Þjóðviljinn - 28.07.1985, Page 16
LEIÐARAOPNA
Nýlega bárust þær fréttir að fulltrúar landbúnaðarráðuneytis
og sjávarútvegsráðuneytis sætu á fundum og leituðu leiða til að
auka veiði á sel frá því sem nú er. Þótt seladráp hafi aukist
verulega frá því Hringormanefnd (sem síðar tók sér nafnið Sel-
ormanefnd) hóf að verðlauna veiðimenn árið 1982 er ætlað að
selum fækki ekki með núverandi veiði (1984: 5.500 selir), og
Árni Kolbeinsson stjóri í sjávarútvegsráðneyti segir í nýlegu
blaðaviðtali: „Það þarf að auka veiðarnar frá því sem nú er, en
fiskvinnslan hefur vaxandi áhyggjur af fjölda hringorma í fiski.“
Frá því Hringormanefndin hóf afskipti af selveiðum hafa fjöl-
margir mótmælt starfsaðferðum nefndarinnar á ýmsum for-
sendum, og snemma árs kom út um 100 blaðsíðna skýrsla,
samin af þremur líffræðingum, þarsem nefndin er harðlega
gagnrýnd á vísindalegum forsendum. Enn má minnast á harðar
umræður í lok síðasta þings um svokallað selafrumvarp sem
býr núverandi seladrápi lagaramma.
Þjóðviljinn steypir sér í dag til sunds í álitahafinu og ieitar
uppi þorsk og sel og orm og mann og annan.
Selaskýrsla líffrceðingci:
Alls ekki víst að ormum fœkki
Hringormanefndin gengur þvert d vísindalegar
hefðir og sfarfsaðferðir
Helgi Péfursson,
ritstjóri NT;
Drepa
Undanfarin ár og þá sérstak-
lega eftir aö hvalfriöungar
hófu verulega sókn gegn okk-
ur hefðum við átt að drepa sel
og aftur sel, segir ritstjóri NT í
leiðara blaðs síns laugardag-
inn 20. júlí.
Leiðarinn nefnist „Drepum
selinn strax“, og þar er sagt að
hvalverndunarmenn haldi því
fram með réttu að hvalveiðar séu
okkur ekki lífsnauðsyn. Sjávarú-
tvegur er okkur hinsvegar
lífsnauðsyn, og þar með sela-
dráp, að dómi leiðarahöfundar:
„Því það er svo makalaust,
hversu oft sem bent hefur verið á
vandann, að selnum hér við land
heldur áfram að fjölga og þó eru
allir sammála um, að hann sé
einn helsti skaðvaldur í sjávarút-
vegi og er þó sótt að sjávarútvegi
úr ýmsum áttum.“
„Fiskveiðar (eru) undirstaða
þjóðarbúsins og svo mikið vita
forráðamenn umhverfisvernd-
arsinna og viðurkenna það. Þvíer
nauðsynlegt, að tryggja okkur
frið við seladráp sem framundan
er.“
Vinnubrögð og staðhæfingar
hringormanef ndar fá ekki
hrósískýrslunni „Selirog
hringormar" sem gefin var út
ávegum Landverndar
snemma í ár.
Flest rök nefndarinnar fyrir
starfsháttum sínum eru talin ó-
fullnægjandi eða rökleysur; dreg-
ið er í efa að störf nefndarinnar
verði til góðs fyrir íslenskan sjá-
varútveg, og sjálf tilvera nefndar-
innar og valdsvið er talin brjóta í
bága við grundvallarreglur í sam-
gangi manns og náttúru. „Það er
rangt, að hagsmunaaðilum líðist
að greiða verðlaun til höfuðs ein-
hverri dýrategund, af því að þeir
telji hana keppinaut sinn. Nú á
tímum eru gerðar kröfur um
vistfræðilegar rannsóknir áður en
þvílíkar ákvarðanir eru taknar“,
segja höfundar skýrslunnar á ein-
um stað, - þau Sigrún Helgadótt-
ir líffræðingur, Stefán Bergmann
líffræðingur og Ævar Petersen
dýrafræðingur. Fleiri staðir úr
selaskýrslunni:
... Þótt selum fækki eitthvað
(við aðgerðir Hringormanefn-
dar) er ólíklegt að hringorma-
tíðni minnki vegna þess að margir
aðrir þættir en selir koma hér við
sögu. Til dæmis geta tiltölulega
fáir selir staðið undir hárri hring-
ormatíðni þar sem dreifing og
fjöldi millihýsla er heppileg fyrir
hringorma. Geta sjófuglar hugs-
anlega dreift hringormum? Það
atriði er ókannað að mestu. Ef
svo væri mundu fækkunarað-
gerðir Hringormanefndar verða
með öllu marklausar. Sjófuglar
gætu haldið hringormi við, þótt
selum yrði útrýmt. Á það hefur
verið bent, að maðurinn kunni að
eiga nokkra sök á því að dreifa
hringormum. Úrgangi, m.a. inn-
yflum, er oftast hent beint í sjó
við aðgerð. Þetta éta fuglar, fisk-
ar og önnur dýr sem sfðan geta
borið hringorma um stærra svæði
en ella...
... Ekki verður annað séð en
Hringormanefnd hafi gengið
þvert á starfsaðgerðir og hefðir
vísindamanna þegar nefndin: -
Ákvað að fækka þyrfti selum
áður en hún hóf rannsókn á lifn-
aðarháttum þeirra og tengslum
þeirra við hringorma. - Ákvað
fyrirfram að niðurstöður
rannsókna skyldu veita svör við
gagnrýni á fækkunaraðgerðir á
selum. - Kom í veg fyrir að niður-
stöður rannsókna væru kynntar
áður en aðgerðir hófust og við-
bragða leitað hjá öðrum líffræð-
ingum en þeim eina sem launaður
er af Hringormanefnd...
... Það er höfuðatriði, að gera
sér grein fyrir hvort fiskveiðar ís-
lendinga ykjust, ef selum yrði
fækkað til muna eða útrýmt. Oft-
ast þegar maðurinn hefur tekið
fram í fyrir náttúrunni að van-
hugsuðu máli hefur illa farið að
lokum. Menn virðast almennt
telja, að það sem selir éta kæmi
óskert sem aukning á afla. Svo er
ekki. Selir eru hluti af vistkerfi
sjávarins og hafa verið um órofa
tíð. Ýmsir aðrir dýrahópar sjáv-
arins lifa einnig á nytjafiski, m.a.
þorskurinn sjálfur. Á milli þess-
ara dýrahópa hefur myndast
jafnvægi í aldanna rás, þar sem
hver dýrastofn er undir öðrum
kominn að meira eða minna leyti.
Það .eru því mestar líkur á, að
íslendingar muni aðeins hljóta
óverulegt magn af þeirri
aukningu á nytjafiski sem menn
telj að verði til reiðu ef selum er
útrýmt. Aðrir dýrahópar (sjó-
fuglar, þorskur, lúða o.fl.) kynnu
að stækka að sama skapi og selum
fækkaði, því þeir gætu fært sér í
nyt þá fæðu sem alir annars ætu...
... (Hér áður) var varpað fram
þeirri spurningu hvort seladráp
Hringormanefndar muni skila
fjárhagslegum ávinningi. Ólík-
legt er, að Hringormanefnd hljóti
árangur sem erfiði. Það er alls
óvíst, hvort hringormavandamál-
ið minnki...
... Því hefur verið haldið fram,
að í kjölfar minnkandi selveiða
hafi hringormavandamál aukist í
fiskiðnaði. Það er ljóst, að vandi
frystihúsa hefur aukist vegna
hringorma, en það er ekki víst að
aukningu í selastofnum sé um að
kenna...
-------------LEIÐARI----------
Meindýr í sjávarútvegi
Aföll í sjávarútvegi á síðustu áratugum hafa
kennt íslendingum ýmislegt. Áföll í sjávarútvegi
kenndu ísleningum til dæmis að standa saman
um rétt sinn til að nýta gæði landsins og sjávar-
ins sem umlykur það. Þau kenndu okkur hvern-
ig á að vinna þorskastríð.
Sömu áföll í sjávarútvegi kenndu íslending-
um grundvallarsetningar í vistfræði; að það er
ekki hægt að ganga endalaust á auðævi úr
lífríkinu, að fara verður að með gát við nýtingu
þeirra gæða sem land og sjór bjóða okkur.
Blindi stundargróði sýn eina vertíð getur orðið
þröngt í búi eftir hina næstu.
Þótt hart sé deilt um kvótakerfi og kjarnfóður-
gjald eru flestir sammála um að nýting og varð-
veisla lífríkisins er á ábyrgð allra landsmanna.
Undir leiðsögn kjörinna fulltrúa verða
hagsmunaaðilar, bæði í landbúnaði og
sjávarútvegi, að ná samkomulagi sín á milli um
hversu langt skal gengið við að hirða afrakstur
lífríkisins, og það samkomulag verður að styðj-
ast við fræðileg rök og rannsóknir sem tryggja
að ekki sé söguð af sú greinin sem við sitjum á.
Nefndin sem skipuð var árið 1982 og kennd
er við hringorm virðist á ýmsan hátt ekki hafa
gætt þessara sjónarmiða. Áföll vegna hring-
ormavanda virðast ekki hafa kennt henni mikið.
í nýlegri skýrslu þriggja líffræðinga um vinnu-
brögð og staðhæfingar nefndarinnar er fullyrt
að flestar ákvarðanir hennar styðjist ekki við
fræðileg rök. Líffræðingarnirfullyða meðal ann-
ars að þegar nefndin ákvað að efna til
rannsókna á tengslum hringormavanda í fisk-
vinnslu og stærðar selastofna hafi nefndar-
menn þegar verið búnir að gefa sér niðurstöð-
unnar ú rannsóknunum. í krafti þeirra niður-
staðna hafi nefndin gert selinn að meindýri og
fleytt af stað ógrundaðri krossferð gegn þessu
sjávarspendýri við ákafa aðvörun og mótmæli
náttúrufræðinga, selabænda og umhverfis-
verndarmanna.
Þá telja líffræðingarnir og aðrir gagnrýnendur
hringormanefndarinnar afar óeðlilegt að
hagsmunaaðilar einir, í þessu tilviki fram-
kvæmdastjórar útflutningsfyrirtækja, skuli skip-
aðir í nefnd sem þessa án þess að vísindastofn-
anir komi nærri. Líffræðingarnir efast um að
seladráp á vegum nefndarinnar skili nokkrum
árangri við að leysa þann vanda sem hringorm-
ur í fiski óneitanlega veldur sjávarútveginum og
jafnframtöllu samfélaginu, og líffræðiprófessor-
inn Arnþór Garðarsson heldur því beinlínis fram
að nefndarmenn fari fram með vísvitandi blekk-
ingum við túlkun á niðurstöðum rannsókna.
Það er ekki Þjóðviljans að skera úr deilum
fræðimanna, en athygli vekur að skýrsla líffræð-
inganna þriggja hefur farið hljótt um dyr fjöl-
miðla og ekki orðið frammámönnum í sjávarút-
vegi tilefni umræðna, hvað þá að hringorma-
nefndarmenn hafi leitast við að svara fyrir síg.
Enginn ábyrgur vísindamaður eða umhverf-
isverndarmaður hefur haldið því fram að seli
eigi að friða vegna þess að fólki á borð við
leikkonuna Brigitte Bardot þykja kópar snoppu-
fríðir. Þvert á móti telja flestir gagnrýnendur
þeirra hringormamanna að nýta eigi selinn með
skynsamlegum hætti undir umsjá kunnáttu-
manna.
Gagnrýnendur nefndarinnar halda því hins-
vegar fram að stórkarlaleg og óvísindaleg inn-
grip í lífríkið geti haft hættulegar afleiðingar fyrir
síðari aðgang að þessu lífríki, - og þeir hafa
minnt á að á fiskmörkuðum erlendis eru nátt-
úruverndarmenn áhrifamiklir.
Það er því full ástæða til að vara við þeirri
skotgleði sem nú er hvatt til í selalátrum á ís-
landi.
Bendi rannsóknir til að sel verði að fækka, þá
fækkum við sel. En það er ekki stórmannlegt að
gera selinn að blóraböggli í þeim vanda sem nú
hrjáir sjávarútveg og forráðamenn hans. í þeirri
atvinnugrein eru önnur meindýr en selurinn.
-m
16 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 28. júlí 1985