Þjóðviljinn - 14.09.1985, Page 13

Þjóðviljinn - 14.09.1985, Page 13
MENNING MIR Kvikmyndir frá Sovét lyndasýning um MIR að Fyrsta kvikmy haustsins í húsakynnum Vatnsstíg 10 verður nk. sunnu- dag, 15. septemberkl. 16. Sýndar verða fræðslu- og fréttamyndir frá Sovétríkjunum, m.a. um list- iðkun í Eystrasaltslýðveldunum. Skýringar á íslensku flytur Sergei Halipov dósent í Leningrad. Kvikmyndasýningar verða reglulegar hvern sunnudag kl. 16 að Vatnsstíg 10. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Tónlist Landreisa Vísnasöngvararnir Bergþóra Árnadóttir, Aðalsteinn Asberg Sigurðsson, Ola Nordskarfrá Noregi og Mecki Knif f rá Finn- landi eru nú að leggja af stað í landsreisursínar, sem spanna næstu þrjárvikurnar. Bergþóra og Ola munu ferð- ast saman og halda austur á bóginn og síðan norður, en þeir Aðalsteinn og Mecki fara vestur um land og síðan norður. Dúettarnir munu mætast á Kópaskeri og halda þar sameiginlega tónleika. Hér birtist listi yfif viðkomu- staði þeirra í næstu viku. Aðalsteinn og Mccki: 15. sept. Akranes 16. sept. Borgarnes 17. sept. Ólafsvík 18. sept. Grundarfjörður 19. sept. Búðardalur 20. sept. Sauðárkrókur 21. sept. Blönduós 22. sept. Akureyri. Salurinn Heit og köld akrýl- málverk Á þriðjudag kl. 13 opnaði Gunnar Karlsson aðra einka- sýningu í flotta galleríinu Sal- urinn að Vesturgötu 3. Sýnir hann í þetta skipti akrýlmál- verk máluð í heitum litum og miklum kulda austur í Finn- landiveturinn’83-’84. Sýningin verður opin frá 1 til 6 alla daga og eitthvað fram yfir helgi. Það eru fleiri en karlmenn sem skrifa leikrit, - nú auglýsir Þjóðleikhúsið leikritasamkeppni kvenna. Myndin er úr „Milli skinns og hörunds" eftir Ólaf Hauk Símonarson sem Þjóðleikhúsið sýndi í fyrra. Þjóðleikhúsið Garður Leikritasamkeppni framlengd Nýtt leikfélag var stofnað fimmtudaginn 29. ágústog ber það nafnið Gaman- leikhúsið. Þaðerbarnaleikfé- lag. Fyrsta leikrit leikhópsins verðurTöfralúðurinn eftir danska höfundinn Henning Fyrirlestur Heimspeki með börnum Sunnudaginn 15. september kl. 15.00 mun Hreinn Páls- son, M.A.,flytjafyrirlesturá vegum Félags áhugamanna um heimspeki sem nefnist: Heimspeki með börnum — Almenn kynning, námsefn- islýsing og rannsóknir. Hreinn lauk B.A. prófi í heimspeki og sögu við Há- skóla Islands, en hefur síðan dvalið við framhaldsnám í Bandaríkjunum, þar sem hann vinnur nú að doktors- verkefni við Michigan State University. Efni fyrirlesturs- ins, sem er í tengslum við doktorsverkefnið, ætti að vekja áhuga kennara og for- eldra, sem er í mun að börn í grunnskólum landsins eflist í rökvísri hugsun. Fyrirlesturinn verður fluttur í Lögbergi stofu 101, og er öllum heimill aðgangur. Nielsen, þýðandi er Anna Jeppesen, tónlist er eftir Per östergaard. Leikritið fjallar í stuttu máli um fjóra nágranna sem eru aldrei sammála, en dag einn kemur stúlka með dreka og þá snúast nágrannarnir á móti henni og drekanum, en að lokum verða allir vinir og þannig endar þetta skemmtilega leikrit. Leikstjórar eru Magnús Geir Þórðarson og Gottskálk Sigurðsson. Með aðal- hlutverk í leikritinu fer Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, hlutverk stúlkunnar. Við vonumst til að sýna leikritið um 20. október. Við vonum að Reykvíkingar kunni að meta þetta nýja leikfé- lag okkar. Vatnslita- myndir Á sunnudag 15. sept. verður opnuð í Samkomuhúsinu, Garði sýning á verkum Braga Einarssonar. Á sýningunni, sem er sölusýning, verðaein- göngu vatnslitamyndir. Þetta erfyrstaeinkasýning Braga. Sýningin verður opin kl. 14-20 um helgar, og kl. 19.30-22 virka daga. Sýningunni lýkur 22. sept- ember. Leiklist Gaman leikhúsið Síðastliðið vor ákvað Þjóð- leikhúsið að efna til sam- keppni meðal kvenna um gerð einþáttunga fyrir leiksvið, í tilefni af lokum Kvennaáratugar Sameinuðu þjóðanna. Samkeppni þessi var auglýst í maí og skilafrest- ur var 1. septembersl. Nú hef- ur verið ákveðið að fram- lengja þennan skilafrest til 24. október nk. og geta höfundar því enn skilað inn handritum á skrifstofu Þjóðleikhússins að Lindargötu 7. í boði eru þrenn verðlaun, 1. verðlaun eru 50 þúsund, 2 verð- laun 30 þúsund og 3. verðlaun 20 þúsund. Dómnefnd sem var skipuð af Þjóðleikhúsráði er leynileg og er það gert, að sögn Þjóðleikhússtjóra Gísla Alfreðs- sonar, til að ekki sé hægt að hafa áhrif á störf hennar. Ljóðlistarhótíð Verði hlufi af íslensku menningarlífi Safnrityfiríslenska Ijóðlistá spœnsku og annað með Ijóðum hátíðargesta á íslensku Það hefur verið ákveðið að gera Ijóðlistarhátíð að föstum þætti í menningarlífinu og að hafa slíka hátíð hvert oddaár héráíslandi.sagði Knut Öde- gárdforstjóri Norrænahúss- ins. Við munum fara þess á leit við Norðurlandaráð að ljóðlistarhá- tíð verði fastur liður í fjáráætlun- um þeirra. Næsta ljóðlistarhátíð verður því að forfallalausu haldin hér 1987. Þá var samþykkt að undirrita áskorun sem send verður æðstu stjórn Sovétríkjanna þar sem far- ið verður þess á leit að Sovétrfkin leyfi syni Tarkovskyhjónanna að fara úr landi og sameinast fjöl- skyldu sinni. Við gerum ráð fyrir að öll ljóðskáldin sem tóku þátt í hátíðinni undirriti áskorunina því hér er um að ræða frelsi lista- mannsins og tjáningarfrelsið. Spænska ljóðskáldinu Jorge Justo Pedrón var boðið að dvelja í Norræna húsinu í einn og hálfan mánuð á næsta ári til að ljúka við safnrit um íslenska ljóðlist fram til ársins 1985. Ljóðin mun hann þýða yfir á spænsku og bókin hugsuð sem kynning á íslenskri ljóðlist fyrir hinn spænskumæl- andi heim. Einnig er í bígerð að gefa út safnrit með ljóðum þeirra skálda sem á hátíðina komu en eftir er að finna peninga til að kosta þá útgáfu. Ljóðin verða birt bæði á frummálinu og í íslenskri þýð- ingu. Þátttakendur hátíðarinnar kepptust síðan við að ljúka lofi á þessa hátíð og öllu skipulagi hennar og féllu þar mörg ljóðræn orð sem of langt yrði eftir að hafa. -aró MIKILL SPARNAÐUR E2lE Raðveggir kosta ekki meira en efni í milliveggi þar sem hefðbundinni aðferð er beitt. Vegna þess að veggirnir koma samsettir frá verksmiðjunni og eru auðveldir í gppsetningu eru dæmi um allt að 80% tímasparnað. Sölustaðir Reykjavík Akranes Siglufjörður Akureyri Egilsstaðir Neskaupstaður Vestmannaeyjar Selfoss Keflavík Innréltingomiðstöðin Guðlaugut Mognússon Btjtut N. Bynot Trésmiðja Fljðtsdalshéraðs Valmi hf. Brimnes G. Á. Bððvarsson Byggingaval Ármúla 17a Skarðsbraut 19 Rðnargðtu 16 Glerórgðtu 30 Fellabœ B-gðtu 3 Strandvegi 54 Austurvegi 15 Iðavðllum 10 Slmar 91-84585. 84461 Slmi 93-2651 Slmi 96-71333 Sími 96-26449 Simi 97-1700 Slmi 97-7605 Slmi 98-1220 Simi 99-1335 Slmi 92-4500 ffl isaoa FJALAR h/f Húsavík Sími 96-41346

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.