Þjóðviljinn - 08.06.1985, Side 12
DÆGURMAL
Ástarjátning
Nýtt, breytt og gamatt
Ástarjátning Gísla Helga-
sonar lætur Ijúflega í eyrum
eins og viö var að búast. Hins
vegar kom undirrituðum að-
dáanda hans á óvart hversu
heilsteypt hún er því að lögin
eru af ýmsum eldri plötum
Gísla nema hvað sum þeirra
eru lítillega breytt, en 6 (af 15)
hafa ekki heyrst áður hér.
Gísli Helgason hefur mjög svo
sérstakan stfl sem lagahöfundur
og flautuleikari er hann snjall. Til
dæmis þar um má taka Búálfa-
sprell hans, eitt nýju laganna á
Ástarjátningu, þar sem Gísli fer á
kostum á flautunni viö öruggan
gítarundirleik Helga Eiríks Krist-
jánssonar fjölmúsíkants. Þeim
nafnbræðrum Bakkabræðra læt-
ur einkar vel að vinna saman,
eins og enn frekar má heyra á
plötu bræðranna Gísla og Arn-
þórs Heigasona í bróðerni, þar
sem Helgi sýnir getu sína sem út-
setjari og allskyns hljóðfæraleik-
ari. Af bróðernisplötunni eru
reyndar 3 lög á Astarjátningu:
Kvöldsiglingin góða, Vest-
mannaeyjarnar frægu (eftir Arn-
þór sem sungnar hafa verið bæði í
Færeyjum og Kína) í endurbættri
útgáfu og Ástarjátning í „sæn-
skri“ útgáfu síðan 1981.
Gísli er, eins og a.m.k. vísna-
vinir og kráagestir vita, í hljóm-
sveitinni HÁLFT í HVORU og
af plötum þeirra eru á Ástarjátn-
ingu;' timburmannalagið „The
day after the night before“; Sitt-
hvað er bogið eftir Aðalstein Ás-
berg sem auk þess á hrós skilið
fyrir sómasamlegan texta um
Stúlkuna sem bíður unnusta síns
(upphaflega á plötu Vísnavina)
eins og Lennon, sem líka prýðir
Ástarjátningu); og loks lag Vict-
ors Jara Plógurinn, sem Gísli
syngur sjálfur einkar viðkunnan-
iega, þótt enginn stórsöngvari sé
hann. Og í framhaldi af söngn-
um... hann er kannski það eina
aðfinnsluverða við Ástarjátn-
ingu: Ólafur Þórarinsson er
reyndar góður söngvari - má
kannski segja að hann sé einum
of stífur og skilmerkilegur í
Haustsiglingu, en röddina hefur
hann á hreinu; áður er nefndur
viðfelldin meðferð Gísla á
Plógnum, en ekki er hægt að
hrópa húrra fyrir söngnum í
Peyjaminningu, Ungri stúlku
sem bíður unnusta síns eða Vor-
inu okkar, sem er reyndar skárst.
Nýju lögin á plötunni eru Vor-
ið okkar. Búálfasprell, Áfram-
hald, Peyjaminning, Uppgjör og
Jámtlenskur brúðarmars. Óll eru
þau marki Gísla brennd, kannski
frekar kysst - vekja hjá manni
tilfinningu um eins konar blíðan
andvara, jafnframt hressandi, fá
mann til að hugsa um Vest-
mannaeyjar og hressandi sjávar-
loft enda þótt heitara blási af
lögum Gísla en hafinu. Og þótt
stundum megi greina áhrif
Oddgeirs Kristjánssonar helsta
þjóðhátíðarlagahöfunds þeirra
Vestmannaeyinga, þegar Gísli
verður hvað „þjóðlegastur" og
gefur sig minningum á vald, þá er
Gísli Helgason mjög sérstakur á
íslenska hljómlistarsviðinu. Það
er kannski þess vegna sem manni
finnst óþarfi að hann skuli spila
næsta óbreytt lag Stevies Wonder
I just called to say I love you - ég
hefði frekar viljað hafa það
Gíslalegra á þessari plótu til til-
breytingar frá upprunalegu út-
gáfunni. Annars er skýringu að
finna í albúminu fyrir veru lagsins
á Ástarjátningu, það er spilað
fyrir Herdísi (reyndar af henni á
bassa og hljóðgervil, ásamt öðr-
um) þannig að afinnsiur mínar
falla auðvitað eins og hjóm
gagnvart þessari staðreynd. Og
er þá kominn tími til að slá botn-
inn í skrifin og óska Gísla til
lukku með báðar hliðar plötunn-
ar, H og G.
A
P.S.! Ástarjátning er gefin út til
styrktar útgáfu á bókum á
blindraletri og rennur allur ágóði
af sölu hennar til þess verkefnis.
Allir sem við sögu hennar komu
gáfu sína vinnu.
Gísli Helgason, teikning eftir Þórhildi
Jónsdóttur á umslagi Ástarjátningar.
Upplýsingar, bæði á íslensku og
ensku á albúmi og textablaði eru
greinargóðar og til fyrirmyndar.
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 8. júní 1985
Harkan
sex
Mértil mikillar samgleöi meö
Drýsli sá ég aö platan Wel-
come to the show er í þriðja
sæti yfir söluhæstu plötur
landsins samkvæmt „einu
dagblaöanna", eins og venj-
an er að segja til að vera ekki
að auglýsa „óvinina" upp (í
þessu tilviki skal upplýst að
fyrsti stafurinn á þessu „einu
dagblaðanna" er DV). Drýsill
á heiður skilinn fyrir atorku-
semi í hljómleika- og væntan-
lega dansleikjahaldi til að
hrista drungann af diskó-
ákveðnum æskulýð og von-
andi að þeir fái uppskeru erf-
iðisins.
Drýsill hefur stimpilinn þunga-
rokk að draga og það er svo sem
allt í lagi nema hvað hann gæti
fælt frá þá sem ekki telja sig til
söfnuðar þungarokkara. En,
góðir hálsar, látið ekki slíkan
dilkadrátt hindra ykkur frá sam-
neyti við Drýsil, því að hér er ein-
faidlega kraftmikið rokk á ferð-
inni, vel flutt enda enginn viðvan-
ingsbragur á ferðinni þótt fyrsta
plata sveitarinnar sé. Drýsill er
flokksnafn þeirra Eiríks Hauks-
sonar söngvara, Sigurðar Reynis-
sonar trommara, Jóns Ólafs-
sonar, þess óbugandi bassa-
*'t
Rokkverkamennirnir Drýsill: Sigurgeir, Eiríkur, Jón, Einar, Sigurður.
leikara, sem er búinn að vinna í
rokkinu meira en 15 ár, og gítar-
leikaranna Einars Jónssonar og
Sigurgeirs Sigmundssonar sem
einnig leikur á hljómborð (Sig-
urgeir gekk í hljómsveitina eftir
að platan var tilbúin), en allir
þessir menn hafa verið viðloð-
andi sveitir eins og Start, Pelican
og Þrumuvagninn.
Á frumplöturaun Drýsils eru 8
frumsamin lög, flest eftir Eirík,
og er skemmst frá því að segja að
þau gefa ekki eftir því sem ég hef
heyrt á nýlegum enskum rokk-
plötum í þessum stfl. Sérstaklega
er Left Right grípandi og norska
melódían sem Eiríkur samdi tex-
ta við og nefnist Little Star, eða
Rólega lagið.
Eins og áður sagði eru hljóð-
færaleikarar mjög öruggir á
Welcome to the show og Eiríkur
ljómandi söngvari - að vísu ekk-
ert sérstakt á heimsmælikvarða
að gerast hjá þeim, en ég held að
Drýsill sé yfir meðallag samt á
þeim markaði. Og hver veit hver
útkoman yrði ef sérfræðingar
hefðu fengist í tæknivinnuna?
Sem sagt, mesta sómaplata, en
þó ekki svo á alheimskvarða að
ekki hefði mátt syngja á íslensku.
Annars eru enskir textar Eiríks
ekki vondir, en mín skoðun er sú
að íslenskir textar leiddu frekar
til vinsælda plötunnar og lang-
lífis. Þar að auki ætti íslenskan að
falla vel að svona kröftugu rokki,
eins hörð og hún er. Það held ég
að Bubba hafi gengið vel að rífa
kjaft við undirleik Utangarðs-
manna og afnumið þar með það
hallærisorð sem loddi við sam-
runa íslenskra texta og rokks.
Hins vegar er Drýsill gott nafn og
fær prik fyrir það og dug og dáð.
A