Þjóðviljinn - 14.09.1985, Page 10

Þjóðviljinn - 14.09.1985, Page 10
Okkur vantar starfsfólk til eftirtalinna starfa: Verkamannastarfa lagerstarfa (bónusvinna) afgreiðslustarfa skrifstofustarfa (ritara) innkaupa- og sölustarfa meiraprófsbílstjóra kjötiðnaðarmenn Umsóknareyðublöð og upplýsingar hjá starfsmanna- stjóra Sambandsins. SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉLAG A STARFSMANNAHALD LINDARGÖTU 9A TIL FISKVERKENDA OG ÚTGERÐARMANNA Höfum áhuga á kaupum á öllum rauðsprettuflökum sem þér getið framleitt, dökka hliðin af. Einnig smáþorski, heilfrystum, innanúrteknum með hausá. Sendist vikulega með íslenskum skipum til Bandaríkja N-Ameríku (austurströnd). Vinsamlega tjáið oss hve mikið magn er hægt að fá. OLAFUR JOHNSON 40 Wall Street, suite 2124, sírni: 212 344 6676,718 622 0615 telex: 4945457. Hússtjórnarskóli Reykjavíkur Sólvallagötu 12 Matreiðslunámskeið 1. Matreiðslunámskeið í 6 vikur. Kennt verður á mán- udögum og þriðjudögum kl. 19-22. 2. Matreiðslunámskeiðíðvikur. Kenntverðurmiðvik- udaga og fimmtudaga kl. 19-22. 3. Matreiðslunámskeiðí6vikur. Kenntverðurmið- vikudaga og fimmtudaga kl. 9.20-12.00. Nám- skeiðið er rekið í samvinnu við Félagsstofnun Reykjavíkurborgarog eingöngu ætlað lífeyrisþeg- um. 4. Stutt matreiðslunámskeið Kenntverðurkl. 13.30-16.30. Gerbakstur2dagar. Kökubakstur 2 dagar. Smurt brauð 2 dagar. Veislumatur 2 dagar. Sláturgerð og frágangur í frystikistu 3 dagar. Fisk- og síldarréttir 3 dagar. Glóðarsteiking 2 dagar. Jólavika. Kjörið fyrir fámenna hópa að koma saman og læra matreiðslu. Innritun og nánari upplýsingar í síma 11578 mánu- daga og fimmtudaga kl. 10-14. Skólastjóri Útboð - Sundlaug í Suðurbæ Byggingarnefnd sundlaugar í Suðurbæ, fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar, leitar tilboða í byggingu sund- laugar í Suðurbæ, annar útboðsáfangi, bygging búnings- og baðhúss. Húsinu skal skilað fokheldu og fullbúnu að utan 30. júní 1986. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræð- ings, Strandgötu 6, frá og með þriðjudeginum 17. september, gegn 5.000.- króna skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 1. októ- ber kl. 11. Byggingarnefnd sundlaugar í Suðurbæ. HEIMURINN Það er mikið kosið í Evrópu þessar vikurnar. Norðmenn gengu að kjörborðinu sl. mánu- dag og á morgun, sunnudag, verður kosið í Svíþjóð. Og svo eru kosningar á dagskrá í Belgíu og Portúgal í byrjun október. Með þessum kosningum fæst kannski úr því skorið hvort hægribylgjan sem skall yfír álfuna, í það minnsta norðanverða, í lok síð- asta áratugar er að fjara út eða hvort íhaldið í álfunni ætlar að festa sig í sessi. Margt bendir til þess að hægri- bylgjan sé í rénun. Til að mynda úrslit norsku þingkosninganna þar sem stjórn borgaraflokkanna lafir við völd í skjóli kosninga- kerfis sem er svo götótt að flokk- ar bæta við sig fulltrúum á þingi þótt þeir tapi atkvæðum. Sigur- vegari norsku kosninganna sl. mánudag var án nokkurs vafa Verkamannaflokkurinn undir forystu Gro Harlem Brundtland. Þjóðviljinn hefur mikið reynt að ná tali af henni en gengið brösug- lega. í gær náðum við hins vegaw' skottið á varaformanni flokksins, Einar Förde, og lögðum fyrir hann nokkrar spurningar um úr- slit kosninganna og horfurnar framundan í norskri og evrópskri pólitík. Fylgi af landsbyggðinni Fyrst báðum við Einar Förde að segja hvaða skýringar flokks- menn gefa sér á góðri útkomu í kosningunum. „Þær eru tvíþættar. í fyrsta lagi nutum við góðs af óvinsældum stjórnarinnar. Þær eru mestar í hinum dreifðari byggðum og hjá þeim hópum sem hafa orðið fyrir barðinu á þeirri stefnu stjornar- innar að breyta skiptingu Noregur Einar Förde varaformaður Verkamannaflokksins er talinn vera í vinstri armi þess flokks og er andstæðingur aðildar Noregs að Nató. Fyrir kosningarnar reyndu borgaraflokkarnir að nota hann sem grýlu á miðjukjósendur með því að segja að hann yrði gerður að utanríkisráðherra. „í Noregi blósa vinstrivindar” Einar Förde varafqrmaðurVerkamannaflokksins í einkaviðtali við Þjóðviljann, í Stórþinginu er nú gerbreyttur meirihluti í utanríkis- og varnarmólum lífsgæðanna og auka á ójöfnuð í samfélaginu. I öðru Iagi tókst okkur að koma fram sem sam- hentur flokkur og leggja fram stefnu sem féll í góðan jarðveg, a.m.k. hjá stórum hópum kjós- enda.“ - Hvaðan barst ykkur mest fyigi? „Við náðum góðum árangri úti á Iandsbyggðinni en útkoman í stærri bæjunum var ekki eins góð og við höfðum vonað.“ - En hvað með hópa eins og unga kjósendur? „Jú, meðal þeirra náðum við góðum árangri. Þetta eru bestu kosningar Verkamannaflokksins síðan 1969 hvað snertir fylgi ungs fólks. Það er hefð að fyrir hverjar kosningar eru haldnar svonefnd- ar skólakosningar þar sem þeir greiða atkvæði sem eru undir kosningaaldri. Við náðum góð- um árangri í þeim kosningum, allt upp í 60%, en það var sama uppi á teningnum og í almennu kosningunum að útkoman var ekki nógu góð í stærri bæjum eins og Osló, Stafangri og Björgvin.“ - Pví var haldið fram fyrir kosningar að svo gceti farið að konur réðu úrslitum kosning- anna. Hvernig gekk ykkur að höfða til kvenna? „Það virðist hafa gengið mjög vel, einkum meðal kvenna á aldr- inum 30-50 ára.“ Allt annar meiríhluti - En ykkur tókst ekki að fella stjórnina. Samt er sagt að vegna þess hve meirihluti hennar er knappur muni hún neyðast til að breyta stefnu sinni. „Já, og það er talað um það í blöðunum þessa dagana að áhrif kosninganna verði þau að flytja völdin frá ríkisstjóminni inn á Stórþingið. Það er líka sagt að Hægriflokkurinn hafi í hyggju að skipta um á ráðherrastólunum þannig að þingflokkurinn verði sterkari.“ (í Noregi gilda þær reglur að þingmaður sem verður ráðherra verður að afsala sér þingsæti sínu til varamanns. - Aths. Þjv.). - Má búast við stefnubreytingu í utanríkis- og varnarmálum? „Það er ljóst að meirihlutinn í þinginu er gerbreyttur eftir kosn- ingarnar. Að undanförnu hefur það komið fyrir nokkrum sinnum að þingið hefur tekið ákvarðanir í utanríkismálum með eins at- kvæðis meirihluta. Það gildir td. um stuðning Norðmanna við áætlanir Reagans forseta um „stjörnustríð“. f því máli er nú allt annar meirihluti. Sama gildir um kröfuna um kjarnorkuvopna- laus Norðurlönd. Okkur hefur tekist að fá til liðs við okkur eins- taka þingmenn úr stjórnarand- stöðunni en það hefur ekki verið auðvelt og væntanlega mun það ráðast af stöðu stjórnarinnar hverju sinni hvernig til tekst. En við munum að sjálfsögðu bera það mál upp fljótlega." - Gœti komið upp sama staðan og í Danmörku þar sem hœgri- stjórn neyðist til að framfylgja utanríkisstefnu sem jafnaðar- menn ráða mestu um? „Það er ekki hægt að segja til um það að svo stöddu en það er ljóst að stjórnin óttast að sú staða kunni að koma upp. Ég á von á að hún muni bregðast við slíkri stöðu með því að leita málamiðl- unar og leggja fram stefnu sem flestir geta fellt sig við.“ Vinstri-vindar - Nú voru úrslit kosninganna hagstæð vinstriflokkunum. Má líta á það sem teikn um að hægri- bylgjan sem svo mjög hefur verið talað um í Evrópu sé á undan- haldi? „Ef við lítum til Evrópu má sjá mörg merki þess að hægribylgjan sé að fjara út. Fyrsta teiknið voru kosníngarnar í Grikklandi. Og það er ljóst að í Noregi blása vinstri-vindar. Brátt verður kosið í Hollandi og þar bendir margt til þess að jafnaðarmenn komist til valda og sömu sögu er að segja frá Þýskalandi og Englandi. Það er því ekkert ólíklegt að vinstri- flokkar komist til valda í mörgum ríkjum Evrópu á næstu misser- um.“ —A sunnudaginn verður kosið í Svíþjóð. Áttu von á að úrslitin i Noregi hafi áhrifá þær kosningar og þá í hvaða veru? „Um það er erfitt að segja af því að úrslitin hér voru ekki ótví- ræð. Fyrir kosningar var sagt að ef okkur tækist að fella stjórnina myndi það ýta undir Olof Palme. Okkur tókst það ekki en samt unnum við á svo það er ekki víst að borgaraflokkarnir í Svíþjóð græði mikið á úrslitunum hiá okkur.“ _ þh. 10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. september 1985

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.