Þjóðviljinn - 08.06.1985, Side 9
GEK5ÍP"
FERÐATÖSKUR
SKJALATÖSKUR
SNYRTITÖSKUR
Þórður frá Dagverðará við nokkrar af myndum sínum.
Akureyri
Málverkasýning Þórðar
frá Dagverðará
HMGSTMV-f
VERD!
Viðskiptavinir Heklu!
Við bendum á hagstætt
verð á Bremsuklossum.
Komið og gerið góð kaup.
Bremsuklossar í: Verð kr.:
Golf ...................... 350
Jetta ..................... 350
Passat .................... 360
Colt ...................... 360
Lancer..................... 350
Galant .................. 355
Pajero .......<........... 550
RangeRoverfr............... 610
Range Rover aft.............490
VIÐURKENND VARA fpl
MEÐ ÁBYRGÐ 1 ^ '
SAMA VERÐ
UM LAND ALLT!
RAIMGE ROVER
fulHEKLA
J“*Jj Laugavegi 170 -172 Sír
HF
Sími 21240
Þórður Halldórsson frá
Dagverðará opnar n.k.
sunnudag málverkasýningu í
golfskálanum að Jaðri á Akur-
eyri.
Þetta er 11. einkasýning Þórð-
ar hér á landi.
Myndimar sem Þórður sýnir
að Jaðri eru um 30 talsins og em
allt olíumálverk. Þau em flest
máluð á Snæfellsnesi og endur-
spegla kraftinn undir Jökli sem
hvergi er til annarsstaðar að sögn
Þórðar.
Þórður er sjálfmenntaður mál-
ari og hefur fylgt ráðleggingu
prófessors við sænskan listaskóla
sem sagði honum „að gefa djöful-
inn í alla lærða og leikna og mála
beint frá hjartanu“.
Sýning Þórðar að Jaðri hefst
sem fyrr sagði n.k. sunnudag og
stendur hún til fimmtudags-
kvölds. Hún er opin á sunnudag
kl. 14-20 og virka daga kl. 16-22.
Ljóöskáldið sjálft er aðalsöluaðili. Hér situr Finnur í Austurstræti við sölu á bók
sinni. Ljósm. Valdís.
Ljóðabók
Slœgðir
straum-
fiskar
nœtur
Þann 30. maí kom út Ijóða-
bókin „Slægðir straumfiskar
nætur“ eftir Finn Magnús
Gunnlaugsson (27). í bókinni
eru 35 Ijóða og kveðskapar-
titlar á verkum sem samin eru
átímabilinu 1976-85. Bókinni
er skipt niður í þrjá mislanga
kafla sem bera heitin „Leikur í
Ijóðurn1', „Saklaus andvörp"
og „Bullubögur“ en að öðru
leyti hefst bókin á verki sem
kallað er „Forlýsing“ og lýkur
henni síðan á samsvarandi
hátt á „Eftirlýsingu".
Þetta er fyrsta ljóðabók höf-
undar sem gefur út á eigin kostn-
að og er jafnframt aðalsöluaðili.
Þó er stefnt að því að hægt verði
að fá bókina í stærstu bókaversl-
ununum. Við útgáfu bókarinnar
hefur verið vandað til uppsetn-
ingar ljóðanna og annars útlits.
Bókin er tölvusett í Prentstofu G.
Benediktssonar en önnur vinnsla
fór fram í Mo í Rana í Noregi þar
sem höfundurinn býr nú um
stundarsakir. í lok umsagnar um
höfund á baksíðu bókarinnar
segir: „Finnur hefur hlammað sér
á skáldabekkinn“.
Bókarverð í sölu frá höfundi er
kr. 350,- og mun hann reyna að
halda því svo, haldist verð á
helstu nauðsynjavörum á íslandi
innan núverandi marka. Bókin er
60 síður, pappírskilja í A-5 broti.
Ný snœlda
Vor Þorlákur
Nú er komin kassetta
(tónsnælda) þar sem Barna-
kór Þorlákshafnar flytur fjöl-
breytta tónlist með aðstoð
ýmissa valinkunnra manna.
Kassettan ber nafnið; Vor
Þorlákur og geymir hún 20 lög.
Tónlistin spannar hið breiða svið
frá 15. aldar endurreisnartónlist
til nútíma dægurflugu. Þar á milli
nægir að nefna tónlist eftir Bach,
þjóðlög frá ísrael og Albaníu svo
og lög eftir vor eigin ágætu tón-
skáld: Jón Ásgeirsson og Atla
Heimi.
Undirleikarar kórsins voru
Jónas Ingimundarson píanó-
leikari. Glúmur Gylfason organ-
isti Selfosskirkju, Gísli Helgason
er lék á flautu af sinni kunnu ein-
lægni, þá léku einnig með kóm-
um stjórnandi hans Hilmar Örn
Agnarsson, Jóhannes Helgason
og Helgi E. Kristjánsson. Helgi sá
einnig um upptökurnar ef undan
er skilin hljóðritunin úr Lang-
holtskirkju sem gerð var af Ríkis-
útvarpinu undir handleiðslu
Bjarna Rúnars Bjarnasonar.