Þjóðviljinn - 29.06.1985, Síða 2
_________FRETTIR
Gámafiskur
Eina leiðin, ef hún er fær
Trillusjómenn á ísafirði flytja fiskinn beint til Englands í gámum.
Enginn vill kaupa af þeim fiskinn.
Mikið er um fisksölur erlcndis í þessari viku verði u.þ.b. 1.700
þessa dagana og er áætlað að lestir af íslenskum fiski á enskum
Fulninga-
hurðir:
Nýkomin sending af innihurð-
um úr furu. Utanmál á körm-
um: 79 og 89 x 209 cm.
Habó, heildverslun,
Bauganesi 28, s. 26550.
Verð: 6.483.- kr.
Verð: 6.483.-
i ~~~ 1
fiskmörkuðum. Gott verð hefur
fengist fyrir fískinn og í gær var
það á bilinu 32-40 kr. kílóið.
Fiskurinn er bæði seldur beint
upp úr bátum og togurum sem
sigla með aflann og eins úr gám-
um sem fluttir eru út. Einn þeirra
sem stendur í slíkum útflutningi
er Halldór Hermannsson skip-
stjóri á ísafirði. Hann hefur tekið
að sé fyrir ísfirska trillusjómenn
að koma afla þeirra í verð er-
lendis.
„Það fer nú heldur lítið fyrir
þessum útflutningi ennþá, það
hefur svo lítið gefið til veiða,“
sagði Halldór þegar Þjóðviljinn
ræddi við hann í gær. „Við höfum
sent út þetta 1-4 gáma á viku.
Karlarnir hausa fiskinn áður en
hann fer í gámana en við teljum
að það auki geymsluþol hans.
Þetta hefur selst vel, reyndar hafa
allir selt vel að undanförnu.
Þessir flutningar eru enn sem
komið er harla vanþróaðir. Það
hefur vantað að skipafélögin geti
útvegað okkur nóg af einangruð-
um gámum. Við höfum sett
fiskinn í einnota kassa úr einangr-
unarplasti og það hefur gengið
hingað til en er bæði erfitt og ekki
nóg gott.
Vertíðin er rétt að byrja og við
vitum ekki enn hvernig markað-
urinn tekur því þegar veiðin
glæðist og framboðið eykst. Það
verður bara að sýna sig. En
ástæðan fyrir því að þetta er reynt
er sú að hér eru milli 30 og 40
trillur sem hvergi geta lagt upp,
það vill enginn kaupa af þeim
fiskinn. Þetta er eina leiðin til að
bjarga þeim bátum undan hamr-
inum, ef hún er þá fær,“ sagði
Halldór Hermannsson.
-ÞH
OKKAR húsnæðissparnaðarreikningar
ÚSNÆÐISVELTA
SPARNAÐGR l skattaafsláttur • lán • húsnæði
Sparnaðarreikningur sem veitir rétt á láni fyrir allt að tvöföldum sparnaði
ásamt vöxtum og verðbótum.
Innlánsreglur eru sniðar eftir ákvæðum um húsnæðissparnaðarreikninga frá
1. júlí 1985, þar sem kveðið er á um rétt til skattafsláttar fyrir fjórðungi
árlegs sparnaðar á slíkum reikningum.
SAMVINNUBANKIÍSLANDS HF.
Jafnréttis-
baráttan
erekki
einka-
mál
kvema
Við undirritaðar konur, sem
undanfarið höfum fundað rtieð
Alþýðubandalagskonum og
stuðningsmönnum Alþýðu-
bandalagsins um allt land, viíjum
vegna skrifa Guðrúnar Helga-
dóttur í Þjóðviljanum 25. júní s.l.
taka fram eftirfarandi:
Við mótmælum þeirri skoðun,
sem fram kemurhjá Guðrúnu, að
jafnréttismál séu einkamál
kvenna og karlar megi hvorki í
ræðu né riti fjalla um þau án þess
að leita álits eða leyfis hjá kon-
um. Við teljum, að það sé ekki
síst vegna baráttu okkar kvenna á
þeim vettvangi innan flokks sem
utan, þegar flokksfélagar okkar
af hinu kyninu láta sig jafn-
réttismál skipta. Við vísum ein-
hliða kvennaforræði á bug og
teljum það síst betra en karlafor-
ræðið.
Við mótmælum eindregið
þeim rökstuðningi Guðrúnar, að
það afskræmda neysluþjóðfélag,
sem hún dregur upp mynd af, þar
sem laun duga ekki fyrir lífs-
nauðsynjum, sé baráttu kven-
réttindakvenna að kenna eða af-
leiðing af aukinni sókn kvenna út
á vinnumarkaðinn. Það er hins-
vegar ljóst, að í baráttunni við
auðvald og markaðsöfl höfum
við, karlar og konur, sem berj-
umst fyrir réttlátara þjóðfélagi,
farið halloka um stund.
Sterk samstaða kvenna getur
ráðið úrslitum í þeirri baráttu.
í Alþýðubandalaginu er stór
hópur kvenna, sem tekið hefur
þátt í flokksstarfi með fullri
ábyrgð og af mikilli alvöru og
ákafa. Þetta endurspeglast í
hærra hlutfalli kvenna í öllum
kjörnum nefndum og stjórnum
flokksins en í nokkrum öðrum ís-
lenskum stjórnmálaflokki, þar
sem bæði kynin eiga aðild. Niður-
lagsorð Guðrúnar um smásnotra
stelpu, sem smalar atkvæðum,
eru bein móðgun við allar þær
konur sem lagt hafa flokknum lið
í störfum hans undanfarin ár og
eru reiðubúnar til að leggja áfram
fram krafta sína, m.a. með því að
taka sæti á framboðslistum hans.
Við getum hins vegar verið
sammála Guðrúnu um að það
hefði verið vel til fundið að Þjóð-
viljinn hefði 19. júní s.l. rakið
hvað náðst hefur fram í baráttu-
málum kvenna þau 70 ár sem lið-
in eru síðan þær fengu atkvæðis-
rétt, ekki síst fyrir atbeina full-
trúa okkar hreyfingar í sveitar-
stjórnum, á alþingi og í verka-
lýðshreyfingunni.
Adda Bára Sigfúsdóttir,
Álfheiður Ingadóttir,
Gerður Óskarsdóttir,
Guðrún Ágústsdóttir,
Guðrún Hallgrímsdóttir,
Kristín Á. Ólafsdóttir,
Vilborg Harðardóttir.