Þjóðviljinn - 14.09.1985, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 14.09.1985, Blaðsíða 14
UM HELGINA Vilt þú leggja öldruðum lið? Við leitum að starfsfólki á öllum aldri - ekki síst eldri konum, sem hafa tíma aflögu til að sinna öldruðum. Vinnutími eftir samkomulagi, allt frá 4 tímum á viku upp í 40 tíma. Liðsinni þitt getur skipt sköpum fyrir aldraðan, sem e.t.v. hefur beðið vikum saman eftir lítilsháttar aðstoð. Vinsamlegast hafðu samband við Heimilisþjónustu Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar, Tjarnar- götu 11, sími 18800. Stýrimann vantar á mb Hamar SH 224 sem er að hefja síldveiðar með hringnót. Upplýsingar hjá skipstjóra í síma 93-6652. Innritun íalmennaflokka Eftirtaldar greinar eru í boði á haustönn 1985 í Náms- flokkum Reykjavíkur, Miðbæjarskóla: Tungumál: íslensk málfræði og stafsetning. íslenska fyrir útlendinga. Danska 1 .-4. flokkur. Norska 1 .-4. fl. Sænska 1 .-4. fl. Enska 1 .-5. fl. Þýska 1 .-4. fl. ítalska 1 .-3. fl. ítalskar bókmenntir. Spænska 1 .-4. fl. Spænskar bókmenntir. Spænska samtalsfl. Franska 1 .-3. fl. Hebreska. Gríska. Rússneska. Portúgalska. Esperanto. Kínverska. Tölvunámskeið (basic, logo). Vélritun. Bókfærsla. Stærðfræði. Leikfimi. Verklegar greinar: Sníðar og saumar. Teiknun og málun. Formskrift. Postulínsmálun. Myndvefnaður. Hnýtingar. Bótasaumur. Innritun fer f ram í Miðbæjarskóla 17. og 18. sept. kl. 16-20. Kennslugjald greiðist við innritun. Aðalfundur Aðalfundur Byggingasamvinnufélags Kópavogs verður haldinn laugardaginn 21. sept. 1985 kl. 14.00 í Þinghól Hamraborg 11. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. ^RARIK ^ RAFMAGNSVE(TUR RlKISINS Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir að ráða starfsmann til starfa á framkvæmdaáætlanadeild stofnunarinnar. DEILDARSTJÓRI Starfið er fólgið í stjórn framkvæmdaáætlanadeildar, m.a. gerð 2ja og 5 ára framkvæmdaáætlana, kerfisat- hugunum og hagkvæmnisathugunum. Hér er um fjöl- breytt og sjálfstætt starf að ræða sem krefst alhliða þekkingar á raforkukerfum. Leitað er að aðila með próf í raforkuverkfræði/-tækni- fræði eða aðila með sambærilega menntun. Upplýsingar um starfið veitir yfirverkfræðingur áætl- anadeildar, tæknisviðs RARIK í síma 91-17400. Umsóknum er greini menntun og fyrri störf ber að skila til starfsmannadeildar Rafmagnsveitna ríkisins, fyrir 1. október 1985. Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 105 Reykjavík Fimmtíu tónleikar á starfsárinu Þaraf 40 utan Reykjavíkur íslenska hljómsveitin er nú að taka sitt annað skref. Fyrsta skrefið var tekið með stof nun hljómsveitarinnar þann 2. sept. 1981. Stofnendurvoru8 áhugamenn um tónlist: Ás- geirSigurgestsson, Guð- mundurEmilsson, Guðný Guðmundsdóttir, Hafsteinn Guðmundsson, Ingjaldur Hannibalsson, Jón Örn Mar- inósson, Sigurður I. Snorra- son og Þorkell Jóelsson. Síð- ar bættust þau I hópinn Sess- elja Halldórsdóttirog Þor- steinn Hannesson. Með þv.ssum orðum hóf Guö- mundur Emilsson, fram- kvæmdastjóri hljómsveitar- innarfund meðfrétta- mönnum, sem hann hélt ný- lega, ásamt þeim Sigurði I. Snorrasyni og Guðrúnu The- ódóru Sigurðardóttur. Fjölbreytni í verkefnavali hef- ur verið mikil. Við höfum flutt 124 tónverk. Fjölmörg þeirra hafa ekki áður verið flutt á fs- landi og 24 þeirra beinlínis samin fyrir hljómsveitina og frumflutt af henni. Um 40 einsöngvarar og einleikarar hafa komið fram og 23 íslenskt tónverk hafa verið hljóðrituð. Hljómsveitinni hefur verið mjög vel tekið bæði af gagnrýnendum og öðrum áheyr- endum. Annað skrefið hyggjumst við svo taka nú með því að stórauka umsvif hljómsveitarinnar. A komandi starfsári munum við efna til 10 tónleika í Reykjavík. Tvennir þeirra verða raunar á Bessastöðum því forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, hefur orðið við þeirri ósk okkar, að fá að flytja þá í kirkjunni þar. En auk þess er hugmyndin að halda þessa tónleika alla á fjórum stöð- um utan Reykjavíkur: í Hafnar- firði, í Keflavík, á Selfossi og á Akranesi. Þannig eru 50 tón- leikar fyrirhugaðir á starfsárinu. Aukning á tónleikahaldinu, mið- að við 1. starfsárið, er þannig 400% Áskriftartónleikar úti á landi, í þeim mæli, sem fyrirhug- að er, er auðvitað djörf ákvörð- un. En ef vel tekst til markar þetta tímamót. Reykjavíkur- markaðurinn er mettur. En hug- mynd okkar hefur frá upphafi verið sú, að færa lifandi tónlist út á landsbyggðina. Hér er stórt skref stigið á þeirri braut. - mgh Einar Karl Árni Ingibjörg Magnús Þór Á sunnudaginn 15. september opnar Æskulýðsfylkingin í Reykjavík pólitískt kaffihús á Hverfisgötu 105. ÍSLAND ÚR NATO - HERINN BURT Eigum við að reyna aðrarjeiðir eða ekki? Einar Karl Haraldsson og Árni Hjartarson leiða saman hesta sína og takast á um ólík sjónarmið til herstöðvarmálsins - NATO. Ingibjörg Haraldsdóttir les Ijóð og hinn landsþekkti Magnús Þór Sigmundsson mætir með gítarinn sinn. Það er því óhætt að segja að það verði ómenguð kaffihúsa- stemmning á Hverfisgötu 105 á sunnudaginn. Komdu og taktu þátt í umræðunni um herstöðvarmálið og njóttu Ijóðalesturs og tónlistar. Húsið opnað klukkan 14.00, umræðan um Nato byrjar 15.00. Allir hjartanlega velkomnir Æskulýðsfylkingin í Reykjavík 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. september 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.