Þjóðviljinn - 08.06.1985, Qupperneq 15
Ástralskar groöurmottur á markaðnum
Enviromat er áströlsk uppfind-
ing og framleitt þar i landi. En-
viromat er motta úr viðarull sem
er haldið saman með gegnofnu
neti ur polypropylen. Viðarullin
er framleidd úr furu eða greni.
Mottan er 1200 mm breið og 40-
70 m löng. Hún kemur frá verk-
smiðjunni uppvafin í plastpoka.
Hver poki vegur um 20 kg.
Enviromat er ætlað að veita
grasfræi ákjósanleg skilyrði til
vaxtar, þ.e. veita skjól og hindra
uppgufun frá jarðvegi. Að ein-
hverjum gefnum tíma liðnum
hverfur Enviromat gróðramottan
gersamlega. Þetta er því tæknileg
lausn til að rækta upp land,
gjarnan við annars erfið skilyrði,
þar sem eitthvað er í húfi og aðrar
leiðir til ræktunar eru ekki til
staðar, dýrari eða óhentugri.
Kostir Enviromat eru m.a.
eftirfarandi:
1. Það væri fáanlegt allt árið og
alls staðar.
2. Það er auðvelt í lagningu vegna
þess hve létt það er.
3. Unnt er að velja grasfræ.
4. Enviromat er við gefin skilyrði
hagkvæm lausn.
Enviromat gróðrarmotturnar
ættu að henta við eftirtaldar að-
stæður m.a.
1. í brekkum: Við vegarstæði,
brúarsporða, rofaborð, farvegi.
2. A ógrónum sand eða vikur-
flákum. Enviromat bindur saman
stóra fleti, þar til ræktun hefur
tekið við.
3. Hitaveitustokkum. - Einviro-
mat minnkar uppgufun.
4. Hálendi. Enviromat er léttara
og aðgengilegra en torf og fæst
fyrr á árinu. Það gæti hentað til
ræktunar á stíflugörðum og
spennustöðvum við sæluhús og
annars staðar, þar sem ástæða er
til að hefta fok og vernda
mannvirki.
5. Á lóðum. Enviromat yrði fáan-
legt snemma að vori og væri ódýr-
ara en torf. Það er einnig kostur
að geta valið grasfræ og útiloka
mosa.
Enviromat er dýrara en áburð-
ur og grasfræ en ódýrara en torf
og er auk þess hentugra en torf til
margra nota. Markaður fyrir
þessa vöru ætti því að geta verið
umtalsverður.
Við lagningu Enviromat, þarf
fyrst að jafna jarðveg undir,
dreifa áburð og sá grasfræi. En-
viromatmottunni er síðan rúllað
yfir staðinn og fest með hælum.
Hver motta nær um 10 sm inn í
næstu við hliðina.
Hráefni í Enviroment gæti ver-
ið innlent' (rekaviður) eða inn-
flutt, en markaður þess yrði um
allt land. Stofnkostnaður við
verksmiðju er hóflegur og nokk-
uð góðar líkur á á arðbærri fram-
leiðslu.
HAGSTJETW
VERB!
Tökum á...
tækin vantar!
FJÁRÖFLUN 7. OG 8. JÚNÍ
til tækjakaupa fyrir
væntanlega
hjartaskurðdeild Landspítalans
Viðskiptavinir Heklu!
Við bendum á hagstætt
verð á dempurum.
Kemið og gerið góð kaup.
Demparar í: Verð kr.:
Golffr. ................... 1.390
Jetta fr. .................. 1.390
Pajero fr. ................ 1.250
Coltfr. ................... 1.550
Galant fr. ................ 1.550 *
Galantaft. .................. 990
RangeRover................. 1.220
VIÐURKENND VARA
MEÐ ÁBYRGÐ
SAMA VERÐ
UM LANDALLT!
LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKUNGA
RAIMGE ROVER
0HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240
Ronja
ræningjadóttir
Elsku Míó
minn
395.- \<r. 298
Teiknimynda
sagan um
Línu langsokk
kr. 298.
Bróðir minn
Ljónshjarta
kr. 298-
Nýjasta
bókin um
Karl Blomkvist
422.-
Gefum þam góðar bœkur Bœkur
Astrid Lindqren
ÞEKKIR ÞÚ