Þjóðviljinn - 14.09.1985, Síða 3

Þjóðviljinn - 14.09.1985, Síða 3
FRETT1R Tónlist Tónlistarhátíð aflýst Árlegri hátíð ungra norrœnna tónskálda klúðrað afFinnum. Hilmar Ragnarsson fulltrúi U.N.M. á íslandi: Mikið áfall. 14manns hafaœft mikiðfyrirhátíðina. Þetta er mikið áfall og alveg grátlegt að búið sé að aflýsa þéssum tónleikum, eins og fólk er búið að leggja mikla vinnu í æfingar,“ sagði Hilmar Þórðarson í samtali við Þjóðviljann, en Hilmar er fulltrúi íslands í „Ung Nordisk Musik“ sem gengst ár- lega fyrir tónleikum ungra nor- rænna tónskálda sem Norður- löndin halda til skiptis. Að þessu sinni átti tónlistar- hátíðin að vera í Finnlandi dag- ana 29. september til 6. október en hefur nú verið aflýst. „Það virðist vera að sá sem var í forsvari fyrir Finnana og átti að sjá um undirbúning hafi hrein- lega ekki gert neitt af því sem þurfti að gera. Við fréttum af þessu mjög seint og það kemur sér auðvitað mjög illa því að þessi 14 manna hópur sem ætlaði að fara héðan hefur unnið við æfing- ar á þremur verkum, þar á meðal er verk eftir Hauk Tómasson sem heitir „Tríó“ og annað eftir Kjartan Ólafsson sem heitir „Dimrna". Þar sem núna er ár æskunnar og tónlistar þá vildum við hafa þetta svolítið veglegt og við höfum ekki fengið neinar upplýsingar frá Finnum aðrar en þær að bréf verði sent þar sem greint er frá ástæðum fyrir því að þessu er aflýst. Þetta er í fyrsta sinn svo ég viti til að svona gerist, en þetta hefur verið árlegur við- burður síðan 1948 og íslendingar hafa verið með síðan 1973. Ofan á allt saman þá fréttum við af þessu þannig að Jón Örn Marinósson, tónlistarstjóri út- varpsins, fékk telex á mánudag- inn frá finnska útvarpinu þar sem honum er sagt af þessu, því finnska útvarpið ætlaði að senda RÚV efni frá hátíðinni. En hóp- urinn sem átti að fara héðan ætlar að hittast á sunnudaginn og ræða málin og spá í hvort hægt sé að nota þetta prógramm á tón- leikum hérlendis í staðinn", sagði Hilmar að lokum. -vd Kjötið Kaninn utan laga Hákon Sigurgrímsson: Verður að stöðva þennan innflutning með einhverjum hœtti. I gær barst áiitsgerð lögfræð- inga sem gerð var fyrir Stéttar- samband bænda og Framleiðslu- ráð Landbúnaðarins, varðandi innflutning hersins á kjötvörum og hugsanlega málssókn bænda- samtakanna af því tilefni. í stuttu máli komast lögfræð- ingarnir að þeirri niðurstöðu að ekki sé fært að höfða mál á hend- ur hernum vegna kjötinnflutn- ingsins og í álitsgerðinni segir að í afskiptaleysi utanríkisráðu- neytisins felist í reynd samþykki þess á innflutningnum og þá um leið sú lögskýring að ákvæði varnarsamningsins víki til hliðar ákvæðum laga nr. 11 1928 um varnir gegn því, að gin- og klaufa- veiki berist til landsins. „Það virðist vera ljóst að varn- arliðið er ekki undir íslenskum lögum“ sagði Hákon Sigurgríms- son framkvæmdastjóri Stéttar- sambands bænda þegar Þjóðvilj- inn leitaði álits hans á niðurstöð- um lögfræðinganna. „Það á eftir að fjalla um málið í stjórn en ég get ekki séð að þetta þýði nein lok á málinu, það verður að finna nýjar leiðir til þess að stöðva þennan innflutning". - Er þá ekki ástœða til þess að sambandið beiti sér fyrir því að þessi ákvœði í samningnum verði felld niður eða breytt? „Ég hefði haldið það, það er vel hugsanlegt að það verði gert. Við teljum að það stafi hætta af þessum innflutningi og verður að stöðva hann með einhverjum hætti“. -vd Skák Beint frá Moskvu Skáksnillingarnir Kasparof og Karpof tefla sína 5. einvígisskák í dag í Moskvu og er sá fyrrnefndi með hvítt. Þeir hjá Skáksambandi íslands hafa gert ráðstafanir til að skýra skákirnar jafnóðum og munu sérfróðir annast það verk á skrif- stofum sambandsins að Lauga- vegi 71. Hefjast skýringarnar kl. 15.00. -v Frá heimsókn forystumanna Alþýðubandalagsins í Líffræðistofnun Háskólans. Geir Gunnarsson að skoða lífverur úr fjöru Dýrafjarðar en það er eitt af verkefnum Líffræðistofnunar Háskólans að athuga hugsanleg áhrif brúargerðar þar á lífríki fjörunnar. Blanda Ráoherrar aðgerðalausir Apartheid verður tekiðfyrir á utanríkisráðherra- fundi í október. Steingrímur tók við ályktunum biskupa og verkalýðshreyfingar í gœr Engin ákvörðun hefur verið tekin innan íslensku ríkisstjórnarinnar um aðgerðir gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afríku. Á máli ráðherra sem Þjóðviljinn hefur haft tal af er að skilja, að þetta hafi ekki einu sinni verið rætt innan ríkisstjórnarinnar. Hjá Ingva Ingvasyni ráðu- neytisstjóra í utanríkisráðu- neytinu fengust þær upplýsingar að þetta mál ætti að taka upp á fundi utanríkisráðherra Norður- landa sem haldin verður 17.-18. október n.k. Starfandi hefur ver- ið í nokkur ár nefnd sem skipuð er starfsmönnum utanríkisráðu- neyta Norðurlandanna og hefur hún fjallað sérstaklega um af- stöðuna gagnvart Suður-Afríku. Nefndin mun leggja fram tillögur um aðgerðir gegn stjórninni þar syðra á fundi utanríkisráðherr- anna en ekki er vitað í hverju þessar aðgerðir munu felast. Hugmyndir nefndarmanna eru að sjálfsögðu háðar samþykki ráðherranna. Á sameiginlegum fundi með Steingrími Hermannssyni forsæt- isráðherra í gær afhentu Pétur Sigurgeirsson biskup, Ásmundur Stefánsson forseti ÁSÍ og Krist- ján Thorlacius formaður BSRB samþykktir fundar biskupa á Norðurlöndum og Norræna verkalýðssambandsins frá 29. ág- úst sl. Óskuðu þeir eftir því að ríkisstjórnin fjalli sérstaklega um málið og geri það sem í hennar valdi stendur til að auka þrýsting á suðurafrísk stjórnvöld. -gg Sjá leiðaraopnu í Sunnudagsblaði Vilja lengri frest Ólafur Ragnar Grímsson: Frestur um 2 ár sparar heilan milljarð í erlendum lántökum. Fimm virkjanirfullverkhannaðar hjá Landsvirkjun. Sölumöguleikar á orku litlir. jj að voru miklar umræður um Blönduvirkjun á síð- ásta stjórnarfundi Landsvirkjun- ar og það komu fram fyrstu drög að rannsókn á framkvæmdaáætl- un“ sagði Ólafur Ragnar Gríms- son í samtali við Þjóðviljann í gær. „Ég lagði fram tillögu á fundin- um þess efnis að fresta Blöndu- virkjun um tvö ár og miða gang- setningu hennar við árið 1990. Ef þessi ákvörðun verður tekin mun það spara heilan milljarð í er- lendum lántökum á næstu tveimur árum, sem er veigamikil upphæð ef haft er í huga stöðu þjóðarinnar gagnvart erlendri skuldasöfnun. Það er til veruleg umframorka í kerfinu nú þegar og nú er komin út ný orkuspá sem sýnir að orku- þörf fram til aldamóta er mun minni en áður var áætlað, munur- Afnámshugmyndin Ekki viðhorf þingflokks Eg tel að frásagnir Þjóðviljans af umræðum um fiskveiði- og kvótamál í þingflokki Alþýðu- bandalagsins gefi ranga hugmynd um stöðu þessara mála á þeim vettvangi, sagði Hjörleifur Gutt- ormsson þingmaður Alþýðu- bandalagsins í samtali við Þjóð- viljann í gær. „Þessi mál hafa ítrekað verið til umræðu í þingflokknum í sumar og ýmsar hugmyndir verið reifað- ar, þ.á m. af Skúla Alexand- erssyni. Hugmyndir Skúla Alex- anderssonar um afnám kvóta- kerfisins svonefnda og það strax 1. október n.k. eru langt frá því að endurspegla viðhorf þingflokksins í heild að mínu mati. Ég er í hópi þeirra sem telja margra lagfæringa þörf á núver- andi stjórnun fiskveiða, m.a. varðandi veiðar smábáta og með- ferð aflans. Ég tel hins vegar vera nauðsynlegt að menn átti sig á því hvað skuli taka við áður en þeir hrópa af núverandi fiskveiði- stjórnun í heild sinni. Rétt er að hafa í huga að á þessu ári gat út- gerðin valið á milli aflamarks á skip og sóknarmarks og síðari leiðin hefur gefið góða raun í mörgum tilvikum, m.a. á Austur- landi. Ég hygg, að útvegsmenn nyrðra og eystra muni hugsa sig vel um áður en þeir taka undir kröfur Vestfirðinga og fleiri um grundvallarbreytingar á núver- andi stjómun, eins og Skúli Alex- andersson er að viðra í sínum hugmyndum og kjördæmisráð Framsóknarflokksins á Vest- fjörðum setti fram kröfur um“, sagði Hjörleifur. -gg inn nemur einni og hálfri Blöndu- virkjun. Þannig að það er full ástæða til þess að taka ákvörðun nú þegar um að fresta virkjuninni til 1990 og jafnvel til 1991. Til- lögunni var vísað til umfjöllunar í stjórn og í iðnaðarráðuneyti og endanleg afstaða til hennar verð- ur tekin í lok mánaðarins. Það er rétt að hafa það í huga að mótrök gegn þessu eru helst þau að orka verði að vera fyrir hendi ef ný stóriðja kemur upp og þá vil ég benda á þá staðreynd að Landsvirkjun á nú fimm virkjanir sem eru fullverkhannaðar til við- bótar Blönduvirkjun. Það eru Villinganesvirkjun, Sultartanga- virkjun, Vatnsfellsvirkjun. Fljótsdalsvirkjun og stækkun Búrfellsvirkjunnar. Orkufram- leiðsla þessara fimm virkjana eru 3300 gígawattstundir á ári. Og þar sem ekkert liggur fyrir um sölu á þessari orku nema til hins almenna markaðs þá tel ég ákvörðun um frestun á Blöndu- virkjun um tvö ár fyllilega raun- hæfa“, sagði Ólafur Ragnar Grímsson að lokum. -vd Laugardagur 14. september 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.