Þjóðviljinn - 13.08.1985, Síða 1

Þjóðviljinn - 13.08.1985, Síða 1
Hástökk Óvænt heimsmet Bœtti sig um 14 sm! Óþekktur 23 ára Sovétmaður, Rudolf Povarnitsyn, setti nýtt heimsmet í hástökki á sunnudag- inn þegar hann varð fyrstur til að stökkva yfir 2,40 metra á móti í Donetsk. Povarnitsyn, fyrrum körfuboltamaður, hafði best stokkið 2,26 metra fyrir mótið og árangur hans er því geysilega óvæntur. Zhu Jianhua frá Kína átti gamla metið en hann stökk 2,39 metra í fyrra. Búlgarinn Kristo Markov setti nýtt Evrópumet í þrístökki á sunnudaginn. Hann stökk 17,77 metra og bætti nýsett met Sovét- mannsins Olegs Protsenkos um átta sentimetra. -VS/Reuter England Sviss Luzem vann Sigurður Grétarsson og félagar í Luzern eru á toppi svissnesku 1. deildarinnar í knattspyrnu eftir 2 umferðir. Luzern vann Sion 3-1 á laugardaginn og cr með 4 stig ásamt hinum kunnu félögum Grasshoppers og Servette. Sig- urður lék allan leikinn með Luz- ern en náði ekki að skora. -VS Handbolti Charlton sagði upp Jack Charlton, fyrrum miðvörður enska landsliðsins, sagði lausri stöðu sinni sem framkvæmdastjóri 1. deildarliðs Newcastle á laugardaginn. Stuðningsmenn liðsins höfðu mót- mæli í frammi á vináttuleik gegn Sheffield United og eru þeir ósáttir við að hann skuli ekki hafa styrkt liðið eftir að hafa selt Chris Waddle til Tottenham fyrir 600 þúsund pund fyrr í sumar. í yfirlýsingingu frá stjórn Newcastle sagði að uppsögn Charlton hefði ekki verið tekin til greina og vonast væri eftir að samn- ingar tækjust við hann á ný. -VS/Reuter Drengjalið Nígería vann Nígeríumenn urðu á sunnudaginn óvænt fyrstu heimsmeistarar drengja- landsliða, 16 ára og yngri, í knatt- spyrnu. Þeir sigruðu V-Þjóðverja 2-0 í úrslitaleik í Peking. Brasiiíumenn höfnuðu í þriðja sæti eftir 4-1 sigur á Guinea. -VS/Reuter „Vié erum íslandsmeistarar!” Framarar fagna sigri á KR-ingum í úrslitaleiknum í 5. flokki í knattspyrnu á sunnudaginn. Mynd: Ari. Sjá nánar á bls. 10-11. 1. deild Léleg lið og leikur Fátt umfína drœttiþegar Víkingur tapaðifyrir Þór ígœrkvöldi Lánleysi Víkinga hélt sínu striki í gærkvöldi, en þá töpuðu þeir fyrir Þór Akureyri 1-2 og þurfa nú stórir hlutir að gerast hjá Víkingum ef þeir eiga að forð- ast fall sem blasir við. Ellefta tap þeirra í röð. Leikurinn var lélegur hjá tveim lélegum liðum. Það virtist algjör- lega tilviljunum háð hvert boltinn fór, þegar senda átti á samherja. Ekki er hægt að kenna strekk- ingsvindi um það allt, þó hann hafi haft áhrif. Þórsarar náðu forustunni eftir aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Jónas Róbertsson skaut, en Ög- mundur Kristinsson í marki Vík- ings missti boltann klaufalega frá sér og Kristján Kristjánsson kom aðvífandi og sendi boltann af ör- yggi í markið úr frekar erfiðri að- stöðu. Víkingar náðu síðan að Víkingur-Þór A. 1-2 (1-2) Mark Víkings: Andri Marteinsson 13. mín. Mörk Þórs: Kristján Kristjánsson 4. mín. Nói Björnsson 26. min. Stjarna Víkings: Jóhann Þorvarðarson • Stjörnur Þórs: Jónas Róbertsson ** Rúnar Steingrímsson • Dómari: Friöjón Eövarðsson ** Áhorfendur: 328 jafna. Atli Einarsson komst af harðfylgni innfyrir vörn Þórs og sendi á Andra Marteinsson sem var í góðu skotfæri á markteig. Andri nýtti færið og jafnaði. Þórsarar sóttu öllu meira og Sund Eðvarð fremstur V.Evrópubúa! Varð sjötti í 100 m baksundi, nœstur á eftir sovésku og austur-þýsku keppendunum Eðvarð Þór Eðvarðsson frá um sigraði á 55,24 sekúndum. synti 1500 m skriðsund á 16:39,98 Njarðvík vann það glæsilega af- Annars urðu tímarnir í úrslitas- sek. og varð síðastur af 18 kepp- rek að komast í úrslit í 100 m undinu þessir: endum. baksundi á Evrópumeistaramót- ig0rPolyanski,Sovétríkjunum.55,24 Michael Gross frá V.Þýska- inu í sundi sem lauk í Sofia í Búlg- Dirk Richter, A.Þýskalandi.56,02 landi var maður mótsins, sem í aríu um helgina. A laugar- SergeiZaborotnov.Sovétríkjunum 56,88 heild þótti frekar sviplítið Gross dagsmorguninn synti hann á £?0"lBsa^ hlaut 6 gullverðlaun, fjögur í ein- 58,30 sek. i undanrasum, nytt Is- Eðvarð Þ. Eövarðsson, Islandi.57,92 stakhngsgreinum og 2 í boðsund- landsmet, og hann bætti það í Hans Fredin, Svíþjóð.......58,25 um. Ástæðan fyrir frekar slökum úrslitasundinu. Þá varð hann RicardoAldabe.Spáni.59,64 árangri í mótinu er tlin sú að í ár sjötti á 57,92 sek. Ragnheiður Runólfsdóttir setti er „milliár” - Ólympíuleikar í Eðvarð varð fremstur Vestur- íslandsmet á laugardaginn þegar fyrra og heimsmeistaramót á Evrópubúa í sundinu og árangur hún synti 200 m fjórsund á næsta ári. A.Þjóðverjar hlutu hans er því stórkostlegur. Evr- 2:30,65 mín. Það var lakasti tím- langflest verðlaun, 39 alls, en So- ópumet var sett í úrslitasundinu, inn hjá 26 keppendum í vétmenn komu næstir með 17. Igor Polyanski frá Sovétríkjun- greininni. Ragnar Guðmundsson -VS/Reuter bjargaði Ögmundur tvisvar er Halldór Áskelsson skaut að marki. Halldór átti einnig skalla að marki, yfir Ögmund, en einnig yfir markið Nokkuð vel var unn- ið að sigurmarki Þórs. Kristján lék upp kantinn og gaf fyrir á Sig- uróla Kristjánsson sem sendi knöttinn til Nóa Björnssonar. Nói náði að spyrna föstu skoti í bláhornið, óverjandi fyrir Ög- mund. Það sem eftir var hálf- leiksins skeði alls ekkert. Kristján komst í ákjósanlegt færi á 1. mín. síðari hálfleiks, en Ögmundur varði. Eftir það voru Víkingar meira í sókn, en náðu ekki að skapa sér færi, voru reyndar oftast rangstæðir. Á 85. mín. komust Þórsarar í skyndisókn, en enn varði Ög- mundur skot frá Kristjáni og Nói rétt missti af knettinum er hann hrökk af Ögmundi. Atli Einars- son komst einn inn á86. mín., en Ómar Guðmundsson í marki Þórs kom út fyrir vítateiginn og sló boltann frá og lenti síðan á Atla sem slasaðist við samstuðið og þurfti að fara af leikvelli. Ómar átti síðasta orðið í leiknum er hann bjargaði með úthlaupi. Líklega vilja bæði liðin gleyma þessum leik sem fyrst, svo lélegur var hann. Þórsarar voru örlítið heppnari og höfðu Jónas Ró- bertsson sem var langbestur á vellinum, sívinnandi og leikinn. Þór er því í baráttunni um ís- landsmeistaratitilinn, aðeins 4 stigum á eftir Fram. -gsm Stjarnan Fyrsti titillinn Stjarnan eignaðist í gærkvöldi sína fyrstu íslandsmeistara í knattspyrnu. Þá vann Garðabæj- arliðið Breiðablik 3-1 í úrslitaleik í 2. flokki kvenna á hinum nýja grasvelli við Ásgarð í Garðabæ. Þetta var fyrsti opinberi lcikurinn á þessum nýja velli og góð byrjun það. _VS Sigurbergur með Hauka? Miklar líkur eru á að Sigur- bergur Sigsteinsson, fyrrum landsliðsmaður í handknattleik, taki við þjálfun 2. deildarliðs Hauka. Óvíst er að Andrés Krist- jánsson komi frá Svíþjóð fyrr en keppnistímabilið er hafið og jafnvel ekki fyrr en um áramót en þá verður keppni í 2. deild lokið. Fyrirhugað hafði verið að Andrés myndi þjálfa sitt gamla félag og leika með því. Sigurbergur hefur aðallega þjálfað kvcnnalið und- anfarin ár en sem stendur stýrir hann kvennalandsliðinu í knatt- spyrnu. -VS 4. deild Sindri úr leik Reynir Arskógsströnd vann góðan sigur á Sindra frá Horna- firði, 5-1, í úrslitakeppni 4. deildarinnar í knattspyrnu á laugardaginn. Örn Viðar Arnar- son skoraði fyrst fyrir Reyni en Hornfirðingar jöfnuðu fljótlega. Garðar Níelsson og Örn Viðar komu heimaliðinu í 3-1 fyrir hlé og Björn Friðþjófsson innsiglaði sigurinn með tveimur vitaspyrn- um í seinni hálfleik. Sindri tapaði 6-1 fyrir Vaski í fyrsta leik riðils- ins þannig að Vaskur og Reynir berjast greinilega um 3. deildar- sætið. Liðin leika fyrri leik sinn á Akureyrarvellinum annað kvöld. -VS UMSJÓN: VfÐIR SIGURÐSSON Stadan í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu eftir sigur Þórs á Víkingi: Fram..............12 8 2 2 26-17 26 KR.................12 7 3 2 27-18 24 lA.................12 7 2 3 27-13 23 Valur.............12 6 4 2 17-9 22 Þór A..............12 7 1 4 20-16 22 IBK...............12 6 1 5 20-14 19 FH................12 4 1 7 14-22 13 Þróttur...........12 3 1 8 14-25 10 Víðir.............12 2 3 7 12-28 9 Víkingur..........12 1 0 11 12-27 3 Markahæstir: ÓmarTorfason, Fram..................9 RagnarMargeirsson, ÍBK..............9 Hörður Jóhannesson, |A..............8 BjarniSveinbjörnsson, Þór...........7 Björn Rafnsson, KR..................7 GuðmundurSteinsson, Fram............7 GuðmundurTofason, Fram..............6 Jónas Róbertsson, Þór...............6

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.