Þjóðviljinn - 08.06.1985, Page 5

Þjóðviljinn - 08.06.1985, Page 5
INN SÝN Hraðfluga tækniþróun hefur leitt til þess að mörg nágranna- og samkeppnis- lönd íslendinga standa nú á þröskuldi sannkallaðra at- vinnubyltinga. Á forsendum hátækniþróunar og hám- enntunar vinnuafls hafa verið reistar splúnkunýjar atvinnu- greinar, svo sem rafeindaiðn- aðurog upplýsingatækni í Sví- þjóð og Skotlandi, sem veita nú þegar tugþúsundum at- vinnu. Sömuleiðis er búist við að einmitt þessar nýju há- tæknigreinar munu taka við obba þeirra sem á næstu ára- tugum mun bætast á vinnu- markað þessara landa. á langar tölur til að undirstrika fjárhagslega hagkvæmni þess fýrir fslendinga. Á ísafirði er fyrirtækið Póllinn með aðsetur. Póllinn er í fremstu röð fyrirtækja í heiminum á sviði rafeindavæðingar í fiskvinnslu. Nýlega seldi fyrirtækið þannig nýjan búnað í heilt frystihús í Al- aska. Við háskóla Islands hafa menn einnig um langa hríð gaum- gæft möguleika á meiri nýtingu tiltækrar sjálfvirkni og hátækni einmitt í fiskvinnslunni. Ný störf En það er ekki bara vegna sam- keppnisstöðunnar sem við verð- af stokkunum nýjum atvinnu- greinum, og umbylta þeim gömlu. Ekki einungis til að geta tekið við tugþúsundum vinnufús- ra handa á komandi árum, heldur líka til að geta margfaldað þjóð- arrauðinn. Ný sókn Þeir sem sitja með valdataum- ana í höndum sínum hafa hins vegar gersamlega vanrækt að veita leiðsögn í þessum efnum. Stjórnmálamenn hafa að vísu verið með túlann fullan af tísku- orðum úr atvinnulífinu en þeir reyna að svara þeim spurningum sem fram eru settar hér að ofan, reyna að lyfta sjónum okkar og lesenda upp úr venjumósku hversdagsins og benda til nýrra átta. í því andrúmslofti sem er á íslandi í dag er fátt þarfara en eimitt bjartsýn umræða um betra líf og meiri möguleika í stað hins venjubundna svartagallsrauss. Því við eigum vissulega mikla möguleika. Upplýsingatækni Ein þeirra greina sem horft er til með hvað mestri eftirvæntingu er upplýsingatækni. Með henni þarf ekki einungis að taka til fjármögnunar, heldur ekki síður til menntunar. Upplýsingatækni krefst hámenntaðs starfsfólks. Skólagöngu þarf þess vegna að miða við þetta nýja svið. Það er mikið í húfi. Miðað við 25 prósent aukningu á ári gætu verið um 18 þúsund manns innan hennar árið 2000. Það munar um minna. Fiskeldi Fiskeldi er eitt af þeim tísku- orðum sem pólitíkusarnir þreytast ekki á að nota, án þess að gera nokkuð meira en tala um það. Greinin hefur verið alger- Ný sókn í atvinnumálum Eru íslendingar að missa aflestinni? Fiskeldi og upplýsingatækni. Doði stjórnvalda. Viðþurfum meiri bjartsýni og árœði t öðrum nálægum löndum hafa einnig orðið til afar mikilvægar atvinnugreinar, sem ekki byggja beinlínis á hátækni, heldur miklu fremur sérstökum landkostum og skapa þar ómældan auð. Hér er fyrst og fremst átt við fiskeldið í Noregi, sem þar hefur farið gegn- um ævintýrlegt skeið, og í Fær- eyjum er svipuð þróun í gangi. ísland enn á eftir Það verður að segjast að í þessu tilliti höngum við íslendingar aft- arlega á merinni. Þeir sem ráða ferðinni í þjóðlífinu, flokkar og forystumenn flokka, eiga það flestir sameiginlegt - með örfáum undantekningum - að bera lítið eða ekkert skynbragð á hvernig er unnt að beisla nýfundin tækni- brögð og aðferðir í þágu inn- lendra atvinnugreina. Sumir virðast líka gersamlega lokaðir fyrir þörfinni á að beita hátækn- inni í þjónustu okkar í formi nýrra greina eða aðlagaðri að þeim hefðbundnu greinum sem eru fyrir í landinu. Sannleikurinn er þó sá, að samkeppnislöndin, t.a.m. Noregur og Kanada, eru í óða önn að taka mjög þróaðan raf- eindabúnað upp í fiskvinnslunni. Með því bæta þeir auðvitað sam- keppnisstöðuna gagnvart okkur. Við sitjum eftir, með vöru sem kostar meira að framleiða og er því erfiðari að selja. Við þurfum því að fylgja á eftir til að geta að minnsta kosti haldið í horfinu. íslenskt hugvit Það ætti í sjálfu sér ekki að verða erfitt. Þó fólk geri sér ekki grein fyrir því í nægilegum mæli, þá er staðreyndin eigi að síður sú, að við búum að ótrúlega miklu hugviti einmitt í þeim greinum sem tengjast undirstöðu okkar, fiskvinnslunni. Það er til að mynda íslendingur sem um þess- ar mundir vinnur að því að finna upp tækni sem leitar sjálfkrafa uppi og tínir í brottu hringorma úr fiskflökum. Ekki þarf að setja um að eggja okkur sjálf til dáða í nývæðingu atvinnulífsins. Við þurfum að skapa ný störf. Árið 2003 er talið að 145 þúsund manns verði á vinnumarkaði hér á landi. í dag eru þetta ekki nema 113 þúsund manns. Allri þessari viðbót þarf að finna störf. Þeir eru að vísu til sem helst vilja ekki búa til önnur störf en þau sem falla undir verslun og þjónustu. Auðvitað er fráleitt að leggjast gegn sköpun starfa í þeim grein- um. Hinsvegarer jafn fráleittt að ætla að eitt þjóðfélag geti gengið á því einu, að nærfellt allir þegn- arnir stundi verlsun við hvern annan. Þjóðfélag búðarfólks, rakara og bréfbera getur ekki staðist. Það þarf framleiðslu. Það þarf auðsköpun. Þess vegna þurf- um við að líta til nýrra átta. Við verðum að höggva strandhögg í nýjum löndum. Leggjast í víkingí veröld tækni og vísinda. Hrinda hafa vanrækt að veita svör við ýmsum knýjandi lykilspurning- um: Hverjir eru hinir raunveru- legu möguleikar í nýjum grein- um, hvað þarf miklu að kosta í rannsóknir, hvar á að leggja pen- ingana til að þeir nýtist best, hversu mikil verðmæti má ætla að nýjar greinar geti gefið af sér, og hversu margir ættu að geta haft af þeim atvinnu? Eitt af hlutverkum fjölmiðla er einmitt að koma nýjungum og ferskum hugmyndum á framfæri við fólk. Hér í Þjóðviljanum höf- um við upp á síðkastið birt grein- ar undir heitinu „Ný sókn“. Þar höfum við bryddað upp á nýjung- um og reynt að setja hluti tengda nýsköpun atvinnulífs upp í nýju samhengi. Því munum við halda áfram. Við munum freista þess að taka fyrir í sumar einstakar atvinnu- greinar og gera þeim glögg skil; er átt við ýmsar aðferðir sem hafa verið þróaðar með aðstoð tölvu- og rafeindatækni til að safna, og dreifa, vinna úr, kynna og varð- veita upplýsingar af öllu tæi. Ör- tölvutæknin og nýting hennar í hefðbundnum iðnaði er snar þáttur þessarar nýju greinar. Hér á landi er unnið afar lítið að rannsóknum og þróun á sviði upplýsingatækninnar. En við get- um litið til Svíþjóðar sem dæmi um hversu mikinn þátt greinin gæti átt í atvinnuþróun hérlendis, væri rétt á spöðum haldið. Árið 1984 voru í Svíþjóð 102 þúsund störf á sviði upplýsingatækn- innar. Ef störf í tengslum við upp- lýsingatækni væru hlutfallslega jafn mörg hér á landi, þá ættu 2880 manns að hafa af henni vinnu. í raun eru einungis um 500 landar sem starfa við þessa merku grein. Hér þarf að marka stefnu. Hún lega svelt, og yfirvöld bera nánast ekkert skynbragð á hana. Lítum, á dæmið hjá Norð- mönnum. Árið 1970 kom fyrsti ræktaði laxinn á markað þar í iandi, ári síðar framleiddu Norð- menn 100 tonn. Nú er ársfram- leiðslan hins vegar talin verða 30 þúsund tonn. Eftir tvö ár er ráð- gert að hún verði 55 þúsund tonn, verðmætin munu þá skara vel fram úr því verðmæti sem felst í þorskafla þeirra. Hjá okkur er fiskeldi ennþá vart komið af vöggustiginu. Stefnuleysi stjórnvalda ræður þar mestu, ekki síst alger doði í rann- sóknum sem eru forsenda þess að greinin nái að dafna. Hins vegar eru möguleikarnir verulegir. í skýrslu sem verið er að vinna hjá Rannsóknaráði ríkisins kemur fram, að unnt væri, við bestu að- stæður, að framleiða hér á landi 40 til 60 þúsund tonn af laxi á ári. Miðað við núverandi verðlag, kringum 200 krónur á kfló af framleiddum laxi, myndi þetta gefa af sér rúma 11 miljarða króna. Það er meira en nemur heildarvermæti þorskaflans á öllu síðasta ári. Þetta sýnir einungis þá miklu möguleika sem eru í greininni. Nýjungar Margar fleiri greinar mætti nefna. Fullvinnsla sjávarafla er talin myndu gefa af sér hálfan sjötta miljarð íslenskra króna á ári. Líftækni gæti orðið að veru- lega arðgæfri atvinnugrein hér á landi. Við höfum hráefni, orku og vísi að vel menntuðum mann- afla. Efnistækni er enn ein nýj- ungin, sem á eftir að koma við atvinnusögu íslendinga á næstu áratugum, þó enn sé hún lítt þekkt. En þetta kostar hins vegar hug- vit, tíma og fé. Það þarf að skipu- leggja rannsóknir og menntun. Þetta tvennt, rannsóknir og skólun eru höfuðforsendur áran- gurs. Þar þurfa landsfeður og mæður betur um að véla en hing- að til. Möguleikarnir eru miklir, menn verða bara að gera sér grein fyrir þeim og einhenda sér svo í starfíð! Össur Skarphéðinsson Laugardagur 8. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.