Þjóðviljinn - 29.06.1985, Page 4
LEIÐARI
Konur og Prestastefnan
Prestastefna íslands er alla jafna nokkur viö-
burður þó þeir fjölmiðlar sem mest leggja upp úr
gildi kristinnar trúar hafi að þessu sinni sýnt
henni furðulega lítinn áhuga.
Aðalefni Prestastefnunnar í ár var hin svo-
kallaða Limaskýrsla. Limaskýrslan erguðfræði-
leg umræða um þrjá meginþætti hins kristna
starfs, skírnina, máltíð Drottins og þjónustuna,
en um þessa skýrslu munu allir hinir kristnu'
söfnuðir ræða.
Konur innan íslensku kirkjunnar hafa bent á í
viðtölum við Þjóðviljann að í þeim hluta Lima-
skýrslunnar sem fjallar um þjónustuna er ekki
farið nægilega skýrum orðum um stöðu kvenna
sem embættismanna kirkjunnar. Þar er ekki
tekið af skarið og konum veitt afdráttarlaus við-
urkenning til jafns við karla að því er varðar
embættisgengi innan hinnar kristnu kirkju.
Það er þess vegna fagnaðarefni að á Prest-
astefnunni var tekið undir þær hugmyndir, að
kveðið yrði skýrar á um stöðu kvenna sem emb-
ættismanna innan kirkjunnar. Það er staðreynd
að á íslandi hefur vegur kvenna innan hennar
vaxið mjög á síðustu árum, sífellt fleiri konur eru
vígðar til þjónustu og fjöldi kvenna í guðfræði-
námi eykst jafnt og þétt. Án tillits til þess hvort
menn leggja mikið upp úrtrúnni sem slíkri, þáer
á engan hallað þegar sagt er að þær ungu
konur sem hafa kveðið sér hljóðs í embættis-
mannastétt kirkjunnar hafa bætt áberandi og
mjög viðfelldnum drætti í ásjónu hennar.
Baráttan fyrir bættri stöðu kvenna innan kirkj-
unnar er auðvitað ekkert annað en hluti
jafnréttisbaráttunnar í þjóðfélaginu, og hlýtur
því að kalla á stuðning framsækinna afla.
Við getum auðveldlega tekið undir með pró-
fessor Einari Sigurbjörnssyni, sem segir í tillögu
sinni að viðbrögðum íslensku kirkjunnar við
Um síðastliðna helgi lést í Stokkhólmi einn
þeirra stjórnmálamanna sem mest áhrif hafa
haft á það velferðarþjóðfélag í anda félags-
hyggju sem Norðurlönd hafa státað af nú um
hríð, Tage Erlander, sem var forsætisráðherra
Svíþjóðar og leiðtogi sósíaldemókrata frá 1946
til 1969.
Erlander las hagfræði og viðurkenndi að
hann mætti Karli gamla Marx ýmislegt upp að
unna, en afstaða hans til stjórnmála mótaðist
ekki síst af hinum hörðu stéttarátökum í Svíþjóð
á þriðja átatugnum. En hann varð aldrei bylting-
arsinni, heldur gerðist snemma atkvæðamaður
meðal þeirra sem vildu breyta „Fátæktar-
Svíþjóð“sem einkenndist af strangri stéttaskipt-
ingu, með víðtækum félagslegum umbótum.
Og Tage Erlander varð, að Per Albin Hansson
gengnum, sá sem öðrum fremur mótaði stefn-
Limaskýrslunni:
„Höfum vér góða reynslu af þjónustu kvenna
í kirkjunni og höldum því fram, að á oss hvíli sú
skuldbinding að raunhæfa vitnisburðinn sem
segir, að í Kristi sé enginn karl eða kona, heldur
hverfi þar allur aðskilnaður á milli manna“.
-ÖS
una, þegar þau skref voru stigin sem gerðu
Svíþjóð að því Evrópulandi, sem náði bæði
hæstum meðaltekjum og bestri félagslegri
þjónustu, ekki síst við þá sem halloka höföu
farið í lífsbaráttunni.
Vitanlega hefur sköpunarverk Erlanders og
hans manna sætt gagnrýni, bæði fyrir einhlita
stofnanatrú og fyrir að þar sé ekki „ráðist að
rótum meinsins" eins og hinir róttæku mæla.
Engu að síður er mikil ástæða til að minna á það
að Tage Erlander gengnum, hve mikilsverður
skerfur sænskrar verklýðshreyfingar og flokks
hennar hefur verið til eflingar þess grundvallar
sem sósíalísk mannúðarviðhorf í álfu okkar nú
standa á og geta haft að viðspyrnu til framtíðar-
sóknar.
ÁB
Tage Eiiander
Ó-ÁUT
AHViH VHRHUM AH SETjA
T\N 1
©
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Utgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphóðinsson.
Ritatjórnarfuiltrúl: Öskar Guðmundsson.
Fréttastjórl: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, MörðurÁrnason, Páll Valsson, Sigríður Pótursdóttir, SævarGuð-
bjömsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndir: Einar ólason, Valdís öskarsdóttir. Sigríður Pótursdóttir.
Útllt og hönnun: Filip Franksson, Svava Sigursveinsdóttir.
Handrlta- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbrelðslustjóri: Sigríður Pótursdóttir.
Auglysingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen.
Afgreiöslustjóri: Ðaldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Símavarsla: Jenny Ðorgedóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Husmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. júní 1985
Útkeyrsla, afgrelösla, auglýslngar, rltstlórn:
Sfóumúla 6, Reykjavfk, sfml 81333.
Umbrot og setnlng: Prontsmlftja Þjóðvlljans hf.
Prentun: Blaóaprent hf.
Verft I lausasólu: 30 kr.
Sunnudagsverð: 35 kr.
Áskrlftarverft á mánuftl: 360 kr.
Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardðgum
frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.