Þjóðviljinn - 14.09.1985, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
Bónusverkfallið
Neyðarástand á Siglufirði
Kolbeinn Friðbjarnarson formaður Vöku: Það þarfverulegar
launahækkanir til að bœta úr ástandinu. Fólk í bónusverkfalli er
ekkertáþvíað gefast upp. Ekki vístað kröfur VMSÍdugi tilaðfáfólk
aftur til starfa.
að má segja að hér og víða
annars staðar ríki nú
neyðarástand. Það vantar ekki
fiskinn, frystihúsin hér þurfa ekki
að kvíða því á þessu ári, en það
vantar fólk og þegar afköstin
minnka um meira en helming er
ástandið auðvitað afleitt, sagði
Kolbeinn Friðbjarnarson for-
maður Verkalýðsfélagsins Vöku
á Siglufirði í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
„Það hefur verið mjög góður
andi meðal starfsfólksins í frysti-
húsunum alveg síðan þessar að-
gerðir hófust og það er enginn
uppgjafartónn í liðinu. Dráttur-
inn á viðræðunum fyrir sunnan er
eflaust hugsaður til þess að kon-
urnar muni gefast upp, en þær
eru ekkert á því. Þetta gæti staðið
í margar vikur ef menn vilja það
endilega".
- Pað vantar fólk. Hvers
vegna?
„Svarið er einfalt: launin eru
allt of lág og svo er þetta erfið og
vandasöm vinna. Fólki bjóðast
léttari störf fyrir hærri laun og
auðvitað fer það í slík störf. Þetta
hefur lengi verið vitað, en ekkert
verið gert. Ég hef þá trú að til
þess að fá fólk aftur í fiskvinnsl-
una þurfi að hækka launin veru-
lega. Þótt kröfur Verkamanna-
sambandsins nái fram að ganga er
það engin trygging fyrir því að
fólk fáist til starfa í fiskvinnslu.
Það þyrfti jafnvel að koma meira
til“.
- Hafið þið staðið í einhverjum
viðræðum við fiskverkendur á
Siglufirði um kjarabœtur?
„Ekki síðan aðgerðirnar hóf-
ust, en við áttum nokkra fundi
þar áður og ég býst við að við-
ræður hefjist að nýju um helgina
eða eftir helgi. Þar verða ræddar
svipaðar kröfur og gerðar eru
fyrir sunnan.“ sagði Kolbeinn að
lokum.
-g«
■TORGIÐ'
Það er ekki bara menntamála-
ráðherra sem grefur undan
skólunum!
Rúllubindivél
Hreinasta
höfuðþing
Hefur bjargað
miklum heyjum
- Ég get sagt þér það í fréttum,
að í fyrra tók ég þátt í góðum
kaupum, sagði Þorgrímur Starri.
- Þá keyptum við, fjórir í félagi,
rúliubindivél. Hreinasta höfuð-
þing og tekur mjög fram þeim
heyvinnutækjum öðrum, sem ég
hef kynnst.
Síðan höfum við bundið mikið
fyrir menn og bjargað með því frá
hrakningi miklum heyjum. Hey-
ið er verkað jöfnum höndum sem
vothey eða þurrhey, eftir þvf
hvernig á stendur. Ég er byrjaður
á því núna að gefa kúnum hey úr
rúllunum, alveg ilmandi fóður,
sumt aðeins bliknað. Ég skil ekki
í öðru en þessi tæki eigi eftir að
ryðja sér til rúms.
En það fást víst ekki feildir af
þeim tollar né söluskattur. Er
samt kannski eitthvað verið að
skrafa um það, að gera þurfi
búvöruframleiðsluna ódýrari,
m.a. með því að lækka tilkostn-
aðinn? Það er eins og mig minni
það.
Á jaðri leiksvæðis Langholtsskóla eru jarðýtur að grafa allt í sundur. Ekkert talað við skólastjóra um málið. Engin girðing sett upp til þess að vernda börnin
frá vinnuvélunum. Ljósm. Sig.
Langholtsskóli
„Fáheyrð ókurteisi
Það, sem næst þyrfti að gera, er
svo að byggja stóra skemmu þar
sem rúlluböggunum væri safnað
saman því auðvelt er að flytja þá,
á heykló eða gaffli, heim á býlin.
En það er víst ekki sjálfgefið að
styrkur fáist út á slíka félagsbygg-
ingu en kannski hefði hún lána-
rétt?
-mhg
Matthías Haraldsson yfirkennari í Langholtsskóla: Allt er grafið í
sundur á skólalóðinni án þess að tala við skólayfirvöld
Þetta er fáheyrð ókurteisi
við okkur sem stjórnum
skólanum og algjör fyrirlitning á
700 börnum, sagði Matthías Har-
aldsson, yfirkennari í Langholts-
skóla um þær framkvæmdir sem
hófust í gærmorgun á vegum
borgarinnar. Stórar jarðýtur eru
að grafa allt í sundur á jaðri
leiksvæðis skólans.
„Það var ekkert samráð haft
við okkur um þetta. Auðvitað
hefði átt að hafa samband við yf-
irmenn skólans og biðja okkur
um að hjálpa til við að passa upp á
Rás 2
Brat á utvaipslögum
Ungir Sjálfstæðismenn útvörpuðu skoðunum sínum og sendu út ókeypis auglýsingar.
Þorgeir Ástvaldsson: alvarlegt slys
börnin meðan á framkvæmdun-
um stendur, en það var ekki gert.
Allar svona framkvæmdir kalla á
krakkahópinn. Þau eru að leika
sér innan um þessar vélar. Það
getur verið hættulegt“. Matthías
sagði ennfremur að skólastjóri
Langholtsskóla hefði spurst fyrir
um það hjá borgaryfirvöldum
hvað um væri að vera og fengið
þau svör að það væri verið að
leggja vinnuveg til þess að kom-
ast að byggingu sem á að fara að
reisa fyrir fötluð börn en fram-
kvæmdarmátinn er til skammar“,
sagði Matthías.
Á fundi útvarpsráðs í gær var
fjallað um brot Heimdellinga á
hlutleysislögum útvarpsins. Síð-
astliðið laugardagskvöld var þátt-
urinn „Næturvaktin“ á Rás 2
sendur út með nýju sniði og um-
sjónarmenn þáttarins brugðu
verulega út af lögbundnu hlut-
leysi nkisfjölmiðla. Þeir sem sáp
um þáttinn voru þeir Arnar Há-
konarson og Eiríkur Ingólfsson,
báðir miklir áhugamenn um
stjórnmál og fóru ekki leynt með
það í umræddum þætti. Munu
þeir báðir hafa verið staddir á
þingi Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna á Akureyri og þótti þeim
ástæða til að greina frá því og
ýmsu sem fram fór á þinginu, auk
þess sem þeir sendu þakkir og
kveðjur til félaga sinna í sam-
bandinu. Auk þessa sögðust þeir
vilja leyfa þjóðinni að heyra hluta
af amerískri útsendingu og gerðu
það, en þessi útsending hófst á
langri auglýsingu um ákveðna
gosdrykkjartegund. Fyrir utan
þetta tóku þeir nokkur viðtöl um
borð í flugvélinni sem flutti þá af
þinginu og klykktu síðan út með
því að flugfreyjan afkynnti þátt-
inn með því a segja að Flugleiðir
og útvarpið byðu góða nótt.
„Þetta er auðvitað algjört brot
á útvarpslögum“, sagði Ingibjörg
Hafstað fulltrúi Samtaka um
Kvennalista í útvarpsráði í sam-
tali við blaðið. „Útvarpsstjóri
lýsti því yfir á fundinum áð þessir
menn muni ekki koma fram í
Ríkisútvarpinu framar vegna
þessa brots og Þorgeir Ástvalds-
son tók það fram að þetta hefði
verið alvarlegt slys sem varðaði
við fjórar greinar hlutleysislag-
anna.“
- vd.
„Sá sem stjórnar þessum fram-
kvæmdum er ekki starfi sínu vax-
inn. Hann gerði engar ráðstafanir
til þess að vernda börnin. Girðing
verður að koma, það er á hreinu
og við líðum ekki svona ókurt-
eisi. Það verðurfunduríforeldra-
félaginu á mánudaginn og þetta
mál verður vafalaust tekið fyrir,
sagði Matthías Haraldsson yfir-
kennari í Langholtsskóla.
-SA
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN