmdir sem ekki er búið að
semja um við verktaka stöðvaðar
meðan athugunin fari fram og
ekki hafnar að nýju fyrr en Al-
þingi hefur ákveðið hvernig
hagnýta beri húsið. Neðri deild
fær nú þingsályktunartillöguna
til meðferðar.
4 þingdeildarmenn, Haraldur
Ólafsson, Björn Dagbjartsson,
Jón Helgason og Davíð Aðal-
steinsson greiddu atkvæði gegn
tillögunni, en 13 voru henni sam-
þykkir. Davíð Aðalsteinsson, sem
er varaformaður bankaráðs
Seðlabankans sagði m.a. að þetta
væri óþörf tillaga, því útilokað
væri að stöðva nokkrar fram-
kvæmdir úr þessu. Rakti hann
síðan þá verksamninga sem búið
er að gera um allan frágang utan-
húss sem innan.
Flutningsmenn töldu engu að
síður mikinn ávinning í samþykkt
tillögunnar. Eyjólfur Konráð
Jónsson, fyrsti flutningsmaður
benti m.a. á að utanríkisráðu-
neytið sem nú ætlaði að fara að
byggja yfir sig, ætti heima í ein-
mitt þessari byggingu, en Reikni-
stofa bankanna, sem ætluð er öll
fyrsta hæðin, gæti verið hvar sem
er. Þá mætti auðveldlega koma
fleiri skrifstofum stjórnarráðsins
fyrir í þessu mikla húsi.
-ÁI
óskað eftir viðræðum við bæjar-
yfirvöld um kaup á eignum BÚH
eins og kom fram í Þjóðviljanum í
gær. Bæjarstjóri er þegar kominn
í viðræður við Samherja h/f á Ak-
ureyri sem ásamt eigendum Hag-
virkis h/f hefur boðið í eignir
BÚH. Fundur með fulltrúum
Stálskipa verður ekki fyrr en eftir
helgi, en bæjarstjóri lýsti því yfir
á bæjarráðsfundi á fimmtudag að
það myndi skýrast um helgina
hvort af samningum við Sam-
herja yrði.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans er það hugmynd Stálskipa
h/f að b/v Apríl verði breytt í
frystiskip en b/v Maf og b/v Ymir
togari Stálskipa, leggi upp afla
hjá nýju hlutafélagi sem stofnað
verði um rekstur BÚH.
Þriðji aðilinn sem óskað hefur
eftir viðræðum um kaup á
eignum BÚH er Þorleifur
Björnsson útgerðarmaður. Hann
gerir út togarann Þorleif Jónsson
sem ætlunin er að breyta í frysti-
togara en Þorleifur hefur gert
stóran samning við Heklu h/f um
sölu á fiskafurðum til Japan.
-4g-
Laugardagur 8. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3