Þjóðviljinn - 29.06.1985, Page 1
SUNNUDAGS-
BLAÐ
MENNING
Hjónagarðar
Ut eftir 7 daga
Félagsstofnun stúdenta segir upp leigjendum íHjónagörðunum
vegna deilu um húsaleigu. Þeirsem hafa leigtskemur en ár
fengu viku uppsagnarfrest.
OHum íbúum Hjónagarðanna
hefur verið sagt upp íbúðum
sínum. Þeir sem búið hafa
skemur en eitt ár hafa sjö daga til
að rýma þær.
Öðrum hefur verið gefinn
frestur til 1. október. íbúar og
eigendur Hjónagarðanna, sem er
Félagsstofnun stúdenta deila um
hækkun á húsaleigunni. fbúarnir
hafa gripið til þess ráðs að greiða
ekki júní-leiguna til að leggja á-
herslu á að reynt verði að komast
að samkomulagi í þessu máli.
„Þessi vinnubrögð eru fyrir
neðan allar hellur. Við höfum
marg sinnis farið fram á viðræður
við Félagsstofnun um leiguna og
þeirri viðleitni okkar er nú svarað
með uppsögninni. Við skiljum
ekki svona vinnubrögð,“ sagði
Óiafur Örn Ólafsson en hann á
sæti í nefnd sem fjallar um
ieigumálin fyrir íbúana.
Hann sagði ennfremur að íbú-
arnir hafi ekki geta samþykkt að
húsaleigan hækkaði úr 4000 í
5280 frá 1. júlí n.k. fyrir 36 fer-
metra íbúð. „Við getum ekki sætt
okkur við þann grundvöll sem
leigan er reiknuð út eftir. Jafnvel
þótt við gerðum það, er þetta of
mikil hækkun samkvæmt okkar
útreikningum,“ sagði Ólafur.
Hánn bæti við, að með rafmagni
og hita þyrftu íbúarnir sem allir
eru námsmenn og meirihlutinn
einstæðar mæður, að borga 7800
krónur á mánuði eftir 1. júlí, ef
hækkuni yrði eins mikil og Fé-
lagsstofnun hefur ákveðið.
-SG
A kureyrarsamningar
Fordæmi fyrir áramótin
Bœjarstarfsmenn á Akureyri fá típrósent framyfir.
„Hann er mikill egóisti og
lítið fyrir nýjungar. En þegar hann
kemst upp á lagið með eitthvað,
er hann mjög iðinn. Núna er hann
t.d. byrjaður að leika sér meö
körfubolta og er hann mjög
seigur. Ég er líka nýbyrjaður að
bursta í honum tennurnar og hon-
um þykir það égætt. Hann vill láta
klappa sér og klóra," segir há-
hyrningatamningameistarinn í
Sædýrasafninu, Gunnar Jóns-
son, sem hér sést bursta tennurn-
ar I háhyrningnum, sem hann hef-
ur verið að temja að undanförnu.
„Hann er bráðgáfaður, en skap-
stór og móðgunargjarn,“ sagði
Gunnar ennfremur. Ljósm.E.OI.
Borgaryfirvöld
Neita að sýna
skipulagið í
Laugarnesinu
Hin mikla andstaða sem kvikn-
að hefur vegna fyrirhugaðrar
vegarlagningar þvert yfir útivist-
arsvæðið á Laugarnestanga virð-
ist hafa rugiað borgaryfirvöld í
ríminu og neita þau nú að sýna
tillögur sínar opinberlega. Borg-
arskipulagið neitaði a.m.k.
þremur fjölmiðlum um uppdrátt
af nesinu og veginum í gær og full-
trúi Alþýðubandalagsins í um-
hverfismálaráði fékk skrifiega
neitun forstöðumanns Borgar-
skipulags um þennan sama uppd-
rátt.
Meðal þess sem borgaryfirvöld
neita að sýna almenningi er 50%
stækkun á lóð tollvörugeymsl-
unnar, 4000 fermetra lóð undir
nýja skrifstofubyggingu Olís sem
festir olíugeymasvæðið á nesinu í
sessi auk vegarins sem á að skera
útivistarsvæðið og leiða til fram-
tíðarhafnar norðan á nesinu. Ber f
forstöðumaður Borgarskipulags
því við/að málið sé í vinnslu og
því telji hann ekki rétt að afhenda
tillöguna sem hefur þó í tvígang
verið á dagskrá í umhverfismála-
ráði á síðustu vikum.
-GFr
Síðdegis í gær voru undirritað-
ir samningar bæjarstarfs-
manna á Akureyri, og fá þcir 10-
15% meiri hækkun á laun en sam-
ið var um hjá ASÍ og BSRB. Þessi
hækkun er til að samræma kjör
bæjarstarfsmanna við laun á al-
mennum vinnumarkaði á Akur-
eyri. Samkvæmt könnun sem
samningsaðilar stóðu að eru laun
bæjarstarfsmanna um fimmtungi
lægri en fyrir hliðstæð störf hjá
öðrum vinnukaupendum.
„Þetta er mjög góður samning-
ur hjá þeim,“ sagði Haraldur
Hannesson formaður Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborg-
ar. Haraldur sagði að önnur félög
bæjarstarfsmanna væru ekki með
opinn sérkjarasamning og yrðu
að una skammtímasamningi til
ársloka einsog ASÍ og ríkisstarfs-
menn. „En þettaerfordæmi uppá
samningana um áramót.“
„Þetta sýnir okkur hvað raun-
verulega er að gerast í launamál-
um í landinu,“ sagði Haraldur
Steinþórsson varaformaður
BSRB um Akureyrarsamning-
ana. „Við höfum lagt fram sömu
upplýsingar um kjör á almennum
vinnumarkaði, en það hefur
aldrei náðst fram.“
Akureyrarsamningurinn gerir
alls ráð fyrir 30-35% launahækk-
un og gildir til 1. mars- -m