Þjóðviljinn - 14.09.1985, Page 9
Svíþjóð
Njósnir
Var Gordiéfskí
njósnari í 20 ár?
London, Kaupmannahöfn -
Heimildir innan bresku leyni-
þjónustunnar skýrðu frá því i
gær að sovéski njósnarinn
Oleg Gordiefskí sem varð til
þess með flótta sínum að 25
sovéskum þegnum var vísað
úr Bretlandi í fyrradag hafi
unnið náið með bresku leyni-
þjónustunni um 20 ára skeið.
Gordiefskí var í tæp 20 ár á
Vesturlöndum en hann kom til
Danmerkur árið 1966 og var þar
til 1970. Síðan var hann í tvö ár í
London en dvaldist svo í Dan-
mörku árin 1972-78 þegar hann
sneri aftur til London.
Erik Ninn-Hansen
dómsmálaráðherra Danmerkur
sagði í sjónvarpsviðtali í gær að
Gordiefskí hafi látið dönsku
leyniþjónustunni í té „mjög
mikilvægar" upplýsingar meðan
hann dvaldi í landinu. Bætti hann
því við að leyniþjónustur Bret-
lands og Danmerkur hefðu átt
gott samstarf með Gordiefskí
sem sagður er hafa verið yfirmað-
ur KGB-stövðarinnar í London
þegar hann flúði.
I breska blaðinu Evening
Standard birtist í gær grein eftir
blaðamann í Moskvu, Victor Lo-
uis, sem er sagður hafa góð sam-
bönd á hæstu stöðum. Ásakar
Louis bresku leyniþjónustuna
fyrir að ýkja mjög mikilvægi Gor-
diefskís og segir að það sé mál
manna í Moskvu að með þessu
séu „Vesturlönd að koma vestur-
þjóðverjum til hjálpar vegna
hneykslisins út af Hans Joachim
Tiedge sem sótti um hæli í
Austur-Þýskalandi". Louis bætir
því við að „hann hefði augljós-
lega komið að miklu meira gagni
ef hann héldi áfram störfum held-
ur en falinn einhvers staðar úti í
sveit í Englandi“.
í Bretlandi er því mótmælt að
einhver tengsl séu milli flótta
Gordiefskís og Tiedge. Sá fyrr-
nefndi hafi verið búinn að ákveða
að flýja nokkrum vikum áður en
Tiedge fór austur.
eða Pálmi?
Útlitfyrir afar tvísýnar kosningar á sunnudag. Jafnaðarmenn virðast
hafa vinninginn enþurfa að stóla meira á VPK
Þótt Olof Palme sé Ijóngáfaður og Ulf Adelsohn fyndinn og smart er óvíst hvort
þeir standast landa sínum Birni Borg snúning í tennis.
Stokkhólmi - Siðustu skoðana-
kannanir sem birtast fyrir
kosningarnar í Svíþjóð á
morgun, sunnudag, staðfesta
það sem hefur verið vitað að
það verður afar mjótt á munun-
um en allt bendir þó til þess að
stjórn jafnaðarmanna muni
halda velli.
Staðan í sænska þinginu er sú
fyrir kosningar að jafnaðarmenn
ráða yfir 166 þingsætum, borg-
araflokkarnir 163 þingsætum og
Vinstriflokkurinn-kommúnistar
yfir 20 sætum. Síðasttaldi flokk-
urinn hefur stutt stjórn Olofs
Palme en hann hefur þó ekki
tekið upp formlegt stjórnarsam-
starf við flokkinn. Fari kosning-
arnar eins og skoðanakannanir
benda til verður stuðningur VPK
Palme öllu mikilvægari en áður
því þá hefur hann færri þingmenn
en borgaraflokkamir þrír til
samans.
Á sænska þinginu sitja 349
manns frá fimm flokkum og
skiptast þeir á þennan veg:
Jafnaðarmenn em stærstir með
166 þingsœti. Þeir voru samfellt
við stjórnvölinn frá 1932-76 og
síðan aftur frá 1982. Leiðtogi
þeirra hefur verið frá 1969 Olof
Palme sem er 58 ára að aldri.
Vinstriflokkurinn-kommúnist-
ar hafa 20 þingsœti og eru minnsti
flokkurinn á þingi. Þeirra hlut-
verk hefur verið að styðja stjórn
jafnaðarmanna en halda fram
þeirri stefnu að auka skattaá-
lögur á efnafólki, auka ítök ríkis-
valdsins yfir iðnfyrirtækjum og
hækka niðurgreiðslur á matvæl-
um. Formaður flokksins er Lars
Wemer sem er 50 ára að aldri.
Moderata samlingspartiet er
næststærsti flokkurinn á þingi og
sá sem er lengst til hægri. Þing-
styrkur hans er 86 manns. Flokk-
urinn er fylgjandi frelsi markað-
arins og svipar mjög til annarra
íhaldsflokka Norður-Evrópu.
Formaður flokksins er Ulf Adol-
sohn. Hann er 44 ára og sagður
líkjast mjög Ronald Reagan í fasi
og málflutningi.
Miðflokkurinn hefur 56 þing-
sœti og má muna fífil sinn fegri
því hann hefur mátt sjá af miklu
fylgi til moderata á undanförnum
Suður-Afríka
Botha bannar
kirkjuráðstefnu
Höfðaborg og Lusaka - Stærstu
samtökin sem berjast gegn aö-
skilnaðarstefnunni í Suður-
Afríku, Lýðræðisbandalaginu
(UDF), lýstu því yfir í gær að
allar umbætur sem gengju
skemur en að veita meirihluta
blökkumanna í landinu fuli
áhrif á stjórn þess væru til-
gangslausar.
Flestir leiðtogar UDF eru
meðal þeirra 1.200 sem lögregla
og öryggissveitir hafa sett í fang-
elsi án dóms og laga í krafti her-
laganna sem gilda í landinu. Tals-
maður samtakanna sagði í gær að
Botha forseti væri augsýnilega
enn jjeirrar skoðunar að ekkert
mætti gera sem haggaði við völd-
um og forréttindum hvíta minni-
hlutans.
Reagan
Geimvopnatilraun haldið til streitu
Washington - Bandaríska
stjórnin kvaðst í gær staðráðin
í að halda til streitu tilraun til
að skjóta niður gervihnött yfir
Kyrrahafi þrátt fyrir harðorð
mótmæli stjórnarinnar í
Moskvu og bandarískra þing-
manna sem halda því fram að
þessi tilraun verði til þess eins
að herða á kjarnorkukapp-
hlaupinu.
Tilraunin fer þannig fram að
eldflaug með skothleðslu verður
skotið frá F-15 þotu að gömlum
bandarískum gervihnetti sem
ekki er lengur í notkun.
Alríkisdómstóll í Bandaríkjun-
um vísaði í fyrradag frá beiðni
bandarískra þingmanna og sam-
taka vísindamanna gegn kjarn-
orkuvá um að þessi tilraun yrði
dæmd ólögleg. Sama dag felldi
öldungadeild Bandaríkjaþings
tillögu þingmanna demókrata um
að tilrauninni yrði frestað fram
yfir fund þeirra Reagans og Gor-
batséfs í Genf í nóvembermán-
uði. Loks hafnaði Reagan beiðni
98 þingmanna úr fulltrúa-
deildinni um að fresta tilraun-
inni.
Sovéska stjórnin hefur mót-
mælt tilrauninni harðlega og sagt
að ef hún fari fram muni sovét-
menn taka að nýju upp tilraunir
með vopn gegn gervihnöttum
sem þeir hættu af sjálfsdáðum
fyrir tveimur árum.
Samtökin hvöttu til þess að all-
ir pólitískir fangar verði látnir
lausir og banni á starfsemi ýmissa
samtaka, svo sem Afríska þjóð-
arráðsins (ANC), verði aflétt.
Þótt flestir leiðtogar blökku-
manna hafi brugðist neikvætt við
tillögum Botha forseta um að
aflétta versu kúgunarlögunum
eru þeir til sem fagna þeim. Þann-
ig er því t.d. varið með Gatsha
Buthelezi leiðtoga blökkumanna
af zulu kynþætti en hann telur sex
miljónir manna. Sagði hann í gær
að tillögur Botha væru skref í
rétta átt og hvatti hann til að
nema vegabréfalögin úr gildi.
Lögregluyfirvöld tilkynntu síð-
degis í gær að þau hefðu ákveðið
að banna ráðstefnu á vegum
kirkjusamtaka sem halda átti í
Soweto. Þar átti Desmond Tutu
biskup að vera meðal ræðu-
manna en yfirvöld hafa einnig
meinað fimm erlendum kirkju-
leiðtogum sem ætiuðu að silja
ráðstefnuna inngöngu í landið.
Tutu brást við þessum fréttum
með því að spyrja hvort valdhaf-
arnir hefðu misst vitið. „Faðir
minn hafði gjarnan yfir málshátt
sem sagði að þeir sem guðirnir
vildu feiga misstu fyrst vitið“,
bætti hann við.
Óeirðimar í landinu héldu
áfram í gær. Þá skaut lögregla á
mannfjölda sem hafði umkringt
íbúðarskála lögreglumanna og
köstuðu til hans grjóti og bens-
ínsprengjum. 15 ára unglingur
var skotinn til bana.
árum. Uppruni flokksins er hjá
bændastéttinni en á undanförn-
um árum hefur hann reynt að
hasla sér völl sem helsti málsvari
umhverfisverndar auk þess sem
hann heldur á lofti valddreifingu.
Formaður flokksins er Thorbjöm
Fálldin, 59 ára að aldri og hefur
tvívegis verið forsætisráðherra.
Frjálslyndi flokkurinn var
stærstur borgaraflokkanna á
sjötta áratugnum en hefur hnign-
að mjög og fékk aðeins 21 mann
kjörinn árið 1982. Flokkurinn er
fylgjandi markaðsfrelsi en undir
eftirliti ríkisins og vill að velferð-
arkerfið verði sveigt meir að
þörfum einstaklingsins. Flokkur-
inn heldur á lofti jafnrétti kynj-
anna og vill halda uppi öflugu
hjálparstarfi við þróunarlönd.
Formaður flokksins er Bengt
Westerberg, 42 ára að aldri.
Þótt fimm flokkar eigi von á að
fá menn kjörna á sænska þingið
hefur kosningabaráttan að miklu
leyti snúist upp í einvígi tveggja
stærstu flokkanna og þó einkum
leiðtoga þeirra, Palme og Adel-
sohn. Kosningastjórar Palme eru
sagðir hafa reynt að halda aftur af
leiðtoga sínum þar sem hann á
það til að beita afburðagáfui' sín-
um og beittri kaldhæðni til að
mala andstæðinga sína. Vilja þeir
meina að þetta falli sænskum
kjósendum illa í geð og að það
hafi kostað jafnaðarmenn sigur-
inn í þingkosningunum árið 1976.
Adelsohn er alger andstaða
Palme og þykir opinskár og orð-
heppinn. Meðan Palme þykir
landsföðurlegur er Adelsohn
léttur á bárunni og gefinn fyrir að
ganga í áberandi fötum. Kosn-
ingastjórar moderata segjast hafa
reynt að kenna honum amerísk
vinnubrögð í kosningabarátt-
unni, svo sem að kyssa börn, en
það hafi ekki gengið. Honum láti
best að vera hann sjálfur og þótt
það kosti stundum mistök vinnur
hann sig út úr vandræðunum.
Þetta líka...
... Stjórnvöld í Perú hafa fyrir-
skipað opinbera rannsókn á at-
burðum sem urðu í þorpi í Andes-
fjöllum 14. ágúst sl. Þá er sagt að.
hermenn sem voru á höttunum
eftlr maóískum skæruliðum hafi
drepið 69 þorpsbúa. Yfir 6.000
manns hafl fallið í skæruhernaði
sem staðið hefur yfir í Perú í flmm
ár...
... Mlkil flóð hafa herjað í Svíþjóð
að undanförnu og eru þau verst i
mlðju landinu, uþb. 200 km fyrir
rsorðan Stokkhólm. Þar hafa miklar
rigningar valdið flóðum sem hafa
skolað burt járnbrautarteinum,
brúm og vegum. 20 þúsund manns
hafa orðið fyrir tjóni af völdum
flóðanna. Hætta er talin á nýjum
vatnavöxtum núna um helgina og
hafa 500 hermenn verið settir í við-
bragðsstöðu vegna þeirra ...
REUTER
Umsjón:
ÞRÖSTUR HARALDSSON
Laugardagur 14. september 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9