Þjóðviljinn - 08.06.1985, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 08.06.1985, Qupperneq 8
MENNING Kennarar Kennara vantar að grunnskólum Kópavogs. Kennslugreinar: Samfélagsfræði og almenn kennsla. Upplýsingar í síma 14863. Skólafulltrúi. Atvinna Heimilishjálpin í Kópavogi óskar eftir starfsfólki nú þegar. Möguleikar á hlutavinnu. Uppl. veitir forstöðu- maður heimilishjálparinnar í síma 41570. Félagsmálastofnun. FÉLAGIÐ SVÖLURNAR Félagið Svölurnar auglýsir lausa til umsóknar styrki til framhaldsnáms erlendis í kennslu og/eða þjálfun fjöl- fatlaðra barna. Umsóknir, ásamt upplýsingum um námsferil og fyrir- huguð námslok, skulu hafa borist félaginu fyrir 1. ág- úst, 1985. Svölurnar, Pósthólf 627, 101 Reykjavík. Frá Gagnfræðaskólanum í Mosfellssveit Kennara vantar að skólanum næsta skólaár. Kennslugreinar: íslenska, erlend mál, stærðfræði, raungreinar, samfélagsfræði, hannyrðir og smíðar. Upplýsingar gefur Gylfi Pálsson, skólastjóri, sími 666186/666153. ID IANDSVIRKJUN Vinnubúðir til sölu Landsvirkjun áformar að selja, ef viðunandi tilboð fást, vinnubúðir við Búrfells- og Hrauneyjafossstöð. Um er að ræða eftirtalin hús: Við Búrfellsstöð: 12 hús, stærð 2,5 x 7,5 m 3 hús, stærð 2,5 x 5,1 m 1 hús, stærð 2,5 x 3,1 m Við Hrauneyjafossstöð: 1 hús, stærð 415 m2 Dagana 11.-13. þ.m. munu starfsmenn Landsvirkjun- ar sýna væntanlegum bjóðendum húsin, en aðeins frá kl. 9-22. Nánari upplýsingar veitir innkaupastjóri Landsvirkjun- ar. Tilboð þurfa að berast Landsvirkjun, innkaupadeild Háaleitisbraut 68, 108 Reykjavík, eigi síðar en 19 þ.m. Eiginmaður minn, faðir okkar og afi Einar H. Guðmundsson frá Flekkuvík lést á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn þann 26. maí 1985. Útför hans hefur farið fram. Margrét Jónsdóttir Þorsteinn B. Einarsson Hrefna S. Einarsdóttir Hansína B. Einarsdóttir Bryndís Einarsdóttir Guðrún A. Einarsdóttir Guðmundur Einarsson Einarin Einarsdóttir Gunnar J. E. Einarsson Pálmi Einarsson Olga Soffía Einarsdóttir og barnabörn. Ættfrœði Niðjatal frá Króki í Ölfusi Komið er út Niðjatal Sigurðar Þorbjörnssonar og Ingigerðar Björnsdóttur frá Króki í Ölfusi sem Magnús Þorbjörnsson prent- ari hefur tekið saman. Bókin er prentuð á vandaðan pappír og vel frá gengin að öllu leyti. Auk niðjatals er formáli, ágrip af framættum og nafnaskrá. Fjöldi mynda prýðir bókina. Hjónin á Króki lifðu fram undir miðja þessa öld og eignuð- ust 9 börn sem upp komust. Eru nú fjórir ættliðir frá þeim komnir og niðjarnir eru 266 talsins þegar bókin kom út. Sumarhátíð Dómkórsins Á sunnudaginn, 9. júní, mun Dómkórinn í Reykjavík skemmta yngri sem eldri borgurum Reykjavíkur. Hefst skemmtunin kl. 14.00 í Oddfellowhúsinu við Tjörnina með sérstakri barnadagskrá en kl. 16.00 verður dagskrá fyrir fullorðna. Skólahljómsveit Kópavogs leikur undir stjórn Björns Guð- jónssonar kl. 13.30-14.00 við Tjörnina. Þá byrjar barna- skemmtun í Oddfellowhúsinu og skemmta þar Ragnhildur Gísla- dóttir og Leifur Hauksson, með- limir Dómkórsins sýna brúðu- leikhús, Þorsteinn Gunnarsson leikari segir sögu og nemendur úr Dansskóla Sigurðar Hákonar- sonar sýna dans. Einnig verður brugðið á leik með börnunum og að lokum verður leikfanga- happdrætti. Kl. 15.30 leikur Hornaflokkur Kópavogs á Austurvelli undir stjórn Björns Guðjónssonar, en kl. 16.00 verður dagskrá fyrir eldri kynslóðina í Oddfellowhús- inu. Þar koma fram félagar úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur, einsöngvararnir Elín Sigurvins- dóttir og Sigrún V. Gestsdóttir, Skólakór Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur og Dóm- kórinn. Fyrir börn verður þá ví- deósýning í húsinu. Aðgangseyrir á Sumarhátíðina verður kr. 50.00, en Dómkórsfé- lagar munu einnig selja kaffi, kökur, gos og sælgæti í húsinu á vægu verði. Þjóðleikhúsið Viðurkennlngar úr Listdanssjóði Þriðjudaginn 28. maí sl. lauk vetrarstarfi Listdans- skóla Þjóðleikhússins með ár- legri nemendasýningu skól- ans að viðstöddu fjölmenni. í lok sýningarinnar voru veittar viðurkenningar frá skól- anum og úr Listdanssjóði Þjóð- leikhússins. Listdansskólinn veitti í fyrsta skipti viðurkenn- ingu „fyrir góða ástundun og framfarir í náminu“ og hlaut hana Helena Jónsdóttir nemandi í 3. flokki. Viðurkenningar úr List- danssjóði Þjóðleikhússins hlutu að þessu sinni Eva Hallbeck nem- andi í skólanum, og hópur dans- ara úr íslenska dansflokknum, sem hyggst fara og sýna á Ung Nordisk Kunstfestival, sem hald- ið verður í Stokkhólmi nú í ágúst. Hjónin Sigurður Þorbjömsson og Ingigerður Björnsdóttir ung að árum. Tónlist Ungir söngvarar í söngferð Dagana 11.-16. júní ætla ungir söngvarar, Sólrún Bragadóttir og Bergþór Páls- son, að halda tónleika í Borg- arfirði og á Norðurlandi, með píanóleik Jónasar Ingimund- arsonar. Bergþór Fyrstu tónleikarnir verða í Logalandi í Reykholtsdal þriðju- dagskvöldið 11. júní kl. 9, síðan þann 12. júní kl. 9 í Miðgarði í Skagafirði, þann 13. júní kl. 9 í Húsavíkurkirkju, þann 14. júní kl. 9 í Skúlagarði í Kelduhverfi, þann 15. júní kl. 4 í Skjólbrekku í Sólrún Mývatnssveit og þann 16. júní kl. 4 í sal Menntaskólans á Akureyri. Á söngskránni verða íslensk og erlend einsöngs- og tvísöngslög. Þau Sólrún og Bergþór hafa stundað söngnám og tónlistar- nám í tónlistardeild háskólans í Bloomington í Indiana í þrjú ár. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN! Laugardagur 8. júní 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.