Þjóðviljinn - 29.06.1985, Blaðsíða 9
„Á sýningunni verða ýmis
sjónlistarefni og grafík en ég
verð bara með málverk. Við
vorum að útskrifast úr grafík-
deildinni í vor en ég gerði
þessi málverkmértil
skemmtunar í vetur, þetta eru
alltsjálfsmyndir". Þettasagði
Magnús Þór Jónsson, sem
betur er þekktur undir nafninu
Megas, í samtali við Þjóðvilj-
ann. Hann og Grafíska
Meyjafélagið opna á morgun
sýningu í Flotta galleríinu að
Vesturgötu 3.
Grafíska meyjafélagið og Magnús. F.v.:
Gússí.
Margrét, Sigrún, Anna, Magnús og
Flotta galleríið
Sýning Magnúsar
og Grafíska
meyjafélagsins
Megas sagði að sýningin yrði
opnuð kl. 8 og þar verður ýmis-
legt til hátíðabrigða svo sem
ljóðalestur og klarinettuleikur.
Hún verður opin næstu þrjár vik-
ur kl. 1-6 síðdegis daglega nema á
mánudögum. Þar sýnir Anna
Líndal dúkristur sínar og er
myndefnið forn og ný fjölskyldu-
drömu, Guðný Björk sýnir mál-
aðar myndir eins og henni einni
er lagið, Margrét Birgis verður
með blandað sjónlistarefni í anda
Grafíska Meyjafélagsins og
Magnúsar en Sigrún Ögmunds
birtir myndir er fjalla um samspil
manns og hljóðfæris, ennfremur
málaðar grafískar mannamyndir.
-GFr
Náttúrufrœði
Skemmtiganga
í Reykjavík
Sunnudaginn 30. júní gengst
áhugahópur um byggingu
náttúrufræðisafns fyrir kynn-
ingardegi þar sem viðfangs-
efnið verður gróður landsins.
Hann hvetur alla sem vettling
geta valdið til þess að fara í
skemmtigöngu í Reykjavík,
en lagðir hafa verið góðir
göngustígar sem tengja sam-
an Laugardal, Elliðaárdal og
Fossvogsdal.
Ef farið er frá Laugardal, er
tilvalið að skoða fyrst grasagarð
Reykjavíkur sem er sannkölluð
vin og ævintýraheimur. f>ar eru
skógarlundir, sólríkar flatir og
ótrúlega fjölbreytt safn plantna. I
garðinum eru um 3000 plöntuteg-
undir, þar af um 300 íslenskar.
Allar eru þær vel merktar. Nú er
unnið að því að koma upp ís-
lenskum vatnaplöntum í garðin-
um og einnig er verið að útbúa
hellulagt svæði upp við lítið garð-
hús. Þar verða borð og stólar með
innrauðum lömpum yfir og verð-
ur yndislegt að setjast með nesti í
sumaryl, þótt kvöldnepjan sé allt
um kring.
Eftir hádegi á sunnudaginn
verður forstöðumaður garðsins
til viðtals og leiðbeininga. Einnig
verða sérstaklega merktar þær
plöntutegundir sem vaxa í Elliða-
árdalnum og gestir geta fengið
með sér lista yfir þær tegundir
sem þeir finna á göngunni.
Göngustígurinn t Elliðaárdalinn
liggur meðfram Suðurlandsb-
raut, allt frá Reykjavegi.
Skógræktarstöðin í Fossvogi
verður opin. Þar eru á annað
hundrað tegundir trjáplantna,
flestar vel merktar. Svæðið er um
15 hektarar að stærð með
skemmtilegum gönguleiðum. En
þar er fleira en tré. Vissir þú, að
þar er einn stærsti náttstaður
þrasta á norðurhveli jarðar? Eða
að þar má stundum sjá ýmsa flæk-
ingsfugla sem annars íifa ekki á
íslandi? Eða að margar trjáteg-
undir eru forsendan fyrir því að
sveppir geti þrifist? Ekið er að
stöðinni frá Háaleitisbraut, en frá
Fossvogsvegi, ef komið er norður
Hafnarfjarðarveginn. Göngu-
stígurinn í Elliðaárdalinn liggur
frá neðsta hluta
skógræktarstöðvarinnar, inn
Fossvogsdalinn, og göng eru
undir Reykjanesbrautina á móts
við Blesugróf.
Þess má einnig geta, að Skóg-
ræktarfélag Reykjavíkur áformar
að innrétta náttúrufræðistofu að
Elliðavatni. Par mun væntanlega
verða unnt að kynna almenningi
og skólum skóga og dýralíf þeirra
á sýningum í tengslum við fólk-
vanginn í Heiðmörk, og gera
fólki þannig kleift að njóta enn
frekar náttúrunnar á því svæði.
Á sunnudaginn verða starfs-
menn skógræktarstöðvarinnar í
Fossvogi gestum til leiðbeiningar
eftir hádegi og heitt á könnunni á
sölusvæði stöðvarinnar. Einnig
verður plöntusalan opin.
í leiðinni viljum við minna á
það sem er hægt að sjá á sýning-
um um náttúru landsins á höfuð-
borgarsvæðinu um þessar mund-
ir.
I anddyri Norræna hússins
stendur yfir bráðfalleg sýning
áhugamanna á steinum og er hún
opin kl. 9-19 mánud.-laugard. og
12-19 sunnudaga.
Náttúrugripasafnið, Hverfis-
götu 116 (við Hlemmtorg), gengið
inn gegnt lögreglustöðinni, er
opið kl. 13.30-16 sunnud.,
þriðjud., fimmtud. og laugard.
Náttúrufræðistofa Kópavogs,
Digranesvegi 12, jarðh. er opin
miðvikudaga og laugardaga kl.
13.30-16. Þar stendur yfir merki-
leg sýning þar sem kynnt er líf-
eðlisfræði hvala, starfsemi þeirra
og það vistkerfi sem þeir búa í.
Líkön í réttum hlutföllum eru af
öllum hvalategundum sem fund-
ist hafa við ísland og fleira for-
vitnilegt um þeirra hagi. Einnig
er þar mjög falleg skeldýrasýn-
ing.
BESSASTAÐAHREPPUR
SJCJUFSTOFA, BJARNASTODUU SÍMl: 31930
221 BESSASTABAHJtBPPUR
Kennara vantar að
Álftanesskóla
Lausar eru kennarastööur viö Álftanesskóla í Bessa-
staðahrepp.
Kennslugreinar: Stuðnings- og hjálparkennsla (full
staða), myndmennt og almenn bekkjakennsla.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 91-53828
eða 91-12259.
Auglýsing
Sjúkrasamlag Kópavogs flytur
skrifstofu sína að Hamraborg 7 2.
hæð, 1. júlí n.k.
FRAMBRETTI
Audi 100 77 - '85
BMW 316/320 7 5 82
Citroén GS/GSA 71 —'85
Datsun 120Y 74 '78
Ford Cortina '77 — '79
Lada Sport 78- '85
Lada 1200 ST.
Mazda 323 77-'85
MMC Colt 79- '85
Mim '68 - '85
Peugeot 504 '70 '85
Subaru '78 '83
Toyota Corolla'75- 78
Volvo '69 — 79
VW Golf 74 83
Bíllinn
S/F
100 gerflir til viObótar á lager
SKEIFAN 5-108 REYKJAVÍK «(91)33510 - 34504 P6.t«indum.
TJALDSYNING
verður haldin I Seglagerðinni Ægi
um helgina 28.—30. júní.
1—26 manna hústjöld, Ægistjöld, göngutjöld og samkvæmistjöld.
5 manna tjald, verO kr. 7,669,-
flaygahiminn, varfl kr. 8,688,-
Montana, 4ra manna,
verO kr. 14.950.
i,.. . .. Hellas, 2ja manna, kr. 2.730.
k- á 3ja manna kr. 3.550.
Samkvæmistjöld
fyrir félagasamtök, ættarmótin, garOveisluna,
skátana og sem sölutjöld.
irfiEBt1 rtriOTn riopoi
22.260.
31.360.
40.460.
Viðleguútbúnaður og
garðhúsgögn í miklu
úrvali. Hagstætt verð.
æ g í r
Eyiaslóð 7, Reykjavik Pósfhólf 659
Símar 14093 - 13320 Nafnnr. 9879 -1698