Þjóðviljinn - 29.06.1985, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 29.06.1985, Blaðsíða 7
Þau eru skáldleg nöfnin á myndum Elíasar B. Halldórs- sonar listmálara á Sauöár- króki: Bláklukkan kallar, Prófíll skógarmanns og Sól- bræddir vængir. Þrjú ár eru liðin síðan hann hélt sýningu í Reykjavík, en nú hefur hann lagt undir sig vestursal Kjar- valsstaða. Heildarsvipurinn er annar en áður. Það sem fyrst vekur athygli er óvenjuleg stærð einnar olíu- myndarinnar. Hún er 9 metrar á lengd en tveir á hæð. Ætli stærri mynd hafi nokkurn tíma verið máluð á íslandi? Og fleiri myndir en þessi eru stórar á landsvísu. Hver er skýringin á þessu, Elías? Það er þeim Kára Jónssyni for- manni stjórnar Safnahússins á Sauðárkróki og Hjalta Pálssyni bókaverði að þakka að þessi mynd var máluð. Þeir sáu til þess fyrir tveimur árum að ég fékk vinnuaðstöðu í einum sal hússins. Ég vona að þessi greiði félaga minna verði ekki metinn þeim til frádráttar þegar þeir kveðja dyra við Gullna hliðið. - Ég fékk hálf- gert víðáttubrjálæði þegar ég komst í þetta mikla og bjarta rými. Svo er vítt milli fjalla í Skagafirði og kannski engin furða þó að maður vilji gera hlut- ina stóra. Það er sagt að landslag skapi menn. Ég var fyrir löngu farinn að tala um að gera stóra mynd, og búinn að sjá margar Blóðnætur. Einhver sá í henni Örlygsstaðabardaga. Aðrir sáu brýr frá þeim árum þegar Elías vann við brúarsmíði austur á Fjörðum. - Bráðar eru blóðnæt- ur, segir máltækið. En hvað um þennan breytta svip mynda þinna að öðru leyti? Það besta sem fyrir mig hefur komið var þegar fjandinn hljóp í hjartað á mér fyrir hálfu öðru ári. Ég sá heiminn í nýju ljósi á eftir. Þetta var einhvers konar andleg hundahreinsun; ég gerðist djarf- ari, þorði meira. Synir mínir eru líka á kafi í list (Gyrðir skáld og Sigurlaugur listmálari og skáld) og þeir hafa haft áhrif á viðhorf mín til myndlistarinnar. Ertu með indíánalist í huga? Það er rétt að litavalið gæti minnt á indíána. Kannski hefur eitthvað eldgamalt vaknað í mér sem ég las um indíána þegar ég var drengur. Ég finn til skyldleika við þennan þjóðflokk, enda af Reykj ahlíðarættinni. Og hvers vegna fer drengur í Borgarfirði eystra að huga að málaralist? Ég var eitt sinn smástrákur að hreinsa fjárhúspalla fyrir pabba, en þann starfa hataði ég meira en allt annað. Þá mótaði ég með mér þann draum að verða málari. Ég týndi draumnum. En ég fór seinna að mála. Ég átti að verða bóndi, því að Ármann bróðir minn (fræðimaður á Egilsstöð- um) var ónothæfur til þess og pabbi orðinn lúinn. En ég reyndist ónothæfur líka. Þá var Ég komst í hálfgert víðáttubrjálæði þegar ég komst í þetta mikla og bjarta rými. Bláklukkan kallar Elías B. Halldórsson á Sauðárkróki hefur lagt undir sig vestursal Kjarvalsstaða og segir hér frá myndum sínum og lífshlaupi í líflegu viötali Ég var eitt sinn smástrákur að hreinsa fjárhúspalla fyrir pabba, en þann starfa hataði ég meira en allt annað. Þá mótaði ég með mór þann draum að verða málari. myndir á léreftinu, en ekki þessa. En það má samt segja um hana að hún byggist á ævistarfinu. Menn þykjast sjá hitt og þetta út úr hinni stóru mynd Elíasar. Sumir nota á hana nafnið Stór mynd í litum, en hún heitir reyndar því grimmilega nafni það pabbi sem ráðlagði mér að læra að mála. Ég hef aldrei getað skilið það. En úr því að þú nefnir Borgarfjörðinn og listina verð ég að nefna einn mann í því sam- bandi. Það er Jói frá Geitavík. Ég helga honum eina myndina hér, Sólbrædda vængi. Jói og pabbi lágu ungir á garðvegg; Jói var þremur árum eldri og hann mál- aði frönsku skúturnar með börkuðum seglum og gaf pabba. Þessar myndir eru allar týndar. Jói frá Geitavík varð seinna þekktur undir nafninu Jóhannes Kjarval. f Handíða- og mynd- listaskólanum lenti ég hjá Sigurði Sigurðssyni. Það skipti sköpum. Ég brautskráðist 1958 og var eftir það um tíma í Suttgart og Kaup- mannahöfn. Hver er skýringin á því að þú yfirgafst menningarmiðstöðvar og fluttist til Sauðárkróks? Krókurinn hafði mótast í vit- und minni löngu áður en ég flutt- ist þangað - fyrir áhrif Sigurðar Sigurðssonar listmálara, en hann er afburða sögumaður. Ég fann reyndar aldrei Krókinn sem Sig- urður lýsti og er þó búinn að vera þar í 20 ár. - En það getur verið gott að þreifa fyrir sér í ró og næði. Maður veit af umheiminum þó að maður sé norður við íshaf. Þessi þögn yfir landinu getur hjálpað til við sköpunina - og baráttuna við sjálfan sig. En kannski er ókosturinn við að búa á svona stað að þar verður ákveð- in vöntun á „andlegri sambúð“. Þar eru t.d. fáir til að telja þér trú um að þú sért listamaður. Geturðu lýst tilfinningunni að koma suður til að sýna? Það er eins og að ganga með folaldi, svo ég vitni til gamals vin- ar frá Borgarfirði eystra, sem var farinn að fitna. Maður verður að kasta á ákveðnum degi. Mig dreymdi eitt sinn við Selfljótsbrú að ég væri óléttur; átti að fæða eftir ákveðinn tíma, en vissi ekki hvernig ég ætti að fara að því. Þó að sýning hafi verið undirbúin árum saman er maður aldrei til- búinn. Það fylgir þessu eftir- vænting. Fylgir því mikil einsemd að lifa í listinni einvörðungu? Þeim sem getur gefið sig óskiptur að listinni er engin vor- kunn. En auðvitað mætti stund- um líkja þessu við 100 ára ein- semd. Einsemdin kemur víða við; hún var líka hjá Gunnlaugi vitaverði á Glettinganesi. Það sóttu draugar að honum á nótt- unni þegar brimið svarraði við Glettinginn. Hann skaut á draugana, og súðin var öll í göt- um. - Engillinn í Sólbræddum vængjum hefur líka orðið fyrir skotum: Svörtu blettirnir í vængj- um hans eru merki um skothríð utan úr geimnum. Það sást til Gunnlaugs vitavarðar á skyrt- unni einni og í klofstígvélum sem voru sitt af hvoru tagi: annað svart og hitt hvítt, og bæði sjórek- in. Þessar andstæður hafa stund- um orðið mér umhugsunar- efni.... Það skiptist á svart og hvítt í lífi listarinnar. Jafnvel Kjarvalsstað- ir, musteri myndlistarinnar, eru ekki óhultir. Þangað voru fluttir fóðurkögglar og kýr á dögunum, jafnvel þó að fjöldi listamanna biði eftir sölunum undir verk sín. En andstæðurnar eru kannski örvandi: í frystihúsinu á Bakka- gerði hangir mynd sem var máluð á fiskikassa fyrir meira en 35 árum. Hún heitir Vor í Alpafjöll- um og höfundur var ungur maður frá Snotrunesi sem enn hafði ekki séð annað en austfirsk fjöll: Elías B. Halldórsson. Hann sækir enn kraft austur til Borgarfjarðar, þar sem vatnið getur verið „belju- tært“ og andskotinn „nellikku- fjólublár“. „Þar sem landið er litskrúðugt talar fólkið í litum,“ segir Elías að lokum. „Orðfærið er fáránlega skemmtilegt fyrir austan. Þar er t.d. talað um „hel- vítisdrullublíðu". Og margir halda flámælskunni viljandi við. Líka það gefur málinu lit, vídd. (Baldur Hafstað og Sölvi Sveinsson tóku viðtalið) Laugardagur 29. júní 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.