Þjóðviljinn - 29.06.1985, Blaðsíða 3
FRÉTTIR
Skák
Til Kína að tefla
Þrír íslenskir skákmenn fara til Kína á morgun.
Karl Þorsteins: Teflum sennilega aðallega í skákklúbbum.
Kínverjar eru sennilega aðeins
undir okkur að styrkleika.
Þeir byrjuðu fyrst að keppa á al-
þjóðlegum vettvangi 1978 og eiga
nokkra alþjóðlega skákmeistara
en engan stórmeistara, sagði Karl
Þorsteins skákmeistari í samtali
við Þjóðviljann í gær en á morgun
heldur hann ásamt skákmönnun-
um Saevari Bjarnasyni og Lefii
Jósteinssyni ■ boðsferð til Kína.
Karl sagði að boðið hefði kom-
ið frá íþróttasambandinu í Kína
með milligöngu menntamála-
ráðuneytisins. Hann sagði að þeir
kæmu ekki til með að keppa á
mótum í þessari ferð en taldi lík-
legast að þeir ferðuðust um og
tefldu í skákklúbbum. „Við vit-
um það bara að við förum til Pek-
ing fyrst en vitum ekki um til-
högun ferðarinnar að öðru leyti.
Við höfum verið að bíða eftir
skeyti með frekari upplýsingum
en það hefur ekki borist enn,“
sagði Karl.
Hópur júgóslavneskra skák-
manna verður í Kína um svipað
leyti og íslendingarnir og er lík-
legt að þeir tefli eitthvað saman.
Kínadvölin verður í hálfan mán-
uð og síðan sagði Karl að þeir
félagar ætluðu að dvelja nokkra
daga í Thailandi sér til
skemmtunar. Með í för verða
Guðbjartur Guðmundsson og
Jón Rögnvaldsson frá Skáksam-
bandinu. Pess skal að lokum get-
ið að íslendingar unnu Kínverja á
síðasta ólympíuskákmóti 2Vi-
IV2.
-GFr
Tónlistarverðlaun
eindæmum þótti. Var honum af
listgagnrýnendum skipað á bekk
með fremstu píanóleikurum
landsins.
Þorsteinn Gauti sagði í samtali
við Þjóðviljann að það væri bæði
uppörvun og viðurkenning að fá
slíkan styrk. Hann hefur nú lokið
námi í Julliardháskólanum í New
York og stefnir á tónleika næsta
haust í Bandaríkjunum. Hann er
búsettur í Florida ásamt banda-
rískri eiginkonu sinni og barni.
Hann sagðist hafa hætt í Julliard-
skólanum þó að hann ætti eitt ár
eftir í að ná prófgráðu, því að það
væri mikilvægt að hætta á réttu
augnabliki svo að mann dagaði
ekki uppi. Það væri samkvæmt
hugboði sínu og sannfæringu.
Hann ætlar nú að reyna fyrir sér
sem einleikari og sjá svo hvað set-
ur.
-GFr
Þorsteinn Gauti
fékk 100 þúsund
Þorsteinn Gauti Sigurðsson: Bœði uppörvun
og viðurkenning aðfá verðlaun úr
Tónlistarsjóði Armanns Reynissonar
r
Igær var úthlutað verðlaunum
úr Tónlistarsjóði Ármanns
Reynissonar og er það í annað
skipti sem slík úthlutun fer fram.
Að þessu sinni fékk Þorsteinn
Gauti Sigurðsson verðlaunin,
sem eru 100 þúsund krónur, til að
undirbúa tónleika á næsta ári í
aldarminningu Franz Liszt og
vegna væntanlegrar plötu-
upptöku.
Verðlaunaafhendingin fór
fram við hátíðlega athöfn í garði
Ármanns Reynissonar við Smár-
agötu og sagði hann að flutningur
Þorsteins Gauta á 2. píanó-
konsert Prokofievs með
Sinfóníuhljómsveitinni á sl. vetri
hefði vakið slíka athygli að með
Tannlæknataxtar
Frjáls
ábgning
45% hœkkunin gilti ein-
ungis fyrir skólabörn og
öryrkjasem Trygginga-
stofnun og sjúkrasamlag
borgarfyrir en ekki allan
almenning
Hin umdeilda 45 prósent hækk-
un á taxta Tannlæknafélagsins er
nú í endurskoðun hjá Hagstof-
unni eftir fund tannlækna með
borgarstjóranum í Reykjavík.
Þessi taxti gildir hins vegar ein-
ungis fyrir þá sem fá tannlækna-
þjónustu ókeypis í gegnum
Tryggingastofnun og sjúkra-
samlög svo sem skólabörn og ör-
yrkjar.
Almenningur sem hefur þurft
að leita til tannlækna síðan hækk-
unin varð á því ekki neina kröfu á
endurgreiðslu því að engin opin-
ber taxti er fyrir tannlækningar.
Þar er algerlega frjáls álagning og
undir hverjum tannlækni komið
hvað hann tekur mikið fyrir þjón-
ustu sína og gæti því þess vegna
verið miklu hærri. Þetta kom
fram í samtali Þjóðviljans í gær
við Sigurgeir Steingrímsson
stjórnarmann í Tannlæknafélagi
íslands.
-GFr
Konur vilja
frii
Konur hvattar til að
skrifa undir
friðarávarpið
Undirskriftasöfnun Friðar-
hreyfingar íslenskra kvenna og
’85 nefndarinnar lýkur á morg-
un.
Ætlunin er að reyna að fá allar
íslenskar konur yfir 18 ára aldri til
að skrifa undir friðarávarpið. Þær
sem enn hafa ekki komið því í
framkvæmd, en hafa hug á því,
geta nálgast listana í dag og á
morgun á sundstöðum borgar-
innar og á Hallveigarstöðum.
Konur utan af landi geta haft
samband við kvenfélag viðkom-
Þorsteinn Gauti, en Ármann Reynisson, stofnandi tónlistarsjóðsins að baki. andi staðar.
Ljósm.: Valdís. -sp
Einkabarnaskólinn
Þetta er leikarinn í titilhlutverkinu I myndinni „Hrafninn flýgur” en myndin var
sýnd á mikilli kvikmyndahátíð í Tokyo í þessum mánuði. Þar var myndin sýnd
meðal 30 „líttþekktra úrvalsmynda" en alls voru sýndar 70 myndir frá 40
þjóðlöndum á hátíðinni. Vakti „Hrafninn” mikla athygli. Sagt erfrá kvikmynda-
hátíðinni í Sunnudagsblaðinu. Hrafninn hér á myndinni ertaminn og á nú heima
í Sædýrasafninu en hann er sá hrafnanna í myndinni sem mest sést af á
veggspjöldum „Hrafnsins” út um heim. þs.
Háskóli íslands
314 kandídatar
Háskóli íslands brautskráir 314
kandídata í Háskólabíó í dag kl. 2 síð-
degis.
Athöfnin hcfst með því að Sólrún
Bragadóttir sópran og Bergþór Páls-
son barítón syngja dúett úr óperunni
La Traviata með undirleik Jónasar
Ingimundarsonar. Háskólarektor,
prófessor dr. Guðmundur Magnús-
son flytur ræðu og síðan afhenda
deildarforsetar prófskíreini. Háskól-
akórinn syngur nokkur lög undir
stjórn Árna Harðarsonar.
Mákmeðferð hefur verið f>TÍr
ncðan allar hdlur, sagði Elín Ol-
afsdóttir fulltrui keimara í fheðsluráði
um stofnun nýja einkaskólans í
Reykjavfk. ,J>að er búið að ákveða
þetta án þess að fræðsluráð hafi hug-
mynd um það, og fræðsiustjórinn í
umdæminu ekki hddur.“
Stjóm Kennarafélags Reykjavíkur
hefur þegar haldið fund um málið, og
var ákveðið að afla sér allra upplýs-
inga um stofriun skólans, samning
hans við Reykjavíkurborg og rekstur
annarra einícaskóla áður en stjómin
tæki stefnu í málinu. Ljóst er að þungt
er í kennurum vegna þessa, ekíd síst
vegna leyndarinnar sem yfir hefur
hvílt. Fram hefur konúð að undirbún-
ingur hófst fyrir tæpu ári, en þar heftir
aðeins um tugur háttsettra hjá ríki og
borg komið við sögu.
Ragnar Júlíusson formaður
fræðsluráðs tók að sér það verkefni
fyrir borgarstjóra að leita að húsnæði
fyrir skólann. í samtali við Þjóðvilj-
ann vildi Ragnar taka fram að þetta
verk hefði hann unnið sem borgarfull-
trúi og ekki sem formaður fræðslu-
ráðs. Fyrir í Miðbæjarskóla sem Da-
víð hefúr lofað undir einkaskólann
em meðal annars eldri bekkir Vestur-
bæjarskóla, Ragnar var spurður hvort
sá skóli uppfyllti lagaákvæði um hús-
rúm, og svaraði að um það mætti
endalaust deila.
Samningur borgarstjóra við
eigendur nýja skólaas um húsaskjól
er enn ófrágenginn, og í
menntamálaráðuneyti hafa ekki ver-
ið gerðar ráðstafanir til að halda lof-
orð um kennaralaun í haust. Fjár-
málaráðherra sagði Þjóðvilja í gær að
frá sér rynni ekkert fé til skólans þetta
árið.
Stjóm Kennarafélags Reykjavíkur
heldur fund um málið á mánudags-
kvöld, og á þriðjudag verður auka-
fundur í fiæðsluráði.
-m
Eyjafjörður
Snáðar
vinna
4 minka
Fór ísveitina að hitta vin
sinn. Unnufjóraminka
daginn eftir.
Þegar Bergur Sigurðarson,
átta ára Reykjavíkursnáði, fór í
sveitina norður í Eyjafjörð í
fyrradag datt honum ekki í hug
að hann ætti fyrir höndum spenn-
andi ævintýri strax daginn eftir.
Bergur er í sveit að Ytri-
Tjörnum og daginn eftir komuna
fór hann með tíu ára vini sínum,
Jóni Gunnari Benjamínssyni,
niðrá engjar sem tilheyra Ytri-
Tjörnum. Strákarnir fóru um sex
leytið og þegar þeir voru ekki
komnir heim um'hálfellefuleytið
var farið að undrast um þá. í
þann mund bar þá sigri hrósandi
^að garði, þeir höfðu nefnilega
gert sér lítið fyrir og lagt að velli
fjóra minka með aðstoð tveggja
hunda. Það er áreiðanlega sjald-
gæft að pollar á þessum aldri
vinni slíka dáð!
-ÖS
Málsmeðferð
ótæk
Laugardagur 29. júni 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3