Þjóðviljinn - 14.09.1985, Page 6

Þjóðviljinn - 14.09.1985, Page 6
ÍÞRÓTTIR Handbolti Byrjar í Þýskalandi í dag Vestur-þýska Bundesligan í handknattleik hefst í dag 14. sept- ember. Fjórir íslenskir landsliðs- menn leika í henni næsta vetur og auk þess þjálfar Jóhann Ingi Gunnarsson lið Kiel sem fyrr. í 1. umferðinni fá Sigurður Sveinsson og félagar í Lemgo lið Kiel í heimsókn. Essen, með Al- freð Gíslason í broddi fylkingar, sækir meistarana Gummersbach heim, nýliðar Gunzburg, sem nú skarta Atla Hilmarssyni, fá Fusc- he frá Berlín í heimsókn og Páll Ólafsson leikur með Dankersen á útivelli gegn Göppingen. Reiknað er með að sömu þrjú liðin og í fyrra raði sér í efstu sætin, Gummersbach, Kiel og Essen. Dankersen er líklega til að verða í efri hlutanum en Lemgo og Gunzburg gera vel ef þau sleppa við fallbaráttuna. I 2. deild leika tveir íslenskir landsliðsmenn, Kristján Arason með Hameln og Bjarni Guð- mundsson sem fyrr með Wanne- Eickel. Reiknað er með báðum í toppbaráttunni á þeim vígstöðv- um í vetur. -JHG/VS Kraftlyftingar Stórmót erlendis Þessa dagana gera íslenskir kraftlyftingamenn víðreist. Kári Elísson og Víkingur Traustason keppa á Norðurlandameistara- mótinu sem fram fer í Þránd- heimi í Noregi í dag og á morgun. Um næstu helgi fer níu manna lið á heimsmeistaramót unglinga í Vestur-Þýskalandi. Liðið skipa þeir Gunnlaugur Pálsson, Már Óskarsson, Ölafur Sveinsson, Bjarni J. Jónsson, Baldur Borg- þórsson, Magnús V. Magnússon, Matthías Eggertsson, Hjalti Árnason og Torfi Ólafsson. Kári á Norðurlandameistara- titii að verja frá því í fyrra og stefnir á gullið. Af unglingalands- liðsmönnum eiga Hjalti og Torfi mesta möguleika en þeir eiga báðir skammt í heimsmet í sínum flokkum, og fleiri gætu blandað sér í baráttuna um verðlaunasæti á mótinu. Knattspyrna Firma- keppni KR Hin árlega firma- og stofnan- akeppni KR í knattspyrnu utan- húss hefst laugardaginn 21. sept- ember. Fjöldi þátttökuliða er takmarkaður við 32 og helstu mótsreglur eru þær að liðin eru skipuð 7 leikmönnum og leikið er í 2x15 mínútur, þvert á venju- legan völl. Sumarstarfsmenn eru Iöglegir. Úrslitakeppnin fer fram helgina 28.-29. september. Skráning liða stendur nú yfir, þátttökutilkynningar þurfa að berast í síðasta lagi þriðjudaginn 17. september til Steinþórs Guð- bjartssonar, framkvæmdastjóra Knattspyrnudeildar KR, í síma 27181. Þriðjudagur UEFA-bikarinn Valur-Nantes Laugardalsvöllur þriðjudaginn 17. september kl. 18. Evrópukeppni meistaraliða ÍA-Aberdeen Laugardalsvöllur miðvikudaginn 18. september kl. 18. 6 SÍÐA - PJÓÐVILJINNI Laugardagur 14. september 1985 Hafa ávalltstaðið sig vel á heimavelli. Nantes með sterkt lið MiðvH^pdagur VerJim Leighton vítaspyrnu íþriðja skiptið á Laugardalsvellinum? Eftir fjögurra ára fjarveru frá Evrópumótunum í knattspyrnu eru Valsmenn komnir í slaginn þar á nýjan leik. Á þriðjudaginn taka þeir á móti hinu sterka franska liði Nantes í fyrri leik fé- laganna í 1. umferð UEFA- bikarsins. Lið Nantes hefur byrjað vel í frönsku 1. deildarkeppninni í haust og aðeins tapað einu sinni í fyrstu 10 leikjunum. Fyrir 11. umferðina í gærkvöldi var það í öðru sætinu, þremur stigum á eftir Paris St. Germain. Með Nantes leika þrfr úr byrj- unarliði Frakka í HM-leiknum gegn Austur-Þjóðverjum í síð- ustu viku. Það eru varnarmenn- irnir William Ayache og Yvon Le Roux, og hinn leikni framherji Jose Toure. Með liðinu leik einn- ig júgóslavneski markakóngur- inn Vahid Halilhodzic, sem reyndar er í banni í fyrri leiknum, og argentínski landsliðsmaðurinn Burruchaga sem Nantes keypti nú í sumar. Það er því ljóst að Nantes er í hópi sterkustu félags- liða sem hingað hafa komið. Valsmenn ganga afslappaðir til leiks eftir æsispennandi Islands- mót. Þeir byrjuðu rólega í vor en hafa sótt sig stöðugt eftir því sem liðið hefur á sumarið og töpuðu ekki í síðustu 13 leikjum sínum í íslandsmótinu. Þeir eru ís- landsmeistarar á ný eftir fimm ára hlé og eru vel að þeim titli komnir. Þetta er aðeins í þriðja skiptið sem íslenskt og franskt félag mæt- ast í Evrópukeppni. KR-ingar léku einmitt gegn Nantes árið 1966, Nantes vann 3-2 á Laugar- dalsvellinum og 5-2 í Nantes í Evrópukeppni meistaraliða. Þá léku núverandi þjálfari og fram- kvæmdastjóri einmitt báðir með Nantes. Víkingar mættu síðan Bordeaux í UEFA-bikarnum árið 1981 og Bordeaux vann báða leikina 4-0. Síðan þá hefur orðið bylting í frönsku knattspyrnunni. Frakkar skutust uppá stjörnuhimininn þegar þeir komust í undanúrslit heimsmeistarakeppninnar 1982 og árið 1984 var ein allsherjar sig- urganga hjá þeim - og þeir eru núverandi Evrópumeistarar. Frönsku félagsliðunum hefur hinsvegar ávallt gengið brösug- lega í Evrópumótunum, að mati framkvæmdastjóra Nantes sem kom hér fyrir skömmu er það vegna þess að frönskum knatt- spyrnumönnum er frekar illa við að leika erlendis - þeir kunna alltaf best við sig á heimavelli. Valur hefur náð mjög góðum ár- angri á heimavelli í Evrópu- keppni og sjaldan tapað, nú er að sjá hvort meistararnir nýkrýndu ná að standa uppi í hárinu á Frökkunum í Nantes. -VS Eitt er öruggt með viðureign í A og Aberdeen í Evrópukeppni meistaraliða - skosku meistar- arnir munu ekki vanmeta áhuga- mennina frá Akranesi. Þeir munu minnast leikja liðanna í Evrópu- keppni bikarhafa 1983 þegar Aberdeen vann mjög ósanngjarnt á Laugardalsvellinum, 2-1, og mátti síðan sætta sig við 1-1 jafn- tefli á heimavelli sínum, Pitto- drie. Frammistaða ÍA haustið 1983 er ein sú albesta sem íslenskt fé- lag hefur náð í Evrópukeppni. Aberdeen var handhafi Evrópu- bikarsins og komst síðan í undan- úrslit keppninnar þennan vetur. Bæði lið hafa tekið talsverðum breytingum síðan en eru bæði eftir sem áður í fremstu röð. ÍA hefur, þrátt fyrir mannamissi, verið í baráttunni um íslands- meistaratitilinn í sumar og Aber- deen hefur ekki tapað leik í skosku úrvalsdeildinni í haust en er „aðeins” í öðru sæti samt sem áður. Þungamiðjan í skoska landslið- inu kemur frá Aberdeen. í mark- inu stendur Jim Leighton sem orðinn er fslendingum að „góðu” kunnur. Hann varði vítaspyrnu frá Árna Sveinssyni í leik liðanna 1983 og sl. vor varði hann víta- spyrnu frá Teiti Þórðarsyni í HM- leik íslands og Skotlands eins og öllum er í fersku minni. Fyrir framan hann eru landsliðsmið- verðirnir Alex McLeish og Willie Miller og, síðast en ekki síst, er hinn „íslenski” Jim Bett á miðj- unni. Aberdeen keypti Bett sl. sumar - hann lék með Val sumar- ið 1978, er giftur íslenskri konu, lítur á ísland sem sitt annað heimaland, og skoraði sigurmark Skota á Laugardalsvellinum í vor. Skagamenn eru þrautreyndir í Evrópukeppni. Guðjón Þórðar- son, sem er þrítugur í dag (til hamingju Guðjón) hefur leikið 17 Evrópuleiki og Árni Sveinsson einum betur, eða 18. í fyrra velgdi ÍA belgísku meisturunum Beveren undir uggum, var nálægt sigri í 2-2 jafnteflisleik á Laugar- dalsvellinum og í síðari leiknum í Belgíu voru tvö lögleg mörk dæmd af liðinu meðan staðan var 0-0. Ef að líkum lætur má búast við mikilli stemmningu og fjörugum leik á miðvikudagskvöldið. Það er alltaf mikið fjör á Evrópu- leikjum Akurnesinga og ólíklegt að breyting verði þar á í þetta skiptið. -VS Jim Bett kann vel við sig á Laugardals- vellinum. Skorar hann eitt af sínum glæsilegu mörkum gegn ÍA? Guöni Bergs- son og félagar í Valsvörninni sterku þurfa að vera vel á verði gegn leiknum Frökkunum. Hvað gera Valsmenn gegn Frökkunum? Leikur IA sama leik og 1983?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.