Þjóðviljinn - 14.09.1985, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 14.09.1985, Qupperneq 4
LEIÐARI Svindlaradabbía Starfshættir Davíðs Oddssonar borgarstjóra varðandi hina fyrirhuguðu sameiningu ísbjarn- arins hf. og Bæjarútgerðar Reykjavíkur vekja sífellt alvarlegri spurningar. Enn hafaengin svör fengist við því, af hverju borgarstjóri leyndi borgarfulltrúa því að sameiningin stæði fyrir dyrum. Hvers vegna var málið ekki upplýst í útgerðarráði á sínum tíma? Hvers vegna fengu fulltrúar minnihlutaflokkanna ekki að vita um málið fyrr en þeir lásu það í dagblöðunum? Hvers vegna fékkst það ekki rætt fyrr en eftir mikinn, opinberan eftirrekstur? Hvað er það eiginlega sem Davíð Oddsson vildi fela fyrir borgarbúum þangað til búið var að ganga tryggilega frá öllum hnútum sameiningarinnar? I þessu sambandi er vert að hafa tvennt í huga: • Eigendur ísbjarnarins hf. hafa um langt skeið verið í innsta hring Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og væntanlega gefið ótæpilega í flokkssjóðina. Flokkurinn skuldar þeim því greiða. • ísbjörninn hf. á í miklum fjárhagsörðug- leikum. Hann skuldar gífurlegar upphæðir, og tapið á rekstri hans í fyrra nam nálægt níu-tíu miljónum króna. Margt bendir til þess að hann muni ekki af eigin rammleik komast úr þeim kröggum sem hann er í núna. Þessar staðreyndir benda því einfaldlega til þess, aö hér sé á ferðinni sú gamaldags spilling sem þrífst einatt í kringum kerfisflokkana, þar sem vinir skara eld að köku vina. Sjálfstæðis- flokkurinn er hér að bjarga fyrirtæki á hausnum, vegna flokkstengsla og einskis annars. Sukk af þessu tæi verður æ algengara í kringum borgar- stjórnarflokk Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og nægir að minna á, hvernig fjölskylduhags- munir eins af borgarfulltrúum flokksins réðu úrslitum í Hamarshúsinu á dögunum. Eitt blaða hefur Þjóðviljinn bent á spillingar- tengslin sem rekja má í þessu máli. Staðhæf- ingar Þjóðviljans hafa nú fengið ótvíræða stað- festingu. Nú er nefnilega komið í Ijós, að for- ráðamenn annars frystihúss, Kirkjusands hf., sendu borgarstjóra bréf þegar í júní, þar sem þeir óskuðu eftir því að vera með í umræðum um endúrskipulagningu og sameiningu fisk- vinnslufyrirtækja í Reykjavík. En þetta bréf kom aldrei fram. Borgarritari sá það hjá Davíð, en borgarstjórinn var svo lítilla sanda að hann stakk því undir stól án þess að minnast á það við nokkurn mann. Það hefði nefnilega getað hindrað greiða Sjálfstæðisflokksins við eigendur ísbjarnar- ins hf. Þessi ótti borgarstjóra við að gera uppskátt um óskir Kirkjusands er auðvitað staðfesting á því hvers konar spilling er hér á ferðinni. Fram- ferði hans vekur mjög alvarlegar spurningar um hvað er eiginlega á seyði. Þegar pukrið og leyndin í upphafi, að viðbættum flokkstengslum eigenda ísbjarnarins og Sjálfstæðisflokksins og skuldasúpu fyrirtækisins, eru höfð í huga, þá hnígur allt að sömu átt: fyrir hönd Sjálfstæðis- flokksins er Davíð Oddsson að hygla flokks- gæðingum á kostnað borgarbúa og það heldur ótæpilega! Þjóðviljinn hefur hvað eftir annað fjallað um þessi mál, ekki síst eftir að ppp komst að Davíð faldi bréfið frá Kirkjusandi. í þessu sambandi er athyglisvert, að Morgunblaðið, sem ævinlega reiðir skjöld til varnar Davíð, hefur þagað þunnu hljóði í málinu. Sú þögn æpir hátt. Hún er staðfesting þess, að meira að segja Morgun- blaðinu þykir málið sóðalegt. Þessi dabbía Davíðs og Sjálfstæðisflokksins má alls ekki standa til langframa. Til þess er hún borgarbúum of kostnaðarsöm. Við höfum hrein- lega ekki efni á að gefa flokksgæðingum heilt frystihús og hátt á annað hundrað miljónir í meðlag, eins og gert er ráð fyrir. Staðreyndin er sú, eins og þetta mál og Hamarshúsmálið sýna glöggt, að í kringum borgarstjórnarflokk Davíðs Oddssonar er að vaxa lið, sem hikar ekki við að notfæra aðstöðuna sér til framdráttar. Um þann hóp er óhætt að nota þau orð sem Halldór Lax- ness skrifaði á einum stað: „Og sú svindlaradabbía skal á hausinn. Og þá skulu þeir ekki þurfa að binda um skeinu sem hafa trúað á svindlarana og lagt höfuð sitt í skaut þeim“. -ÖS UOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgofandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphóðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson. Fréttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, MörðurÁrnason, Páll Valsson, Sigríður Pótursdóttir, SævarGuð- bjömsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson. Ljósmyndir: Einar Ólason, Valdís öskarsdóttir. Útlit og hönnun: Filip Franksson, Svava Sigursveinsdóttir. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. SkHfstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrlfstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Útbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir. Auglýslngar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga Clausen. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Símavarsla: Jenny Borgedóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Húamæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. (Jmbrot og setning: Prentsmiðja þjóðvlljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð I lausasölu: 30 kr. Sunnudagsverð: 35 kr. Áskriftarverð á mánuði: 360 kr. Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN' Laugardagur 14. september 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.